Heilsa

Ekkert betra en eldhúsið: Sesam kjúklingabringur með appelsínusósu

Davíð Olgeirsson fjárfesti nýverið í grillpönnu sem hann hefur notað óspart síðan.
Davíð Olgeirsson fjárfesti nýverið í grillpönnu sem hann hefur notað óspart síðan. MYND/Pjetur

Tónlistarmaðurinn Davíð Olgeirsson nýtur sín vel í eldhúsinu sínu. Þar er það oftast kjúklingur sem ratar í pottana.

„Við eldum mikið á þessu heimili,“ sagði Davíð. „Við erum líka mikið kjúklingafólk, eins og okkar kynslóð er. Þegar ég var að alast upp var mikið um salmonellu um tíma. Foreldrar mínir hættu alveg að kaupa kjúkling í nokkur ár. Ætli maður sé ekki að bæta upp fyrir það núna,“ segir hann sposkur.

Þó að Davíð hafi lengi verið liðtækur í eldhúsinu segir hann matreiðsluáhugann hafa aukist eftir að hann flutti í Bryggjuhverfið. „Eldhúsið okkar er svo æðislegt. Það er opið, svo að maður er aldrei frá fólkinu, og svo er sjávarútsýni. Það er bara ekkert skemmtilegra en að standa í eldhúsinu,” sagði Davíð.

Hann er einnig hrifinn af eldhústækjum, og fjárfesti til dæmis nýlega í pönnunni góðu í Ikea. „Hún hefur verið óspart notuð síðan. Þetta er grillpanna, sem kemur í staðinn fyrir grillið á veturna. Svo gerir hún mjög fallegar rendur í steikurnar,“ sagði Davíð, sem er einmitt umhugað um útlit matrétta. „Mér finnst það vera mikið atriði, þó að fimm ára prinsessan sé ekki endilega sammála.”

Kjúklingabringurnar í uppskriftinni sem Davíð deilir með lesendum segir hann best að steikja í 10-12 mínútur á hvorri hlið. Davíð mælir einnig hiklaust með smjöri á pönnuna. „Mér finnst bragðið sem það gefur svo gott,“ sagði hann. Að lokum mælir hann með snöggsteiktum sykurbaunum sem meðlæti.

Sesam kjúklingabringur með appelsínusósu

fyrir 4

4 skinnlausar kjúklingabringur

2 msk Dijon sinnep

3 msk fljótandi hunang

3 msk balsamic olía

2 msk sesamfræ

Salt og pipar

1 appelsína

Sósan

1 msk smjör

2 msk hveiti

1 teningur kjúklingakraftur

1 bolli vatn

1/2 bolli appelsínusafi

2 msk fínt rifinn appelsínubörkur

2 msk sykur

2 msk edik

1 msk sítrónusafi

skvetta af Cointreau ef vill



Fyrst er að búa til maríneringu. Olíu, sinnepi, hunangi og appel­sínu­safa er blandað saman. Sesamfræjum er bætt við og salti og pipar eftir smekk. Kjúklingabringunum velt upp úr maríneringunni og þær smjörsteiktar á pönnu við meðalhita. Bræddu smjöri og hveiti hrært vel saman. Kjúklingakrafturinn er leystur upp í vatninu og því bætt við, ásamt appelsínusafa og -berki. Hrærið í þar til sýður, látið malla í 1-2 mínútur. Sykri og ediki blandað saman í öðrum potti og hitað þar til blandan verður gullin. Hinni blöndunni er hrært saman við. Potturinn tekinn af hitanum og sítrónusafa og Cointreau bætt við ef vill.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×