Fleiri fréttir

Dawson klár í slaginn

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur staðfest að Michael Dawson sé búinn að jafna sig á meiðslum sínum og geti spilað með liðinu á nýjan leik.

Drogba leikfær um helgina

Allt útlit er fyrir að Didier Drogba verði orðinn leikfær á nýjan leik þegar að Chelsea mætir Wigan í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Hughes vill tímavörð á leikjum

Mark Hughes, knattspyrnustjóri Manchester City, vill að það verði skoðað að skipa tímavörð á knattspyrnuleikjum.

Rúnar hættur hjá HK

Rúnar Páll Sigmundsson er hættur þjálfun 1. deildarliðs HK þar sem hann mun ætla að flytja til Noregs.

Mótttökurnar komu Tevez á óvart

Carlos Tevez, leikmaður Manchester City, segir að það hafi komið sér á óvart hversu slæmar viðtökur hann fékk hjá stuðningsmönnum Manchester United þegar liðin mættust um helgina.

Mawejje áfram hjá ÍBV

ÍBV hefur komist að samkomulagi við URA í Úganda um kaupverð á Tony Mawejje sem hefur verið í láni hjá Eyjamönnum nú í sumar.

Saman á nýrri umboðsskrifstofu fyrir íþróttafólk

Í dag hóf störf fyrsta íslenska umboðskrifsstofan fyrir íþróttafólk, Sportic. Markmið stofunnar er að innleiða nýja hugsun og breytt vinnubrögð í umboðsmennsku íþróttafólks hérlendis. Í upphafi verður lögð mest áhersla á knattspyrnu en í framhaldinu verða tækifæri í öðrum íþróttagreinum skoðuð.

Woodgate enn meiddur

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir að Jonathan Woodgate sé engan veginn reiðubúinn að spila á nýjan leik þar sem hann eigi enn við meiðsli að stríða.

City mun ekki refsa Bellamy

Manchester City mun ekki refsa Craig Bellamy sérstaklega fyrir að að hafa slegið til áhorfanda í leik liðsins gegn Manchester United um helgina.

Eiður Smári fékk aðeins betri dóma fyrir Nice-leikinn

Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki fengið góða dóma fyrir fyrstu tvo leiki sína með Mónakó í frönsku deildinni þrátt fyrir að liðið hafi unnið þá báða með markatölunni 5-1. Eiður Smári hefur sem dæmi fengið lægstu einkunn liðsins í báðum leikjunum hjá franska fótboltablaðinu France Football hefur leikmönnum einkunn á bilinu 0-10 fyrir hvern leik.

Holland og Belgía vilja halda HM saman

Knattspyrnusambönd Hollands og Belgíu hafa tekið höndum saman á ný og vilja halda HM í Knattspyrnu 2018 eða 2022. Hollendingar og Belgar héldu einmitt saman Evrópumótið í knattspyrnu fyrir níu árum síðan.

Van Nistelrooy einstaklega seinheppinn

Hollendingurinn Ruud van Nistelrooy var fljótur að skora sitt fyrsta mark eftir að hann snéri aftur til leiks hjá Real Madrid en hann var jafnfljótur að meiðast aftur. Van Nistelrooy tognaði nefnilega á læri um leið og hann skoraði fimmta mark Real í 5-0 sigri á Xerez í gær og verður af þeim sökum frá í sex vikur.

Mourinho fékk eins leiks bann og 2,7 milljóna sekt

Jose Mourinho, þjálfari ítalska liðsins Inter, var rekinn af bekknum í 2-1 sigri sinna manna á Cagliari um helgina. Hann hefur í framhaldinu verið dæmdur í eins leiks bann og skyldaður til að borga 15 þúsund evra sekt eða um 2,7 milljónir íslenskra króna.

Fótboltarisar minntust Bobby Robson í dag

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United og Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, eru meðal margra þekktra manna sem mættu á minningarhátið um Bobby Robson sem fram fór í dag. Bobby Robson dó úr krabbameini 31. júlí síðastliðinn en hann var 76 ára gamall.

Dómari í bann fyrir að sýna áhorfendum fingurinn

Svissneski dómarinn Massimo Busacca hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að sýna stuðningsmönnum Young Boys fingurinn í miðjum bikarleik liðsins á móti 3. deildarliðinu FC Baden um helgina.

Stelpurnar gerðu jafntefli við Sviss

Íslenska 19 ára landsliðs kvenna gerði 1-1 jafntefli við Sviss í dag í undankeppni EM U19 kvenna en leikið er í Portúgal. Sviss komst yfir strax á þriðju mínútu en KR-ingurinn Katrín Ásbjörnsdóttir jafnaði metin fimm mínútum síðar.

Ísland fær tvö sæti í Meistaradeild kvenna 2010/2011

Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur staðfest að Ísland er ein átta þjóða sem fær úthlutað tveimur sætum í Meistaradeild kvenna fyrir keppnistímabilið 2010/2011. Ísland er í áttunda sæti yfir bestan árangur félagsliða í Evrópukeppni undanfarin fimm tímabil. Þetta kemur í frétt á heimasíðu KSÍ.

McCann frá í þrjá mánuði

Chris McCann, leikmaður Burnley, verður frá næstu þrjá mánuðina vegna hnémeiðsla. Hann meiddist í leik Burnley gegn Sunderland á laugardaginn.

McAllister boðið að aðstoða Burley

Skoska knattspyrnusambandið hefur boðið Gary McAllister, fyrrum fyrirliða skoska landsilðsins, að gerast þjálfari og aðstoðarmaður George Burley landsliðsþjálfara.

Mackay ánægður með Heiðar

Malky Mackay, knattspyrnustjóri Watford, var ánægður með frammistöðu Heiðars Helgusonar sem skoraði tvö mörk fyrir félagið í 3-3 jafntefli við Leicester.

Nistelrooy frá í sex vikur

Ruud van Nistelrooy meiddist enn á ný í leik með Real Madrid í gær. Hann var nýbyrjaður að spila eftir níu mánaða fjarveru vegna erfiðra hnémeiðsla.

Viðar Örn með slitið krossband

Viðar Örn Kjartansson er með slitið krossband í hné og verður af þeim sökum frá eitthvað fram á næsta sumar ef af líkum lætur.

Harewood á leið til Newcastle

Umboðsmaður Marlon Harewood hefur staðfest að leikmaðurinn verður lánaður til enska B-deildarfélagsins Newcastle frá Aston Villa.

Ólafur áfram hjá Brann

Allar líkur eru á því að Ólafur Örn Bjarnason verði áfram í herbúðum norska úrvalsdeildarfélagsins Brann á næstu leiktíð.

Bellamy sagður slá stuðningsmann

Craig Bellamy mun hafa slegið áhorfenda sem hljóp inn á völlinn í lok leiks Manchester United og Manchester City í gær.

Myndasyrpa af fögnuði FH-inga

FH varð í dag Íslandsmeistari í knattspyrnu í fimmta sinn í sögu félagsins. Daníel Rúnarsson ljósmyndari var á Kaplakrika og fangaði stemninguna eftir leik.

Ólafur Páll: Frábær skipti fyrir mig

Ólafur Páll Snorrason gekk í raðir FH um mitt sumar frá Val og mætti í dag sínum gömlu félögum. Með 2-0 sigri FH í dag tryggði FH sér Íslandsmeistaratitilinn.

Pétur: Hef verið áhorfandi hingað til

Pétur Viðarsson, varnarmaður FH, var ánægður með að hafa fengið loksins að taka þátt í Íslandsmótinu með sínu liði eftir að hafa fylgst með frá hliðarlínunni undanfarin ár.

Sjá næstu 50 fréttir