Fleiri fréttir

England vann Slóveníu

Enska landsliðið vann í kvöld 2-1 sigur á Slóveníu í vináttulandsleik á Wembley. Frank Lampard og varamaðurinn Jermain Defoe skoruðu mörk enska liðsins.

Umfjöllun: Ósanngjarnt jafntefli gegn Norðmönnum

Ísland gerði í kvöld 1-1 jafntefli við Norðmenn í lokaleik sínum í undankeppni HM 2010 í kvöld. Úrslitin henta Norðmönnum engan veginn en þeir mega þó telja sig stálheppna að hafa fengið eitt stig í leiknum.

Platini ánægður með FIFA

Michel Platini, forseti Knattspyrnusambands Evrópu, er ánægður með úrskurð Alþjóðasambandsins, FIFA, í Chelsea-málinu.

Landsbyggðin vann íslenska Ryderinn

Úrvalslið landsbyggðarinnar vann í dag öruggan sigur á liði höfuðborgarinnar í bikarkeppninni í golfi sem hefur nefnd hin íslenska Ryder-keppni.

Alþjóðleg mörk í sigri Crewe

Crewe vann í dag 2-1 sigur á Macclesfield í ensku D-deildinni í knattspyrnu. Liðið er nánast eingöngu skipað Englendingum sem voru þó ekki á skotskónum í þetta sinnið.

Loksins unnu Skotar aðra en Íslendinga

Skotland vann í dag 2-0 sigur á Makedóníu í riðli Íslands í undankeppni HM 2010. Liðið á því enn möguleika á að komast í undankeppni HM 2010 en Makedónía er nánast úr leik.

Jón Ólafur var sjóðheitur á fyrsta Reykjanes Cup mótinu

Snæfellingurinn Jón Ólafur Jónsson var valinn besti leikmaðurinn á fyrsta Reykjanes Cup mótinu sem lauk í gær. Jón Ólafur kórónaði frábært mót með því að skora 31 stig í úrslitaleiknum þar sem Snæfell vann 99-81 sigur á Njarðvík.

Sneijder meiddist í sigri Hollands

Holland vann í dag öruggan 3-0 sigur á Japan í vináttulandsleik en þar bar skugga á að Wesley Sneijder meiddist í leiknum.

Snæfellingar unnu Reykjanes Cup á sannfærandi hátt

Snæfell tryggði sér í gær sigur á fyrsta Reykjanes Cup mótinu í körfubolta sem verður hér eftir árlegur viðburður í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ. Snæfell vann 18 stiga sigur á Njarðvík, 99-81, í úrslitaleiknum.

Auðvelt hjá Kiel

Kiel vann í dag tíu marka útisigur á Melsungen í fyrstu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta, 35-25.

Dwight Yorke hættur

Dwight Yorke hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 37 ára gamall. Hann lék síðast með Sunderland í ensku úrvalsdeildinni en fór þaðan í lok síðasta tímabils.

Jerome frá í mánuð

Framherjinn Cameron Jerome verður frá næsta mánuðinn þar sem ökklameiðsli hans eru verri en í fyrstu var talið.

Ljungberg aftur til Arsenal?

Samkvæmt enskum fjölmiðlum gæti verið að Freddie Ljungberg sé aftur á leið í enska boltann og þá til síns gamla félags, Arsenal.

Chelsea gæti náð að versla í janúar

Chelsea gæti fengið að kaupa leikmenn í félagaskiptaglugganum í janúar, þrátt fyrir kaup-bannið sem FIFA setti á klúbbinn. Bannið er tilkomið vegna kaupanna á Gael Kakuta frá Lens árið 2007 en franska félagið vill meina að Chelsea hafi neitt hann til að rifta samningi sínum og farið síðan til Englands.

Sir Alex sammála tveggja leikja banni Eduardo

Sir Alex Ferguson er sammála tveggja leika banni Eduardo, leikmanns Arsenal. Eduardo fékk bannið fyrir leikaraskap gegn Celtic en hann fiskaði vítaspyrnu sem hann skoraði síðan sjálfur úr.

Galliani: Berlusconi er ekki knattspyrnustjóri AC Milan

Varaforsetinn Adriano Galliani hjá AC Milan ítrekar í viðtali við Gazzetta dello Sport í dag að staða knattspyrnustjórans Leonardo sé ekki í hættu en hann var gagnrýndur af Silvio Berlusconi, eiganda og forseta AC Milan, eftir 0-4 rassskellinguna í nágrannaslagnum gegn Inter á dögunum.

Ribery: Hef alltaf sagt að ég vilji spila á Spáni

Frakkinn Franck Ribery var sterklega orðaður við félagaskipti frá Bayern München í sumar en þrátt fyrir að eftirspurnina eftir þjónustu vængmannsins hafi ekki skort þá varð ekkert úr því að hann færi frá þýska félaginu.

Vel heppnuð endurkoma Ívars

Ívar Ingimarsson lék sinn fyrsta leik í níu mánuði þegar Reading lék æfingaleik gegn Portsmouth fyrir luktum dyrum í kvöld. Ívar spilaði í 45 mínútur en þetta er fyrsti leikur hans síðan í janúar vegna erfiðra meiðsla.

Björgvin hetja Kadetten sem lagði Lemgo

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkmaður, var í essinu sínu í kvöld þegar Kadetten lagði Lemgo í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Björgvin varði gjörsamlega stórkostlega í markinu en sigurinn var tæpur, 29-30 fyrir svissneska liðinu.

Miklir yfirburðir landsbyggðarinnar

Fyrstu umferð í Bikarnum, nýrri keppni sem byggð er upp svipuð og Ryde-bikarinn, lauk í dag á Urriðavelli. Þar mætast kylfingar frá landsbyggðinni kylfingum af Höfuðborgarsvæðinu.

Selfoss upp í Pepsi-deild karla

Selfoss er komið upp í Pepsi-deild karla í knattspyrnu eftir sigur á Aftureldingu á heimavelli í dag. Gríðarlegur fögnuður er nú á Selfossi en þetta er í fyrsta sinn sem Selfoss mun spila í efstu deild.

Óvæntur sigur Noregs á Svíþjóð

Það verður Noregur sem mætir Evrópumeisturum Þjóðverja í lokakeppni Evrópumóts kvenna í Finnlandi eftir 3-1 sigur á grönnum sínum Svíum í dag. Norska liðið þótti koma mikið á óvart með sigrinum en bæði Noregur og Þýskaland léku með Íslandi í riðlakeppninni.

Frábær úrslit fyrir U-17 ára liðið

Íslenska U17 ára landslið kvenna hóf leik í dag í riðlakeppni EM með fræknu jafntefli gegn ríkjandi Evrópumeisturum, Þjóðverjum. Um gríðarlega mikilvægt stig gæti verið að ræða.

Burley: Við erum einfaldlega betri en Makedónar

Landsliðsþjálfarinn George Burley hjá Skotlandi er kokhraustur fyrir leikinn gegn Makedóníu í 9. riðli undankeppni HM 2010 á Hampden Park-leikvanginum á morgun en leikurinn er algjör lykilleikur í baráttunni um annað sæti riðilsins.

De la Red hefur ekki fengið grænt ljós á að snúa aftur

Miðjumaðurinn Ruben De la Red hjá Real Madrid hefur enn ekki fengið bót meina sinna eftir að hann féll niður og missti meðvitund í leik um Konungsbikarinn með Madridarfélaginu gegn Real Union í október á síðasta ári.

Viduka hugsanlega á leið til West Ham

Ástralinn Mark Viduka gæti verið á leið til West Ham en framherjinn er fáanlegur á frjálsri sölu þar sem samningur hans við Newcastle rann út fyrr í sumar.

Kvennalið Gróttu hætt við þátttöku í N1-deildinni

Stjórn handknattleiksdeildar Gróttu hefur ákveðið að draga meistaraflokk kvenna hjá félaginu úr keppni í N1-deildinni tímabilið 2009-2010 en hefur jafnframt ákveðið að skrá liðið til keppni í 2. deild í staðinn.

Ívar snýr aftur í kvöld - hefur ekki spilað síðan í janúar

Varnarmaðurinn Ívar Ingimarsson mun leika með varaliði Reading í kvöld í æfingarleik sem leikinn verður fyrir luktum dyrum en Ívar hefur ekkert getað leikið með Reading síðan í janúar vegna hnémeiðsla. Ívar hóf að æfa á nýjan leik í síðsta mánuði og er allur að koma til og þarf nú bara að komast í leikform.

Albert: Ég man ekki eftir því að hafa klárað leikinn

Markvörðurinn Albert Sævarsson hjá ÍBV lenti í óskemmtilegu atviki í uppbótartíma í leik gegn sínum gömlu félögum í Grindavík í Pepsi-deildinni í gærkvöld þegar hann og framherjinn Gilles Ondo skullu saman.

Snorri: Ekki auðvelt að yfirgefa GOG

„Þetta er búinn að vera mjög sérstakur dagur. Ég æfði með GOG í morgun, er á leið upp í flugvél á eftir og æfi með Löwen í kvöld. Svo spila ég væntanlega með liðinu á morgun," sagði Snorri Steinn Guðjónsson, nýjasti liðsmaður þýska félagsins Rhein-Neckar Löwen sem þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson leika með.

Snorri Steinn seldur til Rhein-Neckar Löwen

Þrír af bestu handknattleiksmönnum þjóðarinnar munu allir spila með þýska félaginu Rhein-Neckar Löwen í vetur. Í dag var Snorri Steinn Guðjónsson nefnilega seldur frá GOG til Löwen.

Njarðvík og Snæfell spila til úrslita á fyrsta Reykjanes Cup mótinu

Njarðvík og Snæfell spila til úrslita á fyrsta Reykjanes Cup mótinu í körfubolta sem lýkur í Toyota-höllinni í Keflavík í dag. Snæfell vann báða leiki sína í riðlakeppninni en Njarðvíkingar þurftu að treysta á hjálp nágranna sinna í Keflavík til að komast í úrslitaleikinn.

Kuyt: Liverpool getur enn orðið meistari

Framherjinn Dirk Kuyt er hvergi banginn þrátt fyrir að byrjun Liverpool í upphafi tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni hafi verið talsvert undir væntingum en hefur unnið tvo leiki og tapað tveimur eftir fjórar umferðir.

Tevez og Messi byrja gegn Brasilíu

Diego Maradona hefur staðfest að þeir Carlos Tevez og Lionel Messi verða saman í fremstu víglínu þegar að Argentína mætir Brasilíu í undankeppni HM 2010 annað kvöld.

Capello hefur kennt Cole stundvísi

Framherjinn Carlton Cole hjá West Ham hefur fengið að kenna á heraga þeim sem landsliðsþjálfarinn Fabio Capello heldur uppi þegar enska landsliðið hittist en Ítalinn er þekktur fyrir að vilja hafa hlutina á hreinu.

Arsenal hefur áfrýjað tveggja leikja banni Eduardo

Forráðamenn Arsenal hafa ekki farið leynt með að ákvörðun aganefndar UEFA um að dæma framherjann Eduardo Da Silva í tveggja leikja bann fyrir leikaraskap hafi valdið sér vonbrigðum og knattspyrnustjórinn Arsene Wenger fer þar fremstur í flokki.

Alves farinn til Katar

Afonso Alves, Brasilíumaðurinn sem er dýrasti leikmaðurinn í sögu Middlesbrough, er farinn frá félaginu og genginn til liðs við félag í Katar.

Sjá næstu 50 fréttir