Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eitt besta laxveiðisumarið senn að enda komið Þrátt fyrir misjafnar skoðanir stangaveiðimanna á veiðinni í sumar, þá eru heildar laxveiðitölurnar þær fjórðu hæstu frá upphafi skráninga! 27.9.2011 14:33
Ísland bara með eitt lið í Meistaradeild kvenna á næsta ári Ísland verður bara með eitt lið í Meistaradeild kvenna á næsta ári en Knattspyrnusamband Evrópu hefur gefið út þátttökulista fyrir næstu keppni í Meistaradeild kvenna. Nýkrýndir Íslandsmeistarar Stjörnunnar verða því einu fulltrúar Íslands í keppninni 2012-2013 en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. 27.9.2011 14:15
Rútubílstjóri Dortmund tekinn af löggunni á leið með liðið út á flugvöll Þýsku meistararnir í Borussia Dortmund mæta franska liðinu Marseille á útivelli í Meistaradeildinni á morgun en ferðalagið til Frakklands byrjaði ekki vel í morgun. 27.9.2011 14:00
Snæfell sendir Shannon McKever heim Shannon McKever, leikmaður kvennaliðs Snæfells í Iceland Express deild kvenna í körfubolta, er farin heim til Bandaríkjanna eftir að Snæfell rifti samningi við hana. Shannon þótti ekki standa undir væntingum sem farið var af stað með í upphafi samkvæmt frétt á heimasíðu Snæfells. 27.9.2011 13:55
Chelsea-liðið þurfti að skipta um flugvél á Gatwick Það var mikil töf á flugi Chelsea-manna til Valencia í morgun en Chelsea mætir spænska liðinu í Meistaradeildinni á morgun. Chelsea-liðið átti að fljúga klukkan 9.00 í morgun að íslenskum tíma en fluginu seinkaði um þrjá og hálfan tíma vegna bilanna í flugvélinni sem átti að flytja liðið til Spánar. 27.9.2011 13:00
Sunnudagsmessan: Hversu mikilvægur er Rooney fyrir Man Utd? Wayne Rooney var ekki með ensku meisturunum í 1-1 jafntefli liðsins gegn Stoke um s.l. helgi í ensku úrvalsdeildinni. Sérfræðingarnir í Sunnudagsmessunni fóru yfir málin í þættinum og þar sagði Hjörvar Hafliðason m.a. að Dimitar Berbatov ætti enga framtíð fyrir sér hjá Manchester United. Berbatov var í fremstu víglínu ásamt Michael Owen í leiknum. 27.9.2011 12:30
Teitur búinn að finna bandarískan bakvörð við hlið Justin Stjarnan hefur samið við bandaríska bakvörðinn Keith Cothran um að leika með liðinu í Iceland Express deild karla á komandi leiktíð og mun hann því leika við hlið leikstjórnandans Justin Shouse sem fékk íslenskan ríkisborgarétt í sumar. 27.9.2011 12:18
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna í Dalhúsum á sunnudaginn Keflavík og Haukar mætast í úrslitaleik Lengjubikars kvenna í ár en riðlakeppninni lauk í gærkvöldi. Keflavík hafði betur í baráttunni við KR um efsta sætið í sínum riðli en Haukar unnu alla leikina í sínum riðli örugglega. 27.9.2011 12:00
Helgi Már samdi við nýtt félag í Svíþjóð Landsliðsmaðurinn Helgi Már Magnússon er búinn að semja við nýtt lið í sænska körfuboltanum en hann mun spila með 08 Stockholm HR í vetur. Helgi Már lék í fyrra með Uppsala Basket en hafði áður spilað með Solna Vikings og er þetta því þriðja félagið hans í sænska körfuboltanum. 27.9.2011 11:45
Michael Laudrup búinn að segja upp hjá Mallorca Michael Laudrup, fyrrum leikmaður Barcelona, Real Madrid, Juventus og danska landsliðsins, hefur sagt upp störfum hjá Mallorca en hann hefur þjálfað spænska liðið frá 2010 og var með samning til júní 2012. 27.9.2011 11:30
Sunnudagsmessan: Markasyrpa með Robin van Persie Robin van Persie framherji Arsenal skoraði sitt 100. mark fyrir félagið í 3-0 sigri liðsins gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni s.l. laugardag. 27.9.2011 11:00
Dirk Kuyt tjáir sig um bekkjarsetuna hjá Liverpool Dirk Kuyt hefur nú tjáð sig um vonbrigðin að missa sæti sitt í byrjunarliði Liverpool en Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, hefur veðjað á það að nota Jordan Henderson frekar en Hollendinginn sem hafði átt fast sæti í Liverpool-liðinu undanfarin ár. 27.9.2011 10:45
Balotelli á flottasta mark vikunnar í ensku deildinni Enska úrvalsdeildin hefur tekið saman flottustu mörkin í sjöttu umferð deildarinnar sem fram fór um helgina. Það er enginn annar en vandræðagemlingurinn Mario Balotelli sem fær þann heiður að hafa skorað fallegasta mark vikunnar. 27.9.2011 10:15
Jack Wilshere gæti verið frá fram í febrúar Jack Wilshere fór í aðgerð á ökkla í gær og samkvæmt nýjustu fréttum frá Emirates þá gæti enski landsliðsmiðjumaðurinn verið frá fram í febrúar. Wilshere hafði vonast til að koma aftur til baka um jólin en Arsenal býst við að endurhæfingin taki fjóra til fimm mánuði. 27.9.2011 09:45
Klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá Vel gekk í klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá um helgina en veiði lauk í báðum ám þann 24. september. Alls komu 263 laxar úr Langadalsá og sléttir 100 úr Hvannadalsánni í sumar. Í klakveiðinni í Hvannadalsá fengust 21 lax og á þessum veiðistöðum. Réttarfljót 2 laxar, Hellisfoss 10 laxar, Pallklettar 2 laxar og Stékkjarfljót 7 laxar, samtals 21 lax. Var skiptingin nokkuð jöfn í hænga og hrygnur en nokkrar mjög fallegar hrygnur fengust. 27.9.2011 09:34
Signý snýr aftur heim á Hlíðarenda og spilar með Val í vetur Signý Hermannsdóttir, miðherji íslenska landsliðsins og besti leikmaður Iceland Express deildar kvenna 2009 og 2010, ætlar að spila með nýliðum Vals í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í vetur en hún hefur verið í KR undanfarin tvö tímabil. 27.9.2011 09:15
Torres: Fyrstu mánuðirnir hjá Chelsea eru búnir að vera mjög erfiðir Fernando Torres viðurkennir að fyrstu mánuðirnir hjá Chelsea hafi verið hans erfiðustu á ferlinum en að hann sé jafnframt þakklátur fyrir að stuðningsmenn félagsins hafi staðið við að bakið á honum allan tímann. 27.9.2011 09:00
Vörn Framara kláraði meistarana - myndir Þeir Ingimundur Ingimundarson og Ægir Hrafn Jónsson fóru á kostum er Fram gerði sér lítið fyrir og vann Íslandsmeistara FH á útivelli, 28-23, í fyrstu umferð N1-deildar karla í gær. 27.9.2011 08:00
Haukasigur í Digranesi - myndir Haukar náðu að snúa erfiðri stöðu sér í hag þegar að liðið vann góðan sigur á HK í fyrstu umferð N1-deildar karla í gær, 27-22, á útivelli. 27.9.2011 07:00
KR setti met í meistaratvennum KR-ingar eru tvöfaldir meistarar í ár í bæði fótbolta og körfubolta og er þetta í fjórða sinn sem KR-ingar vinna Íslandsmeistaratitil á sama ári í tveimur af þremur stærstu boltagreinunum. Þeir fóru með því fram úr Valsmönnum sem hafa þrisvar unnið Íslandsmeistaratvennu. 27.9.2011 06:00
Miðstöð Boltavaktarinnar - allir leikirnir á einum stað Fjölmargir leikir fara fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld og býður íþróttavefur Vísis lesendum sínum upp á að fylgjast með þeim öllum samtímis. 27.9.2011 18:15
Í beinni: Bayern München - Manchester City Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Bayern München og Manchester City í A-riðli Meistaradeildar Evrópu. 27.9.2011 18:15
Í beinni: Manchester United - Basel Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Manchester United og Basel í C-riðli Meistaradeildar Evrópu. 27.9.2011 18:00
Drogba og Gohouri fá vandræðalega spurningu í lederhosen - myndband Vinirnir Didier Drogba og Steve Gohouri skelltu sér báðir til Þýskalands um helgina þar sem þeir tóku þátt í Oktoberfest-hátíðinni í Bæjaralandi. 26.9.2011 23:45
Getafe stöðvaði sigurgöngu Real Betis Real Betis er ekki lengur með fullt hús stiga í spænsku úrvalsdeildinni en liðið tapaði í kvöld fyrir Getafe á útivelli, 1-0. 26.9.2011 23:10
Kristján Ara: Held að þetta verði erfitt hjá okkur fyrir jól Kristján Arason, þjálfari FH, var ekki sáttur við spilamennsku sinna manna í kvöld "Við vorum bara sofandi í fyrri hálfleik. Það var skelfilegt að sjá liðið og sóknarleikurinn virkilega dapur. Svo kom smá andi í þetta í seinni hálfleik. Munurinn var bara orðinn það stór að við áttum ekki möguleika á að komast inn í leikinn,“ sagði Kristján. 26.9.2011 21:47
Einar Jónsson: Menn sýndu að við getum verið mjög góðir "Þeir sem voru að koma til félagsins stóðu sig frábærlega og líka þeir sem við höfðum fyrir," sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir að liðið vann fimm marka sigur á Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika í kvöld. Sannkölluð óskabyrjun hjá Safamýrarliðinu sem tefldi fram mörgum nýjum leikmönnum sem svo sannarlega stóðu fyrir sínu. 26.9.2011 21:35
Erlingur: Leiðinlegt að tapa fyrir framan fullt hús „Það er virkilega sárt að tapa og sérstaklega fyrir framan alla þessa áhorfendur sem komu hingað í Digranesið,“ sagði Erlingur Richardsson, annar þjálfari HK, eftir tapið í kvöld. 26.9.2011 21:26
Aron: Þéttum vörnina í síðari hálfleiknum „Þetta er frábær byrjun hjá okkur og virkilega mikilvægur sigur,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, eftir sigurinn í kvöld. 26.9.2011 21:21
Grótta byrjar vel í N1-deildinni Nýliðar Gróttu gerðu í kvöld jafntefli við Val í N1-deild karla í kvöld þegar liðin mættust á Seltjarnarnesi. Lokatölur voru 21-21. 26.9.2011 21:20
Umfjöllun: Framarar lögðu meistarana í Kaplakrika Framarar fengu heldur betur óskabyrjun þegar fyrsta umferð N1-deildarinnar fór fram í kvöld. Þeir heimsóttu Íslandsmeistara FH í Kaplakrikann og náðu í bæði stigin, úrslitin 23-28. Bæði lið eru ansi breytt frá síðasta tímabili. 26.9.2011 21:08
Keflavík og Haukar mætast í úrslitum Lengjubikars kvenna Riðlakeppni Lengjubikarkeppni kvenna í körfubolta lauk í kvöld með þremur leikjum. Eftir leikina er ljóst að það verða Keflavík og Haukar sem mætast í úrslitaleiknum um helgina. 26.9.2011 20:59
Umfjöllun: Aron fer vel af stað með Haukana Haukar unnu frábæra sigur, 27-22, á HK í fyrstu umferð N1 deildar karla í kvöld, en leikurinn fór fram í Digranesinu. Þetta var fyrsti leikur Arons Kristjánssonar sem þjálfari Hauka í nokkur ár, en hann tók við liðinu í sumar eftir dvöl sína í Þýskalandi. 26.9.2011 20:55
Guardiola tekur upp hanskann fyrir Laporta Sandro Rosell, forseti Barcelona, hefur verið ófeiminn við að gagnrýna fyrrum forseta félagsins, Joan Laporta. Rosell segir að kaup Laporta á Zlatan Ibrahimovic hafi verið verstu kaup í sögu félagsins. 26.9.2011 20:15
Öruggur sigur Akureyringa í Mosfellsbæ Akureyri vann í kvöld fyrsta leik N1-deildar karla á tímabilinu en liðið mætti þá Aftureldingu í Mosfellsbæ. Niðurstaðan var ellefu marka sigur Akureyrar, 31-20. 26.9.2011 20:14
Moratti: Allt orðið eðlilegt á nýjan leik Massimo Moratti, forseti Inter, andaði aftur eðlilega um helgina. Hann sagði að hlutirnir væru aftur orðnir eðlilegir hjá félaginu. Claudio Ranieri stýrði sínum fyrsta leik um helgina en Gian Piero Gasperini var rekinn eftir aðeins fimm leiki. 26.9.2011 19:30
Góður sigur hjá Gautaborg Keppni í sænsku úrvalsdeildinni heldur áfram þó svo að Helsingborg hafi í gær tryggt sér meistaratitilinn. Íslendingaliðið IFK Gautaborg vann í kvöld 2-1 sigur á Djurgården á útivelli. 26.9.2011 19:22
KSÍ að missa Lagerbäck til Austurríkis? Svo virðist sem að Svíinn Lars Lagerbäck sé í þann mund að taka við landsliðsþjálfarastarfi Austurríkis. Sænskir fjölmiðlar fullyrða að hann sé nú staddur í Vínarborg til að ganga frá samningum. 26.9.2011 18:45
Annar sigur Norwich í röð Nýliðarnir í Norwich eru komnir á fína siglingu í ensku úrvalsdeildinni eftir 2-1 sigur á Sunderland í lokaleik sjöttu umferðarinnar í kvöld. 26.9.2011 18:39
Cruyff: Ajax getur strítt Real Madrid Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax sækja stórlið Real Madrid heim í Meistaradeildinni annað kvöld. Goðsögnin Johan Cruyff segir að Ajax geti vel strítt spænska risanum. 26.9.2011 18:00
Myndi labba yfir heit kol til þess að fá landsliðsþjálfarastarfið Sam Allardyce dreymir enn um að þjálfa enska landsliðið og hann leggur þann draum ekkert á hilluna þó svo hann sé farinn að þjálfa í B-deildinni. 26.9.2011 17:15
Perez: Mourinho er besti þjálfarinn í heiminum Florentino Perez, forseti Real Madrid, er afar ánægður með þjálfarann sinn, Jose Mourinho. Perez segir að Mourinho sé besti þjálfari heims og að hann muni stýra liðinu til sigurs í Meistaradeildinni. 26.9.2011 16:30
Ferguson: Sjónvarpið er Guð Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, er á því að sjónvarpsstöðvarnar séu farnar að ráða of miklu í enska boltanum. Ferguson hefur áhyggjur af þeirri þróun. 26.9.2011 15:52
Vettel og Red Bull vilja taka titilinn með trompi Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins segir að liðið og Sebastian Vettel vilji landa meistaratitli ökumanna með sigri í næsta móti sem er í Japan eftir hálfan mánuð. Vettel nægir tíunda sætið í mótinu og eitt stig, til að verða meistari þegar fimm mótum er ólokið á tímabilinu. 26.9.2011 15:51
Handboltinn að byrja - stórleikur í Krikanum Handboltinn byrjar að rúlla af fullum krafti í kvöld en þá fer fram fyrsta umferðin í N1-deild karla. 26.9.2011 15:15