Fleiri fréttir

Bestu kaupin í spænska boltanum

Hinn geðugi Cyrus C. Malek hjá goal.com fylgist vel með í spænska boltanum og hann hefur tekið saman lista yfir bestu kaupin í spænska boltanum.

Lið ársins í enska boltanum

Strákarnir á goal.com hafa ekki bara tekið saman vonbrigðalið tímabilsins í enska boltanum því þeir hafa einnig val lið ársins.

Vonbrigðalið ársins í enska boltanum

Fréttamenn vefsíðunnar goal.com hafa valið vonbrigðalið ársins í enska boltanum. Liðið er ekki skipað þeim leikmönnum sem eru lélegastir heldur þeim sem hafa valdið mestum vonbrigðum í vetur.

Held að Redknapp sé að gera grín að mér

Rússinn Roman Pavlyuchenko er væntanlega á förum frá Tottenham í janúar. Hann hjálpaði til við flutninginn í dag er hann sakaði stjórann, Harry Redknapp, um að gera grín að sér.

Toni lánaður til Roma

FC Bayern staðfesti í dag að framherjinn Luca Toni yrði lánaður til AS Roma út þessa leiktíð.

Pacquiao kærir Mayweather

Hin endalausa deila á milli boxaranna Manny Paquiao og Floyd Mayweather virðist engan enda ætla að taka.

Beckham væri til í að spila í vörninni

David Beckham er afar hamingjusamur með að vera kominn aftur í herbúðir AC Milan. Honum er alveg sama hvar hann spilar með liðinu og væri þess vegna til í að spila í vörninni.

O´Shea lengur frá en talið var í fyrstu

Óttast er að Írinn stóri, John O´Shea, verði frá næstu tvo mánuði vegna meiðsla á læri. Hann meiddist í frægum landsleik Íra og Frakka og er ekki væntanlegur strax á völlinn.

Mancini á eftir Maicon?

Man. City er orðað við enn einn leikmann Inter frá Ítalíu í dag. Að þessu sinni er City sagt hafa áhuga á brasilíska bakverðinum Maicon.

Diaby framlengir við Arsenal

Miðjumaðurinn Abou Diaby hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við Arsenal. Frakkinn er að spila sinn besta bolta síðan hann kom til félagsins í vetur og er orðinn hluti af langtímamarkmiðum Arsene Wenger.

Haukur Páll í Val

Þróttarinn Haukur Páll Sigurðsson hefur ákveðið að söðla um en hann skrifaði undir samning við Val í dag.

Rooney ætlar að bæta metið sitt

Wayne Rooney segir að það myndi koma sér mikið á óvart ef hann myndi ekki bæta markamet sitt á núverandi leiktíð.

Boldsen aftur til Danmerkur

Danski handknattleiksmaðurinn mun yfirgefa herbúðir Barcelona í lok leiktíðarinnar og ganga þá í raðir danska B-deildarfélagsins AG Håndbold.

Bellamy: Það eru bara stuðningsmennirnir sem sýna hollustu

Craig Bellamy er enn sár yfir brottvikningu Mark Hughes en ætlar samt að láta hagsmuni Manchester City ráða för og gera sitt besta til þess að hjálpa félaginu í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni. Bellamy segist ætla að gera sitt besta fyrir stuðningsmenn City.

Aftur vann United 5-0

Manchester United vann 5-0 sigur á Wigan og það í annað skiptið á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni.

Toppliðin unnu örugga sigra

Hamburg og Kiel unnu í kvöld örugga sigra í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta er síðustu leikirnir fyrir vetrarfrí fóru fram.

Aðalsteinn líklega áfram hjá Kassel

Flest bendir til þess að handboltaþjálfarinn Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson verði áfram hjá þýska félaginu Kassel. Guðjón Drengsson og Daníel Berg Grétarsson eru farnir frá félaginu og Jóhann Gunnar Einarsson verður líklega ekki áfram hjá liðinu.

Lübbecke vann Rhein-Neckar Löwen

Tveimur leikjum er lokið í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta en alls eru sjö leikir á dagskrá deildarinnar í kvöld.

118 kílóa miðherji á leið á Krókinn

Tindastólsmenn eru búnir að finna eftirmann Amani Bin Daanish fyrir seinni hluta Iceland Express deildarinnar. Sá kappi er ekki að minni gerðinni en hinn 206 sm og 118 kíló Kenney Boyd hefur samið við Tindastól um að klára tímabilið í Skagafirðinum.

Fabregas: Það var rétt hjá Wenger að setja mig inn á

Cesc Fabregas meiddist aftan í læri um leið og hann skoraði annað mark sitt á 24 mínútum eftir að hafa komið inn á sem varmaður í 3-0 sigri á Aston Villa um síðustu helgi. Hann sér ekkert eftir því að hafa komið inn á þrátt fyrir að vera ekki búinn að ná sér hundrað prósent.

Eiði boðið til Barcelona

Eiði Smára Guðjohnsen er boðið að vera viðstaddur sérstakan fagnað fyrir leik Barcelona og Villarreal um helgina en þá verður haldið upp á það að Börsungar unnu sex titla á árinu 2009.

Gunnar Heiðar skrifaði undir í dag

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skrifaði loksins undir samning við enska B-deildarfélagið Reading og verður hann því í láni hjá félaginu til loka tímabilsins.

Juventus hefur augastað á bæði Benitez og Mascherano

Ítalska liðið Juventus hefur áhuga á því að næla í bæði stjórann Rafael Benitez og argentínska miðjumanninn Javier Mascherano frá enska úrvalsdeildarliðinu Liverpool en þetta kemur fram í ítalska íþróttablaðinu Corriere Dello Sport.

Ferguson spáir endurkomu Mourinho í enska boltann

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, spáir þvi að Jose Mourinho muni snúa aftur í enska boltann um síðar. Þetta verður seint kallaður mikill spádómur enda er Mourinho nýbúinn að lýsa því yfir að hann ætli að koma aftur í enska boltann síðar.

Hiddink fer líklega ekki til Juventus

Það kvisaðist út í gær að Guus Hiddink myndi taka við þjálfun Juventus í byrjun næsta árs. Umboðsmaður Hiddink slær á þessar sögusagnir í dag.

Wenger hrifinn af Bellamy

Fjölmiðlar í Englandi vörpuðu því fram að Arsenal væri mjög óvænt að spá í að reyna að fá Craig Bellamy til félagsins. Umræðan kom upp í kjölfar þess að Bellamy var ósáttur við brottvikningu Mark Hughes hjá City.

Mourinho er sá besti

Jose Mourinho verður seint valinn vinsælasti keppandinn í ítalska boltanum og því kemur alltaf jafn mikið á óvart þegar einhver á Ítalíu hrósar honum.

Milan að undirbúa risatilboð í Dzeko

AC Milan hefur sett bosníska framherjann Edin Dzeko efstan á óskalistann sinn og er talið vera að undirbúa tilboð upp á 25 milljónir evra í leikmanninn.

Jón Arnar hættur sem þjálfari ÍR-liðsins

Jón Arnar Ingvarsson hefur óskað eftir því við körfuknattleiksdeild ÍR að láta af störfum sem þjálfari karlaliðsins í Iceland Express deildinni en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeild ÍR.

Bolton búið að reka Gary Megson

Gary Megson var í dag rekinn sem stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Bolton en ekkert hefur gengið hjá Grétari Rafni Steinssyni og félögum á þessu tímabili. Bolton missti niður 2-0 forustu á móti Hull í gær og situr nú í 18. sæti deildarinnar.

Ronaldo ætlar að verða besti knattspyrnumaður sögunnar

Cristiano Ronaldo er metnaðarfullur knattspyrnumaður. Hann hefur nú stefnt að því að verða aftur valinn besti knattspyrnumaður heims og það sem meira er þá vill hann að sín verði minnst sem besta knattspyrnumanns allra tíma.

Kjær vildi ekki fara til Man. City

Daninn eftirsótti, Simon Kjær hjá Palermo, hefur neitað því að fara til Man. City en enska félagið var til í að greiða 18 milljónir punda fyrir þennan sterka varnarmann.

Johnson fór heim á hækjum

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur nokkrar áhyggjur af bakverðinum Glen Johnson eftir að hann meiddist í leiknum gegn Aston Villa í gærkvöldi.

Berbatov þarf ekki að fara í aðgerð

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hefur staðfest að Búlgarinn Dimitar Berbatov muni ekki þurfa að fara í hnéaðgerð eins og óttast var um tíma.

NBA: Sigrar hjá Lakers og Cleveland

Síðasta vika hefur verið erfið hjá Lakers. Fyrir leikinn gegn Golden State í nótt hafði liðið tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum, liðið var án Ron Artest og ekki að spila vel.

Frábærir leikmenn sem ég skil eftir

Í gær var tilkynnt hvaða sautján leikmenn voru valdir í landslið Íslands fyrir Evrópumeistaramótið sem fer fram í Austurríki í næsta mánuði.

Mikill heiður að vera valinn í þennan sterka hóp

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, kom nokkuð á óvart með því að velja hinn 19 ára FH-ing, Ólaf Guðmundsson, í 17 manna EM-hópinn sem tilkynntur var í gær.

Sjá næstu 50 fréttir