Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pogba fer frá United Manchester United hefur staðfest að franski miðjumaðurinn Paul Pogba muni yfirgefa félagið þegar samningur hans við það rennur út í lok mánaðarins. 1.6.2022 11:13
Bale kveður og segir draum sinn hafa ræst hjá Real Hinn 32 ára gamli Gareth Bale hefur nú yfirgefið Real Madrid eftir að hafa fagnað Evrópu- og Spánarmeistaratitli með liðinu á nýafstaðinni leiktíð. 1.6.2022 10:30
Segir Ísland aldrei hafa átt jafn sterkt landslið Sara Björk Gunnarsdóttir segir að íslenska kvennalandsliðið hafi líklega aldrei verið jafn vel skipað og um þessar mundir. 1.6.2022 09:01
Óskar Hrafn um Ísak Snæ: „Þurfti að leysa þessa orku, kraft og styrk úr læðingi“ „Það er erfitt að segja. Ég var ekki til staðar upp á Skaga en ég held í fyrsta lagi hafi hann ákveðið að nú væri kominn tími til að gera allt sem í hans valdi stæði til að vera í eins góðu formi og kostur er,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, um Ísak Snæ Þorvaldsson, markahæsta mann liðsins. 1.6.2022 08:01
Slapp með skrekkinn: „Hefði ég ekki náð því væri verið að setja mig saman eins og einhverja Legókubba“ „Ég er bara óvenju góður, er bara með smá hausverk og nokkra sauma í andlitinu. Þetta fór betur en á horfðist þar sem ég fékk fréttir eftir myndatökuna að ég væri tvíbrotinn í andliti,“ sagði Sveinn Sigurður Jóhannesson, markvörður Vals, sem var borinn af velli eftir skelfilegan árekstur í leik gegn Fram á dögunum. 1.6.2022 07:30
Tárvotur Zinchenko lofaði að gera úkraínsku þjóðina stolta Úkraínski landsliðsmaðurinn Oleksandr Zinchenko brast í grát á blaðamannafundi fyrir leik liðsins gegn Skotlandi í umspili um laust sæti á HM sem fram fer í kvöld. Hann lofaði að gera úkraínsku þjóðina stolta. 1.6.2022 07:01
Þrjátíu þúsund áhorfendur í það minnsta þrátt fyrir áhorfendabann Að minnsta kosti þrjátíu þúsund áhorfendur munu mæta á leik Ungverja og Englendinga í Búdapest næstkomandi laugardag þrátt fyrir að leikurinn eigi að fara fram fyrir luktum dyrum. 31.5.2022 23:31
Átta sem léku úrslitaleikinn í liði tímabilsins Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, hefur sett saman lið tímabilsins í Meistaradeild Evrópu. Átta af ellefu leikmönnum liðsins léku til úrslita, fjórir leikmenn Liverpool og fjórir leikmenn Real Madrid. 31.5.2022 22:16
Deschamps yfirgaf franska hópinn vegna andláts föður síns Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins í fótbolta, þurfti að yfirgefa hópinn í dag, degi eftir að liðið kom saman til æfinga, eftir að faðir hans lést. 31.5.2022 21:30
Brynjar Atli framlengir við Breiðablik Markvörðurinn Brynjar Atli Bragason hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Breiðabliks sem heldur honum innan raða félagsins til ársins 2024. 31.5.2022 20:45
Di Maria leggur landsliðsskóna á hilluna eftir HM Argentínski knattspyrnumaðurinn Ángel Di María ætlar sér að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir heimsmeistaramótið sem fram fer í Katar í lok þessa árs. 31.5.2022 19:30
Benzema valinn besti leikmaður tímabilsins í Meistaradeildinni Franski framherjinn Karim Benzema hefur verið valinn besti leikmaður tímabilsins í Meistaradeild Evrópu. 31.5.2022 18:01
Messi gat ekki hlaupið í margar vikur eftir smit Lionel Messi var lengi að jafna sig eftir að hafa smitast af kórónuveirunni í byrjun árs og kveðst enn hafa verið að jafna sig þegar hann féll úr leik í Meistaradeild Evrópu með liði sínu PSG. 31.5.2022 17:30
Þungavigtin: „Ef einhverjir þurfa að æfa eru það FH-ingar“ Gengi FH í Bestu deild karla í fótbolta það sem af er sumri var til umræðu í nýjasta þætti hlaðvarpsins Þungavigtin. Þar var farið yfir dræma stigasöfnun liðsins og þá staðreynd að Ólafur Jóhannesson, þjálfari liðsins væri á leið í sex daga golfferð. 31.5.2022 17:01
Crawley Town reyndi að ráða þjálfara Englands- og bikarmeistara Chelsea Crawley Town sem leikur í ensku D-deildinni íhugaði að ráða Emmu Hayes, þjálfara Englands- og bikarmeistara Chelsea. Hún afþakkaði pent. 31.5.2022 16:30
Inter mun hitta lögfræðinga Lukaku til að ræða mögulega endurkomu Endurkoma Romelu Lukaku til Chelsea hefur ekki gengið jafn vel og báðir aðilar vonuðust eftir. Belgíski framherjinn lét þau orð falla seint á síðasta ári að hann gæti vel íhugað sér að snúa aftur til Inter Milan, að gæti raungerst í sumar. 31.5.2022 16:01
Freyr sækir leikmann ársins til Lyngby Freyr Alexandersson hefur þegar hafið undirbúning fyrir sitt fyrsta tímabil með Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hann er við það að fá markahæsta leikmann B-deildarinnar til liðs við félagið sem þýðir aukin samkeppni fyrir Sævar Atla Magnússon. 31.5.2022 15:30
Lampard sektaður um tæpar fimm milljónir fyrir ummæli eftir leikinn gegn Liverpool Enska knattspyrnusambandið hefur sektað Frank Lampard, knattspyrnustjóra Everton, fyrir ummæli hans eftir leik gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í apríl. 31.5.2022 15:01
Perisic kynntur til leiks og sendi hjartnæma kveðju Króatinn reynslumikli Ivan Perisic er formlega genginn í raðir enska knattspyrnufélagsins Tottenham og skrifaði hann undir samning við félagið sem gildir til ársins 2024. 31.5.2022 14:54
Eiður Smári í sigti grísks stórveldis Forráðamenn gríska stórveldisins AEK Aþenu hafa sett sig í samband við Eið Smára Guðjohnsen í von um að fá hann til starfa. 31.5.2022 14:03
Fyrrverandi markvörður Man Utd og Rangers á aðeins hálft ár eftir ólifað Goðsögnin Andy Goram á aðeins hálft ár eftir ólifað eftir að hafa greinst nýverið með vélindakrabbamein á lokastigi. Goram gerði garðinn frægan með Rangers á tíunda áratug síðustu aldar og lék svo um skamma stund með Manchester United eftir aldamót. 31.5.2022 12:31
Hrósar umgjörðinni hjá Stjörnunni en segir stuðninginn mega vera meiri Þróttarinn Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og Stjörnukonan Heiða Ragney Viðarsdóttir voru gestir Helenu Ólafsdóttir í upphitunarþætti Bestu markanna fyrir 7. umferð Bestu deildar kvenna sem hefst á morgun. 31.5.2022 12:00
Man United ræður aðstoðarmann yfirmanns knattspyrnumála Andy Boyle hefur verið ráðinn sem aðstoðarmaður yfirmanns knattspyrnumála hjá enska knattspyrnufélaginu Manchester United. Hann var þjálfari í akademíu félagsins fyrir 16 árum en hefur komð víða við síðan. 31.5.2022 11:32
Ancelotti segir það hafa verið auðveldara að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Liverpool Carlo Ancelotti, þjálfari Evrópumeistara Real Madríd, segir það hafa verið auðveldara fyrir sig að undirbúa lið sitt fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Liverpool heldur en önnur lið. 31.5.2022 10:30
Segir byrjun Breiðabliks vera framar öllum vonum „Nei, ég gerði það ekki. Ég skal vera fyrsti maður til að viðurkenna það. Þessi byrjun er stigalega og úrslitalega séð framar öllum vonum,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta, um ótrúlega byrjun liðsins sem hefur unnið alla sína leiki í sumar. 31.5.2022 10:01
Segja Elanga líta út eins og nýjan Ronaldo Anthony Elanga og Cristiano Ronaldo voru að hluta til ljósið í myrkrinu á annars ömurlegu tímabili Manchester United. Það virðist sem Svíinn ungi hafi lært eitt og annað af hinum margreynda Portúgala. 31.5.2022 09:01
Uppgjör fyrstu átta umferða Bestu: Breiðablik best, Ísak Snær bestur og Valur valdið mestum vonbrigðum Áttunda umferð Bestu deildar karla í fótbolta fór fram á sunnudag. Að henni lokinni gerði Stúkan upp fyrstu átta umferðir mótsins. Eðlilega var Breiðablik mikið í umræðunni þar sem liðið er með fullt hús stiga. 31.5.2022 08:30
Patrik Sigurður ásakaður um svindl í Noregi: Gerir markið minna Patrik Sigurður Gunnarsson, einn af landsliðsmarkvörðum Íslands og aðalmarkvörður Viking í Noregi, hefur verið ásakaður um svindl með félagsliði sínu. Hann er talinn gera mark sitt vísvitandi minna er Viking leikur á heimavelli. 31.5.2022 08:01
Fóru yfir agavandamál Eyjamanna: Lárus Orri telur að Guðjón Pétur spili ekki aftur fyrir ÍBV Nýliðar ÍBV hafa ekki átt sjö dagana sæla í Bestu deild karla í fótbolta til þessa. Liðið er með þrjú stig eftir átta umferðir og hefur ekki unnið leik. Það virðist lítill agi vera á liðinu sem hefur sankað að sér spjöldum og þá er Guðjón Pétur Lýðsson í vikustraffi. 31.5.2022 07:30
Kahn furðu lostinn yfir ummælum Lewandowski: „Þetta skilar engu“ Oliver Kahn, stjórnarformaður Bayern München, kveðst hvorki skilja upp né niður í Robert Lewandowski, framherja félagsins. Lewandowski úthúðaði félaginu í gær og kveðst vilja burt. 31.5.2022 07:00
Svindlaði á stelpunum okkar en fær ekki að mæta þeim aftur vegna ósættis Þrátt fyrir að hafa spilað og skorað í sigri Lyon í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu fyrir rúmri viku er Amandine Henry ekki í franska landsliðshópnum sem mætir Íslandi á EM í Englandi í sumar. 30.5.2022 23:01
City rétt að byrja á leikmannamarkaðnum Khaldoon Al-Mubarak, stjórnarformaður Manchester City, segir að félagið muni fá nokkra leikmenn til viðbótar í sumar. Þegar hefur City fest kaup á tveimur framherjum. 30.5.2022 22:15
UEFA fyrirskipar rannsókn vegna atburðanna í París Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, tilkynnti í kvöld að sambandið myndi standa að sjálfstæðri og óháðri rannsókn á atburðum fyrir utan Stade de France-völlinn í París þegar Liverpool og Real Madríd áttust við úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardagskvöld. 30.5.2022 21:31
Mark Hlínar dugði ekki til í dramatískum Íslendingaslag Tveir leikir fóru fram í úrvalsdeild kvenna í Svíþjóð í kvöld er 11. umferð deildarinnar kláraðist. Þrír Íslendingar komu við sögu og komst ein á blað. 30.5.2022 19:16
Uppgjör Stúkunnar: Leikmaður umferðarinnar í Fram og mark umferðarinnar kom í Garðabæ Áttunda umferð Bestu deildar karla í fótbolta fór fram á sunnudag. Guðmundur Benediktsson gerði umferðina upp í Stúkunni að leikjum loknum. Farið var yfir lið umferðarinnar, leikmann og mark umferðarinnar. 30.5.2022 17:00
De Bruyne urðar yfir Þjóðadeildina Kevin De Bruyne, miðvallarleikmaður Englandsmeistara Manchester City, er ekki beint aðdáandi Þjóðadeildarinnar í fótbolta. 30.5.2022 15:31
Hörður um stöðu mála hjá FH: „Í einhverskonar tilvistarkreppu“ Hörður Magnússon, starfsmaður Viaplay og fyrrum leikmaður FH um árabil, segist ekki átta sig á hver stefna félagsins. Hann telur að „menn séu ekki alveg að dansa sama dans í Hafnafirðinum.“ 30.5.2022 15:00
Lewandowski úthúðar Bayern: „Vil ekki spila þarna lengur“ Robert Lewandowski fór mikinn á blaðamannafundi pólska landsliðsins í dag og fór ófögrum orðum um félag sitt, Bayern München. 30.5.2022 14:31
Hólmbert dettur út og Bjarki kemur í staðinn Framherjinn hávaxni Hólmbert Aron Friðjónsson hefur dregið sig úr landsliðshópnum í fótbolta fyrir leikina við Ísrael og Albaníu í Þjóðadeildinni. 30.5.2022 14:23
Freyr þakklátur að fara upp með Lyngby-fjölskyldunni Freyr Alexandersson stýrði Lyngby upp úr dönsku B-deildinni á sínu fyrsta tímabilið með liðið. Lyngby endaði á endanum í öðru sæti deildarinnar, aðeins stigi á eftir toppliði Horsens. 30.5.2022 14:00
Svona er nýi landsliðsbúningurinn Knattspyrnusamband Íslands kynnti í dag nýjan landsliðsbúning Íslands á samfélagsmiðlum sínum. 30.5.2022 13:46
Ákvörðun KSÍ nær ekki til FH sem leyfir Eggerti að spila Eggert Gunnþór Jónsson var í byrjunarliði FH í Bestu deildinni í fótbolta í gær þrátt fyrir að niðurfelling máls hans og Arons Einars Gunnarssonar, vegna nauðgunarkæru, hafi verið kærð. 30.5.2022 13:00
Sömu lið og mættust í úrslitum í fyrra Liðin sem mættust í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna í fyrra eigast við í átta liða úrslitum keppninnar í ár. Dregið var í átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna og sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla í dag. 30.5.2022 12:34
Gummi Ben skammaði Valsmenn: „Þetta er óvirðing“ Hinn 17 ára gamli Kristján Hjörvar Sigurkarlsson upplifði stóra stund í gær þegar hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Val í Bestu deildinni í fótbolta. Það gerði hann í treyju merktri allt öðrum leikmanni. 30.5.2022 12:00
Neitaði að svara því hvort Óli Jó yrði áfram þjálfari FH „Óli Jó er okkar maður og ekki mikið meira um það að segja,“ segir Valdimar Svavarsson, formaður knattspyrnudeildar FH, um stöðu þjálfarans Ólafs Jóhannessonar nú þegar FH situr í 9. sæti Bestu deildar karla í fótbolta. 30.5.2022 11:31