Fleiri fréttir

Ég skil ekki hvað hann var að gera

Ejub Purisevic átti engin svör þegar hann var spurður út í vítaspyurnuna sem Víkingur Ólafsvík fékk á sig í leiknum gegn Keflavík í gær.

Samantekt úr leik Víkings og Keflavíkur

Hér má sjá svipmyndir úr leik Víkings Ó og Keflavíkur í 3. umferð Pepsi-deild karla en ekki var hægt að sýna þær í Pepsi-mörkunum í gær af tæknilegum ástæðum.

Rauða spjaldið hárrétt ákvörðun | Myndband

Gylfi Þór Orrason, formaður dómaranefndar KSÍ, segir að Kristinn Jakobsson hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann rak FH-inginn Guðjón Árna Antoníusson af velli í gær.

Ég og Kiddi erum bestu vinir

Rúnar Már Sigurjónsson segir það rangt sem kom fram í Pepsi-mörkunum í gær að hann hafi rifist við Kristinn Frey Sigurðsson, liðsfélaga sinn hjá Val, í leik liðsins gegn Fram í gær.

Klúðrið sem kom Gary í gang | Myndband

Gary Martin var maður leiksins í 3-0 sigri KR á Þórs í gær, enda skoraði hann og lagði upp mark. En hann fór líka illa að ráði sínu fyrir framan mark andstæðingsins.

David James: Íslenska sólin er til vandræða

Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport, tók viðtal við David James, markvörð ÍBV, eftir 1-1 jafntefli liðsins í kvöld á móti Íslandsmeisturum FH. James líkar lífið á Íslandi en kvartar undan dagsbirtunni á Íslandi.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - ÍA 4-1

Skagamenn eru enn án stiga í Pepsi-deild karla eftir 1-4 tap fyrir Blikum á Kópavogsvelli í kvöld. Blikar skoruðu öll fjögur mörkin sín á síðustu sjö mínútum leiksins og þar af gerði Elfar Árni Aðalsteinsson tvö þeirra.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - Fram 1-1

Valsmenn og Framarar gerðu 1-1 jafntefli í þriðju umferð Pepsi-deildarinnar á Hlíðarenda í kvöld. Valsmenn fengu kjörið tækifæri til að tryggja sér sigurinn í lokin en Kristinn Freyr Sigurðsson skaut í stöngina úr vítaspyrnu sjö mínútum fyrir leikslok.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: FH - ÍBV 1-1

FH og ÍBV skildu jöfn 1-1 í toppslag Pepsí deildar karla í fótbolta í kvöld. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. Guðjón Árni Antoníusson fékk að líta rauðaspjaldið skömmu fyrir leikslok.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur Ó - Keflavík 1-3

Þrjú mörk á síðasta hálftímanum tryggðu Keflavík 3-1 sigur á Víkingi í Ólafsvík í 3. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Víkingur er enn stigalaus á botni deildarinnar en gestirnir nældu í sín fyrstu stig í sumar.

Kristinn skoraði flottasta markið

Það kom fáum á óvart að mark Kristins Jónssonar hafi verið kjörið besta mark annarrar umferðar Pepsi-deildar karla af lesendum Vísis.

Tíu þjóðir eiga leikmann í Víkingi

Víkingar úr Ólafsvík hafa samið við spænska varnarmanninn Kiko Insa og króatíska varnarmanninn Mate Jujilo sem báðir verða löglegir fyrir leikinn á móti Keflavík í Pepsi-deildinni í kvöld.

Versta byrjun nýliða í hálfa öld

Nýliðar Þórs og Víkings frá Ólafsvík eru enn stigalausir að loknum fyrstu tveimur umferðunum í Pepsi-deild karla en það er í fyrsta sinn síðan 1963 sem það gerist í efstu deild. Þriðja umferðin fer öll fram í kvöld.

Breyta Valsmenn hefðinni?

Valsmenn eru með sex stig (fullt hús) í Pepsi-deild karla og það þrátt fyrir að hafa einir liða í deildinni ekki spilað heimaleik í fyrstu tveimur umferðunum. Þetta er þriðja sumarið í röð þar sem Valsmenn eru með fullt hús á þessum tíma en í hin tvö skiptin hefur liðið ekki náð að fylgja þessum sigrum eftir og tapað leikjum sínum í 3. og 4. umferð.

Arnar Már lánaður til Ólafsvíkur

Víkingur Ólafsvík hefur fengið sóknarmanninn Arnar Má Björgvinsson lánaðan frá Breiðabliki. Lokað verður fyrir félagaskipti á Íslandi í lok dagsins.

Eilífsliturinn fer mér vel

Baldur Sigurðsson er leikmaður annarrar umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði bæði mörk KR í 2-0 sigri á hans gamla félagi, Keflavík. Baldur var að glíma við magavírus fyrir leikinn.

Þetta eru liðin 32 sem verða í pottinum á morgun

Í kvöld varð endanlega ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í 32 liða úrslit Borgunarbikars karla í fótbolta á morgun. Átta síðustu liðin tryggðu sér farseðilinn í aðalkeppnina í kvöld þar á meðal 1. deildarlið Grindavíkur og Tindastóls.

Nýliðarnir skotnir niður á jörðina í Eyjum

Nýliðar HK/Víkings voru nálægt því að vinna Breiðablik í 1. umferð Pepsi-deildar kvenna en þær áttu ekki möguleika í öðrum leik sínum í Vestmannaeyjum í kvöld. Heimastúlkur í ÍBV komust í 3-0 eftir 11 mínútur og unnu að lokum fimm marka sigur, 7-2. Shaneka Jodian Gordon skoraði þrennu fyrir ÍBV.

Tvö mörk á fyrsta hálftímanum dugðu Stjörnunni

Stjarnan vann 2-1 sigur á Þór/KA í 2. umferð Pepsi-deildar kvenna í fótbolta í kvöld en leikurinn fór fram á Þórsvelli á Akureyri. Íslandsmeistarar Þór/KA eru því bara með eitt stig eftir tvo fyrstu leiki sína í titilvörninni en Stjarnan er aftur á móti með fullt hús.

Breiðablik í basli eftir stóra sigra

Breiðablik fór illa með nýliða Þórs í 1. umferð Pepsi-deildarinnar. Þeim grænu og hvítu gengur hins vegar bölvanlega að fylgja stórum sigrum á eftir ef litið er til sögunnar.

Stjarnan skorað í 22 heimaleikjum í röð

Stuðningsmenn Stjörnunnar er áskrifendur að mörkum hjá karlaliði sínu á Samsung-vellinum í Garðabæ. Stjarnan hefur skorað í 22 heimaleikjum í röð.

Slor og skítur í Eyjum | Myndband

ÍBV er með fullt hús að loknum fyrstu tveimur umferðunum í Pepsi-deild karla og óhætt að fullyrða að stemningin í Eyjum sé góð.

Fjögur 1. deildarlið duttu út úr bikarnum í kvöld

Joseph David Yoffe skoraði þrennu fyrir Selfoss og Hilmar Árni Halldórsson var með þrennu fyrir Leikni í kvöld þegar lið þeirra tryggðu sér sæti í 32 liða úrslitum Borgunarbikarsins. Fjögur 1. deildarlið féllu út úr bikarnum í kvöld en það voru KA, Fjölnir, Haukar og KF.

Magni sló KA út úr bikarnum

D-deildarlið Magna er komið áfram í 32 liða úrslit Borgunarbikar karla eftir óvæntan 2-1 sigur á nágrönnum sínum í KA þegar liðin mættust í kvöld í Boganum á Akueyri.

Sytnik kominn til Grindavíkur

Denis Sytnik, fyrrum leikmaður ÍBV, er kominn til Grindavíkur og mun spila með liðinu í 1. deildinni í sumar.

Framarar styrkja sig

Mauritz Erbs, Þjóðverji á átjánda aldursári, hefur samið við Fram um að leika með félaginu í sumar.

Barist um farseðilinn til Svíþjóðar

Evrópumót kvennalandsliða í knattspyrnu hefst þann 10. júlí í Svíþjóð. Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson glímir við þann hausverk næstu vikurnar að móta 23 manna landsliðshóp sinn.

Einstök byrjun hjá þjálfara í Eyjum

Hermann Hreiðarsson stýrði ÍBV til sigurs í gær í öðrum leiknum í röð í Pepsi-deild karla og endurskrifaði með því þjálfarasöguna í Vestmannaeyjum.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Breiðablik 4-1 | Eyjamenn með fullt hús

Eyjamenn eru með fullt hús í Pepsi-deild karla eftir 4-1 sigur á Breiðabliki í Vestmannaeyjum í kvöld. Hermann Hreiðarsson hefur því stýrt sínu liði til sigurs í fyrstu tveimur leikjum sínum sem þjálfari í Pepsi-deildinni. Bradley Simmonds skoraði tvö marka Eyjamanna og þeir Tonny Mawejje og Ragnar Pétursson innsigluðu síðan sigurinn á lokakafalnum.

Eiga að fylgjast með vandræðagemsunum

Í undirbúningi sínum fyrir leiki eiga íslenskir knattspyrnudómarar að hugleiða "vandræðagemsa" og "síbrotamenn". Þetta kemur fram í áhersluatriðum Dómaranefndar KSÍ fyrir tímabilið 2013.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Stjarnan - Víkingur 3-2

Stjarnan vann fínan sigur, 3-2, á nýliðum Víkings frá Ólafsvík. Jóhann Laxdal átti frábæran leik fyrir Stjörnuna og gerði tvö mörk. Víkingar hafa því tapað fyrstu tveim leikjum tímabilsins en Stjörnumenn unnu í kvöld sinn fyrsta sigur á mótinu.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Þór - FH 0-3

Þór tapaði sínum fyrsta heimaleik í sumar þegar FH-ingar komu í heimsókn í dag. Guiseppe Funicello skoraði sjálfsmark og Ingimundur Níels Óskarsson og Guðmann Þórisson skoruðu fyrir FH. Atli Guðnason lagði upp tvö mörk.

Sjá næstu 50 fréttir