Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
HK í úrslit HK tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik deildarbikarsins í handbolta karla með öruggum sigri á Fram í oddaleik 31-26 eftir að hafa verið yfir 20-13 í hálfleik. HK mætir Stjörnunni í úrslitaleik keppninnar. 29.4.2007 17:35
Kiel sigraði í Meistaradeildinni Þýska liðið Kiel tryggði sér í dag sigur í Meistaradeild Evrópu í handbolta með naumum sigri á Flensburg í síðari leik liðanna í úrslitum 29-27. Þetta er fyrsti Evrópumeistaratitill Kiel, en liðið er eitt allra sterkasta lið heimsins í dag. Leikmenn Flensburg geta nagað sig í handabökin eftir að hafa aðeins náð jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli. 29.4.2007 17:15
Magdeburg Evrópumeistari félagsliða Þýska handboltaliðið Magdeburg varð í dag Evrópumeistari félagsliða í þriðja sinn síðan árið 1999 þegar liðið lagði spænska liðið Aragon 31-28 á heimavelli í síðari úrslitaleik liðanna í dag. Fyrri leiknum lauk með jafntefli 30-30 á Spáni. 29.4.2007 16:37
Úrslitaleikurinn í Meistaradeildinni í beinni á Sýn Nú klukkan 15:30 hefst síðari úrslitaleikur þýsku liðanna Kiel og Flensburg í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Leikurinn er sýndur beint á Sýn þar sem Guðjón Guðmundsson og Atli Hilmarsson lýsa með tilþrifum. 29.4.2007 15:27
Alexander skoraði 9 fyrir Grosswallstadt Alexander Petersson skoraði 9 mörk í dag þegar lið hans Grosswallstadt í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta gerði 26-26 jafntefli við Balingen. Síðar í kvöld skildu Wilhelmshavener og Hildesheim jöfn 29-29. Rétt er að minna handboltaáhugamenn á að síðari leikur Kiel og Flensburg í úrslitum Meistaradeildarinnar verður sýndur beint á Sýn á morgun. 28.4.2007 20:30
Stjarnan í úrslit Stjarnan tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum deildarbikarsins í handbolta með því að leggja Íslandsmeistara Vals 31-17 í öðrum leik liðanna. Framarar knúðu fram oddaleik gegn HK með 36-24 sigri í kvöld. Þau mætast í oddaleik í Digranesi á sunnudaginn. 27.4.2007 21:38
HK lagði Fram Tveir leikir fóru fram í deildarbikarkeppni karla í handbolta í kvöld. HK lagði Fram 28-26 eftir að jafnt var í hálfleik 14-14. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 8 mörk fyrir HK og þeir Tomas Eitutis, Valdimar Þórsson og Augustas Strazdas 5 hver en Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 8 fyrir Fram og Guðjón Drengsson 7. Þá vann Stjarnan góðan sigur á Val 27-23. 25.4.2007 22:17
Stjarnan burstaði Hauka Tveir leikir fóru fram í undanúrslitum deildarbikarkeppni kvenna í handbolta í kvöld. Stjarnan burstaði Hauka 40-22 í Ásgarði þar sem Sólveig Lára Kjærnested skoraði 9 mörk fyrir Stjörnuna og Kristín Clausen 6, en Ramune Pekarskyte skoraði 10 mörk fyrir Hauka. Þá vann Grótta 23-18 sigur á Val. Liðin mætast að nýju á fimmtudagskvöldið, en tvo sigra þarf til að komast í úrslitarimmuna. 24.4.2007 21:36
Valsmenn eru Íslandsmeistarar Valur er Íslandsmeistari karla í handbolta árið 2007. Liðið tryggði sér sigur í DHL-deildinni með því að leggja Hauka af velli á Ásvöllum, 33-31, en á sama tíma gerði HK 27-27 jafntefli við Akureyri fyrir norðan. Valsmenn hluti 33 stig í deildinni í vetur en HK varð í öðru sæti með 32 stig. 22.4.2007 17:50
Valur í lykilstöðu þegar 10 mínútur eru eftir Íslandsmeistaratitilinn blasir við Valsmönnum þegar 10 mínútur eru eftir af síðustu umferð DHL-deildar karla í handbolta. Þeir hafa þriggja marka forystu á Hauka, 28-26, og þurfa því að klúðra miklu á lokamínútunum til að missa af Íslandsmeistaratitlinum. HK er einu marki yfir gegn Akureyri fyrir norðan, 21-20. 22.4.2007 17:17
Jafnt hjá Kiel og Flensburg í Meistaradeildinni Flensburg og Kiel skildu jöfn, 28-28, í fyrri viðureign liðanna í úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Leikurinn fór fram á heimavelli Flensburg svo að lið Kiel, sem saknar margra lykilmanna vegna meiðsla, verður að teljast vera í góðri stöðu fyrir síðari leikinn á sínum heimavelli sem fram fer um næstu helgi. 22.4.2007 17:08
Valsmenn í góðri stöðu Valsmenn eru komnir með aðra höndina á Íslandsmeistaratitilinn í handbolta en liðið hefur þriggja marka forystu, 16-13, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Haukum á Ásvöllum í DHL-deildinni. HK hefur sömuleiðis yfir gegn Akureyri fyrir norðan, 14-13. Ef Valur sigrar á Ásvöllum í dag er liðið orðið Íslandsmeistari. 22.4.2007 16:44
Lemgo lagði Gummersbach á útivelli Lemgo vann mjög góðan sigur á Íslendingaliðinu Gummerbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 32-29. Áhorfendur Sýnar fengu að sjá mjög góðan handboltaleik sem fór fram í hinni stórglæsilegu Köln-Arena fyrir framan tæplega 20 þúsund manns. Íslendingarnir í liðunum létu mismikið að sér kveða í dag. 22.4.2007 14:15
Lemgo sjö mörkum yfir í hálfleik Lemgo er að spila stórvel og hefur 17-11 forystu í hálfleik í leik Gummersbach og Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta sem nú er í gangi og er í beinni útsendingu á Sýn. Guðjón Valur Sigurðsson hefur skorað 4 mörk fyrir Gummersbach og Logi Geirsson 1 mark fyrir Lemgo, en athygli vekur að Róbert Gunnarsson hefur ekki komist á blað. 22.4.2007 13:44
Engin úrslitakeppni í handboltanum Ársþing Handknattleikssambands Íslands var haldið í kvöld og voru þar nokkrar áhugaverðar breytingatillögur uppi á borðinu. Tillaga Hafnafjarðarliðanna Hauka og FH um fjölgun liða í deildinni og úrslitakeppni var dregin til baka. Mótinu verður þó breytt nokkuð og nánar verður greint frá því hér á Vísi í fyrramálið. 18.4.2007 22:23
Guðjón með 9 mörk í tapi Gummersbach Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 9 mörk og Róbert Gunnarsson eitt þegar Íslendingalið Gummersbach tapaði 41-36 fyrir Kronau/Östringen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Minden tapaði heima fyrir Magdeburg 27-24 þar sem Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 8 mörk og Einar Örn Jónsson 2. Lemgo lagði Lubbecke 38-29 þar sem Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 2 mörk og Logi Geirsson 1. 18.4.2007 21:54
Stjarnan í deildarbikarinn Handbolti Stjarnan úr Garðabæ tryggði sér í gær fjórða sæti DHL-deildar karla þegar liðið lagði Akureyri, 35-31, í hreinum úrslitaleik um síðasta sætið sem tryggir sæti í deildarbikarnum að lokinni deildarkeppninni. 16.4.2007 13:56
Fylkir og ÍR fallin - Ólafur varði 29 skot í marki Vals Gríðarleg spenna var í dag í næst síðustu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta. Toppliðin Valur og HK unnu leiki sína því ráðast úrslit í deildinni ekki fyrr en í lokaumferðinni, en Fylkir og ÍR töpuðu leikjum sínum í dag og eru því fallin úr deildinni. 15.4.2007 17:42
Kiel bikarmeistari í Þýskalandi Kiel varð í dag þýskur bikarmeistari í handbolta eftir sveiflukenndan úrslitaleik gegn Kronau Östringen. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. Östringen sem sló Hamburg óvænt út í undanúrslitunum í gær var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik þegar liðið náði mest 6 marka forystu. Staðan í hálfleik var 19-15 fyrir Kronau Östringen sem vermir áttunda sætið í þýsku úrvalsdeildinni. Oleg Velyky var markahæstur Östringenmanna með 10 mörk. 15.4.2007 15:25
FCK deildarmeistari í Danmörku Íslendingalið FCK í Danmörku tryggði sér í dag deildarmeistaratitilinn í handbolta þegar liðið lagði meistara Kolding í næst síðustu umferð deildarinnar 35-31. Arnór Atlason skoraði tvö mörk fyrir FCK og Gísli Kristjánsson eitt. FCK mætir Viborg í úrslitakeppni fjögurra efstu liðanna um meistaratitilinn, en hin undanúrslitarimman verður milli Kolding og GOG. 14.4.2007 20:34
Öruggur sigur hjá Íslandsmeisturunum Nýkrýndir Íslandsmeistarar Stjörnunnar unnu yfirburðasigur á Fram í dag 29-17 í DHL-deild kvenna í handbolta. Kristín Guðmundsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna Sólveig Kjærnested 5 og Rakel Bragadóttir 4. Ásta Birna Gunnarsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Fram. Valur burstaði Akureyri 33-23 og Grótta vann Hauka 27-21. 14.4.2007 20:19
Kiel og Kronau/Östringen leika til úrslita Í dag fóru fram undanúrslitaleikirnir í þýska bikarnum í handbolta og voru báðar viðureignir sýndar beint á Sýn. Kronau/Östringen vann nokkuð óvæntan sigur á Hamburg í morgun 29-28 og Kiel vann nauman sigur á Flensburg 34-33. Úrslitaleikurinn fer fram í hádeginu á morgun og verður sýndur beint á Sýn. 14.4.2007 14:57
Úrslit þýsku bikarkeppninnar í handbolta í beinni á Sýn Um helgina verður leikið til undanúrsltia í þýsku bikarkeppnninni í handbolta. Eins og undangengin ár verður leikið í Colorline-Arena í Hamborg en þar hafa úrslitin í bikarkepppninni ráðist síðastliðin 15 ár. 13.4.2007 13:30
Valsmenn upp að hlið HK Valur er kominn aftur upp að hlið HK á toppi DHL-deildar karla eftir að liðið burstaði Íslandsmeistara Fram 29-19 í stórleik kvöldsins. Valur og HK hafa 29 stig á toppnum og ljóst að spennan verður gríðarleg í síðustu umferðunum. Fram er með 22 stig í þriðja sæti deildarinnar. 12.4.2007 21:46
Kiel valtaði yfir Dusseldorf Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Topplið Kiel valtaði yfir Dusseldorf 39-17, Nordhorn vann góðan sigur á Flensburg 29-25, Kronau/Östringen lagði Melsungen 28-22 og Hamburg lagði Magdeburg 33-26. 11.4.2007 22:12
HK á toppnum Þrír leikir fóru fram í DHL deild karla í handbolta í kvöld. HK er eitt á toppnum eftir sigur á ÍR 35-28 á útivelli en ÍR er í botnsæti deildarinnar. Haukar unnu mikilvægan sigur á Stjörnunni 29-21 og fengu mikilvæg stig í botnbaráttunni. Staða Fylkis versnaði til muna eftir að liðið steinlá 31-22 fyrir Akureyri fyrir Norðan. 11.4.2007 22:00
Ísland hafnaði í fjórða sæti í Frakklandi Íslendingar höfnuðu í fjórða og síðasta sæti á æfingamótinu í Frakklandi eftir að hafa gert jafntefli við Túnisa í lokaleik sínum í dag, 30-30. Túnisar skoruðu jöfnunarmarkið úr hraðaupphlapi þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka eftir. Túnisar höfðu betri markatölu en Íslendingar og hafna því í þriðja sæti. 8.4.2007 12:24
Átta marka tap gegn Frökkum Frakkar sigruðu Íslendinga með átta marka mun, 35-27, á æfingamótinu í handbolta sem fram fer þar í landi yfir páskahelgina. Frakkar höfðu tveggja marka forystu í hálfleik en í síðari hálfleik bætti liðið smám saman við forskotið og gáfu Íslendingum fá færi á sér. 7.4.2007 15:26
Ísland tveimur mörkum undir í hálfleik Íslendingar eru undir, 16-14, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Frökkum á æfingamótinu sem fram fer þar í landi um páskana. Leikurinn hefur verið nokkuð sveiflukenndur en heilt yfir er íslenska liðið að spila ágætlega. 7.4.2007 14:38
Íslendingar töpuðu fyrir Pólverjum í handboltalandsleik Íslendingar töpuðu fyrir Pólverjum 36-32 í landsleik í handbolta í Frakklandi í dag. Þetta var fyrsti leikur á móti sem haldið er þar í landi nú um páskana. Íslendingar mæta á næstu dögum Frökkum og Túnisum á mótinu. Pólverjar voru með forystu allan leikinn og var sigur þeirra aldrei í hættu. Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson voru markahæstir Íslendinga með 8 mörk hvor, Ragnar Óskarsson, Vignir Svavarsson og Bjarni Fritzson skoruðu þrjú mörk hver. 6.4.2007 18:22
Þýskur úrslitaleikur í Meistaradeildinni Þýska liði Flensburg tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í handbolta þrátt fyrir 25-24 tap fyrir spænska liðinu Valladolid í síðari leik liðanna á Spáni. Flensburg vann fyrri leikinn 30-28 á heimavelli og úrslitin lágu því ekki fyrir fyrr en á lokasekúndunum í dag. Flensburg mætir löndum sínum í Kiel í úrslitaleik keppninnar, en Kiel sló Portland San Antonio út í undanúrslitum. 1.4.2007 22:13
Fylkir lagði Hauka Fylkir vann afar mikilvægan 26-24 sigur á Haukum í fallbaráttunni í DHL-deild karla í handbolta í dag. Þá vann botnlið ÍR óvæntan útisigur á Stjörnunni 26-25 og fyrr í dag vann Fram sigur á Akureyri 29-27. 1.4.2007 19:44
Íslendingaslagur í beinni á DR1 Stórleikur helgarinnar í danska handboltanum er án efa viðureign FCK og GOG en hann hefst nú klukkan 14 og er sýndur beint á DR1 sem er rás 70 á fjölvarpinu. Með FCK leika þeir Arnór Atlason og Gísli Kristjánsson, en landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson gengur til liðs við GOG á næsta keppnistímabili. Liðin eru í 1. og 3. sæti deildarinnar. 1.4.2007 13:48
Góður sigur hjá Minden Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Íslendingalið Minden lagði Hildesheim 27-21 þar sem Einar Örn Jónsson skoraði 5 mörk og Snorri Steinn Guðjónsson 2. Þá tapaði Wilhelmshavener stórt fyrir Balingen á útivelli 35-20 þar sem Gylfi Gylfason skoraði 1 mark fyrir gestina. Wilhelmshavener er í 11. sæti deildarinnar en Minden í sætinu á eftir. 1.4.2007 12:41
Svekkjandi fyrir Skjern Danska handboltafélagið Skjern, sem Aron Kristjánsson stýrir og Íslendingarnir Vignir Svavarsson, Vilhjálmur Ingi Halldórsson og Jón Þorbjörn Jóhannesson leika með, féll úr leik á grátlegan hátt í undanúrslitum EHF-bikarsins í gær. Þá tapaði liðið gegn spænska liðinu Aragon, 29-24, og því samanlagt með einu marki, 55-54. Vignir skoraði þrjú mörk fyrir Skjern en hinir Íslendingarnir voru með eitt mark hvor. 1.4.2007 09:30