Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pearce áhugasamur Stuart Pearce, stjóri Manchester City, hefur viðurkennt að hafa átt spjall við enska knattspyrnusambandið um að taka við ungmennaliði Englendinga. Peter Taylor sagði af sér sem þjálfari U-21 árs liðsins á dögunum vegna anna með félagsliði sínu Crystal Palace. 26.1.2007 14:50
Samba til Blackburn Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn gekk í dag frá kaupum á kongóska landsliðsmanninum Christopher Samba frá Hertha Berlín í Þýskalandi. Hinn 22 ára gamli varnarmaður hefur skrifað undir samning til ársins 2010, en hann er fæddur í París í Frakklandi. 25.1.2007 20:44
Taylor hættur með enska U-21 árs liðið Peter Taylor sagði í dag af sér sem þjálfari U-21 árs liðs Englendinga í knattspyrnu. Taylor er líka knattspyrnustjóri 1. deildarliðsins Crystal Palace og segist vilja einbeita sér að því að stýra liði Palace. 25.1.2007 20:19
Drogba viðurkennir titring í herbúðum Chelsea Fílstrendingurinn Didier Drogba hjá Chelsea segir að vissulega hafi verið titringur í herbúðum félagsins að undanförnu, en segist styðja knattspyrnustjórann sinn í einu og öllu. 25.1.2007 20:06
Hleb verður frá keppni í mánuð Miðjumaðurinn Alexander Hleb verður ekki með liði Arsenal næstu vikurnar eftir að hann tognaði á læri í leiknum við Tottenham í gærkvöld. Þá er talið að Robin Van Persie gæti þurft allt að tíu vikur til að jafna sig af ristarbroti sínu, en ekki sex eins og talað var um í fyrstu. 25.1.2007 19:58
United er betra lið en Chelsea Eric Cantona, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að United sé með betra lið en Chelsea í dag og verði það næstu árin. Cantona vann sjálfur fjóra meistaratitla með United á sínum tíma og segir Alex Ferguson vera rétta manninn til að tryggja góðan árangur liðsins næstu ár. 25.1.2007 14:17
Parlour og Ehiogu farnir frá Middlesbrough Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough, hefur leyst þá Ray Parlour og Ugo Ehiogu undan samningi sínum við félagið. Parlour er 33 ára og hefur átt við þrálát meiðsli að stríða, en hann er nú að leita sér að nýju félagi og ekki er talið útiloka að hann fari til Bandaríkjanna. Ehiogu er í viðræðum við Rangers í Skotlandi. 25.1.2007 13:55
Taylor hættir sem þjálfari ungmennaliðs Englendinga Peter Taylor hefur sagt starfi sínu lausu sem þjálfari 21 árs landsliðs Englendinga til þess að einbeita sér að þjálfun enska fyrstu deildar liðsins Crystal Palace. Taylor hefur þjálfað ungmennaliðið í nærri þrjú ár en hann þjálfaði það einnig á árabilinu 1996-1999. 25.1.2007 11:05
Real sagt reiðubúið að borga 4,5 milljarða fyrir Cristiano Ronaldo Spænskir miðlar greina frá því í morgun að Real Madrid sé reiðubúið að greiða Manchester United 50 milljónir evra, jafnvirði um 4,5 milljarða króna, fyrir portúgalska landsliðsmanninn Cristiano Ronaldo. 25.1.2007 10:13
Kewell vonast til að verða klár fyrir leikina gegn Barcelona Harry Kewell, hin meiðslum hráði leikmaður Liverpool vonast til að vera orðinn heill heilsu fyrir leikina gegn Barcelona í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Kewell hefur ekkert spilað á yfirstandandi leiktíð eftir að hann meiddist á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í fyrra. 25.1.2007 09:18
Villidýrið gekk laust á White Hart Lane Brasilíumaðurinn Julio Baptista setti á svið sýningu í kvöld þegar Tottenham og Arsenal skildu jöfn í fyrri undanúrslitaleik sínum í enska deildarbikarnum. Dimitar Berbatov kom Tottenham yfir í leiknum, en það var Baptista sem sá um tilþrifin eftir það - ekki ósvipað og gegn Liverpool í 8-liða úrslitunum á dögunum. 24.1.2007 22:10
Engar breytingar fyrirhugaðar hjá Wenger Arsene Wenger var að vonum ánægður með baráttuanda varaliðs síns í kvöld sem var óheppið að fara ekki með öll stigin frá White Hart Lane þegar Tottenham og Arsenal skildu jöfn í fyrri leik sínum í undanúrslitum deildarbikarsins. Hann segir ungliða sína hafa unnið sér inn að spila síðari leikinn á heimavelli. 24.1.2007 23:29
Við vorum þreyttir Martin Jol, stjóri Tottenham, sagði að þreyta leikmanna hefði verið helsta ástæða þess að hans menn misstu niður 2-0 forystu gegn varaliði Arsenal í enska deildarbikarnum í kvöld. Tottenham var yfirspilað á heimavelli í kvöld og mátti þakka fyrir að halda jöfnu gegn spræku liði gestanna. 24.1.2007 23:24
Hasselbaink sektaður fyrir ummæli í ævisögu sinni Hollenski framherjinn Jimmy Floyd Hasselbaink hjá Charlton hefur verið sektaður og gefin ströng viðvörun af enska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sín í garð fyrrum félaga sinna í Chelsea í nýútkominni ævisögu sinni. 24.1.2007 23:15
Tottenham hefur yfir gegn Arsenal Tottenham hefur yfir 2-0 þegar flautað hefur verið til leiklés í fyrri leik liðsins gegn grönnunum í Arsenal í enska deildarbikarnum. Dimitar Berbatov kom Tottenham yfir snemma leiks og síðara mark liðsins á White Hart Lane var sjálfsmark Julio Baptista. Leikurinn er sýndur beint á Sýn í lýsingu Harðar Magnússonar. 24.1.2007 21:09
Diaby í liði Arsenal í fyrsta sinn í 8 mánuði Nú er fyrri undanúrslitaleikur Tottenham og Arsenal í enska deildarbikarnum að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Abu Diaby er kominn í byrjunarlið Arsenal eftir átta mánaða fjarveru vegna meiðsla og þeir Didier Zokora og Aaron Lennon koma inn í lið Tottenham á ný. 24.1.2007 20:07
Man City á eftir Mido Breska sjónvarpið greinir frá því nú síðdegis að enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City sé að íhuga að bjóða í framherjann Mido hjá Tottenham. Mido er ekki í náðinni hjá Martin Jol knattspyrnustjóra og hefur óstöðugt form hans og vandræði utan vallar orðið til þessa að hann er væntanlega á leið frá félaginu. Mido hefur einnig verið orðaður við félög á Spáni, en verðmiðinn sem settur hefur verið á hann hefur fælt hugsanlega kaupendur frá. 24.1.2007 17:14
Ballack hefði átt að fara til United Frans "Keisari" Beckhenbauer, forseti Bayern Munchen, hefur aldrei setið á skoðunum sínum og í dag sagði hann að Michael Ballack hefði aldrei átt að fara til Chelsea heldur hefði verið nær fyrir hann að ganga í raðir Manchester United. 24.1.2007 16:22
Terry framlengir ef Mourinho verður áfram Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, staðfesti í gærkvöld að verið væri að leggja lokahönd á nýjan samning handa fyrirliðanum John Terry. Nýr samningur hans er talinn verða einhver sá stærsti í sögu úrvalsdeildarinnar, en því er haldið fram að Terry vilji aðeins framlengja ef hann fái tryggingu fyrir því að Jose Mourinho verði áfram knattspyrnustjóri Chelsea. 24.1.2007 15:15
Rocky veitti leikmönnum Watford innblástur Adrian Boothroyd, stjóri Watford í ensku úrvalsdeildinni, segir að það hafi verið nýja myndin um Rocky sem veitti leikmönnum sínum innblástur í gærkvöld þegar liðið vann afar sjaldgæfan og mikilvægan sigur. Boothroyd segist vonast til að lið Watford nái að setja á svið endurkomu á borð við þá sem hnefaleikahetjan Rocky hefur nú boðið áhorfendum á hvíta tjaldinu upp á í þrjá áratugi. 24.1.2007 14:28
Del Piero afþakkaði að fara til Man Utd í sumar Framherjinn Alessandro Del Piero hjá Juventus sagði í viðtali við breska blaðið The Sun í dag að honum hefði boðist að ganga í raðir Manchester United í sumar. "United hafði samband við mig og ég hefði geta farið til Englands, en ég ákvað að vera áfram í Torinu. Ég var upp með mér yfir áhuga United, en ég hef verið 13 ár í Tórínó og hér vil ég ljúka ferlinum, "sagði Del Piero og sagðist búast ivð því að Sir Alex Ferguson myndi skilja ákvörðun sína. 24.1.2007 14:22
Baros var nálægt því að ganga í raðir Chelsea Tékkneski framherjinn Milan Baros hefur viðurkennt að hann hafi verið hársbreidd frá því að ganga í raðir Englandsmeistara Chelsea á dögunum, en ekkert hafi orðið af viðskiptunum eftir að Shaun Wright-Phillips vildi ekki fara til Aston Villa í skiptum félaganna. 24.1.2007 13:42
Barcelona hefur boðið í Rossi Umboðsmaður framherjans Giuseppe Rossi hjá Manchester United segir að Barcelona hafi fyrir nokkru gert 4,1 milljón punda tilboð í leikmanninn. Rossi er nú sem lánsmaður hjá gamla liðinu sínu Parma á Ítalíu og fór á kostum þar í sínum fyrsta leik um helgina. 24.1.2007 12:58
Simon Davies til Fulham Kantmaðurinn Simon Davies hefur gengið í raðir Fulham frá Everton fyrir óuppgefna upphæð, en Davies hefur ekki átt sæti í liði Everton undanfarið. Hann er 27 ára landsliðsmaður Wales og sló í gegn hjá Tottenham á sínum tíma. 24.1.2007 12:51
Martin Jol ögrar liði sínu Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur nú sent leikmönnum sínum skýr skilaboð í fjölmiðlum fyrir leikina gegn erkifjendunum í Arsenal í enska deildarbikarnum. Fyrri leikur liðanna verður sýndur beint á Sýn í kvöld. 24.1.2007 12:41
Savage fótbrotinn Blackburn varð fyrir miklu áfalli í gær þegar miðjumaðurinn Robbie Savage þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik í tapinu gegn Watford og í ljós kom að hann er fótbrotinn. Líklegt þykir að hann muni því ekki koma meira við sögu á leiktíðinni. 24.1.2007 12:29
Sagan ekki á bandi Tottenham Ef tekið er mið af sögunni á Tottenham ekki mikla möguleika á að vinna granna sína í Arsenal í undanúrslitum enska deildarbikarsins, en liðin mætast í fyrri leik sínum á White Hart Lane annað kvöld. Tottenham hefur ekki unnið sigur í 15 leikjum gegn grönnum sínum. 23.1.2007 18:30
Einvígi Davíðs og Golíats á Sýn í kvöld Síðari undanúrslitaleikur Chelsea og Wycombe í enska deildarbikarnum verður sýndur beint sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:35. Öskubuskulið Wycombe náði 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli sínum og leitast við að gera hið ómögulega á Stamford Bridge í kvöld. 23.1.2007 16:15
Wenger hefur fulla trú á kjúklingunum Arsene Wenger ætlar ekki að breyta út af vananum annað kvöld þegar Arsenal sæki granna sína í Tottenham heim á White Hart Lane í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins, en þar mun Arsenal tefla fram svipuðu liði og burstaði Liverpool í keppninni á dögunum. 23.1.2007 14:08
Tilboði West Ham neitað 1. deildarlið Birmingham neitaði í dag nýju og endurbættu 6 milljón punda tilboði West Ham í varnarmanninn Matthew Upson. Steve Bruce knattspyrnustjóri er staðráðinn í að halda í Upson til loka leiktíðar, en Birmingham er í ágætri aðstöðu til að komast upp um deild í vor. 23.1.2007 14:03
Tottenham kaupir Ricardo Rocha Tottenham gekk í dag frá kaupum á portúgalska landsliðsmanninum Ricardo Rocha frá Benfica. Rocha er 28 ára gamall miðvörður og fréttir herma að hann hafi kostað enska félagið um 4 milljónir punda. 23.1.2007 13:51
Reyna á heimleið Claudio Reyna, fyrirliði bandaríska landsliðsins, hefur verið leystur undan samningi sínum við Manchester City og er á leið til heimalandsins. Reyna hefur átt við meiðsli að stríða undanfarið og hefur ekki náð að vinna sér sæti í liði City í vetur. Hann er 33 ára gamall og gekk í raðir City frá Sunderland í ágúst árið 2003 fyrir 2,5 milljónir punda. 23.1.2007 12:14
Blanco lánaður til West Ham Framherjinn Kepa Blanco hjá Sevilla hefur verið lánaður til Íslendingaliðsins West Ham á Englandi til loka leiktíðar. Blanco er 23 ára gamall og vitað er að Manchester City, Charlton og Everton voru á höttunum eftir honum. Blanko hefur skorað 3 mörk í 9 leikjum fyrir Sevilla á leiktíðinni. 22.1.2007 18:34
Neill til West Ham - Warnock til Blackburn Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn gekk í dag frá sölu á varnarmanninum Lucas Neill til West Ham og hefur nú fyllt skarð hans með kaupum á Stephen Warnock frá Liverpool. Warnock hafði aðeins spilað sjö leiki með Liverpool í vetur og var fyrir aftan þá John Arne Riise og Fabio Aurelio í goggunarröðinni. 22.1.2007 17:39
Henry er besti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar Enski landsliðsmaðurinn Michael Owen segir í viðtali við tímarit Sky sjónvarpsstöðvarinnar að Thierry Henry hjá Arsenal sé besti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. "Ég er alltaf jafn gáttaður á hæfileikum Henry," segir Owen í blaðinu sem kemur út í næsta mánuði. Owen hefur sett stefnuna á að snúa aftur úr meiðslum sínum í apríl í vor. 22.1.2007 17:03
Carew á leið til VIlla í skiptum fyrir Baros Eins og greint var frá í morgun er tékkneski landsliðsmaðurinn Milan Baros nú búinn að ganga frá félagaskiptum sínum frá Aston Villa til franska liðsins Lyon. Félögin hafa í hyggju að skipta á leikmönnum og ef allt gengur að óskum mun norski framherjinn John Carew fara til Villa í staðinn. 22.1.2007 16:58
Erfiðast að venjast veðrinu Ekki eru allir útlendingar í ensku úrvalsdeildinni lengi að smella inn í knattspyrnuna þar í landi og á meðan hvorki gengur né rekur hjá framherjanum Andriy Shevchenko hjá Chelsea, hefur Ítalinn Vincenzo Montella farið á kostum í fyrstu leikjum sínum með Fulham. 22.1.2007 12:37
Shay Given verður frá í mánuð Írski markvörðurinn Shay Given verður frá keppni í að minnsta kosti mánuð eftir að hann tognaði á nára í leiknum við West Ham um helgina sem lauk með jafntefli 2-2. Þetta er í annað sinn sem Given meiðist gegn West Ham á þessari leiktíð. Liðið er þó ekki á flæðiskeri statt, því varamarkvörðurinn Steven Harper hefur þegar náð sér af sínum meiðslum. 22.1.2007 12:29
Anelka vill fara aftur til Arsenal Franski framherjinn Nicolas Anelka viðurkenndi í samtali við fjölmiðla í heimalandi sínu um helgina að hann væri vel til í að fara aftur til Arsenal, þar sem hann hóf feril sinn á Englandi á sínum tíma. Þessi ummæli hans fara eflaust öfug ofan í knattspyrnustjóra hans Sam Allardyce hjá Bolton. 22.1.2007 12:22
Fernandes í læknisskoðun hjá Everton Enska úrvalsdeildarfélagið Everton er nú í viðræðum við miðjumanninn Manuel Fernandes hjá Benfica og gengur væntanlega frá lánssamningi við hann í dag ef hann stenst læknisskoðun sem stendur yfir nú í hádeginu. Fernandes er tvítugur og ef hann stendur sig vel fram á vor mun hann væntanlega ganga formlega í raðir Everton í sumar. Hann var áður hjá Portsmouth og spilaði þar 12 leiki. 22.1.2007 12:18
Baros á leið til Lyon Forráðamenn Lyon í Frakklandi segja að nú sé aðeins klukkutímaspursmál hvenær liðið landi tékkneska framherjanum Milan Baros frá Aston Villa. Félögin hafa verið í viðræðum síðan á föstudag og forseti franska félagsins er mjög bjartsýnn á að ná að klára viðskiptin fljótlega. 22.1.2007 12:15
10 milljón punda tilboð í Bale væntanlegt Breska sjónvarpið greindi frá því í morgun að ónefnt félag væri að íhuga að gera 10 milljón punda kauptilboð í velska ungstirnið Gareth Bale hjá Southampton. Félagið hefur tekið það fram að Bale verði ekki seldur fyrr en í fyrsta lagi í sumar og hefur þegar neitað tilboðum á bilinu 6-8 milljónir punda frá félögum eins og Tottenham og Manchester United. 22.1.2007 12:11
United mun halda velli Arsene Wenger segir að titilvonir Manchester United hafi ekki beðið hnekki í gær þrátt fyrir tapið fyrir Arsenal. "United er mjög sigurstranglegt í deildinni og þó tapið fyrir okkur hafi verið þeim mikið áfall, veit ég að liðið mun taka sig saman í andlitinu og halda áfram að vinna. Það er hinsvegar fínt fyrir deildina að allir séu enn inni í myndinni," sagði Wenger. 22.1.2007 12:02
Johnson slapp við brot Framherjinn skæði Andy Johnson hjá Everton er ekki ökklabrotinn eins og óttast var í fyrstu þegar hann meiddist illa í leik Wigan og Everton í dag. Johnson var borinn af velli og færður á sjúkrahús, en þar leiddi rannsókn í ljós að hann er óbrotinn. Enn er þó ekki víst hvenær hann getur spilað á ný. 21.1.2007 22:15
Van Persie úr leik í sex vikur Jöfnunarmark hollenska framherjans Robin Van Persie hjá Arsenal gegn Manchester United reyndist honum dýrt, því í myndatöku eftir leikinn kom í ljós að hann er með brákað bein á ristinni og verður því frá keppni í að minnst sex vikur. 21.1.2007 21:02