Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Wenger: Almunia má fara frá Arsenal ef hann vill Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að spænski markvörðurinn Manuel Almunia megi fara frá liðinu en lið eins og Malaga og Atlético Madrid hafa sýnt honum áhuga. Almunia hefur ekki spilað með Arsenal síðan að hann meiddist í september. 1.1.2011 13:15
Sir Alex hélt að Rooney væri að fara yfir til City Wayne Rooney segir það ekki rétt að hann hafi einhvern tímann hugsað sér að fara yfir til Manchester City. Hvort sem það er rétt eða ekki þá voru Sir Alex Ferguson og þjálfaralið hans sannfærðir um að framherjinn væri að fara yfir til nágrannanna þegar hann tilkynnti að hann væri á förum í október. 1.1.2011 12:30
Hvetur Redknapp til að styrkja liðið í janúar Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, hefur hvatt knattspyrnustjórann Harry Redknapp að kaupa nýjan leikmann í janúar og þá leikmann sem getur skipt sköpum fyrir liðið á seinni hluta tímabilsins. 1.1.2011 11:30
Rooney: Ætlar sér að verða stjóri en mun ekki byrja hjá stóru félagi Wayne Rooney segist vera þegar byrjaður að undirbúa það sem tekur við þegar hann leggur fótboltaskónna á hilluna. Hinn 25 ára Rooney er byrjaður í að sækja sér þjálfaramenntun og ætlar að feta í fótsport margra lærisveina Sir Alex Ferguson sem hafa orðið stjórar í ensku úrvalsdeildinni. 1.1.2011 10:00
Roy Hodgson: Ég mun aldrei segja af mér Roy Hodgson, stjóri Liverpool, segir það koma ekki til greina að hann segi af sér þrátt fyrir slæmt gengi liðsins en Liverpool hefur ekki byrjað verr frá tímabilinu 1953-54. Liverpool heimsækir Grétar Rafn Steinsson í Bolton á morgun og orðið á götunni er að liðið verði að vinna ef hann á að halda stöðunni. 1.1.2011 09:00
Daily Star: Eiður fær 13,4 milljónir króna á viku hjá Stoke Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki fengið mikið að spila hjá Stoke en vikulaun hans eru samt ekkert slor ef marka má fréttir enska dagblaðsins Daily Star. 1.1.2011 08:00
Andres Iniesta: Árið 2011 verður erfitt fyrir okkur í Barcelona Andres Iniesta hefur varað félaga sína í Barcelona-liðinu við að þeir geta ekki gengið að neinu vísu á nýju ári þrátt fyrir frábært gengi liðsins á árinu 2010. Fyrsti leikur Barcelona á árinu 2011 verður deildarleikur á móti Levante á sunnudaginn. 1.1.2011 07:00
Forseti argentínska sambandins: Messi er besta tían í sögu Argentínu Julio Grondona, hinn 79 ára gamli forseti argentínska knattspyrnusambandins, og Diego Maradona, fyrrum þjálfari argentínska landsliðsins, eru ekki miklir vinir og hafa verið að skiptast á því að skjóta á hvorn annan. 1.1.2011 06:00
Ferguson segir þetta vera jöfnustu toppbaráttuna á sínum ferli Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er að hefja sitt 25. ár sem knattspyrnustjóri félagsins og hann segir að baráttan um enska meistaratitilin hafi aldrei verið eins jöfn á hans ferli og einmitt núna. 31.12.2010 22:00
Ljungberg spilar í treyju Henke Larsson og Dalglish hjá Celtic Freddie Ljungberg er búinn að semja við skoska félagið Celtic en hann kemur þangað frá bandaríska liðinu Seattle Sounders. Ljungberg hefur fengið treyju númer sjö hjá Celtic en í henni hafa menn eins og Henrik Larsson og Kenny Dalglish gert garðinn frægan hjá skoska félaginu. 31.12.2010 21:00
Tony Pulis: Eiður Smári er búinn að vera óheppinn Tony Pulis, stjóri Stoke, tjáði sig um Eið Smára Guðjohnsen, í viðtali við AFP-fréttastofuna en eins og kunnugt er Eiður að reyna að losna undir samningi sínum við enska úrvalsdeildarfélagið. 31.12.2010 18:00
Wenger: Þeir verða að fara að tala saman í vörninni Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er nú farinn að tala um það opinberlega að sínir menn þurfti að fara tala betur saman inn á vellinum ef liðið ætlar sér að vinna langþráðan titil á þessu tímabili. 31.12.2010 17:00
Ferguson: Anderson getur tekið við hlutverki Scholes Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er ánægður með frammistöðu Brasilíumannsins Anderson að undanförnu og segist vera viss um að leikmaðurinn geti tekið við hlutverki Paul Scholes á miðju liðsins. 31.12.2010 16:00
Ancelotti: Við erum ekki að horfa á Manchester United Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, segist ekki vera upptekinn af því að fylgjast með því sem er að gerast hjá Manchester United því hann hafi nóg með að einbeita sér að sínu liði. 31.12.2010 15:00
Eiður Smári ekki sá eini sem er á förum frá Stoke Daily Star skrifar um það í morgun að Tony Pulis, stjóri Stoke, sé ekki aðeins tilbúinn að selja Eið Smára Guðjohnsen heldur bendir margt til þess að Tuncay Sanli og varnarmaðurinn Danny Higginbotham sé einnig á förum frá Britannia Stadium. 31.12.2010 14:30
Verdens Gang: Gylfi og Grétar Rafn í úrvalsliði Norðurlanda Norska blaðið Verdens Gang hefur tekið saman ellefu manna úrvalslið skipað bestu fótboltamönnum Norðurlandanna en VG leitaði til hinna ýmsu miðla á Norðurlöndum við val sitt og þar á meðal var fótboltavefsíðan Fótbolti.net. 31.12.2010 13:45
Drottningin kórónar frábært ár fyrir Howard Webb dómara Knattspyrnudómarinn Howard Webb og kylfingurinn Graeme McDowell eru meðal þeirra sem fá MBE-heiðursorðuna hjá Elísabetu Englandsdrottningu í dag. Martin Broughton, fyrrum stjórnarformaður Liverpool, er einnig gerður að riddara í dag og ber eftir það titilinn Sir Martin Broughton. 31.12.2010 12:15
Daily Mail: Mark Hughes vill fá Eið Smára til Fulham Mark Hughes, stjóri Fulham, er að íhuga það að gera tilboð í Eið Smára Guðjohnsen, sem er til sölu hjá Stoke City. Daily Mail greinir frá þessu í morgun en Tony Pulis hefur ekkert notað Eið í tvo mánuði. 31.12.2010 11:30
Roy Hodgson sér eftir því að hafa móðgað stuðningsmenn Liverpool Roy Hodgson, stjóri Liverpool, hefur boðið stuðningsmenn félagsins afsökunar á orðum sínum eftir tapleikinn á móti Wolves á Anfield í fyrrakvöld. Það var mikið púað á Hodgson eftir áttunda deildartap liðsins á tímabilinu en lið lék skelfilega illa í leiknum. Stjórinn svaraði því með því að gagnrýna stuðningsmennina harðlega en hefur nú tekið orð sín til baka. 31.12.2010 10:30
Pabbi Playboykanínu ekki ánægður með Ashley Cole Ashley Cole, bakvörður Chelsea, er ekki af baki dottinn í kvennamálunum þó svo að hjónaband hans við Cheryl Cole hafi sprungið í loft upp. 30.12.2010 23:30
Rooney-vændiskonan skellti sér í lýtaaðgerð Vændiskonan Jenny Thompson fékk sínar 15 mínútur af frægð fyrr af árinu er hún greindi frá því að Wayne Rooney hefði verið meðal kúnnanna hennar. 30.12.2010 22:45
Hodgson: Nýt enn stuðnings leikmanna Roy Hodgson, stjóri Liverpool, segist enn njóta stuðnings leikmanna sinna hjá félaginu. Liverpool tapaði í gær fyrir Wolves á heimavelli, 1-0, og er í tólfta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. 30.12.2010 22:00
Ronaldinho fer frá AC Milan í janúar Það lítur út fyrir að Brasilíumaðurinn Ronaldinho sé á leið frá AC Milan þar sem hann hefur lítið fengið að spila að undanförnu. 30.12.2010 21:15
Ljungberg samdi við Celtic Svíinn Freddie Ljungberg hefur gengið í raðir skoska úrvalsdeildarfélagsins Celtic en hann lék síðast með Chicago Fire í Bandaríkjunum. 30.12.2010 20:30
Steinþór Freyr til sölu hjá Örgryte Sænska B-deildarliðið Örgryte hefur sett marga leikmenn sína á sölulista vegna fjárhagsörðugleika, þeirra á meðal Steinþór Frey Þorsteinsson. 30.12.2010 20:25
Moratti þakkar Mourinho Þrátt fyrir erfiðleika í vetur er Massimo Moratti, forseti Inter, stoltur maður í lok árs 2010. Hann er sérstaklega ánægður með gamla þjálfarann sinn, Jose Mourinho. 30.12.2010 19:45
Guðjón Þórðarson: Ég kaupi það ekki að Eiður sé ekki „fitt“ Guðjón Þórðarson var gestur í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gær þar sem hann ræddi m.a. um Eið Smára og Stoke City. Guðjón, sem var knattspyrnustjóri hjá Stoke á sínum tíma setur spurningamerki við ýmsar ákvarðanir Tony Pulis sem hefur "fryst" Eið Smára á varamannabekknum frá því hann kom til liðsins í haust. Viðtalið við Guðjón má sjá í heild sinni með því að smella á hnappinn hér fyrir ofan. 30.12.2010 19:00
Hodgson: Gerrard er ekki meiddur Tímabilið hefur ekki verið skemmtilegt fyrir Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool. Hann hefur verið mikið meiddur og virtist hafa meiðst á ný í leiknum gegn Wolves í gær. 30.12.2010 18:15
De Jong: Balotelli er að verða að manni Hollendingurinn Nigel De Jong hjá Man. City ber Ítalanum Mario Balotelli vel söguna og segir ekkert hæft í því að hann sé einfari í leikmannahópi félagsins. 30.12.2010 17:30
Rooney gæti leikið með Beckham í Bandaríkjunum Svo gæti farið að David Beckham og Rooney leiki saman í Bandaríkjunum á næstu leiktíð en Rooney hyggst reyna fyrir sér í Bandaríkjunum á nýja árinu. 30.12.2010 16:15
Real Madrid ætlar að stela Fabregas frá Barcelona Margir telja það aðeins tímaspursmál hvenær Cesc Fabregas gangi í raðir Barcelona. Þrátt fyrir það ætlar Real Madrid að reyna að stríða erkióvini sínum og stela Fabregas undan nefinu á Barca. 30.12.2010 15:45
Tony Pulis ætlar ekki að reyna að fá David Beckham Tony Pulis, stjóri Stoke, hefur lokað á þann möguleika á að David Beckham komi á láni til félagsins þegar félagsskiptaglugginn opnar í næstu viku. Beckham er búinn að klára tímabilið með bandaríska liðinu LA Galaxy og er að leita sér að liði í Evrópu. 30.12.2010 15:15
Mancini telur að Dzeko gæti tryggt Manchester City titilinn Roberto Mancini, stjóri Manchester City, leggur mikla áherslu á það að félagið nái að kaupa Bosníumanninn Edin Dzeko frá þýska liðinu Wolfsburg en samninaviðræður eru hafnar á milli félaganna. 30.12.2010 14:15
Eiður vill kaupa upp eigin samning Eiður Smári Guðjohnsen vill kaupa upp samninginn sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Stoke City. Þetta hefur Vísir eftir sínum heimildum. 30.12.2010 13:51
Fabregas benti á ósamræmi hjá dómurum á twitter-síðu sinni Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, tók út leikbann þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Wigan í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann vildi eins og aðrir Arsenal-menn fái víti á lokamínútunum þegar James McArthur, varnarmaður Wigan, varði aukaspyrnu Samir Nasri með hendinni. Dómari leiksins dæmdi hinsvegar ekkert og Arsenal sá á eftir tveimur mikilvægum stigum í toppbaráttunni. 30.12.2010 13:15
Sunnudagsmessan: Tíu fallegustu mörkin Frábær tilþrif hafa sést í leikjum ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á fyrri hluta keppnistímabilsins. Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason umsjónarmenn Sunnudagsmessunnar á Stöð 2 sport 2 hafa valið 10 fallegustu mörkin það sem af er tímabilinu. Smellið á hnappinn hér fyrir ofan. 30.12.2010 12:58
Bale: Tottenham getur orðið enskur meistari Gareth Bale hjá Tottenham er viss um það að liðið geti orðið enskur meistari á þessu tímabili. Tottenham hefur staðið sig frábærlega á leiktíðinni til þessa, bæði í deild og Evrópukeppni og það er ekki síst að þakka eimreiðinni á vinstri vængnum. 30.12.2010 12:45
The Sentinel: Stoke bíður eftir tilboðum í Eið Smára í janúar Eiður Smári Guðjohnsen vill losna frá Stoke City eins og hefur komið fram og staðarblaðið The Sentinel segir í morgun að Stoke City sé tilbúið að hlusta á tilboð í leikmanninn þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar. 30.12.2010 11:30
Allt það flottasta úr leikjum vikunnar í ensku úrvalsdeildinni Að venju er hægt að sjá inn á Vísi yfirlit yfir flottustu mörkin í hverri umferð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Nú eru menn búnir að velja fallegustu mörkin úr leikjunum sem fram fóru í þessari viku en það var mikið um óvænt úrslit og umdeild atvik í tíu leikjum vikunnar. 30.12.2010 11:15
Hodgson: Hvar hefur hinn frægi Anfield-stuðningur verið í minni tíð? Roy Hodgson, stjóri Liverpool, ætlar ekki að gefast upp þrátt fyrir slakt gengi Liverpool-liðsins og skelfilega frammistöðu í gær í tapi á heimavelli á móti botnliði ensku úrvalsdeildarinnar. Wolves kom á Anfield og vann 1-0 sigur, sinn fyrsta útisigur á tímabilinu. 30.12.2010 09:45
Ancelotti: Þessi sigur heldur okkur inn í titilbaráttunni Carlo Ancelotti, stjóra Chelsea, var mikið létt eftir 1-0 sigur liðsins á Bolton í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Þetta var fyrsti sigur liðsins í sjö leikjum og hann endaði versta gengi liðsins síðan 1999. Chelsea er nú fjórum stigum á eftir toppliði Manchester United. 30.12.2010 09:15
Macheda verður lánaður til Ítalíu Það bendir flest til þess að ítalski framherjinn, Federico Macheda, verði lánaður frá Man. Utd til liðs á Ítalíu í janúar. Leikmaðurinn vill ólmur fá að spila meira og hefur ekki nýtt tækifærin sín hjá Man. Utd nægilega vel. 29.12.2010 23:30
Liverpool tapaði fyrir botnliðinu á heimavelli Liverpool tapaði í kvöld sínum áttunda leik á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni - í þetta sinn fyrir botnliði Wolves á heimavelli, 1-0. 29.12.2010 21:58
Loksins sigurleikur hjá Chelsea Tveimur leikjum af þremur er lokið í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea vann loksins sigur en Arsenal missti af tækifæri til að komast upp að hlið toppliðanna í deildinni. 29.12.2010 21:45
Stoke búið að kaupa Pennant Stoke City gekk í dag frá kaupum á Jermaine Pennant sem hefur verið í láni hjá félaginu frá Real Zaragoza á Spáni. 29.12.2010 19:50