Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rijkaard hrósar Saviola Eiður Smári Guðjohnsen gæti átt á hættu að missa byrjunarliðssæti sitt í framlínu Barcelona, ef eitthvað er að marka orð Frank Rijkaard eftir jafnteflið gegn Deportivo um helgina. Hollenski þjálfarinn hrósar Argentínumanninum Javier Saviola, sem tók stöðu Eiðs í fremstu víglínu, fyrir góða frammistöðu. 6.11.2006 17:00
Cassano eða Eiður Smári? Enska slúðurblaðið News Of The World greinir frá því að Newcastle ætli sér að bjóða 11 milljónir punda í ítalska framherjann Antonio Cassano hjá Real Madrid þegar leikmannaglugginn opnar að nýju í janúar. Um helgina var Eiður Smári Guðjohnsen orðaður við Newcastle í nokkrum ensku blaðanna. 6.11.2006 16:30
Fyrsta tap Lakers LA Lakers tapaði sínum fyrsta leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið beið lægri hlut gegn Seattle. Ófarir meistaranna í Miami halda áfram og í nótt tapaði liðið gegn Philadelphia. 6.11.2006 15:15
Í viðræðum við Dynamo Kiev Sænski skrautfuglinn Sven Göran Eriksson, fyrrum þjálfari enska landsliðsins, hefur átt í viðræðum við forráðamenn Dynamo Kiev í Úkraínu um að taka við þjálfun liðsins. 6.11.2006 15:02
Sex lið eiga fulltrúa Vefmiðillinn Soccernet birtir ávallt á mánudögum lið vikunnar í enska boltanum. Að þessu sinni eiga aðeins sex félög í deildinni fulltrúa í liði vikunnar og ekkert þeirra fleiri en tvo leikmenn. 6.11.2006 15:00
Rændur og barinn af þjófum í Róm Dino Zoff, fyrrum fyrirliði ítalska landsliðsins í knattspyrnu, lenti í óskemmtilegri lífsreynslu þegar hann var á göngu með konu sinni í Róm á laugardagskvöldið. Óprúttnir náungar höfðu af þeim öll þeirra verðmæti og gáfu Zoff um leið vænt glóðurauga. 6.11.2006 14:45
Ólátabelgjum verður refsað Enska knattspyrnusambandið hefur hrint af stað rannsókn til að komast að því hverjir köstuðu smápeningum úr stúkunni í tveimur leikjum ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Á laugardag varð Claus Jensen, leikmaður Fulham, fyrir smápeningi og í gær fékk Robin van Persie hjá Arsenal aðskotahlut í höfuðið. 6.11.2006 13:45
Vill ekki skrifa strax undir nýjan samning David Beckham, fyrrum landsliðsmaður Englendinga og leikmaður Real Madrid á Spáni, vill ekki skrifa undir nýjan samning við félagið fyrr en hann hefur náð að vinna sér sæti í byrjunarliðinu á nýjan leik. 6.11.2006 13:00
Peningasekt er ekki nóg fyrir ríku liðin Lennart Johansson, forseti knattspyrnusambands Evrópu, vill að refsingum fyrir ríkari félög verði breytt ef þau fara yfir strikið. 6.11.2006 12:00
Elfsborg vann Elfsborg tryggði sér meistaratitilinn í sænska fótboltanum í fimmta sinn í sögunni með því að sigra Djurgarden, meistarana frá því í fyrra, í lokaumferðinni sem fram fór í gær, 1-0. 6.11.2006 00:01
Snæfell skellti Íslandsmeisturunum Njarðvíkingar töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar þeir heimsóttu Snæfell í kvöld. Heimamenn unnu fyllilega verðskuldaðan 88-70 sigur og komust þar með upp fyrir Njarðvík í efsta sæti deildarinnar. Keflavík er komið upp í þriðja sæti eftir stóran sigur á ÍR í kvöld, 95-72. 5.11.2006 21:06
Við áttum skilið að vinna Robbie Keane, framherji Tottenham, segir að liðið hafi einfaldlega átt sigurinn skilinn gegn Chelsea í dag. Jose Mourinho, stjóri Chelsea, er ekki á sama máli. 5.11.2006 20:30
Real Madrid tapaði á heimavelli Stjörnum prýtt lið Real Madrid tapaði óvænt á heimavelli fyrir Celta Vigo, 1-2, í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Sevilla er á toppi deildarinnar eftir leiki helgarinnar. 5.11.2006 19:57
Tottenham lagði Chelsea Tottenham gerði sér lítið fyrir og lagði Englandsmeistara Chelsea af velli í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur urðu 2-1 en það var Aaron Lennon sem skoraði sigurmarkið með stórglæsilegu marki. 5.11.2006 18:05
Sér eftir rifrildinu Alan Pardew, knattspyrnustjóri West Ham, hefur beðið Arsene Wenger, kollega sinn hjá Arsenal, afsökunar á framkomu sinni í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Stjórunum tveimur lenti saman í lok leiksins og hnakkrifust þeir þar til það þurfti að skilja þá í sundur. 5.11.2006 17:45
Valur vann í Laugardalshöllinni Valsmenn unnu öruggan og sannfærandi sigur á Íslandsmeisturum Fram í DHL-deild karla, 30-25, en leiknum Í Laugardalshöllinni var að ljúka rétt í þessu. Valur endurheimti þar með efsta sæti deildarinnar en Framarar sitja áfram í næst neðsta sæti deildarinnar. 5.11.2006 17:40
Tap í síðasta leik Íslenska kvennalandsliðið í handbolta beið lægri hlut fyrir Tékkum, 25-23, í lokaleik sínum á æfingamóti sem staðið hefur yfir í Rotterdam síðustu daga. Íslenska liðið spilaði fimm leiki á mótinu, vann tvo þeirra en tapaði þremur. 5.11.2006 17:04
Reyes gæti komið til baka Arsene Wenger hjá Arsenal segist ekki útiloka þann möguleika að Jose Antonio Reyes snúi aftur til félagsins eftir þessa leiktíð. Reyes er í láni hjá Real Madrid og hefur sagt að hann vilji alls ekki fara aftur til Englands. Wenger segir að það sé ekki alfarið undir honum sjálfum komið. 5.11.2006 16:30
Vilja Shepherd burtu Þúsundir stuðningsmanna Newcastle söfnuðust fyrir framan aðalinngang St. James Park, heimvöll félagsins, eftir tapið gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í gær og kröfðust þess að Freddie Shepherd segði af sér stjórnarformennsku hjá félaginu. 5.11.2006 16:30
Harewood hetja West Ham Sóknarmaðurinn Marlon Harewood reyndist hetja West Ham í nágrannaslagnum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag. Harewood skoraði eina mark leiksins, mínútu fyrir leikslok. 5.11.2006 15:43
Arenas fór á kostum Gilbert Arenas hjá Washington var maður næturinnar í NBA-körfuboltanum en hann skoraði 44 stig í sigurleik liðs síns gegn Boston, 124-117. Þá fóru leikmenn Houston á kostum gegn Dallas á heimavelli sínum og unnu 107-76 sigur. Yao Ming skoraði 36 stig. 5.11.2006 13:45
Það á að fangelsa svona aumingja Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, er öskuvondur út í þann sem henti smápeningi úr stúkunni í viðureign Fulham og Everton í gær sem hafnaði á höfði Claus Jensen, markaskorara Fulham í leiknum. Coleman segir viðkomandi vera heigul sem eigi heima í fangelsi. 5.11.2006 13:00
Barcelona náði aðeins jafntefli Ríkjandi Spánarmeistarar Barcelona náði aðeins jafntefli gegn Deportivo í stórleik gærkvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Lokatölur urðu 1-1. 5.11.2006 12:30
Haukar áttu ekki möguleika Karlalið Hauka í handbolta tapaði stór fyrir Paris Handball í gær, 34-24, en þetta var fyrri leikur liðanna í þriðju umferð EHF-keppninnar. Ljóst er að Haukum bíður þungur róður í síðari leiknum sem fram fer í Hafnarfirði um næstu helgi. 5.11.2006 10:18
Zlatan gefur kost á sér á nýjan leik Zlatan Ibrahimovich hefur náð sáttum við Lars Lagerback, þjálfara sænska landsliðsins í fótbolta, og aðra forkólfa sænska knattspyrnusambandsins, og mun hann snúa aftur í sænska liðið í næsta leik þess. Fjölmiðlar á Ítalíu greindu frá þessu í gær. 5.11.2006 00:01
Kuyt er frábær liðsmaður Hollenski framherjinn Dirk Kuyt fékk mikið hrós frá stjóra sínum, Rafael Benitez, eftir leikinn gegn Reading í dag. Liverpool vann 2-0 og skoraði Kuyt bæði mörkin. 4.11.2006 21:15
Þú ert ennþá of feitur Brasilíski framherjinn Ronaldo er ennþá of feitur að mati þjálfara Real Madrid, Fabio Capello. Ítalski þjálfarinn segir að það verði ekki fyrr en nokkur kíló séu farin til viðbótar sem hann geti farið að gera tilkall til byrjunarliðssætis. 4.11.2006 20:52
Lék með Ciudad í kvöld ÓIafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, lék með liði sínu Ciudad Real á ný í Evrópukeppninni í kvöld eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í özl síðustu vikur. Ólafur skoraði þrjú mörk í 32-25 sigurleik spænsku Evrópumeistaranna á Pick Szeged frá Ungverjalandi. 4.11.2006 20:46
Við erum í rosalegu formi Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segist finna mikinn meðbyr með sínu liði þessa dagana og miðað við andann og stemninguna í hópnum segist hann handviss um að lærisveinar sínir muni koma til með að berjast um titla í vetur. 4.11.2006 20:45
HK skellti ÍR í Breiðholti HK endurheimti toppsæti DHL-deildar karla í handbolta í dag með því að vinna nauman útisigur á ÍR-ingum í Breiðholti, 21-22. HK er með sjö stig á toppi deildarinnar en Valsmenn, sem koma í öðru sæti með sex stig, mæta Fram á morgun. 4.11.2006 18:34
Man. Utd. heldur sínu striki Manchester United heldur sínu striki í ensku úrvalsdeildinni og er nú komið með 28 stig á toppi deildarinnar eftir sannfærandi 3-0 sigur á Portsmouth á Old Trafford í dag. Liverpool sigraði Reading, 2-0, en Bolton tapaði óvænt á heimavelli fyrir Wigan. 4.11.2006 17:10
Ívar, Brynjar og Hermann í byrjunarliðinu Ívar Ingimarsson er fyrirliði Reading sem mætir Liverpool á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Brynjar Björn Gunnarsson er sömuleiðis í byrjunarliðinu, sem hægri bakvörður, og þá er Hermann Hreiðarsson í vörn Charlton sem tekur á móti Man. City. 4.11.2006 15:25
Allir þjálfarar vildu hafa Carragher í sínu liði Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Jamie Carragher sé leikmaður sem allir þjálfarar vildu hafa í sínu liði. Benitez hrósar leikmanninum í hástert en hann leikur sinn 300. leik fyrir Liverpool þegar það tekur á móti Reading í dag. 4.11.2006 14:45
Hefur rætt við stjórnarformann West Ham Eggert Magnússon, formaður KSÍ, ræddi við Terry Brown, stjórnarformann West Ham, í gær um hugsanlega yfirtöku fjárfestingarhóps undir hans stjórn á Lundúnarfélaginu. Fundurinn þykir gefa sterkar vísbendingar um að Eggert sé ennþá með í baráttunni um yfirtöku á félaginu. 4.11.2006 14:30
Er ekki fúll yfir því að sitja á bekknum Portúgalski markvörðurinn Hilario hjá Chelsea segist reiðubúinn að gefa sæti sitt í byrjunarliði liðsins til Ítalans Carlo Cudicini, sem er orðinn heill heilsu eftir að hafa fengið heilahristing í leik gegn Reading fyrir nokkrum vikum. Chelsea tekur á móti Tottenham á morgun. 4.11.2006 14:15
Cassano á að biðjast afsökunar Predrag Mijatovic, yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid og fyrrum fyrirliði liðsins, telur að Antonio Cassano skuldi þjálfara sínum og samherjum afsökunarbeiðni fyrir hegðan sína eftir að hafa verið skilinn eftir utan leikmannahópsins um síðustu helgi. 4.11.2006 13:15
Puyol ekki með vegna andláts föður Carlos Puyol, fyrirliði Barcelona, hefur dregið sig út úr leikmannahópi Barcelona fyrir leikinn gegn Deportivo La Coruna í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, eftir að faðir hans lést í gær. 4.11.2006 12:30
Logi og Ásgeir heitir Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmenn hjá þýska liðinu Lemgo, fóru fyrir sínu liði í Evrópuleik gegn Maccabi Rishon Le Zion í gærkvöldi og skoruðu báðir sex mörk. 4.11.2006 11:45
Bryant með 23 stig í fyrsta leik Kobe Bryant skoraði 23 stig í sínum fyrsta leik fyrir LA Lakers á tímabilinu þegar liðið bar sigurorð af Seattle, 118-112. LA Lakers hefur unnið alla þrjá leiki sína það sem af er leiktíð. 4.11.2006 10:31
Ætlar að taka vel á móti Wenger Alan Pardew segist ekki hafa neitt á móti Arsene Wenger knattspyrnustjóra Arsenal og segist ætla að taka vel á móti honum þegar Arsenal mætir West Ham á Upton Park um helgina. Pardew gagnrýndi lið Arsenal fyrir að vera með eintóma útlendinga í liðinu á síðustu leiktíð og féllu þessi ummæli í mjög grýttan jarðveg. 3.11.2006 22:00
Skallagrímur lagði Fjölni Skallagrímsmenn úr Borgarnesi gerðu góða ferð í Grafarvoginn í kvöld og unnu 94-80 sigur á Fjölni í úrvalsdeild karla í körfubolta. Hamar/Selfoss lagði Tindastól 82-78 í Hveragerði og nældi þar með í sinn fyrsta sigur í deildinni. Einn leikur var í efstu deild kvenna og þar vann Grindavík auðveldan 80-60 sigur á Breiðablik í Kópavogi. 3.11.2006 21:28
Gefur leikmönnum átta vikur til að sanna sig Martin O´Neill hefur sent leikmönnum sínum þau skilaboð að þeir hafi tvo mánuði til að sanna tilverurétt sinn í liðinu, en það er tíminn fram að því þegar leikmannamarkaðurinn opnar á ný. 3.11.2006 21:15
Redknapp ætlar að versla í janúar Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, ætlar sér að versla sér varnarmenn til að styrkja hóp sinn í janúar til að koma í veg fyrir meiðslakrísu eins og þá sem hann stendur frammi fyrir skömmu fyrir mikilvægan leik gegn Manchester United um helgina. 3.11.2006 20:30
Þór/KA áfrýjar til ÍSÍ Enn liggur ekki fyrir hvort það verður Þór/KA eða ÍR sem tekur sæti í Landsbankadeild kvenna á næsta tímabili eftir að forráðamenn kvennaliðs Þórs/KA áfrýjuðu í dag niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍ til áfrýjunardómstóls ÍSÍ, þar sem endanlegrar niðurstöðu er að vænta eftir um það bil 10 daga. 3.11.2006 19:22
Drogba framlengir við Chelsea Framherjinn sterki Didier Drogba hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Chelsea um fjögur ár og er því samningsbundinn félaginu til ársins 2010. Drogba er 28 ára gamall og var keyptur til Chelsea fyrir 24 milljónir punda árið 2004. Hann hefur skorað 10 mörk í 15 leikjum á leiktíðinni. 3.11.2006 19:17
„Allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um“ Enski boltinn