Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Þór - FH 0-3 Hjalti Þór Hreinsson og Ólafur Haukur Tómasson á Þórsvelli skrifar 12. maí 2013 00:01
Þór tapaði sínum fyrsta heimaleik í sumar þegar FH-ingar komu í heimsókn í dag. Guiseppe Funicello skoraði sjálfsmark og Ingimundur Níels Óskarsson og Guðmann Þórisson skoruðu fyrir FH. Atli Guðnason lagði upp tvö mörk. Páll Viðar Gíslason gerði eina breytingu á liði Þórs sem tapaði 4-1 fyrir Blikum í fyrsta leik. Jóhann Helgi Hannesson, sem skoraði mark Þórs í leiknum, kom inn fyrir Orra Sigurjónsson. Hjá FH voru markaskorararnir frá 2-1 sigrinum gegn Keflavík meiddir, Atli Viðar og Albert Brynjar og inn komu Ingimundur Níels og Brynjar Ásgeir Guðmundsson. Kristján Gauti Emilsson átti að byrja en hann meiddist í upphitun. Jóhann Þórhallsson fékk fyrsta færið þegar hann komst einn á auðan sjó gegn Róberti eftir stungusendingu frá Mark Tubæk en skot hans var slakt og það endaði framhjá. Bæði lið sóttu ágætlega og sköpuðu hættur en engin dauðafæri á upphafsmínútunum, en hið fyrsta fékk Atli Guðnason en skot hans eftir sendingu frá Ólafi Páli fór í stöngina. Þórsarar léku ágætlega en skorti oft betri ákvarðanir þegar nær dró marki FH. Sendingar við vítateig andstæðinganna voru oft slakar og fyrir vikið reyndi lítið á Róbert í markinu. Emil Pálsson skoraði mark fyrir FH sem var dæmt af vegna rangstöðu eftir glæsilega sókn, keimlíkri þeirri þegar Atli skaut í stöngina. Fyrri hálfleikur var markalaus en FH var markvissara fram á við. Þeir reyndu margar stungusendingar og Ingimundur Níels var oft fyrir innan, en það var greinileg dagsskipun að fara á bakvið Guiseppe Funicello, sem lék í vinstri bakverði. Um miðjan hálfleik fékk Páll Viðar þjálfari Mark Tubæk til að detta vel niður til að aðstoða Funicello við Ólaf Pál sem var skeinuhættur á kantinum. Róbert Örn bjargaði FH svo í tvígang í upphafi síðari hálfleiks. Fyrst varði hann frábærlega skalla úr dauðafæri frá Jóhanni Helga og svo langskot Jóhanns Þórhallssonar. Fyrsta markið kom eftir frábæra sókn FH. Eftir snöggt innkast átti Brynjar sendingu á Atla Guðnason sem klobbaði varnamann og sendi fyrir þar sem Funicello setti boltann í eigið net. Það var svo FH sem skoraði aftur og kláraði leikinn. Eftir langa sendingu upp kantinn lék Atli Guðnason inn í teiginn go átti frábæra sendingu á fjærstöngina þar sem Ingimundur Níels renndi boltanum í netið. Einfalt og árangursríkt. FH fékk betri færi eftir þetta og leikur Þórs fjaraði út. Guðmann Þórisson kláraði leikinn með fínu marki í uppbótartíma, með síðustu spyrnu leiksins. Þórsarar máttu sín enfaldlega lítils í dag gegn sterku liði FH, og þeir verða að gera betur upp við markið ef þeir ætla sér ekki beint niður aftur. Liðið gerði sig sekt um rangar ákvarðanir þegar fram á völlinn var komið og þeir nýttu ekki færin sín vel. Þór sýndi á köflum ágæta spilamennsku en inn á milli komu glórulausar sendingar fram völlinn sem skiluðu engu. Funicello átti ekki góðan dag og hleypti FH-ingum oft framhjá sér, líkt og gegn Blikum í fyrstu umferð. Miðja Þórs var ágæt en sendingar fram völlinn oft ómarkvissar og slakar. Róbert í marki FH var svo sannarlega betri en enginn og markvarslan frá Jóhanni Helga var mögnuð. Fyrir framan hann var vörnin yfirleitt þétt og Jóhann Þórhallsson mátti sín lítils gegn Frey og Guðmanni. Tillen og Guðjón Árni studdu svo ágætlega við sóknina. Atli Guðnason var mjög líflegur í seinni hálfleik, maður sem getur alltaf skapað hættu. Hann var maðurinn á bakvið bæði mörk FH í dag. Liðið saknaði þó Alberts og Atla Viðars úr sókninni en Ingimundur Níels, sem kom inn rétt fyrir leik, leysti sitt hlutverk ágætlega. Sanngjarn sigur FH sem er þar með komið með sex stig eftir tvo leiki. Þór er aftur á móti við botninn eftir tvo tapleiki í röð.Páll Viðar Gíslason - Þjálfari Þórs: "Það er svo sannarlega búið að bjóða okkur velkomna í deild þeirra bestu. Það eru vandræði út um allan völl hjá okkur og það er eitthvað sem við þurfum að leysa. Við erum að gefa ódýr mörk og sóknin er ekki nógu beitt. Nú þegar við erum að keppa við stóru liðin í þessari deild verðum við að koma í veg fyrir svona mistök."Heimir Guðjónsson - Þjálfari FH: "Markmiðið var að halda markinu hreinu og það tókst. Við vissum að við myndum fá færi og það tókst að nýta þau. Við þurftum að stokka upp í liðinu og það breytti einhverju, auðvitað vill maður alltaf hafa alla heila, en þetta tókst vel upp hjá okkur." "Atli meiddist á æfingu í gær en ætti að ná næsta leik. Albert Brynjar meiddist geg Keflavík og verður líklega frá í tvær vikur." "Ég er gríðarlega ánægður með þennan sigur, við vissum að þetta yrði erfiður leikur. Þórsarar fengu sín fær en vörnin hélt og Róbert var öruggur í markinu. Áætlunarverkið tókst."Atli Guðnason - Framherji FH "Ég er nokkuð ánægður með leikinn. Þetta var bara bardagi og við mættum nokkuð tilbúnir. Við vorum betri eftir því sem leið á hálfleikana en við náðum að kreista fram sigur." "Við erum með marga menn og góða menn, þó að við missum 3-4 góða erum við eð marga góða menn á bekknum og það eru enn fleiri sem við eigum inni."Sveinn Elías Jónsson - framherji Þórs: "Við lögðum þetta svipað upp eins og í síðasta leik. Þó það kunni kannski að hljóma furðulega. Við ætluðum okkur ekkert að sækja á fullu en þeir færðu sig ofarlega á móti okkur sem gerði það að verkum að við fengum svolítið af færum í upphafi leiks. Mér fannst við stjórna svolítið leiknum og þeir mæta eins og þeir væru kannski ekki tilbúnir og bjuggust við að fá minni mótspyrnu en þeir svo fengu." "Mér finnst þetta klárlega röng mynd af leiknum [3-0] því að heilt yfir fannst mér við yfir í leiknum en svo gefum við kannski frekari færi á okkur en mér fannst við klárlega betri aðilinn fram að 1-0." "Þetta verða allt saman erfiðir leikir. [fyrstu þrír leikirnir, næsti er gegn KR]. Við munum líklega koma til með að leggja hann svipað upp nema lokatölurnar verða öðruvísi!"
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Var ekki rekin úr Ólympíuþorpinu fyrir óviðeigandi hegðun: Ég fór sjálf Sport Bara þrír sem fá að heimsækja Michael Schumacher Formúla 1 Vildi láta reka Heimi í fyrra en eys nú yfir hann lofi Fótbolti Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn Áhyggjufullir eftir tap gegn „algjöru meðalliði“ Íslands Fótbolti Aron og Bjarki báðir út úr hóp í úrslitaleiknum Handbolti Mbappe í aðalhlutverki þegar Frakkar tóku bronsið Fótbolti Landsliðskonan reddaði málunum fyrir leik á Kópavogsvelli Íslenski boltinn Heimi fannst lítið mál að svara glerhúsagagnrýni gamla landsliðsþjálfarans Fótbolti „Manchester United er ekki fótboltafélag“ Sport Fleiri fréttir Landsliðskonan reddaði málunum fyrir leik á Kópavogsvelli Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Sjáðu frábært liðsmark FH, markaveislu Blika og Þrótt halda sig á toppnum Leik lokið: Þróttur - Þór/KA 2-0 | Þróttur með þriggja stiga forskot á toppnum Uppgjör: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar sannfærandi Uppgjörið: Breiðablik-FHL 6-0 | Sex Blikakonur á skotskónum Uppgjörið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Gummi Ben fékk gullmerki Þórs afhent á Spáni Blómstra á meðan Valskonur eru sögulega slakar Framlengja við markahæsta manninn sinn Uppgjörið: Tindastóll-Valur 2-2 | Bið Valskvenna lengist enn Brynjar Björn í þjálfarateymi Víkings Caroline kveður Þrótt og heldur heim til Bandaríkjanna Sjáðu fimm flottustu mörk maímánaðar Leiknir byrjar vel undir stjórn Gústa Gylfa og ÍR-ingar á toppinn Andri Már fékk tískuráð á stórleiknum á Kópavogsvelli Völdu þann leikmann í Bestu deildinni sem er líkastur þeim sjálfum Ágúst Gylfason snýr aftur í boltann og tekur við Leikni „Þá verður þú bara að taka höggin“ Bönnin þegar Besta hefst aftur: Víkingar missa lykilmann og Vestri án tveggja Pétur Rúnar á bekknum hjá Stólunum í 3. deildinni Ummæli Davíðs Smára ekki á borði aganefndar Sýndu reiði Davíðs skilning en fannst hann fara yfir strikið „Okkar markmið hefur alltaf verið að vera í toppbaráttunni“ Umfjöllun: Valur-Fram 2-1 | Níu stig í Valshúsi á níu dögum Sjáðu miðjumark Sverris, tvennu Tobiasar, rautt á Alex og Atla stela sigri Dagskráin í dag: Litrík umferð gerð upp í Stúkunni „Þetta mark átti ekki að telja“ Leik lokið: Breiðablik - Víkingur 3-1 | Allt í hnút á toppnum „Erum með sjö stigum meira en á sama tíma í fyrra“ Sjá meira
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn