Fleiri fréttir

HK vann öruggan sigur á Val

HK komst í dag upp að hlið Vals á toppi DHL-deildar karla með 29-22 sigri á heimavelli í einvígi liðanna. Liðin hafa bæði hlotið 27 stig. Jafnt var á með liðunum í hálfleik en heimamenn stungu af í þeim síðari og unnu öruggan sigur.

HK lagði Hauka

Tveir leikir fóru fram í DHL-deild kvenna í handbolta í dag. HK vann góðan sigur á Haukum í Digranesi 29-25 og ÍBV burstaði FH 37-17 í Eyjum. Stjarnan hefur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn og hefur 35 stig á toppnum, Grótta hefur 31 stig í öðru sæti, Valur 28 í þriðja og Haukar 27 í fjórða.

Grótta burstaði Val og færði Stjörnunni titilinn

Valsstúlkur voru fyrir leikinn í gærkvöld eina liðið í deilidnni sem gat komist upp fyrir Stjörnuna í deildinni þó líkurnar væru afar litlar. En Valsstúlkur steinlágu fyrir Seltirningum í Laugardalshöllinni í gærkvöldi með 9 marka mun, 29-20.

Hannes Jón í stað Markúsar Mána

Miðjumaðurinn Hannes Jón Jónsson hefur verið valinn í æfingahóp handboltalandsliðsins sem tekur þátt í sterku æfingamóti sem fram fer í Frakklandi um páskana. Hannes er kallaður í hópinn í stað Markúsar Mána Michaelssonar sem getur ekki tekið þátt sökum anna í vinnu.

Uppgjör HK og Vals í Digranesi

HK tekur á móti Val í DHL-deildinni í dag. Nánast er um að ræða hreinan úrslitaleik í Íslandsmótinu. Valur setur aðra hönd á bikarinn með sigri en HK sprengir mótið í loft upp nái það að landa sigri.

Ég var bara kjúklingur fyrir átta árum

Anna Bryndís Blöndal getur í dag orðið Íslandsmeistari í handbolta með Stjörnunni í þriðja sinn. Anna er eini leikmaður liðsins í dag sem spilaði með meistaraliðinu 1999 en með sigri á Akureyri í dag verður liðið Íslandsmeistari í fyrsta sinn í 8 ár.

Kiel í úrslit meistaradeildarinnar

Þýska liðið Kiel bar í kvöld sigurorð af spænska liðinu Portland-San Antonio í undanúrslitum meistaradeildarinnar í handbolta, 37 - 34. Þetta var seinni leikur liðanna og vann Kiel samtals 65 - 64. Jafnt var með liðunum framan af leik en þegar líða tók á seinni hálfleikinn seig Kiel fram úr. Góð markvarsla og nýting á færum var það sem skildi á milli liðanna á þeim kafla. Áhorfendur voru vel með á nótunum en leikurinn fór fram á heimavelli Kiel.

Kallið kom á óvart

Hannes Jón Jónsson, leikmaður Elverum í Noregi, hefur verðið kallaður inn í íslenska landsliðið í handknattleik sem leikur á fjögurra liða móti í París um páskana. Hann kemur í staðin fyrir Markús Mána Michaelsson Maute úr Val sem gefur ekki kost á sér vegna anna í námi og vinnu. Hannes sagði í samtali við Vísi að kallið hafi komið honum á óvart.

Kiel og Portland mætast í beinni á Sýn

Um helgina ræðst hvaða lið spila til úrslita í Meistaradeildinni í handbolta. Þýska liðið Kiel og spænska liðið Portland San Antonio mætast í Þýskalandi klukkan 17 í dag og verður leikurinn sýndur beint á Sýn.

Þeir bestu fá eina og hálfa milljón króna á mánuði

Anders Dahl-Nielsen, framkvæmdastjóri Skjern, segir launin í danska handboltanum hafa hækkað mikið síðustu ár. Verðmiði leikmanna hefur einnig hækkað verulega. Karlarnir eru loksins komnir í sama launaflokk og konurnar.

Viggó kominn aftur til Hauka (myndband)

Viggó Sigurðsson er á ný kominn í þjálfarateymi Hauka í Hafnarfirði eftir þriggja ára fjarveru. Viggó mun aðstoða Pál Ólafsson þjálfara á lokaspretti Íslandsmótsins í handbolta en Haukar eru í bullandi fallbaráttu. Viggó útilokar ekki að snúa aftur til Flensburg í þýskalandi.

Vilhjálmur í landsliðið í stað Loga

Vilhjálmur Halldórsson hjá danska liðinu Skjern hefur verið kallaður inn í íslenska karlalandsliðið í handbolta í stað Loga Geirssonar sem er meiddur. Liðið tekur þátt í æfingamóti í Frakklandi um páskana þar sem það mætir Pólverjum, Frökkum og Túnisum.

Valsmenn komnir með tveggja stiga forystu

Valsmenn náðu í kvöld tveggja stiga forystu í DHL-deild karla í handbolta með því að leggja nýkrýnda bikarmeistara Stjörnunnar örugglega af velli í Laugardalshöllinni, 31-25. Valsmenn voru með yfirhöndina nánast allan leikinn og unnu verðskuldað.

HK og Fram skildu jöfn - ÍR lagði Fylki

HK og Fram gerðu jafntefli, 25-25, í DHL-deild karla í handbolta í dag. Úrslitin þýða að HK er enn á eftir á Valsmönnum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en bæði lið hafa hlotið 25 stig. Valur á hins vegar leik til góða gegn nýkrýndum bikarmeisturum Stjörnunnar kl. 18 í dag. Í hinum leik dagsins vann ÍR lið Fylkis, 30-29.

Portlandi lagði Kiel með tveggja marka mun

Portland San Antonio frá Spáni lagði Þýskalandsmeistara Kiel af velli, 30-28, í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Ólíkegt verður að teljast að forskot Portland dugi til að komast í úrslit keppninnar, enda Kiel nánast ósigrandi á heimavelli sínum.

Frábær endasprettur tryggði Akureyri sigur

Haukar máttu þola tap á heimavelli sínum fyrir Akureyri í DHL-deild karla í handbolta í dag, 27-28. Heimamenn fóru afar illa að ráði sínu á lokasprettinum eftir að hafa verið með forystu stærstan hluta leiksins. Akureyri er nú komið með 18 stig og fjarlægist óðum fallbaráttuna en Haukar eru áfram með 12 stig og í bullandi fallbaráttu.

Haukar með forystu í hálfleik gegn Akureyri

Haukar hafa 15-13 forystu gegn Akureyri nú þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í DHL-deild karla í handbolta. Guðmundur Pedersen hefur skorað fimm mörk fyrir Hauka og Nikola Jankovic sömuleiðis fyrir Akureyri. Í DHL-deild kvenna er HK að bursta Gróttu og leiðir 18-10 eftir fyrri hálfleik.

Íslandsmeistaratitillinn blasir við Stjörnustúlkum

Kvennalið Stjörnunnar er komið með níu fingur á Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir sannfærandi sigur á Haukum í Hafnarfirði í dag, 32-26 . Stjarnan er nú komin með 35 stig á toppi DHL-deildar kvenna, sex stigum meira en næsta lið, og á titilinn næsta vísan.

Naumur sigur Flensburg

Flensburg frá Þýskalandi bar sigurorð af spænska liðinu Valladolid, 32 -30, í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi. Leikurinn, sem fram fór í Þýskalandi, var sá fyrri af tveimur en sá síðari fer fram í Valladolid um næstu helgi.

Jóhann Gunnar eini nýliðinn í hópi Alfreðs

Einn nýliði, Jóhann Gunnar Einarsson úr Fram, er í 17 manna landsliðshópi Alfreðs Gíslasonar sem tekur þátt í fjögurra landa í París um páskana. Tilkynnt var um hópinn í dag og er hann skipaður eftirtöldum leikmönnum:

Yoon bætti markametið í Þýskalandi

Kóreska stórskyttan Kyung-Shin Yoon hjá Hamburg varð í gær markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta frá upphafi þegar hann skoraði 8 mörk í sigri Hamburg á Wilhelmshavener. Yoon hefur skorað 2662 mörk á ferlinum og toppaði Þjóðverjann Jochen Fraatz. Hann er markahæstur í deildinni enn á ný í ár og er án efa mesti markaskorari í sögu úrvalsdeildarinnar.

Filip Jicha til Kiel

Tékkneska stórskyttan Filip Jicha hefur gengið frá þriggja ára samningi við stórlið Kiel í Þýskalandi og gengur í raðir þess í sumar. Jicha er samherji þeirra Loga Geirssonar og Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar hjá Lemgo. Hann var einn besti leikmaður Tékka á síðasta heimsmeistaramóti og verður 25 ára gamall í vor.

Ólafur tilnefndur sem leikmaður ársins

Ólafur Stefánsson er einn sjö handboltamanna sem Alþjóða Handknattleikssambandið hefur tilnefnt sem leikmenn ársins. Allir geta gefið Ólafi sitt atkvæði með því að fara inn á heimasíðu sambandsins eða með því að smella á hlekkinn hér í fréttinni.

Þýski: Jafntefli hjá Magdeburg og Nordhorn

Magdeburg og Nordhorn gerðu jafntefli, 30-30 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Magdeburg, sem eiga í mjög jafnri toppbaráttu, leiddu með 6 mörkum í hálfleik, 16-10 en glopruðu leiknum niður á síðustu mínútunum.

Stjarnan jók forskotið á toppnum

Stjarnan og Grótta skildu jöfn 21-21 í toppslag DHL deildar kvenna í kvöld eftir að Grótta hafði verið þremur mörkum yfir í hálfleik 12-9. Alina Petrache skoraði 6 mörk fyrir Stjörnuna og Rakel Bragadóttir 5. Florentina Grecu varði 23 skot í markinu. Natasha Damljanovic skoraði 6 mörk fyrir Gróttu og Íris Björk Símonardóttir varði 18 skot í markinu.

Grótta yfir í hálfleik

Grótta hefur yfir 12-9 í hálfleik gegn Stjörnunni í toppleik kvöldsins í DHL-deild kvenna í handbolta. Alina Petrace er komin með 3 mörk í liði Stjörnunnar og Kristín Clausen og Rakel Bragadóttir með 2 hvor. Sandra Paegle og Natasha Damlianovic eru komnar með 3 mörk hvor hjá Gróttu.

Einar Hólmgeirsson úr leik á ný

Einar Hólmgeirsson, landsliðsmaður í handbolta, meiddist í leik með liði sínu, Grosswalsstadt, í þýska handboltanum um helgina. Einar var nýbúinn að ná sér af meiðslum sem hann varð fyrir í lok desember og urðu þess valdandi að hann missti af HM. Þetta kom fram í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Sigur hjá toppliðunum

Toppliðin þrjú í DHL-deild karla í handbolta unnu öll leiki sína í dag þegar fjórir leikir voru á dagskrá í deildinni. Valsmenn eru sem fyrr á toppnum eftir 35-29 sigur á Fylki í dag og HK heldur öðru sætinu eftir góðan útisigur á Stjörnunni 26-25.

Einar Hólmgeirsson kominn af stað eftir meiðsli

Hamburg styrkti stöðu sína í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í dag með góðum sigri á Flensburg á heimavelli 33-31. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur og var sýndur beint á Sýn. Alls voru fjórir leikir á dagskrá í deildinni í dag og í kvöld og þar bar hæst að Einar Hólmgeirsson er nú að ná sér á skrið á ný eftir meiðslin sem kostuðu hann þátttöku á HM í Þýskalandi.

FCK hafði betur í Íslendingaslagnum

FC Kaupmannahöfn hafði betur gegn Skjern 33-27 þegar liðin mættust í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Arnór Atlason skoraði sex mörk fyrir FCK en Vilhjálmur Halldórsson fjögur fyrir Skjern og Vignir Svavarsson eitt. FCK er í efsta sæti deildarinnar en Skjern í því sjöunda.

Grótta burstaði ÍBV

Grótta vann í dag auðveldan sigur á ÍBV í DHL-deild kvenna í handbolta 24-16 eftir að staðan í hálfleik hafði verið jöfn 11-11. Grótta komst upp að hlið Vals í öðru sæti deildarinnar með sigrinum í dag.

Stjarnan í vænlegri stöðu

Stjörnustúlkur færðust skrefi nær fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum í átta ár í kvöld þegar liðið vann öruggan sigur á Val 33-20 á útivelli í DHL-deild kvenna. Stjarnan hefur nú fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar og á leik til góða. Þetta var fyrsti sigur Stjörnunnar á Val í vetur.

Kiel vann stórsigur á Gummersbach

Kiel styrkti stöðu sína á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld með öruggum útisigri á Íslendingaliði Gummersbach 42-37. Heimamenn voru einfaldlega skrefinu á eftir ógnarsterku liði Kiel allan leikinn, fyrir framan metfjölda áhorfenda í Kölnarena - 19.403 áhorfendur sáu leikinn.

Risaslagur í þýska handboltanum í kvöld

Stórleikur Gummersbach og Kiel í þýska handboltanum verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 18:25 í kvöld. Hér er á ferðinni sannkallaður toppleikur þar sem lærisveinar Alfreðs Gíslasonar sem sitja í fjórða sæti deildarinnar taka á móti efsta liðinu Kiel.

Kiel leiðir 23-17 í hálfleik

Topplið Kiel hefur 23-17 forystu gegn Gummersbach í einvígi liðanna í þýska handboltanum þegar flautað hefur verið til leikhlés. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og hefur verið mjög fjörugur og skemmtilegur. Róbert Gunnarsson er kominn með 6 mörk hjá Gummersbach og Guðjón Valur er með 4 mörk.

Arnór með sjö mörk í stórsigri FCK

Arnór Atlason skoraði 7 mörk í kvöld þegar lið hans FCK vann stórsigur á Arhus 38-28. Gísli Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir FCK og Sturla Ásgeirsson skoraði 1 mark fyrir Arhus. FCK er í efsta sæti deildarinnar en Arhus í því fimmta.

Stjarnan burstaði HK

Stjörnustúlkur eru enn á toppi DHL-deildar kvenna í handbolta eftir sannfærandi sigur á HK í gærkvöld 40-26 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 20-11. Rakel Dögg Bragadóttir skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna, sem hefur tveggja stiga forystu á Val og á leik til góða.

Óeirðaseggir hugsanlega útilokaðir frá leikjum

Framkvæmdastjóri handknattleikssambands Íslands segir að óeirðaseggirnir sem stofnuðu til slagsmála á bikarúrslitaleik Stjörnunnar og Fram í gær, verði útilokaðir frá handboltaleikjum í framtíðinni.

Lemgo lagði Flensburg í þýska handboltanum

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fimm mörk og átti stórgóðan leik þegar Lemgo bar sigurorð af Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 34-30. Lemgo var þremur mörkum undir í hálfleik en náði með frábærum leik í síðari hálfleik að snúa leiknum sér í vil. Logi Geirsson lék ekki með Lemgo vegna meiðsla.

Gummersbach færist nær toppsætinu

Íslendingaliðið Gummersbach sigraði Wetzlar, 34-27, í þýska handboltanum í kvöld og er komið með 38 stig í úrvalsdeildinni - jafnmörg og meistarar Kiel sem þó halda toppsætinu á markamun. Íslendingarnir í liði Gummersbach létu fara óvenju lítið fyrir sér í kvöld.

Stjarnan bikarmeistari í karlaflokki

Stjarnan varði bikarmeistaratitil sinn í handbolta karla í dag með því að sigra Íslandsmeistara Fram með afar sannfærandi hætti í Laugardalshöllinni, 27-17. Frábær varnarleikur og mögnuð frammistaða Roland Vals Eradze í markinu lagði grunninn að stórsigri Stjörnunnar, en landsliðsmarkvörðurinn varði 27 skot.

Eradze fer á kostum í Höllinni

Stjarnan er með örugga forystu, 16-9, í hálfleik gegn Fram í bikarúrslitaleik liðanna í Laugardalshöllinni. Ljóst er að það bíður Frömurum verðugt verkefni í síðari hálfleik að vinna upp muninn en Roland Valur Eradze í marki Stjörnunnar hefur reynst leikmönnum liðsins erfiður ljár í þúfu í fyrri hálfleik. Eradze hefur varið alls 14 skot.

Haukastúlkur bikarmeistarar í fjórða sinn

Haukastúlkur tryggðu sér sigur í SS-bikarkeppni kvenna í dag með því að bera sigurorð af Gróttu í úrslitaleik í Laugardalshöllinni, 25-22. Sigur Hauka var sanngjarn en liðið hafði yfirhöndina allan leikinn, ef fyrstu 10 mínúturnar eru undanskildar. Þetta er í fjórða sinn í sögunni sem Haukastúlkur verða bikarmeistarar.

Haukar í góðri stöðu í hálfleik

Haukastúlkur hafa forystu gegn Gróttu, 12-10, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í úrslitaleik liðanna í SS-bikarkeppni kvenna í handbolta. Grótta byrjaði mun betur í leiknum og náði meðal annars 3-0 foyrustu, en eftir því sem liðið hefur á hálfleikinn hafa Haukar smám saman náð yfirhöndinni.

Góður sigur hjá Gummersbach

Gummersbach styrkti stöðu sína í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld með góðum útisigri á Grosswallstadt 33-26. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir gestina og Róbert Gunnarsson 4, en Alexander Petersson skoraði 5 fyrir Grosswallstadt. Alls voru fjórir leikir á dagskrá í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir