Fleiri fréttir Gyorgy Ligeti látinn Gyorgy Ligeti, tónskáldið austurríska sem samdi meðal annars tónlistina við kvikmyndina 2001: A Space Odyssey, er látinn, 83 ára að aldri. Ligeti var talinn mikill frumkvöðull á sínu sviði og þótti tónlist hans afar framúrstefnuleg á sínum tíma. 14.6.2006 10:30 Gárur á vegg Ljósmyndasafn Reykjavíkur opnar sýningu á ljósmyndum Vigfúsar Birgissonar í Skotinu á fimmtudaginn kl.16. Ljósmyndunum, sem sýna yfirborð sjávar, verður varpað úr skjávarpa á 150x190 cm stóran vegg. 14.6.2006 10:00 Eminem í vestra? Bandaríski rapparinn Eminem mun hugsanlega taka að sér hlutverk í vestranum Have Gun, Will Travel. 14.6.2006 08:30 Drengur í heiminn Gamanleikarinn Jack Black og eiginkona hans Tanya Haden eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum. Var það heilbrigður drengur sem kom í heiminn. „Ég ætla að vera besti pabbi í heimi og ég ætla að taka þátt í keppninni um besta pabbann í heiminum. Síðan ætla ég að vinna hana,“ sagði Black. „Konan er heima í rólegheitunum og ég get ekki beðið eftir því að koma heim,“ sagði hann á frumsýningu kvikmyndarinnar Nacho Libre. 14.6.2006 08:00 Damon orðinn pabbi Leikarinn góðkunni Matt Damon og eiginkona hans Luciana Bozan eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum, stúlku sem hefur fengið nafnið Isabella. Nýbökuðu foreldrarnir giftu sig í desember árið 2005. 14.6.2006 07:30 Fréttir af fólki Um fimmtán þúsund manns skemmtu sér vel á tónleikum Roger Waters, fyrrum forsprakka Pink Floyd, í Egilshöll í fyrrakvöld. Í áhorfendaskaranum sást til söngkonunnar knáu Birgittu Haukdal, auk þess sem útvarpskonan Andrea Jónsdóttir, kokkurinn Siggi Hall, Jói í Idol og tónlistarspekúlantinn Skúli Helgason voru öll mætt til að hlýða á kappann. Má telja ólíklegt að þau hafi orðið fyrir vonbrigðum með það mikla sjónarspil sem boðið var upp á. 14.6.2006 07:00 Tælandi taílensk hátíð Taílendingar sem og Íslendingar lögðu leið sína í Ráðhús Reykjavíkur á laugardag í tilefni af 60 ára valdaafmæli Taílandskonungs, hans hátignar Bhumibol Adulayadej. 13.6.2006 15:00 Todmobile á Nasa Hljómsveitin Todmobile heldur tónleika á Nasa á föstudagskvöld. Todmobile er nú að undirbúa nýja plötu sem væntanleg er í haust. Verður það fyrsta plata sveitarinnar með nýju efni í tíu ár. Síðast gaf hún út plötu þar sem hún spilaði með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Aðdáendur sveitarinnar fá forsmekk af nýju plötunni þegar lag af henni byrjar að hljóma á útvarpsstöðvum í júlí. 13.6.2006 14:00 Skuggaleg fortíð eða lygi? News of the World birti í sunnudagsblaði sínu frétt um að fyrrverandi eiginkona Paul McCartney, fyrirsætan Heather Mills, hefði verið vændiskona og þjónað arabískum prins og alræmdum vopnasala. Mills neitar staðhæfingum blaðsins í yfirlýsingu sem barst breskum fjölmiðlum í gær. 13.6.2006 13:00 Sigur Rós heiðruð Myndband við lag Sigur Rósar, Glósóli, var valið besta rokkmyndbandið á Sköpunar- og hönnunarverðlaununum sem voru afhent í Hammersmith Palais í London á dögunum. 13.6.2006 12:00 Í Sviss með Zutons Hljómsveitin Ampop er nýkomin heim úr tónleikaferðalagi þar sem hún hitaði meðal annars upp fyrir ensku sveitina The Zutons á tvennum tónleikum í Sviss. 13.6.2006 11:00 Okkar rómantíska fortíð Á sumarsýningu Minjasafnsins á Akureyri geta gestir fræðst um brúðkaup að fornu og nýju. Sýningin Ef þú giftist geymir forvitnilega muni og myndir, þar á meðal elstu áletruðu ástarjátninguna sem fundist hefur hérlendis. 13.6.2006 11:00 Ham á Nasa Rokksveitin Ham heldur tónleika á Nasa fimmtudaginn 29. júní ásamt hljómsveitinni 9/11"s. Ham lagðist í dvala eftir tónleika í Tunglinu árið 1994. Eftir það kom sveitin aftur saman þegar hún hitaði upp fyrir Rammstein í Laugardalshöllinni fyrir fimm árum auk þess sem hún spilaði á Hætta-tónleikunum í Höllinni þann 7. janúar síðastliðinn. 13.6.2006 10:00 Getur ekki toppað Hótel Tindastól Enski gamanleikarinn John Cleese er hættur að semja og leika í gamanþáttum vegna þess að hann telur sig ekki geta toppað hina vinsælu þáttaröð Fawlty Towers, eða Hótel Tindastóll. 13.6.2006 09:00 Fjörugur bryggjudagur Á laugardag buðu íbúar og fyrirtæki við Kópavogshöfn íbúum Kópavogs og öðrum nágrönnum sínum til mikillar bryggjuhátíðar. Hátíðin hófst á tónlistardagskrá með skólahljómsveit Kópavogs og ræðu sem bæjarstjórinn, Gunnari Birgisson, hélt. 13.6.2006 08:00 Atriði klippt út í Kína Kvikmyndaeftirlitið í Kína hefur klippt út nokkur atriði í hasarmyndinni Mission Impossible III vegna ofbeldis og menningarlegra tilvísana. Í myndinni er Shanghæ lýst sem niðurníddri og fátækri borg og það kunnu yfirvöld í Kína ekki að meta. 13.6.2006 07:00 Allir geta lært að syngja Söngkonan Ingveldur Ýr hefur kennt ungum sem öldnum að syngja og beita rödd sinni rétt. Í sumar heldur hún námskeið fyrir unglinga og fullorðna þar sem jafnvel þeir sem hljóma eins og laglausir gaularar geta lært að syngja. 13.6.2006 06:00 Bætist við dagskrá Iceland Airwaves 2006 Fjöldi listamanna bætast við dagskrá Iceland Airwaves 2006. Má þar nefna Daníel Ágúst, Jagúar, Eberg, Seabear, Fræ, Jeff Who? og 15 aðra listamenn 12.6.2006 12:03 Guðni, Einar Oddur og Helgi Hjörvar Margt góðra gesta verður í þættinum Pressan á NFS á morgun, sunnudag. Róbert Marshall umsjónarmaður fær til sín Guðna Ágústsson, Einar Odd Kristjánsson og Helga Hjörvar. Ennfremur ræða blaðamennirnir Pétur Gunnarsson, Haukur Holm, Björg Eva Erlendsdóttir og Arna Schram tíðindi liðinnar viku. 11.6.2006 02:30 Bryggjudagur í Kópavogi á morgun Íbúar og fyrirtæki við Kópavogshöfn hafa ákveðið að bjóða Kópavogsbúum og öðrum nágrönnum sínum til bryggjuhátíðar á morgun laugardaginn 10. júní nk. 9.6.2006 15:30 Góð garðsláttuþjónusta á Seltjarnarnesi Þorgrímur Sólon Þorgrímsson, 15 ára Nesbúi hefur nú annað starfsár sitt við Garðsláttuþjónustu á Seltjarnarnesi. Hann hjólar um nesið með sláttuvél og orf í eftirdragi og býður garðslátt gegn vægri greiðslu. 9.6.2006 15:00 Bryggjudagur við Kópavogshöfn á morgun Svokallaður Bryggjudagur verður haldinn í fyrsta sinn í Kópavogi á morgun. Það eru íbúar og fyrirtæki sem eru í nágrenni hafnarinnar sem standa fyrir viðburðinum en markmiðið er að vekja athygli Kópavogsbúa og nágranna þeirra á höfninni og nágrenni hennar. 9.6.2006 15:00 Ægisborg 25 ára í dag Leikskólinn Ægisborg heldur uppá 25 ára afmælið sitt í dag 9. júní. Í tilefni dagsins verður efnt til hátíðar í skólanum sem hefst kl.15:00 og stendur til kl.17:00. 9.6.2006 13:15 REYKJAVIK.COM og REYKJAVIKMAG 9.6.2006 11:00 Föstudagsflipp í dag í miðborginni Fyrsta Föstudagsflipp sumarsins hefst í dag í miðborg Reykjavíkur þar sem að Skapandi sumarhópar Hins Hússins munu bera á borð , listir menningu og önnur fíflalæti frá kl: 13:00.-15:00. Það er búið að panta sól og blíðu og því von á miklu stuði í miðbænum í dag. 9.6.2006 10:35 Sirrý snýr aftur á skjáinn Næstkomandi sunnudag, 11. júní, hefur göngu sína nýr viðtalsþáttur í umsjá Sigríðar Arnardóttur - eða Sirrýjar. Þátturinn hefur fengið nafnið Örlagadagurinn. 9.6.2006 10:07 Ný útvarpsstöð í loftið á Akureyri VOICE er ný útvarpsstöð sem fer í loftið klukkan 09:06 föstudaginn 9.júní. Markhópur stöðvarinnar er 18-35 ára og er útsendingarsvæðið Akureyri og nágrenni. 8.6.2006 17:00 Dagur hinna villtu blóma Þann 18. júní næstkomandi verður haldið upp á dag hinna villtu blóma á öllum Norður¬löndunum. Þá verður efnt til tveggja tíma blómaskoðunar á 13 stöðum vítt og breitt um landið, með leiðsögn plöntufróðra manna. 8.6.2006 17:00 Mögnuð tónlistarveisla í Reykjavík Hin nýafstaðna Reykjavík Trópík tónleikahátíð var með eindæmum skemmtileg og virkilega góð ára yfir hátíðinni. Hálf fasískir tilburðir lögreglunnar í Reykjavík til þess að bæla hana niður voru hins vegar skammarlegir, tilllitslausir og hrokafullir. 8.6.2006 15:00 Urtan Kobba kæpti í nótt Í nótt kæpti urtan Kobba og heilsast móður og afkvæmi vel. Særún kæpti 5. júní síðast liðinn og er Kobba því önnur urtan í Húsdýragarðinum sem búin er að kæpa. Faðirinn er selurinn Snorri en fyrir á hann urtuna Esju sem mun ekki gegna neinu sérstöku hlutverki við uppeldi systkina sinna nema helst að kenna þeim skemmtileg sundtök í lauginni. 8.6.2006 10:30 Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld Sigrún Eðvaldsdóttir leikur nýjan fiðlukonsert eftir Áskel Másson Sjostakovitsj-hringurinn heldur áfram og nú er komið að 11. sinfóníunni 8.6.2006 10:30 Silvía Nótt tekur upp plötu "Já, ég get staðfest það að Silvía Nótt er að taka upp plötu en ég get ekki sagt mikið meira en það," segir Gaukur Úlfarsson, umboðsmaður Silvíu Nætur. Lítið hefur heyrst frá Silvíu eftir að hún fór fyrir Íslands hönd í Eurovision á dögunum en eftir það skellti hún sér í frí á eyjunni Mýkonos. 7.6.2006 11:30 Ökukeppni á vinnutækjum Í síðustu viku fór fram Norðurlandamót í ökuleikni á vinnutækjum sem notuð eru í álverum. Keppnin fór fram á lóð Álversins við Straumsvík og mættu starfsmenn níu álvera frá Íslandi, Svíþjóð og Noregi til leiks. 3.6.2006 15:00 Ætlar að slá heimsmet Englendingurinn Roger Field stefnir að því að verða sú persóna sem fær mesta umfjöllun í dagblöðum og tímaritum víðsvegar um heim. Roger fékk hugmyndina eftir að hann hitti Arnold Schwarzenegger árið 1968 í Munchen áður en hann fluttist til Bandaríkjanna og sló í gegn sem kvikmyndastjarna. 3.6.2006 14:00 Þröngskífa frá Changer Rokksveitin Changer hefur gefið út þröngskífuna Breed the Lies sem hefur að geyma fjögur lög. Changer hefur áður gefið út tvær breiðskífur og eina þröngskífu síðan hún var stofnuð árið 1999. 3.6.2006 13:00 Veit hvað hann syngur Paul Smith var aðeins 15 ára gamall þegar hann hóf störf í tískuheiminum. Smith byrjaði sem sendill í vöruhúsi en hefur jafnt og þétt unnið sig uppá við, svo hægt sé til orða tekið. Hann er í dag meðal fremstu hönnuða Bretlands, þekktur fyrir vandaða og flotta vöru. 3.6.2006 12:00 Útrás íslenskra listamanna Íslendingar eru áberandi bæði í Kaupmannahöfn og London um hvítasunnuhelgina. Fjöldi íslenskra hönnuða tekur þátt í hönnunarsýningu í London sem kallast Grand design. 3.6.2006 11:30 Tvöfalt frá Mannakornum Hljómsveitin Mannakorn gefur út plötuna Ekki dauðir enn á næstunni. Á plötunni, sem tvöföld, eru upptökur frá þrjátíu ára afmælistónleikum sveitarinnar í Salnum í Kópavogi þar sem fjögurra manna strengjasveit var henni til halds og trausts. Bæði eru gömul og ný lög með Mannakornum á plötunni. Þetta er fyrsta platan sem Sögur útgáfa gefur út. 3.6.2006 11:00 Syndafall í stiganum Nýjasti bar bæjarins, Barinn við Laugaveg 22, skartar skemmtilegum veggskreytingum sem vakið hafa ómælda eftirtekt gesta. Listamennirnir sem heiðurinn eiga af verkunum heita Guðmundur Hallgrímsson og Friðrik Svanur Sigurðarson, betur þekktir sem Mundi og Morri, en þeir nema báðir grafískra hönnun við Listaháskóla Íslands. 3.6.2006 10:45 Sveitamarkaður í sláturhúsi Í sumar verður starfræktur sveitamarkaður í gamla sláturhúsinu við Laxá í Leirársveit. Markaðurinn verður opinn alla sunnudaga í sumar frá kl. 13-18. Fyrsti opnunardagur er um helgina en hann lendir reyndar á laugardegi. 3.6.2006 10:30 Sextíu aukalög frá Bubba Í tilefni af fimmtugsafmæli Bubba Morthens þann 6. júní munu Íslenskir tónar gefa út níu af fyrstu sólóplötum Bubba í veglegum afmælisbúningi þennan sama dag. 3.6.2006 10:00 Orðinn frískur Keith Richards, gítarleikari Rolling Stones, hefur náð fullum bata eftir að hafa gengist undir heilaskurðaðgerð á dögunum. Stones hefja tónleikaferð sína um Evrópu í Mílan þann 11. júlí næstkomandi en ferðin átti upphaflega að hefjast í Barcelona fyrir viku síðan 3.6.2006 09:45 Oasis á toppnum Fyrsta plata ensku hljómsveitarinnar Oasis, Definitely Maybe frá árinu 1994, hefur verið kjörin besta plata allra tíma. Um 40 þúsund tónlistaráhugamenn tóku þátt í valinu sem tímaritin NME og British Hit Singles and Albums stóðu fyrir. 3.6.2006 09:00 Ný myndasaga hefur göngu sína Eins og glöggir lesendur Fréttablaðsins tóku eftir í morgun hefur myndasagan Pú&Pa verið kvödd. Í staðin er komin verðlaunasagan Handan við hornið eða Insanity Streak eftir Tony Lopes. 3.6.2006 08:30 Lánað tónlist í fjörtíu ár Í árslok verða fjörutíu ár ár liðin frá því að tónlistardeild Bókasafns Hafnarfjarðar hóf að lána út plötur. Deildin, sem sú stærsta sinnar tegundar, var lengi vel sú eina sem gerði slíkt á íslensku almenningsbókasafni. 3.6.2006 08:00 Sjá næstu 50 fréttir
Gyorgy Ligeti látinn Gyorgy Ligeti, tónskáldið austurríska sem samdi meðal annars tónlistina við kvikmyndina 2001: A Space Odyssey, er látinn, 83 ára að aldri. Ligeti var talinn mikill frumkvöðull á sínu sviði og þótti tónlist hans afar framúrstefnuleg á sínum tíma. 14.6.2006 10:30
Gárur á vegg Ljósmyndasafn Reykjavíkur opnar sýningu á ljósmyndum Vigfúsar Birgissonar í Skotinu á fimmtudaginn kl.16. Ljósmyndunum, sem sýna yfirborð sjávar, verður varpað úr skjávarpa á 150x190 cm stóran vegg. 14.6.2006 10:00
Eminem í vestra? Bandaríski rapparinn Eminem mun hugsanlega taka að sér hlutverk í vestranum Have Gun, Will Travel. 14.6.2006 08:30
Drengur í heiminn Gamanleikarinn Jack Black og eiginkona hans Tanya Haden eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum. Var það heilbrigður drengur sem kom í heiminn. „Ég ætla að vera besti pabbi í heimi og ég ætla að taka þátt í keppninni um besta pabbann í heiminum. Síðan ætla ég að vinna hana,“ sagði Black. „Konan er heima í rólegheitunum og ég get ekki beðið eftir því að koma heim,“ sagði hann á frumsýningu kvikmyndarinnar Nacho Libre. 14.6.2006 08:00
Damon orðinn pabbi Leikarinn góðkunni Matt Damon og eiginkona hans Luciana Bozan eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum, stúlku sem hefur fengið nafnið Isabella. Nýbökuðu foreldrarnir giftu sig í desember árið 2005. 14.6.2006 07:30
Fréttir af fólki Um fimmtán þúsund manns skemmtu sér vel á tónleikum Roger Waters, fyrrum forsprakka Pink Floyd, í Egilshöll í fyrrakvöld. Í áhorfendaskaranum sást til söngkonunnar knáu Birgittu Haukdal, auk þess sem útvarpskonan Andrea Jónsdóttir, kokkurinn Siggi Hall, Jói í Idol og tónlistarspekúlantinn Skúli Helgason voru öll mætt til að hlýða á kappann. Má telja ólíklegt að þau hafi orðið fyrir vonbrigðum með það mikla sjónarspil sem boðið var upp á. 14.6.2006 07:00
Tælandi taílensk hátíð Taílendingar sem og Íslendingar lögðu leið sína í Ráðhús Reykjavíkur á laugardag í tilefni af 60 ára valdaafmæli Taílandskonungs, hans hátignar Bhumibol Adulayadej. 13.6.2006 15:00
Todmobile á Nasa Hljómsveitin Todmobile heldur tónleika á Nasa á föstudagskvöld. Todmobile er nú að undirbúa nýja plötu sem væntanleg er í haust. Verður það fyrsta plata sveitarinnar með nýju efni í tíu ár. Síðast gaf hún út plötu þar sem hún spilaði með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Aðdáendur sveitarinnar fá forsmekk af nýju plötunni þegar lag af henni byrjar að hljóma á útvarpsstöðvum í júlí. 13.6.2006 14:00
Skuggaleg fortíð eða lygi? News of the World birti í sunnudagsblaði sínu frétt um að fyrrverandi eiginkona Paul McCartney, fyrirsætan Heather Mills, hefði verið vændiskona og þjónað arabískum prins og alræmdum vopnasala. Mills neitar staðhæfingum blaðsins í yfirlýsingu sem barst breskum fjölmiðlum í gær. 13.6.2006 13:00
Sigur Rós heiðruð Myndband við lag Sigur Rósar, Glósóli, var valið besta rokkmyndbandið á Sköpunar- og hönnunarverðlaununum sem voru afhent í Hammersmith Palais í London á dögunum. 13.6.2006 12:00
Í Sviss með Zutons Hljómsveitin Ampop er nýkomin heim úr tónleikaferðalagi þar sem hún hitaði meðal annars upp fyrir ensku sveitina The Zutons á tvennum tónleikum í Sviss. 13.6.2006 11:00
Okkar rómantíska fortíð Á sumarsýningu Minjasafnsins á Akureyri geta gestir fræðst um brúðkaup að fornu og nýju. Sýningin Ef þú giftist geymir forvitnilega muni og myndir, þar á meðal elstu áletruðu ástarjátninguna sem fundist hefur hérlendis. 13.6.2006 11:00
Ham á Nasa Rokksveitin Ham heldur tónleika á Nasa fimmtudaginn 29. júní ásamt hljómsveitinni 9/11"s. Ham lagðist í dvala eftir tónleika í Tunglinu árið 1994. Eftir það kom sveitin aftur saman þegar hún hitaði upp fyrir Rammstein í Laugardalshöllinni fyrir fimm árum auk þess sem hún spilaði á Hætta-tónleikunum í Höllinni þann 7. janúar síðastliðinn. 13.6.2006 10:00
Getur ekki toppað Hótel Tindastól Enski gamanleikarinn John Cleese er hættur að semja og leika í gamanþáttum vegna þess að hann telur sig ekki geta toppað hina vinsælu þáttaröð Fawlty Towers, eða Hótel Tindastóll. 13.6.2006 09:00
Fjörugur bryggjudagur Á laugardag buðu íbúar og fyrirtæki við Kópavogshöfn íbúum Kópavogs og öðrum nágrönnum sínum til mikillar bryggjuhátíðar. Hátíðin hófst á tónlistardagskrá með skólahljómsveit Kópavogs og ræðu sem bæjarstjórinn, Gunnari Birgisson, hélt. 13.6.2006 08:00
Atriði klippt út í Kína Kvikmyndaeftirlitið í Kína hefur klippt út nokkur atriði í hasarmyndinni Mission Impossible III vegna ofbeldis og menningarlegra tilvísana. Í myndinni er Shanghæ lýst sem niðurníddri og fátækri borg og það kunnu yfirvöld í Kína ekki að meta. 13.6.2006 07:00
Allir geta lært að syngja Söngkonan Ingveldur Ýr hefur kennt ungum sem öldnum að syngja og beita rödd sinni rétt. Í sumar heldur hún námskeið fyrir unglinga og fullorðna þar sem jafnvel þeir sem hljóma eins og laglausir gaularar geta lært að syngja. 13.6.2006 06:00
Bætist við dagskrá Iceland Airwaves 2006 Fjöldi listamanna bætast við dagskrá Iceland Airwaves 2006. Má þar nefna Daníel Ágúst, Jagúar, Eberg, Seabear, Fræ, Jeff Who? og 15 aðra listamenn 12.6.2006 12:03
Guðni, Einar Oddur og Helgi Hjörvar Margt góðra gesta verður í þættinum Pressan á NFS á morgun, sunnudag. Róbert Marshall umsjónarmaður fær til sín Guðna Ágústsson, Einar Odd Kristjánsson og Helga Hjörvar. Ennfremur ræða blaðamennirnir Pétur Gunnarsson, Haukur Holm, Björg Eva Erlendsdóttir og Arna Schram tíðindi liðinnar viku. 11.6.2006 02:30
Bryggjudagur í Kópavogi á morgun Íbúar og fyrirtæki við Kópavogshöfn hafa ákveðið að bjóða Kópavogsbúum og öðrum nágrönnum sínum til bryggjuhátíðar á morgun laugardaginn 10. júní nk. 9.6.2006 15:30
Góð garðsláttuþjónusta á Seltjarnarnesi Þorgrímur Sólon Þorgrímsson, 15 ára Nesbúi hefur nú annað starfsár sitt við Garðsláttuþjónustu á Seltjarnarnesi. Hann hjólar um nesið með sláttuvél og orf í eftirdragi og býður garðslátt gegn vægri greiðslu. 9.6.2006 15:00
Bryggjudagur við Kópavogshöfn á morgun Svokallaður Bryggjudagur verður haldinn í fyrsta sinn í Kópavogi á morgun. Það eru íbúar og fyrirtæki sem eru í nágrenni hafnarinnar sem standa fyrir viðburðinum en markmiðið er að vekja athygli Kópavogsbúa og nágranna þeirra á höfninni og nágrenni hennar. 9.6.2006 15:00
Ægisborg 25 ára í dag Leikskólinn Ægisborg heldur uppá 25 ára afmælið sitt í dag 9. júní. Í tilefni dagsins verður efnt til hátíðar í skólanum sem hefst kl.15:00 og stendur til kl.17:00. 9.6.2006 13:15
Föstudagsflipp í dag í miðborginni Fyrsta Föstudagsflipp sumarsins hefst í dag í miðborg Reykjavíkur þar sem að Skapandi sumarhópar Hins Hússins munu bera á borð , listir menningu og önnur fíflalæti frá kl: 13:00.-15:00. Það er búið að panta sól og blíðu og því von á miklu stuði í miðbænum í dag. 9.6.2006 10:35
Sirrý snýr aftur á skjáinn Næstkomandi sunnudag, 11. júní, hefur göngu sína nýr viðtalsþáttur í umsjá Sigríðar Arnardóttur - eða Sirrýjar. Þátturinn hefur fengið nafnið Örlagadagurinn. 9.6.2006 10:07
Ný útvarpsstöð í loftið á Akureyri VOICE er ný útvarpsstöð sem fer í loftið klukkan 09:06 föstudaginn 9.júní. Markhópur stöðvarinnar er 18-35 ára og er útsendingarsvæðið Akureyri og nágrenni. 8.6.2006 17:00
Dagur hinna villtu blóma Þann 18. júní næstkomandi verður haldið upp á dag hinna villtu blóma á öllum Norður¬löndunum. Þá verður efnt til tveggja tíma blómaskoðunar á 13 stöðum vítt og breitt um landið, með leiðsögn plöntufróðra manna. 8.6.2006 17:00
Mögnuð tónlistarveisla í Reykjavík Hin nýafstaðna Reykjavík Trópík tónleikahátíð var með eindæmum skemmtileg og virkilega góð ára yfir hátíðinni. Hálf fasískir tilburðir lögreglunnar í Reykjavík til þess að bæla hana niður voru hins vegar skammarlegir, tilllitslausir og hrokafullir. 8.6.2006 15:00
Urtan Kobba kæpti í nótt Í nótt kæpti urtan Kobba og heilsast móður og afkvæmi vel. Særún kæpti 5. júní síðast liðinn og er Kobba því önnur urtan í Húsdýragarðinum sem búin er að kæpa. Faðirinn er selurinn Snorri en fyrir á hann urtuna Esju sem mun ekki gegna neinu sérstöku hlutverki við uppeldi systkina sinna nema helst að kenna þeim skemmtileg sundtök í lauginni. 8.6.2006 10:30
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld Sigrún Eðvaldsdóttir leikur nýjan fiðlukonsert eftir Áskel Másson Sjostakovitsj-hringurinn heldur áfram og nú er komið að 11. sinfóníunni 8.6.2006 10:30
Silvía Nótt tekur upp plötu "Já, ég get staðfest það að Silvía Nótt er að taka upp plötu en ég get ekki sagt mikið meira en það," segir Gaukur Úlfarsson, umboðsmaður Silvíu Nætur. Lítið hefur heyrst frá Silvíu eftir að hún fór fyrir Íslands hönd í Eurovision á dögunum en eftir það skellti hún sér í frí á eyjunni Mýkonos. 7.6.2006 11:30
Ökukeppni á vinnutækjum Í síðustu viku fór fram Norðurlandamót í ökuleikni á vinnutækjum sem notuð eru í álverum. Keppnin fór fram á lóð Álversins við Straumsvík og mættu starfsmenn níu álvera frá Íslandi, Svíþjóð og Noregi til leiks. 3.6.2006 15:00
Ætlar að slá heimsmet Englendingurinn Roger Field stefnir að því að verða sú persóna sem fær mesta umfjöllun í dagblöðum og tímaritum víðsvegar um heim. Roger fékk hugmyndina eftir að hann hitti Arnold Schwarzenegger árið 1968 í Munchen áður en hann fluttist til Bandaríkjanna og sló í gegn sem kvikmyndastjarna. 3.6.2006 14:00
Þröngskífa frá Changer Rokksveitin Changer hefur gefið út þröngskífuna Breed the Lies sem hefur að geyma fjögur lög. Changer hefur áður gefið út tvær breiðskífur og eina þröngskífu síðan hún var stofnuð árið 1999. 3.6.2006 13:00
Veit hvað hann syngur Paul Smith var aðeins 15 ára gamall þegar hann hóf störf í tískuheiminum. Smith byrjaði sem sendill í vöruhúsi en hefur jafnt og þétt unnið sig uppá við, svo hægt sé til orða tekið. Hann er í dag meðal fremstu hönnuða Bretlands, þekktur fyrir vandaða og flotta vöru. 3.6.2006 12:00
Útrás íslenskra listamanna Íslendingar eru áberandi bæði í Kaupmannahöfn og London um hvítasunnuhelgina. Fjöldi íslenskra hönnuða tekur þátt í hönnunarsýningu í London sem kallast Grand design. 3.6.2006 11:30
Tvöfalt frá Mannakornum Hljómsveitin Mannakorn gefur út plötuna Ekki dauðir enn á næstunni. Á plötunni, sem tvöföld, eru upptökur frá þrjátíu ára afmælistónleikum sveitarinnar í Salnum í Kópavogi þar sem fjögurra manna strengjasveit var henni til halds og trausts. Bæði eru gömul og ný lög með Mannakornum á plötunni. Þetta er fyrsta platan sem Sögur útgáfa gefur út. 3.6.2006 11:00
Syndafall í stiganum Nýjasti bar bæjarins, Barinn við Laugaveg 22, skartar skemmtilegum veggskreytingum sem vakið hafa ómælda eftirtekt gesta. Listamennirnir sem heiðurinn eiga af verkunum heita Guðmundur Hallgrímsson og Friðrik Svanur Sigurðarson, betur þekktir sem Mundi og Morri, en þeir nema báðir grafískra hönnun við Listaháskóla Íslands. 3.6.2006 10:45
Sveitamarkaður í sláturhúsi Í sumar verður starfræktur sveitamarkaður í gamla sláturhúsinu við Laxá í Leirársveit. Markaðurinn verður opinn alla sunnudaga í sumar frá kl. 13-18. Fyrsti opnunardagur er um helgina en hann lendir reyndar á laugardegi. 3.6.2006 10:30
Sextíu aukalög frá Bubba Í tilefni af fimmtugsafmæli Bubba Morthens þann 6. júní munu Íslenskir tónar gefa út níu af fyrstu sólóplötum Bubba í veglegum afmælisbúningi þennan sama dag. 3.6.2006 10:00
Orðinn frískur Keith Richards, gítarleikari Rolling Stones, hefur náð fullum bata eftir að hafa gengist undir heilaskurðaðgerð á dögunum. Stones hefja tónleikaferð sína um Evrópu í Mílan þann 11. júlí næstkomandi en ferðin átti upphaflega að hefjast í Barcelona fyrir viku síðan 3.6.2006 09:45
Oasis á toppnum Fyrsta plata ensku hljómsveitarinnar Oasis, Definitely Maybe frá árinu 1994, hefur verið kjörin besta plata allra tíma. Um 40 þúsund tónlistaráhugamenn tóku þátt í valinu sem tímaritin NME og British Hit Singles and Albums stóðu fyrir. 3.6.2006 09:00
Ný myndasaga hefur göngu sína Eins og glöggir lesendur Fréttablaðsins tóku eftir í morgun hefur myndasagan Pú&Pa verið kvödd. Í staðin er komin verðlaunasagan Handan við hornið eða Insanity Streak eftir Tony Lopes. 3.6.2006 08:30
Lánað tónlist í fjörtíu ár Í árslok verða fjörutíu ár ár liðin frá því að tónlistardeild Bókasafns Hafnarfjarðar hóf að lána út plötur. Deildin, sem sú stærsta sinnar tegundar, var lengi vel sú eina sem gerði slíkt á íslensku almenningsbókasafni. 3.6.2006 08:00