Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jerry West hættir hjá Memphis Körfuboltagoðsögnin Jerry West tilkynnti í dag að hann ætlaði að hætta störfum sem framkvæmdastjóri Memphis Grizzlies í NBA deildinni í sumar. West er einn besti leikmaður í sögu NBA og gerði það gott hjá LA Lakers bæði sem leikmaður og síðar framkvæmdastjóri þar sem hann vann samtals 8 meistaratitla. Hann er 69 ára gamall og sagðist í yfirlýsingu vera orðinn of gamall til að snúast í hringiðu deildarinnar. 17.4.2007 22:30
NBA: Joey Crawford dómara vikið úr starfi Joey Crawford, einni reyndasti dómarinn í NBA deildinni í körfubolta, var í dag leystur frá störfum um óákveðinn tíma vegna umdeilds atviks sem átti sér stað í leik Dallas og San Antonio á sunnudagskvöldið. David Stern, forseti deildarinnar, gaf út yfirlýsingu vegna málsins nú síðdegis. 17.4.2007 18:26
Houston tryggði sér heimavöllinn Houston Rockets tryggði sér heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA í nótt þegar liðið vann góðan sigur á Pheonix Suns 120-117 á heimavelli. Miami tapaði fyrir Boston og missti James Posey í meiðsli. Alls voru átta leikir á dagskrá deildarinnar í nótt. 17.4.2007 13:38
KR-ingar Íslandsmeistarar KR tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta eftir dramatískan 83-81 sigur á Njarðvík í framlengdum fjórða leik liðanna í vesturbænum . KR hafði aldrei forystu í venjulegum leiktíma, en hafði betur frá fyrstu mínútu í framlengingunni og vann því einvígið 3-1. Tyson Patterson hjá KR var kosinn verðmætasti leikmaðurinn í úrslitaeinvíginu. 16.4.2007 21:58
Ummæli leikmanna KR eftir sigurinn á Njarðvík Leikmenn KR voru að vonum hátt stefndir eftir að þeir höfðu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld. Flestir töluðu þeir um að áhorfendur og karakterinn í liðinu hefði skilað því sigrinum. KR-ingur númer eitt, Einar Bollason, skrifaði sigurinn að mestu á Benedikt Guðmundsson þjálfara og sagði hann þann besta á landinu. 16.4.2007 23:31
Benedikt þakkaði stuðningsmönnunum "Þetta var auðvitað magnaður leikur og sama uppskrift og í síðustu leikjum þar sem við erum að elta allan tímann en komum svo sterkir inn í lokin. Það gildir að vera yfir þegar flautað er af," sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR eftir að hans menn lönduðu Íslandsmeistaratitlinum í kvöld. 16.4.2007 22:55
Njarðvík yfir í hálfleik Njarðvíkingar mæta grimmir til leiks gegn KR í fjórða leik liðanna í úrslitum Iceland Express deildarinnar í körfubolta og hafa fimm stiga forystu í hálfleik 44-39. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 16.4.2007 20:46
Verða KR-ingar Íslandsmeistarar í kvöld? Fjórði leikur KR og Njarðvíkur í úrslitarimmunni í Iceland Express deildinni fer fram í DHL-höllinni í vesturbænum í kvöld. KR getur hirt Íslandsmeistaratitilinn af Njarðvíkingum með sigri í kvöld og þurfa þeir sem ekki komast að í húsinu í kvöld ekki að örvænta, því leikurinn er sýndur beint á Sýn klukkan 20. 16.4.2007 18:53
Njarðvík leiðir enn Njarðvíkingar hafa enn yfir gegn KR 59-53 þegar þriðja leikhluta er lokið í fjórða leik liðanna í úrslitarimmunni í Iceland Express deildinni. Igor Beljanski er kominn með 21 stig í liði Njarðvíkur en Pálmi Sigurgeirsson og Jeremiah Sola 13 hvor hjá KR. Það lið sem hefur verið undir eftir þrjá leikhluta hefur farið með sigur af hólmi í fyrstu þremur leikjunum og samkvæmt þeirri hefð ættu KR-ingar að vinna sigur í kvöld. 16.4.2007 21:20
Njarðvík leiðir eftir fyrsta leikhluta Njarðvíkingar mæta mjög grimmir til leiks í fjórða leiknum gegn KR í lokaúrslitum Iceland Express deildarinnar í vesturbænum. Njarðvík leiðir 24-15 og hafa bæði lið sýnt frábær tilþrif í byrjun leiks. 16.4.2007 20:17
Níundi besti árangur sögunnar hjá Dallas Dallas Mavericks tryggði sér í nótt 9. besta árangur sem náðst hefur í sögu deildarkeppninnar í NBA deildinni þegar liðið vann góðan sigur á grönnum sínum í San Antonio 91-85. Dallas hefur þegar unnið 66 leiki á tímabilinu þegar tveir leikir eru eftir og jafnaði í nótt árangur gullaldarliðs Milwaukee Bucks frá árinu 1971. 15.4.2007 23:55
NBA: Beðið eftir Oden Gríðarleg eftirvænting ríkir nú í NBA deildinni um hvort miðherjinn öflugi Greg Oden hjá Ohio State háskólanum gefur kost á sér í nýliðavalinu í sumar. Oden er talinn einhver efnilegasti miðherji sem spilað hefur í háskólaboltanum á síðustu árum. 15.4.2007 15:49
Ágúst að hætta með Hauka? Enn er óvíst hvort Ágúst Björgvinsson þjálfari Íslandsmeistara Hauka í Iceland Exress deild kvenna í körfubolta verði áfram við stjórnvölinn hjá Hafnarfjarðarliðinu. Haukar urðu í gær Íslandsmeistarar annað árið í röð þegar liðið vann seiglusigur á Keflavík en Haukastúlkur unnu einvígið 3-1. Haukar hirtu þrjá stærstu titlana, Íslandsmeistaratitilinn, deildarmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn. 15.4.2007 15:18
Memphis stöðvaði Denver Neðsta lið NBA deildarinnar Memphis Grizzlies gerði sér lítið fyrir og stöðvaði átta leikja sigurhrinu Denver Nuggets í nóptt með 133-118 sigri í fjörugum leik. Chucky Atkins og Tarence Kinsey skoruðu 28 stig hvor fyrir Memphis en Carmelo Anthony var atkvæðamestur hjá Denver með 28 stig. Alls voru sjö leikir á dagskrá í nótt. 15.4.2007 14:31
Orlando skrefi nær úrslitakeppninni Einum leik er þegar lokið í NBA deildinni í körfubolta í kvöld. Orlando Magic vann auðveldan sigur á Philadelphia á útivelli 104-87 og þarf nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Dwight Howard setti persónulegt met með 35 stigum og hirti auk þess 11 fráköst fyrir Orlando. Leikur Houston og New Orleans verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf eitt í nótt. 14.4.2007 23:27
Haukastúlkur Íslandsmeistarar Haukastúlkur tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta annað árið í röð eftir 88-77 sigur á Keflavík í fjórða leik liðanna í Keflavík. Haukar unnu einvígið því 3-1. Leikurinn í dag var sveiflukenndur en Haukaliðið tryggði sér sigurinn í lokin með því að hirða hvert sóknarfrákastið á fætur öðru á mikilvægum augnablikum. Helena Sverrisdóttir hjá Haukum var kjörin besti leikmaður einvígisins og kemur það engum á óvart. 14.4.2007 17:45
Einar Árni: Það verður erfitt að fara í vesturbæinn "Það var sárt að tapa þessum leik, ég verð bara að segja það, en ég hef trú á því að mínir menn mæti enn grimmari í næsta leik. Ballið er rétt að byrja og við erum búnir að tapa núna tveimur leikjum þar sem við vorum í góðri stöðu og við verðum greinilega að fara að klára þessa leiki betur" sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur. 14.4.2007 17:08
Benedikt Guðmunds: Svakalegur leikur "Þetta er einn svakalegasti leikur sem ég hef takið þátt í. Rafmögnuð spenna, frábært andrúmsloft, hraði og harka. Þetta er bara eins og þetta gerist best. Við vorum aðeins að föndra með varnarafbrigði í þessum leik og það skilaði sér ágætlega í restina. Við höfum verið að vinna á alla leikina og náum að toppa á síðustu mínútunum," sagði Benedikt Guðmundsson eftir sigur KR í Njarðvík í dag. 14.4.2007 17:06
Magnaður sigur KR í Njarðvík KR-ingar hafa tekið 2-1 forystu gegn Njarðvík í úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir frækinn 96-92 sigur í Njarðvík í dag. KR-ingar höfðu nauma forystu í hálfleik en heimamenn höfðu góð tök á leiknum þangað til í lokin þegar KR-ingar sigu framúr og tryggðu sér sigur á lokamínútunum eins og í síðasta leik. 14.4.2007 16:39
60. sigurinn hjá Phoenix Phoenix Suns tryggði stöðu sína í öðru sæti Vesturdeildarinnar í NBA í nótt með því að leggja LA Lakers að velli 93-85. Lakers hefur verið í vandræðum undanfarna daga og er nú aðeins hársbreidd á undan grönnum sínum í Clippers og Golden State í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. 14.4.2007 14:16
Stigin úr teignum skipta öllu Baráttan í einvígi lokaúrslitaeinvígis Iceland Express-deildar karla snýst ekki síst um hvort liðið er að skora meira inni í teig. 14.4.2007 10:30
Nær Keflavík að jafna metin? Körfubolti Lokaúrslitaeinvígi Iceland Express-deildar kvenna heldur áfram í Keflavík klukkan 16.15 í dag þegar Haukastúlkur fá aðra tilraun til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. 14.4.2007 10:15
Mætið tímalega Þriðji leikur lokaúrslita Njarðvíkur og KR um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta fer fram í Ljónagryfjunni í dag og ljóst að mikil áhugi er fyrir leiknum. 14.4.2007 10:00
Lykilleikur lokaúrslitanna Njarðvíkingar hafa ekki tapað á heimavelli í sextán mánuði og hafa nú unnið 29 leiki í röð í Ljónagryfjunni. Sagan segir að KR-ingar verða að vinna þar í dag því síðustu þrettán ár hefur ekkert lið komið til baka úr stöðunni 1-2. 14.4.2007 00:01
Mun sitja áfram með Njarðvíkingum Óskar Örn Hauksson, knattspyrnumaður úr KR, fékk að heyra það frá stuðningsmönnum KR á leik liðsins gegn Njarðvík á fimmtudag. Ástæðan er sú að Óskar Örn styður Njarðvík í körfuboltanum og situr með stuðningsmönnum þeirra á leikjum og því fékk hann nokkra söngva frá stuðningsmönnum KR. 14.4.2007 00:01
Haukar yfir eftir þrjá leikhluta Haukastúlkur hafa yfir 63-60 gegn Keflavík þegar leiknir hafa verið þrír leikhlutar í fjórða leik liðanna í Keflavík í úrlistaeinvíginu í Iceland Express deildinni. Leikurinn hefur verið sveiflukenndur og bæði lið hafa náð 10 stiga forystu á köflum. Leikurinn fer fram í Keflavík, þar sem heimamenn geta knúið oddaleik í einvíginu með sigri. 14.4.2007 17:25
Njarðvík yfir eftir þrjá leikhluta Njarðvíkingar hafa tekið forystuna gegn KR 75-68 eftir þrjá leikhluta eftir að hafa verið undir í hálfleik. KR-ingar skoruðu ekki stig í rúmar þrjár mínútur í upphafi síðari hálfleiks og heimamenn gengu á lagið og náðu mest um 10 stiga forystu. Þetta er þriðji leikur liðanna í úrslitum Iceland Express deildarinnar. 14.4.2007 16:07
KR yfir í hálfleik KR-ingar hafa enn yfir þegar flautað hefur verið til hálfleiks í þriðja leik liðsins gegn Njarðvík í úrslitum Iceland Express deildarinnar. Brenton Birmingham er stigahæstur Njarðvíkinga með 16 stig en Tyson Patterson er kominn með 18 stig hjá KR. Leikurinn er í beinni á Sýn. 14.4.2007 15:42
KR yfir eftir fyrsta leikhluta KR-ingar hafa yfir 22-20 eftir fyrsta leikhluta í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express deildarinnar, en leikið er í Njarðvík. Leikurinn hefur verið mjög harður og hátt spennustig einkennir leik beggja. Tyson Patterson hefur verið maður leiksins til þessa og er kominn með 12 stig hjá KR. 14.4.2007 15:16
50 stig Bryants dugðu ekki gegn Clippers Kobe Bryant skoraði 50 stig fyrir LA Lakers gegn nágrannaliðinu LA Clippers í NBA-deildinni í nótt en það dugði ekki til sigurs því Clippers vann 118-110. Corey Magette átti stórleik hjá Clippers og skoraði 39 stig sem er persónlegt met hjá honum í deildinni. 13.4.2007 09:22
Sola: Við verðum að stela einum í Njarðvík "Ég var ekki að spila vel í þessum leik," sagði Jeremiah Sola sem var aðeins með 4 stig þegar Benedikt Guðmundsson lét hann sitja á bekknum í nokkrar mínútur á milli þriðja og fjórða leikhluta í leiknum gegn Njarðvík í kvöld. 12.4.2007 23:01
Pálmi Freyr: Áhorfendurnir voru frábærir Pálmi Freyr Sigurgeirsson var atkvæðamestur KR-inga í sigrinum á Njarðvík í kvöld með 19 stig. Hann sagði stuðning áhorfenda hafa ráðið miklu fyrir KR í kvöld og vonast til að liðið nái að sigra í þriðja leiknum í Njarðvík á laugardaginn. 12.4.2007 22:31
Benedikt Guðmunds: Einvígið er rétt að byrja "Við fórum mjög vel yfir það hvað gerðist hjá okkur í fjórða leikhlutanum í síðasta leik og við vorum einfaldlega ekki nógu beittir. Um leið og menn fara að einbeita sér og gera hlutina sem þeir eiga að vera að gera, gengur þetta allt miklu betur," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR í samtali við Arnar Björnsson á Sýn í kvöld. 12.4.2007 22:11
Seiglusigur KR á Njarðvík KR jafnaði metin í úrslitaeinvíginu við Njarðvík í Iceland Express deildinni í kvöld með 82-76 baráttusigri í öðrum leik liðanna. Njarðvík var yfir allan leikinn, en Jeremiah Sola skoraði 7 af 9 stigum KR í mikilli rispu á lokamínútunum og tryggði heimamönnum sigur. Staðan í einvíginu er því jöfn 1-1 og næsti leikur er í Njarðvík á laugardaginn. 12.4.2007 21:37
Aðstoðarþjálfari Keflavíkur í þriggja leikja bann Aganefnd KKÍ dæmdi í dag Agnar Gunnarsson, aðstoðarþjálfara Keflavíkur, í þriggja leikja bann fyrir að gefa Helenu Sverrisóttur hjá Haukum olnbogaskot undir lok þriðja leiks Keflavíkur og Hauka í úrslitum Iceland Express deildarinnar. 12.4.2007 19:37
Detroit hirti efsta sæti Austurdeildar Detroit Pistons tryggði sér í nótt efsta sæti Austurdeildarinnar í NBA og verður liðið því með heimavallarrétt alla leið í úrslitin. Miami tryggði sér sigur í Suðaustur deildinni með sigri á Washington. 12.4.2007 13:38
Njarðvík leiðir eftir þrjá leikhluta Njarðvíkingar eru fjórum stigum yfir 62-58 þegar einn leikhluti er eftir af leiknum við KR í DHL-Höllinni. KR náði að jafna strax í upphafi leikhlutans en vörn gestanna hefur verið mjög sterk. Stemmingin í vesturbænum er frábær og syngja stuðningsmenn fullum hálsi á pöllunum. 12.4.2007 21:17
Njarðvík yfir í hálfleik Njarðvíkingar eru enn yfir 46-40 gegn KR þegar flautað hefur verið til hálfleiks í öðrum leik liðanna í úrslitum Iceland Express deildarinnar. Gestirnir hafa verið skrefinu á undan allan leikinn og er Jóhann Ólafsson þeirra atkvæðamestur með 15 stig og Jeb Ivey 10, en hjá KR er Tyson Patterson með 11 stig og Pálmi Sigurgeirsson með 10. Leikurinn er í beinni á Sýn. 12.4.2007 20:51
Njarðvík leiðir eftir fyrsta leikhluta Njarðvíkingar hafa yfir 30-26 gegn KR þegar einum leikhluta er lokið í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express deildarinnar. Leikurinn hefur verið sveiflukenndur og mjög fjörugur í byrjun en gestirnir verið skrefinu á undan. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 12.4.2007 20:23
Minnesota - Dallas í beinni í kvöld Leikur Minnesota Timberwolves og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Um klukkan 21 í kvöld er svo á dagskrá stöðvarinnar klassískur leikur Lakers og Rockets frá því fyrir um 20 árum síðan þar sem Pétur Guðmundsson kemur við sögu í liði Lakers. Óhætt er að mæla með þessum leik, sem bauð upp á dramatík, góða spilamennsku og áflog. 11.4.2007 21:08
Aðstoðarþjáfari Keflavíkur kærður fyrir olnbogaskot Dómararanir í kvennaleik Hauka og Keflavíkur í körfuboltanum í gærkvöldi hafa kært aðstoðarþjálfara Keflavíkur til aganefndar KKÍ fyrir að gefa Helenu Sverrisdóttur leikmanni Hauka olnbogaskot í bringuna skömmu eftir að leikurinn var flautaður af. 11.4.2007 18:15
Washington í úrslitakeppnina þrátt fyrir fimmta tapið í röð Lið Washington Wizards tryggði sér í nótt sæti í úrslitakeppni NBA þrátt fyrir að liðið tapaði fimmta leiknum í röð, nú fyrir New Jersey. New Orleans heldur enn í vonina um að komast í úrslitakeppninna í Vesturdeildinni eftir sigur á LA Clippers. Miami lá fyrir Charlotte. 11.4.2007 07:45
Keflavíkurstúlkur hafa ekki sagt sitt síðasta Keflavíkurstúlkur gerðu sér lítið fyrir og lögðu Íslandsmeistara Hauka í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Haukar höfðu unnið 27 leiki í röð á heimavelli en nú er ljóst að liðið þarf að fara aftur til Keflavíkur í stöðunni 2-1. 10.4.2007 21:02
Tröllatroðsla Baldurs Ólafssonar (myndband) Miðherjinn Baldur Ólafsson hjá KR átti eftirminnilega innkomu í leikinn gegn Njarðvík í úrslitum Iceland Express deildarinnar í gær. Baldur var þar að spila sínar fyrstu mínútur með liðinu á leiktíðinni og stimplaði sig inn með rosalegri troðslu yfir Igor Beljanski. Vísir náði tali af kappanum í dag. 10.4.2007 15:52
Dallas tryggði sér toppsætið í NBA Dallas Mavericks tryggði sér í nótt heimavallarréttinn alla úrslitakeppnina þegar liðið lagði LA Clippers á heimavelli 96-86. Með sigrinum varð ljóst að ekkert lið getur náð Dallas í deildarkeppninni. Detroit tryggði sér sjötta tímabilið í röð með 50 sigrum og þá læddist Golden State í áttunda sæti Vesturdeildarinnar með auðveldum sigri á Utah. 10.4.2007 13:35