Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
HondaRacing leggur land undir fót Honda Racing hefur áhveðið að skella sér á krókinn um komandi helgi með MX1, MX2 , MX85 liðið og stelpurnar, í brautina sem hefur verið í smíðum undanfarið á króknum. 2.5.2007 11:46
Liverpool í úrslit Meistaradeildarinnar Liverpool tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í annað sinn á tveimur árum með því að bera sigurorð af Chelsea í kvöld. Liverpool vann leikinn 1-0 og því þurfti að grípa til framlengingar og síðar vítakeppni til að skera úr um hvort liðið færi áfram. Leikmenn Liverpool sýndu stáltaugar í vítakeppninni og mæta Milan eða Manchester United í úrslitum. 1.5.2007 21:24
Vidic og Ferdinand klárir í slaginn Miðverðirnir Nemanja Vidic og Rio Ferdinand hafa báðir fengið grænt ljós á að spila með liði sínu Manchester United annað kvöld þegar liðið sækir AC Milan heim í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Gennaro Gattuso hefur sömuleiðis náð sér af meiðslum hjá Milan en varnarmaðurinn Paolo Maldini er mjög tæpur. 1.5.2007 19:03
Joey Barton í banni út leiktíðina Vandræðagemlingurinn Joey Barton hjá Manchester City er enn búinn að koma sér í fréttirnar á röngum forsendum. Félagið tilkynnti í dag að miðjumaðurinn kæmi ekki meira við sögu með liðinu út leiktíðina, því hann hefði verið settur í bann fyrir að slást við félaga sinn Ousmane Dabo á æfingu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Barton kemur sér í vandræði vegna óláta sinna og nú missir hann meðal annars af grannaslagnum við United á laugardaginn þar sem þeir rauðu geta tryggt sér meistaratitilinn. 1.5.2007 18:57
FH-ingar deildarbikarmeistarar Íslandsmeistarar FH tryggðu sér í dag sigur í Lengjubikarnum eftir að þeir lögðu Val 3-2 eftir framlengdan úrslitaleik á Stjörnuvelli. Valsmenn voru betri aðilinn í fyrri hálfleik, en Sigurbjörn Hreiðarsson fór illa að ráði sínu í upphafi leiks þegar hann lét Daða Lárusson verja frá sér vítaspyrnu. 1.5.2007 18:32
Tekst Golden State hið ómögulega í kvöld? Þeir sem hafa aðgang að NBA TV sjónvarpsstöðinni geta í kvöld orðið vitni að einhverjum óvæntustu úrslitum í sögu NBA deildarinnar ef Golden State Warriors tekst að leggja Dallas Mavericks að velli í fimmta leik liðanna klukkan hálf tvö. 1.5.2007 18:13
HK: Nýliðarnir númeri of litlir Fréttablaðið byrjar í dag að telja niður að Íslandsmótinu í knattspyrnu því næstu ellefu daga munum við birta spá íþróttamanna Fréttablaðsins um lokastöðu liðanna í Landsbankadeild karla 2007. Það spáir nýliðum HK 10. sætinu og að Kópavogsliðið falli því úr deildinni í haust. 1.5.2007 17:32
Saviola útilokar að fara til Real Madrid Framerjinn Javier Saviola hjá Barcelona segist aldrei muni gera stuðningsmönnum Barcelona þann grikk að ganga til liðs við erkifjendur liðsins Real Madrid. Hann segist súr yfir því að þurfa að yfirgefa herbúðir Spánarmeistaranna. 1.5.2007 16:12
Shevchenko er ekki í deilum við Chelsea Chelsea hefur gefið út yfirlýsingu þar sem fram kemur að ástæða þess að Andiy Shevchenko fer ekki með liðinu til Liverpool sé meiðsli en ekki deilur við knattspyrnustjórann. Shevchenko tilkynnti í gær að hann gæti ekki spilað gegn Liverpool vegna nárameiðsla, en bresku blöðin héldu því fram að hann hefði neitað að fara með liðinu eftir að honum hafi verið tjáð að hann væri ekki í byrjunarliðinu í kvöld. 1.5.2007 15:53
Robert Horry snýr aftur San Antonio hefur náð afgerandi 3-1 forystu í einvígi sínu við Denver í úrslitakeppni NBA eftir 96-89 útisigur á Denver í fjórða leik liðanna í nótt. Það var gamli refurinn Robert Horry sem tryggði sigur San Antonio með þriggja stiga körfu þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum. Denver þurfti nauðsynlega á sigri að halda en tapaði öðrum heimaleik sínum í röð eftir að gestirnir luku leiknum með 17-6 rispu. 1.5.2007 05:19
Houston náði forystu á ný gegn Utah Houston er nú komið í vænlega stöðu í einvígi sínu gegn Utah í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í NBA. Houston vann í nótt 96-92 sigur í fimmta leik liðanna á heimavelli sínum og getur nú unnið fyrsta einvígi sitt í úrslitakeppni síðan árið 1997 með sigri í Utah á fimmtudagskvöldið. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV og var í járnum frá fyrstu mínútu. 1.5.2007 03:53
Cleveland sópaði Washington Cleveland Cavaliers er komið í aðra umferð úrslitakeppni NBA eftir sigur á Washington í fjórða leik liðanna í nótt 97-90. Cleveland vann seríuna því 4-0 og var þetta í fyrsta skipti í sögu félagsins sem liðinu tekst það, en lið Washington átti aldrei möguleika í einvíginu með tvö stjörnuleikmenn á meiðslalistanum. 1.5.2007 03:39
Framlengt á Anfield Það stefnir í mikla dramatík í leik Liverpool og Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en leikurinn fer í framlengingu eftir að Liverpool var yfir 1-0 eftir venjulegan leiktíma. Staðan í einvíginu er því 1-1 og því þarf að spila til þrautar í kvöld - hvort sem það verður eftir framlengingu eða vítakeppni. 1.5.2007 20:34
Liverpool yfir í hálfleik Liverpool hefur yfir 1-0 gegn Chelsea þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Það var danski varnarmaðurinn Daniel Agger sem skoraði mark heimamanna á 22. mínútu og staðan í einvíginu er því jöfn 1-1. Leikurinn er sýndur á Sýn í beinni lýsingu Arnars Björssonar frá Anfield. 1.5.2007 19:30
Agger kemur Liverpool yfir Liverpool er komið yfir 1-0 gegn Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Agger skoraði með laglegu skoti eftir fyrirgjöf Steven Gerrard sem kom upp úr vel tekinni aukaspyrnu á vinstri vængnum á 22. mínútu. Staðan er nú orðin 1-1 í einvíginu. 1.5.2007 19:07
Byrjunarliðin klár Nú styttist í að flautað verði til leiks í síðari undanúrslitaleikur Liverpool og Chelsea hefjist á Anfield í Liverpool. Arnar Björnsson lýsir leiknum beint frá Liverpool og verður hann sýndur beint á Sýn. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér fyrir neðan. 1.5.2007 18:01
Kitson eyðilagði endurkomu Owen Michael Owen spilaði í kvöld sinn fyrsta leik með liði Newcastle í eitt ár þegar hans menn töpuðu 1-0 fyrir Reading á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. Owen skoraði reyndar mark eftir 7 mínútna leik en það var dæmt af vegna rangstöðu. Það var Dave Kitson sem skoraði sigurmark Íslendingaliðsins eftir 52 mínútna leik og heldur liðið enn í von um sæti í Evrópukeppninni. 30.4.2007 21:05
Strigakjafturinn Bruce Willis (Myndband) Hasarmyndahetjan Bruce Willis var í gær mættur til að horfa á fjórða leik New Jersey Nets og Toronto Raptors í úrslitakeppninni í NBA. Willis notaði tækifærið og kynnti nýju Die Hard myndina sem er að koma út fljótlega, en orðbragðið á kappanum þótti heldur ruddalegt fyrir beina útsendingu í sjónvarpi. Spurning hvort kappinn hafi fengið sér einum öl of mikið á hliðarlínunni. 30.4.2007 20:33
Stefán skoraði fyrir Lyn í tapleik Einn leikur fór fram í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Stefán Gíslason og félagar í Lyn töpuðu 3-1 á útivelli fyrir Lilleström. Stefán skoraði mark gestanna á 29. mínútu og jafnaði þá metin í 1-1. Indriði Sigurðsson var einnig í liði Lyn í kvöld. 30.4.2007 20:16
Shevchenko verður ekki með gegn Liverpool Úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko verður ekki með liði sínu Chelsea þegar það sækir Liverpool heim í síðari undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. Þegar er ljóst að liðið verður án þeirra Ricardo Carvalho og Michael Ballack, sem báðir eru meiddir. 30.4.2007 19:07
Duncan og Bowen í varnarúrvali NBA Varnarlið ársins í deildarkeppni NBA var tilkynnt í dag og þar ber hæst að fastagestirnir í úrvalsliðinu og samherjarnir Tim Duncan frá San Antonio voru á sínum stað. Auk þeirra voru þeir Marcus Camby frá Denver, Kobe Bryant frá LA Lakers og Raja Bell frá Phoenix í varnarliði ársins. 30.4.2007 18:37
Finnan og Essien verða með annað kvöld Bakvörðurinn Steve Finnan verður leikfær með Liverpool annað kvöld þegar liðið tekur á móti Chelsea í síðari leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Þá kemur miðjumaðurinn Michael Essien aftur inn í lið Chelsea. Leikurinn er á Anfield í Liverpool og verður sýndur beint á Sýn. 30.4.2007 17:23
Benitez: Hringlið í Mourinho kostaði Chelsea titilinn Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur nú bætt enn í sálfræðistríðið við Jose Mourinho kollega sinn hjá Chelsea fyrir síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld. Benitez segir að Mourinho hafi eyðilagt möguleika Chelsea á Englandsmeistaratitlinum um síðustu helgi með því að gera of miklar breytingar á byrjunarliði sínu. 30.4.2007 17:09
Houston - Utah í beinni í kvöld Fimmti leikur Houston Rockets og Utah Jazz í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Hér er á ferðinni mest spennandi einvígið í úrslitakeppninni til þessa ef marka má stöðuna, því Houston vann fyrstu tvo leikina og Utah síðustu tvo á heimavelli og því er um algjöran lykilleik að ræða í Houston í kvöld. 30.4.2007 17:02
Kevin Nolan: Allardyce er ekki að taka við öðru liði Kevin Nolan, fyrirliði Bolton, segist enn vera í miklu uppnámi vegna ákvörðunar Sam Allardyce að hætta sem knattspyrnustjóri hjá félaginu. Hann segist hlakka til þess að spila fyrir Sammy Lee, en fullvissar alla um að Allardyce hafi ekki verið að hætta hjá félaginu til að taka við stöðu knattspyrnustjóra hjá öðru liði í úrvalsdeildinni. Hann hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Manchester City. 30.4.2007 16:58
Grískir lögreglumenn hóta verkfalli Lögreglumenn í Aþenu í Grikklandi hafa nú skapað nokkra spennu þar í borg, því þeir hóta að fara í verkfall daginn sem úrslitaleikurinn í Meistaradeild Evrópu fer fram í borginni þann 23. maí næstkomandi. Lögreglumennirnir ætla að nota þessa hótun í kjarabaráttu sinni þar sem þeir fara fram á bætta vinnuaðstöðu og hærri tekjur. 30.4.2007 16:54
Thierry Henry skýtur föstum skotum á Tottenham Litlir kærleikar eru milli grannliðanna Arsenal og Tottenham í norðurhluta Lundúna og nú hefur framherjinn Thierry Henry hjá Arsenal skvett olíu á eldinn með því að gera grín að leikmönnum Tottenham. 30.4.2007 16:42
Peruzzi hættur Fyrrum landsliðsmarkvörðurinn Angelo Peruzzi hjá Lazio tilkynnti í dag að hann hefði spilað sinn síðasta leik fyrir félagið því hann ætli að leggja hanskana á hilluna. Peruzzi er 37 ára gamall og var í landsliði Ítala á HM í sumar. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir Roma árið 1987 en náði besta árangri sínum með Juventus á síðasta áratug þar sem hann vann þrjá Ítalíutitla og báðar Evrópukeppnirnar. Hann spilaði 31 landsleik fyrir Ítala. 30.4.2007 16:36
Messi hefur ekki áhuga á Inter Argentínumaðurinn ungi Lionel Messi hjá Barcelona segist ekki hafa áhuga á að ganga í raðir Inter Milan á Ítalíu þó eigandi félagsins hafi lýst yfir aðdáun sinni á honum undanfarið. "Ég veit að Massimo Moratti hefur miklar mætur á mér og ég er sáttur við það, en ég vil ekki fara frá Barcelona. Ég hef engan áhuga á að spila á Ítalíu - ekki núna að minnsta kosti," sagði Messi. 30.4.2007 16:33
Lee tekinn við Bolton Sammy Lee hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Bolton í stað Sam Allardyce sem hætti störfum um helgina. Lee er 48 ára gamall og var áður aðstoðarmaður Allardyce. Hann hefur einnig starfað með Liverpool og enska landsliðinu. Lee segist ætla að halda áfram því góða starfi sem Allardyce hafi verið að vinna hjá félaginu. 30.4.2007 14:29
Ævintýrið heldur áfram hjá Warriors Úrslitakeppnin í NBA náði nýjum hæðum í nótt þegar öskubuskulið Golden State náði 3-1 forystu gegn Dallas með 103-99 sigri í fjórða leiknum á heimavelli. Leikurinn var stórkostleg skemmtun og bauð upp á allt það besta sem körfuboltinn hefur upp á að bjóða. 30.4.2007 05:45
Ívar Ingimars: Mitt hlutverk að halda aftur af Owen Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem Reading tekur á móti Newcastle. Þetta verður fyrsti leikur Michael Owen með liði sínu síðan hann meiddist illa á HM í sumar og það kemur í hlut Ívars Ingimarssonar að gæta þess að Owen skori ekki í endurkomunni. 30.4.2007 04:47
Auðvelt hjá New Jersey New Jersey Nets er komið með þægilega 3-1 forystu gegn Toronto Raptors í úrslitakeppni NBA eftir auðveldan sigur í fjórða leik liðanna í New Jersey í nótt 102-81. New Jersey valtaði yfir mótherja sína strax í byrjun og leiddi 56-37 í hálfleik á bak við annan stórleik frá Jason Kidd og Vince Carter. 30.4.2007 04:17
Verplank sigraði á Byron Nelson mótinu Bandaríkjamaðurinn Scott Verplank sigraði á Byron Nelson PGA-mótinu, sem lauk í Dallas í Texas í kvöld. Hann lék lokahringinn á 66 höggum og hringina fjóra á samtals 267 höggum, eða 13 höggum undir pari. 30.4.2007 04:08
Scwartzel sigraði á opna spænska Suður-afríski kylfingurinn Charl Schwartzel sigraði á Opna spænska mótinu sem lauk í Madríd í dag og var þetta annar sigur hans á Evrópumótaröðinni. Hann lék lokahringinn á 67 höggum og var samtals á 16 höggum undir pari, einu höggi á undan Indverjanum Jyoti Randhawa, sem varð annar. Heimamaðurinn Carlos Rodiles varð þriðji á samtals 14 höggum undir pari. 30.4.2007 04:06
Nash með 23 stoðsendingar í sigri Phoenix Phoenix Suns er komið í afar vænlega 3-1 stöðu í einvígi sínu við LA Lakers í úrslitakeppni NBA deildarinnar. Phoenix vann sannfærandi sigur 113-100 í Los Angeles í kvöld þar sem Steve Nash var nálægt því að slá metið yfir flestar stoðsendingar í leik í úrslitakeppni. 29.4.2007 23:35
Sven Göran: Ég er vel liðinn á Englandi Sven-Göran Eriksson, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segist aldrei hafa fundið fyrir öðru en að hann væri vel liðinn á Englandi í stjórnartíð sinni. Hann viðurkennir að liðið hefði átt að standa sig mun betur á HM í sumar. 29.4.2007 23:16
Sannfærandi sigur hjá Real Madrid Real Madrid styrkti stöðu sína í þriðja sæti spænsku deildarinnar í kvöld með öruggum 4-1 sigri á Atletic Bilbao á útivelli. David Beckham lagði upp fyrsta markið fyrir Sergio Ramos, Ruud Van Nistelrooy skoraði sitt hvoru megin við hálfleikinn og Guti bætti við fjórða markinu á lokamínútunni eftir að heimamenn höfðu minnkað muninn. Real á enn möguleika á spænska meistaratitlinum og hefur leikið ágætis knattspyrnu í undanförnum leikjum. 29.4.2007 23:08
Sér eftir að hafa barið hestinn Í þættinum Kompás sem sýndur var nú í kvöld á Stöð 2 var sýnt átakanlegt myndband af manni sem lemur hest sinn ítrekað og sparkar undir kvið hans og lemur hann margoft í hausinn. Hestafréttir höfðu upp á manninum sem um ræðir og heitir hann Hilmar Hróason og heldur hann hesta á Vatnsenda í Kópavogi. 29.4.2007 21:12
Barthez er farinn frá Nantes Óvíst er hvort markvörðurinn Fabien Barthez spili meira með franska liðinu Nantes, en hann smalaði börnum sínum upp í bíl og ók burt úr borginni í dag að sögn talsmanns félagsins. Barthez lenti í slagsmálum við nokkra óánægða stuðningsmenn liðsins um helgina og er sagður í losti eftir uppákomuna. 29.4.2007 20:10
Bremen fór illa að ráði sínu Werder Bremen fullkomnaði ömurlega viku sína í dag með því að tapa 3-2 fyrir Bielefeld á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Bremen átti möguleika að komast á toppinn með sigri, en er nú enn í þriðja sæti deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir. Liðið steinlá 3-0 fyrir Espanyol í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópukeppni félagsliða fyrr í vikunni. Sigur Bielefeld þýddi að Gladbach er fallið úr deildinni í annað sinn á átta árum. 29.4.2007 20:03
Meistarar Miami niðurlægðir á heimavelli NBA meistarar Miami Heat eru úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir 92-79 tap á heimavelli gegn frísku liði Chicago Bulls. Miami tapaði því einvíginu 4-0 og var liðið bókstaflega niðurlægt af sterkari andstæðingi. Leikurinn var sýndur beint á Sýn Extra. 29.4.2007 19:31
Barcelona á toppinn Barcelona skaust í toppsætið í spænsku deildinni í dag með 1-0 sigri á Levante á heimavelli sínum. Það var framherjinn Samuel Eto´o sem skoraði sigurmark liðsins í fyrri hálfleik. Eiður Smári Guðjohnsen var á bekknum hjá Barcelona en kom ekki við sögu í leiknum. Nú um klukkan 19 hefst svo bein útsending frá leik Bilbao og Real Madrid sem er lokaleikurinn í umferðinni. 29.4.2007 19:04
Wenger: Við sköpum flest færi allra liða Arsene Wenger var ekki ánægður með það hvað hans menn í Arsenal fóru illa með færin í dag þegar liðið lagði Fulham 3-1 á heimavelli. Hann segir liðið skulda stuðningsmönnunum að hirða þriðja sætið í deildinni. 29.4.2007 18:20
Celtic fékk bikarinn afhentan í dag Skotlandsmeistarar Glasgow Celtic fengu afhentan bikarinn í dag þó liðið tapaði stórt 3-1 á heimavelli fyrir Hearts. Liðið hafði mikla yfirburði í deildinni í vetur og ekki hægt að segja að Celtic hafi fengið mikla samkeppni þrátt fyrir að dala nokkuð á síðustu vikunum. 29.4.2007 17:52