Fleiri fréttir

Hangeland um Eið Smára: Er ennþá einstaklega hæfileikaríkur

Brede Hangeland, fyrirliði norska landsliðsins, sparaði ekki hrósið á Eið Smára Guðjohnsen á blaðamannafundi fyrir leik Noregs og Íslands í undankeppni EM sem fer fram í Osló á föstudagskvöldið. Hangeland og Eiður Smári spiluðu saman í sex mánuði með Fulham á síðasta tímabili.

Rúnar í hópi með Laudrup, Charlton, Zidane, Beckenbauer og Dalglish

Rúnar Kristinsson, fyrrum landsliðsmaður og núverandi þjálfari toppliðs KR, fær sérstaka viðurkenningu frá UEFA fyrir landsleik Íslands og Kýpur á Laugardalsvelli þriðjudaginn 6. september næstkomandi en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ í kvöld. Geir Þorsteinsson formaður KSÍ, mun afhenda Rúnari verðlaunin fyrir hönd UEFA.

Meireles til Chelsea, Arteta til Arsenal og Bendtner til Sunderland

Félagsskiptavakt BBC hefur staðfest þrjú athyglisverð félagsskipti í ensku úrvalsdeildinni sem öllu gengu í gegn á síðustu mínútum. Portúgalinn Raul Meireles fer frá Liverpool til Chelsea, Mikel Arteta fer frá Everton til Arsenal og Sunderland fær Nicklas Bendtner á láni frá Arsenal.

Félagsskiptaglugginn er nú lokaður - hverjir fóru hvert

Fjölmörg félagsskipti gengu í gegn í dag en félagsskiptaglugginn lokaði kl. 22 að íslenskum tíma í kvöld. Þetta er ávallt gríðarlega spennandi dagur fyrir knattspyrnuáhugamanninn og ekki síst fyrir knattspyrnufélögin. Vísir tók saman atburðarrásina í dag og má sjá helstu félagsskipti hér að neðan.

Bellamy fer til Liverpool og Benayoun kominn á láni til Arsenal

Craig Bellamy er kominn aftur til Liverpool en Yossi Benayoun valdi það að fara frekar til Arsenal í staðinn fyrir að fara aftur norður til Liverpool. Portúgalinn Raul Meireles hefur einnig óskað formlega eftir félagsskiptum frá Liverpool og er líklega á leiðinni til Chelsea.

Owen Hargreaves fær eins árs samning hjá Manchester City

Owen Hargreaves er búinn að ganga frá eins árs samning við Manchester City en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá nágrönnunum í Manchester United. Hargreaves var látinn fara frá United eftir að hafa verið meira eða minna meiddur í fjögur ár á Old Trafford.

Valsmenn lána Guðjón Pétur til Helsingborg út tímabilið

Guðjón Pétur Lýðsson mun ekki spila fleiri leiki með Valsmönnum í Pepsi-deild karla í sumar því félagið hefur lánað hann til sænska úrvalsdeildarliðsins Helsingborg. Þetta kemur fram á heimasíðu sænska félagsins í kvöld.

Búlgarir hafa ekki mikinn áhuga á enska landsliðinu

Það er greinilega ekki mikill áhugi á enska landsliðinu í Búlgaríu þessa dagana því búlgarska knattspyrnusambandinu gengur afar illa að selja miða á leik Búlgaríu og Englands sem fer fram á Vasil Levski leikvanginum í Sofíu á föstudagskvöldið.

Mertesacker og Santos til Arsenal

Arsenal hefur gengið frá kaupum á varnarmönnunum Per Mertesacker frá Werder Bremen og Andre Santos frá Fenerbahce.

Liverpool-menn streyma til Frakklands - Poulsen til Evian

Christian Poulsen, fyrirliði danska landsliðsins, hefur fundið sér nýjan samanstað enda löngu orðið ljóst að það var ekki pláss fyrir hann á miðju Liverpool. Líkt og hjá Joe Cole þá endar Poulsen í Frakklandi.

Forlan kominn til Inter - samdi til tveggja ára

Diego Forlan, landsliðsmaður Úrúgvæ og besti leikmaðurinn á HM í fótbolta í fyrrasumar, mun spila með Inter Milan á Ítalíu næstu tvö árin en Inter gekk í dag frá kaupum á honum frá spænska félaginu Atletico Madrid. Forlan samdi til ársins 2013 en þessi félagsskipti hafa legið í loftinu í nokkrar vikur.

Alexander Hleb lánaður til Wolfsburg

Barcelona hefur lánað Hvít-Rússann Alexander Hleb til þýska liðsins Wolfsburg. Hleb hefur átt erfitt uppdráttar í boltanum síðan hann gekk til liðs við Barcelona frá Arsenal árið 2008.

Parker genginn til liðs við Tottenham

Miðjumaðurinn Scott Parker er genginn til liðs við Tottenham. Parker lagði fram ósk um sölu frá West Ham í gær og hefur nú gengið frá samningi við Tottenham.

Ingimundur Níels í lán til Sandnes Ulf

Norska félagið Sandnes Ulf hefur fengið Ingimund Níels Óskarsson að láni frá Fylki út tímabilið. Þetta kemur fram á heimasíðu norska félagsins.

Guðmundur Reynir æfir með Brann

Guðmundur Reynir Gunnarsson, vinstri bakvörður KR, er um þessar mundir við æfingar hjá norska félaginu Brann í Bergen. Fjallað er um Guðmund Reyni á heimasíðu félagsins og hann tekinn tali.

Elia til Juventus - samdi til fjögurra ára

Hollenski landsliðsmaðurinn Eljero Elia er genginn til liðs við Juventus á Ítalíu. Elia, sem kemur frá Hamburg, skrifaði undir fjögurra ára samning við ítalska liðið.

Drogba dregur sig úr landsliðshópnum

Didier Drogba, framherji Chelsea, hefur dregið sig úr landsliðshópi Fílabeinsstrandarinnar sem mætir Rúanda í undankeppni Afríkukeppninnar á laugardag. Drogba meiddist í leik Chelsea gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Gunnleifur Gunnleifsson: Lofa því að ná KR-leiknum

Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH og íslenska landsliðsins meiddist í tapleiknum á móti Stjörnunni og varð að segja sig úr landsliðshópnum. Hann hefur sett stefnuna á það að koma til baka eftir landsleikjahléið.

Andorra fékk ekki leyfi hjá UEFA til að spila við Íra í Barcelona

UEFA hefur bannað Andorramönnum að flytja heimaleik sinn á móti Írlandi í undankeppni EM niður til Barcelona-borgar sem er í tveggja tíma fjarlægð frá smáríkinu í Pýreneafjöllum. Írar og Andorramenn vildu færa leikinn vegna mikils áhuga á honum meðal stuðningsmanna írska landsliðsins.

Ásgerður: Kláruðum þetta í seinni hálfleik eins og oft áður

„Þetta er geðveikt tilfinning og það er ekki hægt að lýsa þessu," sagði Stjörnukonan Ásgerður Stefanía Baldursdóttir í viðtali á SportTV í kvöld eftir að Stjarnan hafði tryggt sér Íslandsmeistarabikarinn. Stjarnan þurfti einn sigur í síðustu þremur leikjum sínum og hann kom á móti Aftureldingu í kvöld.

Drillo: Ótrúlegt að Ísland sé bara í 124. sæti á FIFA-listanum

Íslenska landsliðið er neðar á FIFA-listanum en þjóðir eins og Færeyjar, Grenada, Liechtenstein og St. Kitts og Nevis. Það á Egil "Drillo" Olsen, þjálfari norska landsliðsins erfitt með að skilja. Noregur og Ísland mætast á Ullevaal í Osló á föstudagskvöldið og Drillo ræddi stöðu íslenska landsliðsins í viðtali við norska Dagblaðið.

Coates semur við Liverpool - arftaki Carragher fundinn

Liverpool hefur gengið frá kaupum á miðverðinum Sebastian Coates frá Nacional í Úrúgvæ. Coates, sem er tvítugur, skrifaði undir langtímasamning við Liverpool. Kaupverðið er talið vera um sjö milljónir punda eða sem nemur 1.3 milljörðum íslenskra króna.

Soffía: Erum bestar á landinu

„Við lögðum ansi mikið á okkur og loksins náum við að uppskera eins og við sáðum, þetta er ljúft. Það er fullkomið að ná að landa titlinum á heimavelli,“ sagði sigurreif Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir eftir að hafa landað Íslandsmeistaratitlinum með Stjörnunni í kvöld.

Morten Gamst verður ekki með gegn okkur Íslendingum

Norska landsliðið í knattspyrnu hefur einnig orðið fyrir skakkaföllum fyrir landsleikinn gegn Íslendingum síðar í vikunni, en Morten Gamst Pedersen, leikmaður Blackburn Rovers, hefur dregið sig úr landsliðshópi Noregs.

Eyjakonur halda fjögurra stiga forystu á Þór/KA

ÍBV og Þór/KA unnu bæði leiki sína í 16. umferð Pepsi-deild kvenna í kvöld en liðin eru að berjast um þriðja sætið í deildinni. Eyjakonur hafa því fjögurra stiga forskot á norðankonur þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.

Stjörnukonur Íslandsmeistarar - Valur felldi Þrótt

Stjörnukonur unnu í kvöld fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins í meistaraflokki karla og kvenna í fótbolta með því að vinna 3-0 sigur á Aftureldingu í 16. umferð Pepsi-deildar kvenna. Stjarnan þurfti bara einn sigur í síðustu þremur umferðunum en með þessum sigri er ljóst að Valskonur geta ekki náð Stjörnunni að stigum.

Víkurfréttir: Haraldur til Noregs og framtíð Willums rædd í Keflavík

Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrirliði Keflavíkur, verður ekki meira með Keflvíkingum á þessu tímabili því hann hefur gert samning til áramóta við norska félagið Start. Víkurfréttir segir frá þessu í kvöld og einnig frá því að knattspyrnudeild Keflavíkur sé að ræða framtíð Willums Þórs Þórssonar.

FH og Selfoss komin upp í Pepsi-deild kvenna

FH og Selfoss tryggðu sér örugglega sæti í Pepsi-deild kvenna á næsta sumri eftir sigra í seinni leikjum sínum í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í kvöld. FH vann 6-0 sigur á Haukum og því 14-1 samanlagt en Selfoss vann 6-1 sigur á Keflavík og þar með 8-4 samanlagt.

Nasri: Arsenal er ekki samkeppnishæft í efri hlutanum

Samir Nasri, leikmaður Manchester City, heldur áfram að tjá sig um sitt fyrrum félag, Arsenal, en leikmaðurinn sagði í viðtalið við fréttastofu Sky Sports að Arsenal gæti ekki keppt við stóru liðin í ár.

Joe Cole spilar í Meistaradeildinni í vetur - lánaður til Lille

Enskir miðlar hafa greint frá því í kvöld að Joe Cole, miðjumaður Liverpool, sé um það bil að ganga frá eins árs lánsamningi við franska liðið Lille. Queens Park Rangers og Tottenham Hotspur höfðu bæði áhuga á Cole en nú lítur fyrir að hann endi í frönsku deildinni.

KR-liðið fór í óvissuferð í dag

KR-ingar fögnuðu sigrinum á Fram í Pepsi-deildinni í gær með því að skella sér í árleg óvissuferð í dag. Það sást til alls hópsins við Búlluna á Geirsgötu og Vísir forvitnaðist um málið hjá þjálfaranum Rúnari Kristinssyni.

Hargreaves gæti verið á leiðinni til Manchester City

Þau merkilegu tíðindi berast nú frá Englandi að Owen Hargreaves sé á leiðinni í læknisskoðun hjá Manchester City, en Hargreaves hefur verið hjá erkifjendunum í Manchester United undanfarinn ár.

Sjá næstu 50 fréttir