Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Southgate hefur engar áhyggjur Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni, segist aðeins vera að einbeita sér að því að vinna vinnuna sína þó undanþága hans til að þjálfa liðið falli úr gildi eftir 9 daga. 2.11.2006 19:45
Verður ekki með gegn Deportivo Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki í liði Barcelona sem mætir Deportivo í spænsku úrvalsdeildinni um helgina vegna ökklameiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum við Chelsea í Meistaradeildinni. 2.11.2006 18:31
Shevchenko er gæludýrið hans Abramovich Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona tekur undir skoðun þeirra fjölmörgu sem segja að Andriy Shevchenko hafi gert afdrifarík mistök með því að ganga til liðs við Chelsea í sumar. 2.11.2006 18:14
Gefur Aaron Lennon aðvörun Martin Jol hefur sent enska landsliðsmanninum Aaron Lennon aðvörun og hvetur hann til að ná meiri stöðugleika í frammistöðu sína með Tottenham - ella verði hann á fá sér sæti á varamannabekknum. 2.11.2006 17:15
Xavier við það að semja við Boro Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier er nú við það að skrifa undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough að sögn umboðsmanns hans, en Xavier er nýlaus úr löngu keppnisbanni vegna steranotkunar. Svo gæti farið að hann yrði í leikmannahópi Boro gegn Watford um helgina en mikil meiðsli eru meðal varnarmanna liðsins. 2.11.2006 16:30
Vill aldrei fara til Englands aftur Spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes sem nú leikur sem lánsmaður hjá Real Madrid frá enska félaginu Arsenal, segist aldrei geta hugsað sér að spila á Englandi aftur. Reyes fór sem lánsmaður til Real í skiptum fyrir Julio Baptista í sumar og búist er við því að sú ráðstöfun verði gerð varanleg fljótlega. 2.11.2006 15:45
Ole Gunnar frá í nokkrar vikur Norski markaskorarinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa tognað aftan á læri í Meistaradeildarleiknum á Parken í gærkvöldi. Alex Ferguson knattspyrnustjóri liðsins segist hafa verið feginn að heyra að vandamálið var ekki alvarlegra en raun bar vitni og sagðist hafa óttast að hnéð hefði gefið sig þegar hann fór að haltra undir lok leiksins. 2.11.2006 15:30
Stórhuga í Meistaradeildinni Jose Mourinho segir að lið sitt sé að spila betur en nokkru sinni fyrr í Meistaradeild Evrópu og bendir á að þó samkeppnin sé hörð, hafi hans menn alla möguleika á að fara alla leið í keppninni að þessu sinni. 2.11.2006 15:00
Englendingar íhuga að bjóða í HM 2018 Richard Caborn, íþróttamálaráðherra Englendinga, segir að stjórnvöld þar í landi séu mjög hrifinn af þeirri hugmynd að fá að halda HM í knattspyrnu árið 2108. HM 2010 fer fram í Suður-Afríku og keppnin þar á eftir mun fara fram í einhverju af löndum Suður-Ameríku. Þar á eftir verður keppnin haldin í Evrópu á ný og þá hafa enskir hug á því að fá að halda keppnina. 2.11.2006 14:35
Tottenham - Club Brugge í beinni Leikur Tottenham og Club Brugge í Evrópukeppni félagsliða verður sýndur beint á Sýn Extra í kvöld og hefst útsending klukkan 19:55. Tottenham hvílir væntanlega eitthvað af lykilmönnum sínum fyrir deildarleikinn gegn Chelsea um helgina, en Didier Zokora er í leikmannahópi Lundúnaliðsins eftir að hafa veikst af malaríu á dögunum. 2.11.2006 13:56
Jafnt í hálfleik á White Hart Lane Staðan í leik Tottenham og Club Brugge í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða er jöfn 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Dimitar Berbatov jafnaði metin fyrir Tottenham eftir að liðið lenti undir 1-0. Albert Luqueskoraði mark Newcastle hefur yfir 1-0 gegn Palermo á Sikiley og þá er markalaust hjá Blackburn og Basel. 2.11.2006 21:03
Hugsanlega besti leikur okkar í Meistaradeildinni Arsene Wenger var ekkert að velta sér upp úr því að lið hans hafi farið illa með fjölda færa og því þurft að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli við CSKA Moskva í kvöld. Hann segir spilamennsku liðsins hafa verið frábæra. 1.11.2006 23:24
Við verðum að ná í stig gegn Celtic Sir Alex Ferguson var ekki á þeim buxunum að koma með lélegar afsakanir í kvöld eftir að hans menn afhentu FC Kaupmannahöfn fyrsta sigur sinni í Meistaradeildinni í sögu félagsins. Ferguson sagði sína menn hafa fengið á baukinn fyrir að nýta ekki færi sín. 1.11.2006 23:20
United lá í Kaupmannahöfn Manchester United þurfti að sætta sig við 1-0 tap fyrir FC Kaupmannahöfn í Danmörku í kvöld og Arsenal og CSKA Moskva gerðu markalaust jafntefli í G-riðli, þar sem allt er nú opið. 1.11.2006 21:37
Dauft hjá enskum í fyrri hálfleik Ensku liðunum Arsenal og Manchester United hefur ekki gengið vel í fyrri hálfleik í leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu sem sýndir eru beint á sjónvarpsstöðvum Sýnar í kvöld, en raunar hafa fá mörk verið skoruð í leikjunum átta sem standa yfir. 1.11.2006 20:36
Ver ráðningu McClaren Brian Barwick hefur nú komið Steve McClaren landsliðsþjálfara Englendinga til varnar í kjölfar gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir vegna lélegs gengis enska landsliðsins í síðustu leikjum. 1.11.2006 18:26
Meiðsli Eiðs ekki alvarleg Ökklameiðsli landsliðsfyrirliðans Eiðs Smára Guðjohnsen í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni í gærkvöld voru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu og svo gæti farið að hann yrði klár í slaginn um helgina þegar meistararnir mæta Deportivo í deildinni. 1.11.2006 18:16
Pétur Marteinsson í KR Landsliðsmaðurinn Pétur Marteinsson sem leikið hefur með Hammarby í Svíþjóð síðustu ár hefur ákveðið að snúa aftur heim til Íslands og ætlar að ganga í raðir KR. Pétur mun einnig starfa með Akademíu KR þar sem hann mun vinna með ungum knattspyrnumönnum. 1.11.2006 18:11
Matthías skrifaði undir þriggja ára samning við FH Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Valsmaðurinn Matthías Guðmundsson nú skrifað undir þriggja ára samning um að leika með Íslandsmeisturum FH. Matthías skrifaði undir hjá FH í hádeginu. 1.11.2006 18:06
Arsenal - CSKA Moskva í beinni Leikur Arsenal og CSKA Moskvu í meistaradeild Evrópu verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 19:30 og á sama tíma verður leikur FC Kaupmannahöfn og Manchester United sýndur á Sýn Extra. 1.11.2006 17:00
Baunar áfram á Barcelona Jose Mourinho hrósaði baráttuanda sinna manna í gærkvöld þegar lið Chelsea náði jöfnu gegn Barcelona í Meistaradeildinni, en hann gat ekki stillt sig um að bauna aðeins á Frank Rijkaard þjálfara. 1.11.2006 14:44
Ræddi við Nígeríumenn Breskir fjölmiðlar segja í dag að sænski knattspyrnuþjálfarinn Sven-Göran Eriksson hafi átt í viðræðum við Nígeríska knattspyrnusambandið þar sem honum hafi verið boðið að taka við landsliðinu. Eriksson var áður hjá enska landsliðinu en hætti þar eftir HM í sumar. Hann hefur verið orðaður við West Ham, Benfica, Newcastle, Inter og West Ham í fréttum undanfarið. 1.11.2006 14:39
Bann Mijailovic stendur Serbneski varnarmaðurinn Nikola Mijailovic hjá Wisla Krakow í Póllandi þarf að sitja af sér fimm leikja bannið sem hann var settur í af evrópska knattspyrnusambandinu á dögunum eftir að áfrýjun hans á banninu var hafnað í dag. Mijailovic beitti Benni McCarthy leikmann Blackburn kynþáttaníð í leik liðanna þann 19 október sl. 1.11.2006 14:16
Staðfestir tilboð í Leicester City Milan Mandaric, fyrrum eigandi enska úrvalsdeildarfélagsins Portsmouth, hefur staðfest að hann hafi gert kauptilboð í 1. deildarfélagið Leicester City. Mandaric náði á sínum tíma að rífa Portsmouth upp úr meðalmennsku og í efstu deild og ætlar sér nú að gera það sama við Leicester. Talið er að tilboð hans sé upp á um 25 milljónir punda. 1.11.2006 14:10
Öruggt hjá Liverpool Liverpool átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Bordaeux af velli á heimavelli sínum í Meistaradeildinni í kvöld. Lokatölur urðu 3-0 og er Liverpool búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum, rétt eins og PSV sem sigraði Galatasary, 2-0. 31.10.2006 21:43
Stjórnarmaður segir af sér Noel White, stjórnarmaður hjá Liverpool, hefur sagt af sér eftir að upp komst um þáttöku hans í orðrómi sem fór á kreik í síðustu viku um að Rafael Benitez væri valtur í sessi sem knattspyrnustjóri liðsins. 31.10.2006 20:15
Flestir vilja sjá Saviola taka sæti Eiðs Ratomir Antic, fyrrverandi knattspyrnustjóri Barcelona, segir að Eiður Smári Guðjohnsen sé ekki að spila vel fyrir félagið og að flestir myndu frekar vilja sjá Javier Saviola í fremstu víglínu liðsins. 31.10.2006 18:07
Aldrei lent í öðru eins Marel Baldvinsson var í tapliði Molde í norsku úrvalsdeildinni en þá tapaði liðið fyrir Veigar Páli Gunnarssyni og félögum í Stabæk, 8-0. Veigar skoraði tvö markanna og var að sögn Marels óstöðvandi. „Hann svoleiðis rúllaði vörninni okkar upp," sagði Marel. 31.10.2006 11:00
Ásthildur varð þriðja markahæst Íslenski landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir varð þriðja markahæst í sænsku úrvalsdeildinni sem lauk í gær. Ásthildur skoraði 19 mörk en Lotta Schelin varð markahæst með 21 mark og hin brasilíska Marta varð næstmarkahæst með 20 mörk. 30.10.2006 00:01
Langþráður sigur West Ham West Ham vann í dag mjög langþráðan sigur í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið skellti Blackburn 2-1 á heimavelli sínum Upton Park. Gamla brýnið Teddy Sheringham skoraði fyrra mark West Ham í fyrri hálfleik og Hayden Mullins bætti öðru við á 79. mínútu. Nokkuð fór um áhorfendur þegar David Bentley minnkaði muninn í uppbótartíma en West Ham náði að halda forskotinu þar til flautað var af. 29.10.2006 17:52
Osasuna - Bilbao í beinni Leikur Osasuna og Atletic Bilbao verður sýndur beint á Sýn klukkan 17:50 í kvöld og strax að leiknum loknum verður á dagská viðureign Denver og Indianapolis í bandarísku NFL deildinni. 29.10.2006 17:30
Inter lagði Milan í æsilegum leik Inter Milano lagði granna sína í AC Milan 4-3 í æsilegu uppgjöri erkifjendanna í ítölsku A-deildinni í gær. Crespo, Stankovic og Ibrahimovic komu Inter í 3-0 í upphafi síðari hálfleiks áður en Seedorf minnkaði muninn fyrir Inter. Materazzi kom þá Inter í 4-1 og var rekinn af velli fyrir fagnaðarlæti sín og í kjölfarið minnkuðu þeir Gilardino og Kaka muninn fyrir AC. 29.10.2006 16:18
Shevchenko og Drogba með Chelsea á Spáni Framherjarnir Andriy Shevchenko og Didier Drogba fóru báðir með liði Chelsea til Spánar þar sem liðið sækir Evrópumeistara Barcelona heim í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld. Báðir leikmenn hafa átt við meiðsli að stríða. 29.10.2006 15:56
Eiður skoraði ekki en Barcelona vann Eiður Smári var í byrjunarliði Börsunga en skoraði ekki þegar þeir sigruðu Recreativo 3-0 í Barcelona í kvöld. Ronaldinho, Eiður Smári og Giuly voru í framvarðarlínunni því Leo Messi var meiddur og lék því ekki með. 28.10.2006 21:44
Besta frammistaða okkar í deildinni til þessa Rafa Benitez sagði að frammistaða Liverpool í fyrri hálfleiknum í 3-1 sigri á Aston Villa í dag hefði verið besti leikkafli liðsins á leiktíðinni í úrvalsdeildinni. Liverpool gerði út um leikinn í fyrri hálfleiknum með þremur mörkum. 28.10.2006 21:15
Gagnrýnir Steve McClaren Sol Campbell, varmarnaður Portsmouth og fyrrum landsliðsmaður, segir að Steve McClaren hafi ekki staðið vel að því þegar hann tilkynnti sér að hann ætti ekki lengur sæti í landsliðinu. 28.10.2006 20:30
Hrósaði Wayne Rooney Sam Allardyce átti ekki til orð yfir frammistöðu framherjans Wayne Rooney í dag þegar Manchester United rassskellti Bolton á útivelli 4-0. Rooney skoraði þrennu í leiknum og Allardyce viðurkenndi að sínir menn hefðu ekki átt möguleika á að stöðva hann. 28.10.2006 19:00
Charlton enn á botninum Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton verma enn botnsætið í ensku úrvalsdeildinni eftir markalaust jafntefli við Newcastle á útivelli í lokaleik dagsins. Hermann var í hjarta varnarinnar hjá Charlton að venju, en liðið hefur aðeins hlotið fimm stig í fyrstu 10 leikjum sínum í deildinni. 28.10.2006 18:21
Barclona - Recreativo í beinni Leikur Barcelona og Recreativo í spænsku úrvalsdeildinni verður sýndur beint á Sýn í dag og hefst útsending klukkan 17:50. Það verður Hörður Magnússon sem lýsir leiknum beint og þá er rétt að minna á beina útsendingu Sýnar frá Íslandsmótinu í Ice Fitness sem hefst klukkan 20 í kvöld. 28.10.2006 17:25
Rooney skoraði þrennu í stórsigri United Manchester United er komið aftur á toppinn í ensku úrvalsdeildinni eftir frábæran 4-0 útisigur á Bolton í dag þar sem Wayne Rooney undirstrikaði endurkomu sína með þrennu. Liverpool vann 3-1 sigur á Aston Villa og Arsenal varð að gera sér að góðu jafntefli við Everton á heimavelli sínum. 28.10.2006 15:48
Með annað augað á leiknum við Barcelona Jose Mourinho viðurkenndi að hann hefði verið ánægður með sigurinn á Sheffield United í dag í ljósi þess að hann hefði gert nokkrar breytingar á liði sínu vegna leiksins við Barcelona í Meistaradeildinni í næstu viku. 28.10.2006 15:31
Chelsea á toppinn Chelsea vann 2-0 útisigur á nýliðum Sheffield United í dag og skaust þar með á topp ensku úrvalsdeildarinnar. Danny Webber misnotaði vítaspyrnu í fyrri hálfleik og það reyndist heimamönnum dýrt, því Frank Lampard og Michael Ballack tryggðu meisturunum sigur með mörkum sitt hvoru megin við hálfleikinn. 28.10.2006 14:30
Hammarby ræður þjálfara til starfa Sænska úrvalsdeildarliðið Hammarby réð í gær hinn 33 ára gamla Tony Gustavsson sem nýjan aðalþjálfara liðsins. Hann tekur við starfinu að tímabilinu loknu en tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Tveir Íslendingar eru hjá liðinu, þeir Pétur Marteinsson og Gunnar Þór Gunnarsson. 28.10.2006 14:16
Loksins mark hjá Rooney Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hefur yfir 2-0 gegn Bolton á útivelli þar sem gestirnir hafa verið með frumkvæðið lengst af leik og þar er Wayne Rooney loksins kominn á blað fyrir United. Liverpool er að bursta Aston Villa og Everton hefur yfir gegn Arsenal á útivelli. 28.10.2006 14:00
Dómurinn enn mildaður Refsing þriggja ítalskra knattspyrnufélaga sem gert var að sæta refsingu fyrir hlut sinn í knattspyrnuskandalnum þar í landi í sumar var í kvöld mildaður enn einu sinni. Átta stiga refsing AC Milan mun standa áfram, en Lazio, Juventus og Fiorentina fá refsingar sínar mildaðar og er þessu ljóta máli nú formlega lokið þar sem ekki verður um frekari áfrýjun að ræða. Nánari upplýsinga er að vænta innan skamms. 27.10.2006 21:05
Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Körfubolti