Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - KR 0-2 Árni Jóhannsson í Keflavík skrifar 12. maí 2013 18:30
Baldur Sigurðsson skoraði bæði mörk KR þegar liðið vann 2-0 sigur á Keflavík í 2. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld en leikurinn fór fram á Nettó-vellinum í Keflavík. KR-ingar hafa þar með unnið tvo fyrstu leiki sína í deildinni í ár en Keflvíkingar sitja eftir stigalausir. Sigur gestanna var nokkuð sanngjarn og þægilegur þar sem KR stjórnaði leiknum nokkurn veginn allan tímann. Á 30. mínútu leiksins náði Gary Martin framherji KR í aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi heimamanna og tók Bjarni Guðjónsson spyrnuna. Sendi hann boltann inn á miðjan teig Keflvíkinga þar sem Baldur Siguðsson var einn og óvaldaður og henti sér fram og skallaði boltann í net Keflvíkinga án þess að David Preece markmaður kom nokkrum vörnum við. Þremur mínútum seinna fengu Keflvíkingar sitt besta færi þegar Frans Elvarsson fékk boltann á lofti inn í teig KR-inga og smellhitti boltann á mark gestanna. Hannes Þór Halldórsson sá hinsvegar við honum með frábærri markvörslu og sýndi afhverju hann hefur verið fyrsti kostur Lars Lägerback í undanförnum landsleikjum. Ray Anthony Jónsson hafði síðan heppnina með sér þegar hann renndi sér í tveggja fóta tæklingu á Þorstein Má Ragnarsson. Góður dómari leiksins Þorvaldur Árnason sá hinsvegar ekki ástæðu til að senda bakvörðin út af en lyfti gula spjaldinu í staðinn. Ekki gerðist fleira markvert í fyrri hálfleik og gestirnir héldu til búningsherbergja með sanngjarna eins marks forystu. Fyrstu tíu mínútur seinni hálfleiks mættu Vesturbæjingar af krafti til leiks og áttu nokkrar þungar sóknir á mark heimamanna án þess þó að uppskera mark. Á 55. mínútu leiksins fékk Baldur Sigurðsson boltann í miðjum vítateignum og sýndi gífurlega yfirvegun þegar hann stýrði boltanum á lofti í stöngina og inn. Eftir markið hresstust Keflvíkingar við án þess þó að skapa sér opin marktækifæri. KR-ingar sýndu það afhverju þeim er spáð ofarlega í töflunni í lok móts og sigldu þremur stigum í hús án þess að hafa mikið fyrir því. Baldur Sigurðsson sýndi stórleik fyrir Vesturbæinga og var maður leiksins frá upphafi til enda. Skoraði Baldur tvö mörk og stýrði miðjunni fyrir KR-inga eins og herforingi.Baldur: Líður vel hér Baldur Sigurðsson var hetja KR-inga í kvöld og skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri á Keflavík. Hann skoraði einnig tvö mörk í 3-2 sigri KR á þessum velli fyrir tveimur árum síðan, auk þess sem hann er vitaskuld fyrrum leikmaður liðsins. „Mér líður vel hér. Mér gekk vel þegar ég var í Keflavík og svo oftast þegar ég hef komið hingað sem KR-ingur,“ sagði Baldur við vísi eftir leik. „Við gerðum það sem var lagt upp með hér í dag og það gekk vel. Þeir lentu í smá vandræðum með dekkninguna og ég náði að fá tvö skallafæri nánast á sömu mínútunni. Sem betur fer nýtti ég annað þeirra,“ segir Baldur en síðara markið skoraði hann með glæsilegu skoti. „Það var búið að tala um að Keflavík hafði staðið sig vel gegn FH og við vorum að mæta hörkuliði hér í kvöld. Leikplanið gekk sem betur fer upp hjá okkur og við erum með sex stig eftir tvo leiki. Það verður varla betra en það.“Rúnar: Við stjórnuðum leiknum „Leikmenn mínir stóðu sig vel. Þeir sýndu agaðan leik hér í kvöld og gerðu það sem lagt var upp með samviskusamlega,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir sigur sinna manna á Keflavík. Leikurinn fór nokkuð rólega af stað og bæði lið beittu ítrekað löngum sendingum sem báru ekki alltaf mikinn árangur. „Auðvitað viljum við hafa betri stjórn á boltanum en það og við gerðum það undir lok leiksins, þegar staðan okkar í leiknum var þægileg. En við lentum í vandræðum með vindinn auk þess sem að aðstæður eru ekki þær bestu í upphafi móts,“ sagði þjálfari KR-inga. „Mér fannst við þó stjórna leiknum betur en þeir, auk þess að skapa hættulegri færi. Mér fannst sigurinn sanngjarn. Þetta var fyrst og fremst liðssigur og menn hafa verið óhræddir við að setja kröfur á manninn sem stendur við hliðina á þeim. Þannig náðum við að stilla saman strengi.“ Hann lofaði einnig lið Keflvíkinga. „Þetta eru ungir og efnilegir strákar sem vilja sýna hvað þeir geta. Þeir fengu eldskírn í deildinni í fyrra og ég held að þeir eiga eftir að sýna styrk sinn eftir því sem líður á tímabilið.“Zoran: Áttum ekkert skilið Zoran Daníel Ljubicic, þjálfari Keflavíkur, var vitaskuld óánægður með niðurstöðu leiksins og frammistöðu sinna manna. „Þetta voru vonbrigði. Við áttum ekkert skilið úr þessum leik,“ sagði Zoran við Vísi eftir leik. „KR-ingar voru miklu grimmari og ákveðnari, á meðan að við gerðum allt of mörg mistök. Mörkin sem við fengum á okkur voru klaufaleg og ég tel að þetta hafi verið sanngjarn sigur KR-inga.“ „Ég var mjög svekktur með hvernig við komum inn í leikinn. Við fengum nokkur ágæt færi í fyrri hálfleik en vorum heilt yfir langt frá okkar besta.“ Arnór Ingvi Traustason var á bekknum í kvöld en Zoran segir að það eigi sér eðlilegar skýringar. „Hann er búinn að vera veikur og við viljum fara varlega með hann. Það er ástæðan fyrir því að hann var á bekknum,“ sagði Zoran en þess má geta að markvörðurinn Ómar Jóhannsson var ekki í hóp Keflavíkur í kvöld vegna meiðsla. Keflavík er nú búið að spila við FH og KR í fyrstu tveimur umferðunum og er enn stigalaust. Zoran segir það engu breyta þó svo að liðið hafi mætt tveimur af sterkustu liðum deildarinnar til þessa. „Það eru öll lið erfið í þessari deild. Skiptir engu hvort liðið heitir FH, KR eða Víkingur Ólafsvík. Við þurfum að spila vel gegn öllum liðum og sama hvort það er í fyrstu eða síðustu umferð. Ég var svekktur með spilamennskuna í kvöld og mér finnst við geta gert miklu betur.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Fleiri fréttir Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira