Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
FH-ingar lágu í Kaplakrikanum FH-ingar töpuðu í kvöld fyrir Bate frá Hvíta-Rússlandi í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu, 1-3. FH-ingar komust yfir á 3. mínútu með marki frá Matthíasi Vilhjálmssyni en Hvít-Rússarnir náðu að jafna á 31. mínútu. Staðan var 1-1 í hálfleik, en leikmenn Bate náðu að setja tvö mörk í seinni hálfleik. 1.8.2007 21:00
KR sigraði Breiðablik. KR sigraði Breiðablik í kvöld í 9. umferð Landsbankadeildar kvenna með sex mörkum gegn tveimur. KR-ingar leiddu 2-0 í hálfleik. Með sigrinum er KR komið við hlið Vals á toppnum með 25 stig en Valur er með betri markatölu. Breiðablik er í 3. sæti með 13 stig. 1.8.2007 20:17
1-1 í Kaplakrika Flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign FH og Bate í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu. Staðan er 1-1, en FH-ingar komust yfir á 3. mínútu þegar Matthías Vilhjálmsson skoraði eftir góða sókn. Eftir markið náðu leikmenn Bate taki á leiknum og voru mun meira með boltann. Á 31. mínútu jöfnuðu þeir leikinn með góðu marki en Daði Lárusson var nálægt því að verja. 1.8.2007 19:45
FH mætir Bate í Kaplakrika í kvöld Íslandsmeistarar FH leika fyrri leik sinn í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. FH-ingar mæta Bate Borisov frá Hvíta-Rússlandi og hefst leikurinn kl. 19:00 á Kaplakrikavelli. 1.8.2007 17:30
Casper gerir samning við Breiðablik út 2008 Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur framlengt samning við markvörðinn Casper Jacobsen sem verið hefur hjá félaginu frá því í byrjun júní þar sem Hjörvar Hafliðason þurfti að gangast undir aðgerð vegna meiðsla. Samningurinn gildir út keppnistímabilið 2008. 1.8.2007 16:37
City að kaupa króatískan varnarmann fyrir 8,7 milljónir punda? Samkvæmt fréttamiðlum í Króatíu hefur Manchester City náð samkomulagi við Dinamo Zagreb um kaup á varnarmanninum Vedran Corluka. Kaupverðið er talið vera um 8,7 milljónir punda. Corluka þarf þó að fá atvinnuleyfi áður en gengið er frá kaupunum. 1.8.2007 15:51
United býst við að fá Beattie Bryan Robson, framkvæmdastjóri Sheffield United, er vongóður um að framherjinn James Beattie samþykki að ganga til liðs við Sheffield frá Everton eftir að samingsviðræður þeirra á milli áttu sér stað. Liðin hafa samþykkt kaupverð á kappanum, en Everton er talið fá um fjórar milljónir punda fyrir framherjann. 1.8.2007 15:05
Nesta hættur með landsliðinu Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Nesta hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila fyrir landsliðið. Nesta, sem er 31 árs gamall, vann meistardeildina á síðasta tímabili með AC Milan eftir sigur á Liverpool, og hann var einnig hluti af landsliði Ítala sem urðu heimsmeistarar síðasta sumar. 1.8.2007 14:55
Einn leikur í Landsbankadeild kvenna í kvöld Einn leikur verður leikinn í 9. umferð Landsbankadeildar kvenna í kvöld. Breiðablik heimsækir KR í vesturbæinn og hefst leikurinn klukkan 17:30. KR er í öðru sæti deildarinnar og Breiðablik í því þriðja en talsverður munur er á liðunum í stigafjölda. Leikurinn er mjög þýðingamikill fyrir KR því að með sigri komast þær við hlið Vals á toppi deildarinnar. 1.8.2007 14:42
Gallas vill verða næsti fyrirliði Arsenal Franski varnarmaðurinn William Gallas segist vilja verða næsti fyrirliði Arsenal. Arsene Wenger, framkvæmdastjóri klúbbsins, hefur nefnt Gallas sem einn af þeim þremur sem koma til greina til að taka við fyrirliðabandinu frá Thierry Henry sem gekk til liðs við Barcelona fyrr í sumar, en Gilberto Silva og Kolo Toure koma einnig til greina. 1.8.2007 14:34
City nær samkomulagi við Juventus um kaupverð á Bojinov Manchester City hefur náð samkomulagi við Fiorentina um kaupverð á búlgarska framherjanum Valeri Bojinov. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum borgar City 5,7 milljónir fyrir kappann. Bojinov, sem er aðeins 21 árs gamall, gekk til liðs við Fiorentina frá Lecce árið 2005 fyrir 10 milljónir punda, en þar fékk hann lítið að spila. 1.8.2007 14:25
Alan Curbishley áhugasamur um Smith Alan Curbishley, framkvæmdastjóri West Ham, hefur nú hafið viðræður við framherjann Alan Smith hjá Manchester United, í von um að krækja loksins í leikmanninn en Smith hefur verið lengi undir smásjá West Ham. Alan Smith er þó talinn vilja vera áfram á Old Trafford en hann hann getur nú valið á milli fjögurra liða eða Middlesbrough, Newcastle, Everton og nú West Ham. 1.8.2007 14:16
Gunnar Heiðar skoraði gegn Real Madrid Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði þegar Hannover sigraði Real Madrid í vináttuleik í kvöld, 3-0. Gunnar Heiðar skoraði annað markið í leiknum á 63. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður, en hann hefur verið á skotskónum á undirbúningstímabilinu og var þetta fjórða markið sem að hann skorar í mánuðinum. 49 þúsund áhorfendur voru á leiknum. 31.7.2007 21:18
Tottenham kaupir Boateng frá Hertha Berlin Tottenham hefur tryggt sér hinn tvítuga Þjóðverja Kevin-Prince Boateng frá Hertha Berlin. Tottenham hefur verið á eftir leikmanninum í nokkurn tíma en hafa nú haft betur í kapphlaupi við önnur lið. Boateng er af mörgum talinn einn besti ungi miðjumaðurinn í Evrópu. Kaupverðið er talið vera um 5,4 milljónir punda. 31.7.2007 18:05
Manchester United selur Rossi til Villareal Manchester United hefur selt ítalska framherjann Giuseppe Rossi til spænska liðsins Villareal. Mikið hefur verið rætt um framtíð Rossi á Old Trafford í kjölfar þess að hann stóð sig mjög vel hjá Parma á síðasta tímabili þar sem hann var á láni. Rossi á eftir að gangast undir læknisskoðun en talið er að gengið verði frá kaupunum í lok vikunnar. Villareal borgar um 6,7 milljónir punda fyrir leikmanninn. 31.7.2007 17:51
Stuðningsmenn West Ham ánægðir með að Eiður sé orðaður við félagið Stuðningsmenn West Ham hafa keppst um að lofa Eið Smára Guðjohnsen á stuðningsmannasíðum sínum á vefnum í dag í kjölfar frétta sem bárust í gær um að landsliðsfyrirliðinn væri opinn fyrir að ganga til liðs við West Ham. Þegar rýnt er í skoðanir þeirra sést að þeir sjá Eið Smára sem heimsklassaleikmann sem væri kjörinn fyrir liðið. 31.7.2007 16:44
Eiður Smári fer ekki til Asíu með Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen mun ekki ferðast með Barcelona til Asíu í æfingaferð vegna meiðsla á hné. Landsliðsfyrirliðinn missti einnig af æfingaferð Barcelona til Skotlands í síðustu viku. Carlos Puyol og Edmílson eru einnig meiddir og fara því ekki með til Asíu. Þar að auki eru Lionel Messi, Rafa Márques og Gabi Milito enn í frí vegna þátttöku þeirra í Suður-Ameríkukeppninni. 31.7.2007 15:53
Brasilía sækir um að halda heimsmeistaramótið árið 2014 Brasilíska knattspyrnusambandið hefur sótt um að fá að halda lokakeppni heimsmeistaramótsins árið 2014. Sambandið skilaði 900 blaðsíðna skýrslu til FIFA í morgun en neitaði að svara spurningum fjölmiðla. Brasilía er eina landið sem sótt hefur um að halda keppnina, en Kólumbía hefur dregið sína beiðni til baka. 31.7.2007 15:38
Smith í viðræðum við Newcastle Framherjinn Alan Smith hjá Manchester City er talinn vera í viðræðum við Newcastle um að leikmaðurinn gangi til liðs við félagið. Smith er sagður hafa hafnað Middlesbrough, en Sunderland, Everton og West Ham eru sögð vera á eftir leikmanninum. 31.7.2007 15:01
Aston Villa fær varnarmann frá Bandaríkjunum Aston Villa hefur tryggt sér þjónustu bandaríska varnarmannsins Eric Lichaj. Lichaj er 18 ára gamall og spilaði með háskólanum í North Carolina. Leikmaðurinn heillaði Martin O´Neill, framkvæmdastjóra Aston Villa, upp úr skónum þegar hann lék með U17 og U20 ára liðum Bandaríkjanna, og skrifaði í framhaldi af því undir tveggja ára samning. 31.7.2007 14:49
Bolton kaupir norskan kantmann frá Rosenborg Norski kantmaðurinn Daniel Braaten hefur samþykkt að ganga til liðs við Heiðar Helguson og félaga í Bolton. Bolton borgar Rosenborg 425 þúsund pund fyrir þennan 25 ára leikmann. Nokkrir enskir og franskir klúbbar voru á eftir leikmanninum en Bolton sigraði kapphlaupið. 31.7.2007 14:34
Juventus neitar tilboði City í Chiellini Manchester City hefur mistekist að landa ítalska U21 landsliðsmanninnum Giorgio Chiellini frá Juventus. Giovanni Cobolli Gigli, forseti Juventus staðfestir að Juventus hafi hafnað tilboði City. Leikmaðurinn hefur ekki farið leynt með þrá sína fyrir að spila á Englandi en Gigli segir að hann verði ekki seldur. 31.7.2007 14:26
Deco vill vinna aftur með Mourinho Miðjumaðurinn Deco hjá Barcelona hefur gefið það út að hann myndi langa að vinna með José Mourinho, framkvæmdastjóra Chelsea. Deco var einn af lykilmönnum Porto þegar liðið varð Evrópumeistari undir stjórn Mourinho. Orðrómur hefur verið á kreiki að Barcelona vilji losna við leikmanninn vegna komu Thierry Henry í liðið. 31.7.2007 14:17
Atletico Madrid klófestir Reyes Atletico Madrid hefur staðfest að þeir hafi nælt sér í Jose Antonio Reyes frá Arsenal. Spænski framherjinn hefur ekki farið leynt með að hann vilji spila í heimalandinu eftir vonbrigði á Englandi með Arsenal, en hann var á láni hjá Real Madrid á síðasta tímabili. Á vefsíðu Skysports kemur fram að Reyes muni skrifa undir fjögurra ára samning við félagið og kaupverðið er talið vera um 8,1 milljón punda. 30.7.2007 21:55
Margrét Lára með sex mörk gegn ÍR Valur valtaði yfir ÍR í kvöld í Landsbankadeild kvenna, 10-0. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sex marka Vals, þar af tvö úr vítaspyrnum. Guðný Björk Óðinsdóttir skoraði tvö og þær Vanja Stefanovic og Dóra María Lárusdóttir sitt markið hvor. 30.7.2007 21:25
Stefán með tvö í sigri á Ljungskile Stefán Þórðarson skoraði bæði mörk Norrkoping í 2-0 sigri gegn Ljungskile í næstefstu deild í Svíþjóð. Stefán skoraði bæði mörkin í fyrri hálfleik. Stefán var ásamt Garðari Gunnlaugssyni í byrjunarliðinu en Garðar var tekinn út af í fyrri hálfleik. Norrkoping er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með 41 stig eftir 16 leiki, 12 siga forskot á GIF Sundsvall sem er í öðru sæti. 30.7.2007 18:56
Pele vill að Beckham einbeiti sér að knattspyrnunni Knattspyrnugoðsögnin Pele ítrekar það við David Beckham að hann eigi að hætta að lifa þessu glamúrlífi og einbeita sér að knattspyrnunni. Beckham hefur verið mikið í sviðsljósinu upp á síðkastið eftir að hann samþykkti að ganga til liðs við LA Galaxy. 30.7.2007 18:20
U17: Strákarnir töpuðu gegn Englendingum Ísland tapaði í dag í fyrsta leik sínum á Norðurlandamóti U17 karla fyrir Englendingum. Leikurinn fór 2-0 og skoruðu Englendingar bæði mörk sín í seinni hálfleik með stuttu millibili. Strákarnir mæta Svíum á morgun klukkan 13:00. Mótið fer fram í Danmörku. 30.7.2007 17:06
Teitur rekinn frá KR Teitur Þórðarson hefur verið rekinn frá KR og Logi Ólafsson fyrrverandi landsliðsþjálfari tekur við liðinu og stjórnar sinni fyrstu æfingu klukkan 18:30. KR-ingar eru í neðsta sæti Landsbankadeildarinnar, aðeins með 7 stig eftir 11 umferðir. Teitur skrifaði upphaflega undir fimm ára samning við KR-Sport. 30.7.2007 16:44
Arnór: Eiður er opinn fyrir að ganga til liðs við West Ham Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, segir að sonur sinn væri áhugasamur um að ganga til liðs við West Ham. Eiður hefur verið sterklega orðaður við West Ham í sumar. Eftir að Barcelona keypti Thierry Henry fyrr í sumar er ljóst að Eiður hefur færst aftar í goggunarröðina. 30.7.2007 16:22
Fabregas aðaltakmark Real Madrid fyrir næsta tímabil? Aðaltakmark Real Madrid á næsta tímabili gæti orðið að klófesta Cesc Fabregas frá Arsenal. Real Madrid hefur oft lýst yfir áhuga sínum á miðjumanninum. Ramon Calderon, forseti félagsins, lofaði stuðningsmönnum Madrid að hann myndi fá Fabregas, Kaká og Arjen Robben til liðsins þegar hann bauð sig fram til forseta, en hann hefur ekki staðið við það hingað til. 30.7.2007 15:26
Ghaly skrifar undir hjá Birmingham Egypski miðjumaðurinn Hossam Ghaly hefur skrifað undir þriggja ára samning við Birmingham. Birmingham borgar Tottenham 3 milljónir punda fyrir þennan 25 ára gamla leikmann. Steve Bruce, framkvæmdastjóri Birmingham, hefur nú keypt átta leikmenn til liðsins í sumar, en Birmingham komst upp úr næstefstu deild á Englandi á síðasta tímabili. 30.7.2007 14:24
Nicola Zigic vinsæll í Evrópu Nicola Zigic, serbneski framherjinn hjá Racing Santander, er vinsæll á meðal liða víðs vegar um Evrópu. Fenerbache og Manchester City höfðu bæði lýst yfir áhuga sínum á kappanum og nú hefur Werder Bremen bæst í hópinn. 30.7.2007 14:13
Landsbankadeild kvenna: Toppliðin sigruðu örugglega Fjórir leikir voru leiknir í Landsbankadeild kvenna í kvöld. KR og Valur sitja enn á toppi deildarinnar eftir stóra sigra á andstæðingum sínum. Hins vegar sitja Fylkir og Þór/KA enn á botni deildarinar eftir að hafa tapað sínum leikjum. 27.7.2007 21:41
Skagamenn hafa innbyrgt 13 stig af síðustu 15 mögulegum Skagamenn hafa innbyrgt 13 stig af síðustu 15 mögulegum í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. ÍA vann öruggan sigur á HK þegar liðin áttust við í 11. umferð deildarinnar í gær. Skagamenn eru nú í þriðja sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Keflavík. 27.7.2007 19:56
Southgate ætlar sér að fá Smith Gareth Southgate, framkvæmdastjóri Middlesbrough, ætlar að gera tilraun til að klófesta framherjann Alan Smith þegar hann kemur heim úr æfingaferð Manchester United í Asíu. Sir Alex Ferguson hefur gefið sterklega í skyn að leikmaðurinn muni yfirgefa United í sumar og það gefur Southgate von. 27.7.2007 18:48
Fjórir leikir í Landsbankadeild kvenna í kvöld Fjórir leikir fara fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Fylkir fær Breiðablik í heimsókn, KR tekur á móti Keflavík, Stjarnan tekur á móti ÍR og Valur mætir Þór/KA á Akureyri. Valur og KR eru á toppi deildarinnar með 19 stig eftir 7 leiki, en Þór/KA og Fylkir eru á botninum með 3 stig eftir 7 leiki. Leikirnir hefjast klukkan 19:15. 27.7.2007 17:03
Henry segir Ljungberg hafa rétt á að gera það sem hann vill Thierry Henry segir að fyrrverandi félagi sinn hjá Arsenal, Freddie Ljungberg, sé fullorðinn maður og hafi rétt á hafa sínar skoðanir. Ljungberg yfirgaf Arsenal fyrir skömmu til að ganga til liðs við West Ham og segist efast um metnað Arsenal. Ljungberg sagði einnig að brottför Henry til Barcelona hafi opnað augu sín og þá hafi hann ákveðið að yfirgefa klúbbinn. 27.7.2007 16:15
Martins: Ég er ekki að fara neitt Framherjinn Obafemi Martins segist vera mjög ánægður hjá Newcastle og að hann sé ekki á leiðinni frá félaginu. Arsenal hefur mikinn áhuga á Martins og Arsene Wenger hefur greint frá því að hann hafi mikið álit á leikmanninum, en Martins skoraði 17 mörk á sínu fyrsta tímabili fyrir Newcastle. 27.7.2007 15:37
Nýju mennirnir klikkuðu hjá Liverpool Portsmouth vann Asíubikarinn í dag þegar liðið hafði betur gegn Liverpool eftir vítaspyrnukeppni í úrsitaleiknum. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og þá var farið beint í vítaspyrnukeppni. Fernando Torres og Yossi Benayoun misnotuðu báðir sínar spyrnur. Hermann Hreiðarsson tók víti fyrir Portsmouth og nýtti það. Portsmouth vann 4-2. 27.7.2007 14:36
Rijkaard segir það ekki vera vandamál að stilla stjörnunum í byrjunarliðið Frank Rijkaard segir að að það verði ekkert mál að stilla stjörnunum fjórum upp saman í byrjunarliði Barcelona. Þar á hann við Samuel Eto´o, Lionel Messi, Ronaldinho og Thierry Henry, en mikið hefur verið rætt um að þeir gætu ekki allir verið í byrjunarliðinu. 27.7.2007 14:29
Heinze ákveðinn í að komast frá United Argentíski landsliðsmaðurinn Gabriel Heinze hefur nú tekið til þeirra ráða að ráða lögfræðifyrirtæki til starfa til að auðvelda honum að komast frá Manchester United til erkifjandanna í Liverpool. 27.7.2007 14:13
Henry skoraði í fyrsta leiknum fyrir Barcelona Thierry Henry skoraði eina mark Barcelona í sigri gegn Dundee United í Skotlandi í kvöld. Markið kom á 89. mínútu eftir vítaspyrnu. Henry tók spyrnuna sem var varin en hann fylgdi vel á eftir. Þetta var fyrsti leikurinn sem Henry spilar fyrir Barcelona en hann kom frá Arsenal í sumar. 26.7.2007 21:42
Skagamenn sigruðu HK á Akranesi Skagamenn sigruðu í kvöld HK á heimavell í landsbankadeild karla, 4-1. Þórður Guðjónsson skoraði tvö mörk fyrir ÍA og þeir Andri Júlíusson og Vjekoslav Svadumovic sitt markið hvor. Finnur Ólafsson skoraði fyrir HK. Með sigrinum er ÍA komið í 4. sæti með 18 stig eins og Keflavík, en lakara markahlutfall. HK er áfram í 8. sæti með 11 stig. 26.7.2007 21:15
Newcastle sigraði Celtic í vináttuleik Newcastle sigraði í kvöld Celtic í vináttuleik, 4-1. Albert Luque skoraði tvö mörk fyrir Newcastle, Obafemi Martins eitt og James Milner eitt. Scott Brown skoraði fyrir Celtic. Varamarkvörður Newcastle, Steve Harper, spilaði síðustu 11 mínúturnar sem framherji vegna þess að Nicky Butt meiddist og Newcastle voru búnir með útileikmenn sína. 26.7.2007 20:40