Fleiri fréttir

Danir burstuðu Austurríkismenn

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í austurríska landsliðinu máttu þola stórt tap 39-22 fyrir Dönum á fjögurra liða æfingamóti sem fram fer í Austurríki.

Dwyane Wade skaut Phoenix í kaf

Fjöldi áhugaverðra leikja fór fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Dwyane Wade var maður kvöldsins þegar hann skoraði 43 stig fyrir Miami í 107-92 útisigri á Phoenix.

Jóhann Berg æfði með Coventry

Jóhann Berg Guðmundsson æfði í dag með enska B-deildarliðinu Coventry eftir því sem staðarfjölmiðlar greina frá.

Kiel vill fá Aron

Þýskalandsmeistarar Kiel hafa mikinn áhuga á að fá Aron Pálmarsson, leikmann FH, til félagsins.

CSKA gerði jafntefli

CSKA Sofia gerði í dag 2-2 jafntefli við Lokomotive Mezdra í búlgörsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Tíu ár frá fyrsta leik Gerrard

Á morgun verða liðin tíu ár frá því að Steven Gerrard lék sinn fyrsta leik með aðalliði Liverpool. Hann segist vilja fagna áfanganum með því að verða enskur meistari með félaginu.

Snorri fer í uppskurð á Íslandi í desember

Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson mun gangast undir hnéuppskurð heima á Íslandi þann 9. desember eftir því sem fram kemur á heimasíðu GOG í danmörku.

Phoenix-Miami beint á Stöð 2 Sport í nótt

Stöð 2 Sport hefur í nótt beinar útsendingar frá NBA deildinni í körfubolta. Fyrsti leikurinn verður viðureign Phoenix Suns og Miami Heat klukkan eitt í nótt.

Barry fer hvergi í janúar

Martin O´Neill, stjóri Aston Villa, hefur tekið af allan vafa um framtíð miðjumannsins Gareth Barry - í það minnsta fram á sumar.

Redknapp fékk ljót símtöl frá Portsmouth

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur fengið símtöl frá reiðum stuðningsmönnum Portsmouth sem hafa m.a. óskað honum og fjölskyldu hans þess að láta lífið í bílslysi.

Gullknötturinn: Messi tippar á Ronaldo

Argentínumaðurinn Leo Messi og Portúgalinn Cristiano Ronaldo eru almennt taldir líklegastir til að vinna gullknöttinn eftirsótta í næsta mánuði.

Marseille kært

Knattspyrnusamband Evrópu hefur kært franska félagið Marseille eftir að stuðningsmenn liðsins köstuðu kveikjara í Steven Gerrard fyrirliða Liverpool í viðureign liðanna í vikunni.

Treysti honum ekki fyrir hundinum mínum

Brottför bakvarðarins Stephon Marbury frá New York Knicks virðist nú óumflýjanleg ef marka má viðtal sem tekið var við kappann í New York Post.

Leikmenn Arsenal og Tottenham deila íbúð

Jafnan er grunnt á því góða á milli erkifjendanna Arsenal og Tottenham í norðurhluta Lundúna. Eina stóra undantekningu er þó að finna á þeirri reglu.

Calderon ætlar að kaupa tvo

Forseti Real Madrid á Spáni hefur lýst því yfir að félagið ætli sér að kaupa tvo leikmenn í janúarglugganum.

United fær atvinnuleyfi fyrir Tosic

Sky fréttastofan greinir frá því í dag að Manchester United hafi tekist að fá atvinnuleyfi fyrir serbneska landsliðsmanninn Zoran Tosic frá Partizan Belgrad.

Kinnear stýrir Newcastle til vors

Joe Kinnear er búinn að skrifa undir samning við stjórn Newcastle um að stýra liðinu til loka leiktíðar. Hann hefur verið settur stjóri Newcastle síðan Kevin Keegan hætti í september.

Óttast jarðsprengjur á golfvellinum

Japanski kylfingurinn Ryo Ishikawa er nú hundeltur af öryggisvörðum eftir að dagblaði barst sprengjuhótun fyrir Casio mótið í golfi sem fram fer í Japan.

Aðsókn minnkar á Englandi

Áhorfendum á leikjum í ensku úrvalsdeldinni hefur fækkað um hátt í þúsund að meðaltali á hvern leik á þessari leiktíð samkvæmt úttekt Daily Telegraph.

Wenger getur keypt ef hann vill

Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segir að Arsene Wenger knattspyrnustjóri fái þá peninga sem hann þarf til leikmannakaupa hjá félaginu.

Rooney hefur ekki áhyggjur af miðlungsliði City

Framherjinn Wayne Rooney hjá Manchester United segir mikilvægt að liðið nái að leggja granna sína í City að velli í einvígi liðanna á borgarleikvangnum í Manchester á sunnudag.

Ber litlar tilfinningar til West Ham

Argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano hjá Liverpool segist ekki bera sérstakar tilfinningar til fyrrum félaga sinna í West Ham fyrir leik liðanna um helgina.

Birgir Leifur komst ekki áfram

Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki í gegn um niðurskurðinn á meistaramótinu í Ástralíu. Hann lék annan hringinn á mótinu á 73 höggum eða einu höggi yfir pari og var því samtals á fjórum höggum yfir pari eftir fyrstu tvo hringina.

New Orleans vann fjórða leikinn í röð

Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. New Orleans vann fimmta leikinn í röð þegar liðið skellti Denver á útivelli 105-101.

Birgir Leifur á þremur yfir pari

Birgir Leifur Hafþórsson lauk í kvöld fyrsta hringnum á þremur höggum yfir pari og lék hann þar með á samtals 75 höggum.

Makedónía vann Eistland

Einn leikur fór fram í riðli Íslands í undankeppni EM 2010 í handbolta er Makedónía vann níu marka sigur á Eistlandi, 31-22.

Ellefu marka sigur á Sviss

Ísland vann í kvöld ellefu marka sigur á Sviss í undankeppni HM 2009 í handbolta, 41-30.

Ísland vann Dormagen í æfingaleik

Íslenska handboltalandsliðið vann í kvöld sigur á þýska úrvalsdeildarfélaginu Dormagen í æfingaleik ytra, 34-28, eftir að hafa verið með átta marka forystu í hálfleik.

Torres frá í 2-3 vikur

Fernando Torres og Fabio Aurelio verða frá næstu 2-3 vikurnar vegna meiðsla sem þeir urðu fyrir í leik Liverpool gegn Marseille í gær.

Pele þarf að víkja fyrir Mörtu

Löggjafinn í Alagoas-fylki í Brasilíu samþykkti í vikunni lagafrumvarp sem kveður á um að leikvanginum í Maceio-borg verði breytt úr King Pele í Queen Marta.

Svíar unnu Pólverja

Svíþjóð vann í kvöld þriggja marka sigur á Póllandi, 27-24, í undankeppni EM 2010 í handbolta.

Iverson fær háa sekt fyrir að skrópa á æfingu

Ferill Allen Iverson hjá Detroit Pistons í NBA deildinni hefur ekki byrjað sérlega vel. Kappinn skrópaði á æfingu í dag og verður fyrir vikið gert að greiða háa sekt að sögn þjálfarans Michael Curry.

Riise ánægður hjá Roma

Umboðsmaður John Arne Riise segir að norski varnarmaðurinn sé ánægður í herbúðum Roma og sé ekki á leið til Newcastle.

Ferguson hræðist ekki kaupmátt City

Alex Ferguson óttast ekki að Manchester United verði á næstunni „litla“ félagið í Manchester í ljósi þess að nýir eigendur City eru moldríkir.

Burley leiður vegna meiðsla Hatton

George Burley, landsliðsþjálfari Skotlands, segist vera afar leiður yfir því að varnarmaðurinn Alan Hutton verði frá næstu fimm mánuðina.

Norris sektaður um fimm þúsund pund

David Norris, leikmaður Ipswich, var í dag sektaður um fimm þúsund pund fyrir ósæmlega framkomu er hann fagnaði marki er hann skoraði gegn Blackpool í upphafi mánaðarins.

Kinnear kærður vegna ummæla

Joe Kinnear, stjóri Newcastle, hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir að líkja dómara við Mikka Mús.

Ekki samið við Guðmund

Forráðamenn norska úrvalsdeildarfélagsins Start hafa ákveðið að bjóða ekki Guðmundi Steinarssyni, leikmanni Keflavíkur, samning að svo stöddu.

Sjá næstu 50 fréttir