Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slúðrið í enska í dag Slúðrið er vinsælt í boltanum og hérna er yfirlit yfir það helsta sem að BBC tíndi til frá hinum ýmsu bresku fjölmiðum í dag. 13.4.2007 11:02
Ronaldo skrifar undir fimm ára samning Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United, hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við liðið. Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð hins 22 ára Portúgala og var rætt um Real Madrid og Barcelona í því samhengi. 13.4.2007 10:16
þeir kalla sig viskí og vindlaklúbbinn. Já þegar fréttaritari Vísi.is var að vafra um veraldarvefinn í gærkveldi, rakst hann á skemmtilega síðu að nafni www.wv-club.com. Þetta eru hressir íslenskir strákar sem eiga það sameiginlegt að vera forfallnir hjólamenn og áhugasamir tónlistarmenn. 13.4.2007 10:15
Houllier áfram hjá Lyon á næstu leiktíð Geard Houllier verður áfram knattspyrnustjóri franska liðsins Lyon á næstu leiktíð, að því er stjórnarformaður félagins segir í samtali við franska íþróttablaðinu L'Equipe í dag. 13.4.2007 09:51
50 stig Bryants dugðu ekki gegn Clippers Kobe Bryant skoraði 50 stig fyrir LA Lakers gegn nágrannaliðinu LA Clippers í NBA-deildinni í nótt en það dugði ekki til sigurs því Clippers vann 118-110. Corey Magette átti stórleik hjá Clippers og skoraði 39 stig sem er persónlegt met hjá honum í deildinni. 13.4.2007 09:22
Sola: Við verðum að stela einum í Njarðvík "Ég var ekki að spila vel í þessum leik," sagði Jeremiah Sola sem var aðeins með 4 stig þegar Benedikt Guðmundsson lét hann sitja á bekknum í nokkrar mínútur á milli þriðja og fjórða leikhluta í leiknum gegn Njarðvík í kvöld. 12.4.2007 23:01
Pálmi Freyr: Áhorfendurnir voru frábærir Pálmi Freyr Sigurgeirsson var atkvæðamestur KR-inga í sigrinum á Njarðvík í kvöld með 19 stig. Hann sagði stuðning áhorfenda hafa ráðið miklu fyrir KR í kvöld og vonast til að liðið nái að sigra í þriðja leiknum í Njarðvík á laugardaginn. 12.4.2007 22:31
Benedikt Guðmunds: Einvígið er rétt að byrja "Við fórum mjög vel yfir það hvað gerðist hjá okkur í fjórða leikhlutanum í síðasta leik og við vorum einfaldlega ekki nógu beittir. Um leið og menn fara að einbeita sér og gera hlutina sem þeir eiga að vera að gera, gengur þetta allt miklu betur," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR í samtali við Arnar Björnsson á Sýn í kvöld. 12.4.2007 22:11
Jol: Sevilla greip okkur í bólinu Martin Jol viðurkenndi að hræðileg byrjun hans manna í Tottenham hefði gert út um vonir þeirra á áframhaldandi þáttöku í Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Tottenham lenti undir 2-0 eftir sjö mínútur og eftir það var róðurinn liðinu skiljanlega þungur. 12.4.2007 21:54
Valsmenn upp að hlið HK Valur er kominn aftur upp að hlið HK á toppi DHL-deildar karla eftir að liðið burstaði Íslandsmeistara Fram 29-19 í stórleik kvöldsins. Valur og HK hafa 29 stig á toppnum og ljóst að spennan verður gríðarleg í síðustu umferðunum. Fram er með 22 stig í þriðja sæti deildarinnar. 12.4.2007 21:46
Seiglusigur KR á Njarðvík KR jafnaði metin í úrslitaeinvíginu við Njarðvík í Iceland Express deildinni í kvöld með 82-76 baráttusigri í öðrum leik liðanna. Njarðvík var yfir allan leikinn, en Jeremiah Sola skoraði 7 af 9 stigum KR í mikilli rispu á lokamínútunum og tryggði heimamönnum sigur. Staðan í einvíginu er því jöfn 1-1 og næsti leikur er í Njarðvík á laugardaginn. 12.4.2007 21:37
Tottenham úr leik þrátt fyrir hetjulega baráttu Enska liðið Tottenham féll í kvöld úr leik í Evrópukeppni félagsliða eftir 2-2 jafntefli við ríkjandi meistarana í Sevilla. Spænska liðið vann fyrri leikinn á Spáni 2-1. Möguleikar Tottenham voru nánast úr sögunni eftir að liðið lenti undir 2-0 eftir aðeins sjö mínútur. Heimamenn gáfust þó ekki upp og jöfnuðu leikinn í 2-2 með mörkum frá Aaron Lennon og Jermain Defoe, en auk þess átti liðið ef til vill að fá vítaspyrnu í leiknum og átti stangarskot í fyrri hálfleik. 12.4.2007 20:41
Aðstoðarþjálfari Keflavíkur í þriggja leikja bann Aganefnd KKÍ dæmdi í dag Agnar Gunnarsson, aðstoðarþjálfara Keflavíkur, í þriggja leikja bann fyrir að gefa Helenu Sverrisóttur hjá Haukum olnbogaskot undir lok þriðja leiks Keflavíkur og Hauka í úrslitum Iceland Express deildarinnar. 12.4.2007 19:37
Curbishley: Erfiðara en ég hélt að taka við West Ham Knattspyrnustjórinn Alan Curbishley hjá West Ham segist ekki hafa búist við því að hans biði jafn erfitt verkefni en raun bar vitni þegar hann tók við liðinu af Alan Pardew á sínum tíma. Liðið vann ekki sigur í fyrstu 11 leikjum sínum undir hans stjórn, en hefur aðeins verið að vakna til lífsins í síðustu leikjum. 12.4.2007 18:41
Stuðningsmenn United beðnir að draga úr áfengisneyslu Knattspyrnusamband Evrópu hefur farið þess á leit við stuðningsmenn Manchester United að stilla áfengisneyslu í hóf þegar liðið sækir AC Milan heim í Meistaradeildinni í byrjun næsta mánaðar. Talsmaður UEFA segir að hluta þeirra vandamála sem komið hafi upp á leikjum undanfarið megi rekja til ofdrykkju. 12.4.2007 18:11
Hamilton í sögubækurnar? Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren á möguleika á að rita nafn sitt í sögubækur í Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 á sunnudaginn. Þar getur hann orðið fyrsti nýliðinn til að komast á verðlaunapall í fyrstu þremur keppnum sínum á ferlinum. 12.4.2007 17:15
Bernd Schuster tekur við Real Madrid Þýski knattspyrnuþjálfarinn Bernd Schuster hefur skrifað undir samning við spænska stórveldið Real Madrid og mun taka við þjálfun þess þann 1. júlí. Þetta fullyrða þýskir fjölmiðlar í dag og segja fulltrúa Schusters hafa staðfest tíðindin. Schuster er þjálfari Getafe í dag en fyrir hjá Real Madrid er ítalski þjálfarinn Fabio Capello. 12.4.2007 16:53
Bellamy stefnir á að ná leiknum við Chelsea Meiðsli framherjans Craig Bellamy hjá Liverpool eru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu og segist hann vongóður um að verða orðinn heill þegar Liverpool mætir Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar þann 25. apríl. Bellamy var borinn af velli gegn PSV í gærkvöldi meiddur á hné. 12.4.2007 16:38
Real tilbúið að borga 7 milljarða fyrir Ronaldo Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag að forráðamenn Real Madrid á Spáni hafi átt fund með forráðamönnum Manchester United þar sem þeir hafi boðist til að gera enska félaginu kauptilboð í Cristiano Ronaldo upp á ríflega 7 milljarða íslenskra króna. Ef af þessum viðskiptum verður, er ljóst að Ronaldo yrði dýrasti knattspyrnumaður sögunnar. 12.4.2007 15:15
Mourinho: Ég þarf á Crespo að halda Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segist hafa mikinn áhuga á að fá argentínska framherjann Hernan Crespo aftur til félagsins í sumar. Crespo hefur verið á flóknum lánssamningi hjá Ítalíumeisturum Inter og segist yfir sig ánægður að vera kominn aftur til Ítalíu. Hann hefur skorað 10 mörk í deildinni í vetur og hefur lýst því yfir að hann vilji aldrei fara aftur til Englands. 12.4.2007 14:31
Sanchez verður áfram með Norður-Íra Forseti norður-írska knattspyrnusambandsins segist fullviss um að Lawrie Sanchez muni virða samning sinn við sambandið þó hann hafi samþykkt að taka við enska úrvalsdeildarliðinu Fulham til loka leiktíðar. Bresku blöðin greina hinsvegar frá því í dag að Fulham hafi boðið honum að sjöfalda laun hans ef hann samþykki að flytja sig formlega til Lundúna. 12.4.2007 14:22
Eiður Smári kannast ekki við áhuga Man Utd Eiður Smári Guðjohnsen segist ekki kannast við meintan áhuga Manchester United um að fá hann í sínar raðir og segist reikna með að verða áfram hjá Spánarmeisturum Barcelona. Þetta segir hann í einkaviðtali við Sky sjónvarpsstöðina í dag. 12.4.2007 14:15
Einn leikfær varnarmaður hjá Tottenham Miðvörðurinn Ledley King mun væntanlega verða í byrjunarliði Tottenham í fyrsta skipti síðan um jólin þegar liðið tekur á móti Sevilla í síðari leiknum í 8-liða úrslitum UEFA keppninnar í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 18:45 en spænska liðið vann fyrri leikinn 2-1. 12.4.2007 13:58
Detroit hirti efsta sæti Austurdeildar Detroit Pistons tryggði sér í nótt efsta sæti Austurdeildarinnar í NBA og verður liðið því með heimavallarrétt alla leið í úrslitin. Miami tryggði sér sigur í Suðaustur deildinni með sigri á Washington. 12.4.2007 13:38
Njarðvík leiðir eftir þrjá leikhluta Njarðvíkingar eru fjórum stigum yfir 62-58 þegar einn leikhluti er eftir af leiknum við KR í DHL-Höllinni. KR náði að jafna strax í upphafi leikhlutans en vörn gestanna hefur verið mjög sterk. Stemmingin í vesturbænum er frábær og syngja stuðningsmenn fullum hálsi á pöllunum. 12.4.2007 21:17
Njarðvík yfir í hálfleik Njarðvíkingar eru enn yfir 46-40 gegn KR þegar flautað hefur verið til hálfleiks í öðrum leik liðanna í úrslitum Iceland Express deildarinnar. Gestirnir hafa verið skrefinu á undan allan leikinn og er Jóhann Ólafsson þeirra atkvæðamestur með 15 stig og Jeb Ivey 10, en hjá KR er Tyson Patterson með 11 stig og Pálmi Sigurgeirsson með 10. Leikurinn er í beinni á Sýn. 12.4.2007 20:51
Njarðvík leiðir eftir fyrsta leikhluta Njarðvíkingar hafa yfir 30-26 gegn KR þegar einum leikhluta er lokið í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express deildarinnar. Leikurinn hefur verið sveiflukenndur og mjög fjörugur í byrjun en gestirnir verið skrefinu á undan. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 12.4.2007 20:23
Sevilla leiðir í hálfleik Sevilla hefur yfir 2-0 gegn Tottenham þegar flautað hefur verið til leikhlés í síðari leikjunum í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Sevilla komst í 2-0 eftir aðeins sjö mínútur með sjálfsmarki og marki frá Freddie Kanoute og nú þurfa heimamenn fjögur mörk í síðari hálfleik til að komast í undanúrslitin. Leikurinn er í beinni á Sýn Extra. 12.4.2007 19:40
Sevilla komst í 2-0 eftir sjö mínútur Sevilla er komið með annan fótinn í undanúrslit Evrópukeppni félagsliða eftir sannkallaða draumabyrjun í síðari leiknum gegn Tottenham á White Hart Lane. Spænska liðið komst í 2-0 eftir aðeins sjö mínútna leik og leiðir 4-1 samanlagt. Fyrra markið var sjálfsmark á þriðju mínútu en fyrrum leikmaður Tottenham, Freddie Kanoute, skoraði það síðara. 12.4.2007 19:02
Styttist í Klaustur Nú fer að styttast í stærstu endurkeppni ársins "Klaustur Offroad Challange". Nú þegar rúmur einn og hálfur mánuður er til stefnu eru 350 manns skráðir til leiks, en búist er við metskráningu í ár. Öll gistiaðstaða fyrir utan tjaldsvæðin er uppbókuð fyrir keppnishelgina en búist er við hátt í 5000 manns á svæðið. Ekki hefur verið gefið upp hvort brautin verði sú sama og í fyrra en miklar líkur eru á því að hún breytist eitthvað. 12.4.2007 09:41
Frækinn sigur AC Milan í Munchen AC Milan tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu með fræknum 2-0 útisigri á Bayern Munchen. Ítalska liðið fer því áfram samtals 4-2 og mætir Manchester United í næstu umferð. Liverpool vann 1-0 sigur á PSV Eindhoven og 4-0 samanlagt og mætir Chelsea í undanúrslitum. 11.4.2007 20:33
Ásthildur byrjar vel Landsliðskonan Ásthildur Helgadóttir var aðeins sex mínútur að stimpla sig inn með liði sínu Malmö í sænska boltanum í kvöld þegar hún skoraði sigurmark liðsins í 1-0 sigri á Balinge. Þetta var fyrsti leikur liðsins á tímabilinu og Ásthildur heldur uppteknum hætti frá síðustu leiktíð. 11.4.2007 23:21
Ancelotti: United er sterkara núna Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, segist hlakka mikið til að mæta Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildarinnar, þar sem ítalska liðið verður nú í fjórða sinn á síðustu fimm árum. Ancelotti segir Manchester United mun sterkara nú en fyrir tveimur árum, þegar Milan vann báða leiki liðanna. 11.4.2007 23:08
Sálfræðistríðið hafið hjá Benitez og Mourinho Í kvöld varð ljóst að það verða Liverpool og Chelsea sem mætast í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Liðin háðu eftirminnilegt einvígi í keppninni fyrir tveimur árum og segja má að sálfræðistríðið fyrir undanúrslitin hafi byrjað strax í dag þegar Benitez skaut föstum skotum að kollega sínum. 11.4.2007 22:21
Kiel valtaði yfir Dusseldorf Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Topplið Kiel valtaði yfir Dusseldorf 39-17, Nordhorn vann góðan sigur á Flensburg 29-25, Kronau/Östringen lagði Melsungen 28-22 og Hamburg lagði Magdeburg 33-26. 11.4.2007 22:12
HK á toppnum Þrír leikir fóru fram í DHL deild karla í handbolta í kvöld. HK er eitt á toppnum eftir sigur á ÍR 35-28 á útivelli en ÍR er í botnsæti deildarinnar. Haukar unnu mikilvægan sigur á Stjörnunni 29-21 og fengu mikilvæg stig í botnbaráttunni. Staða Fylkis versnaði til muna eftir að liðið steinlá 31-22 fyrir Akureyri fyrir Norðan. 11.4.2007 22:00
Crouch: Draumaeinvígi í undanúrslitunum Peter Crouch skoraði sigurmark Liverpool gegn PSV í síðari leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld og skaut sína menn því auðveldlega í undanúrslitin með samanlögðum 4-0 sigri á hollenska liðinu. Crouch hélt með Chelsea á sínum yngri árum og segir einvígið við liðið í undanúrslitum Meistaradeildarinnar verða mjög sérstakt. 11.4.2007 21:50
Hitzfeld: Milan tók okkur í kennslustund Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, viðurkenndi að AC Milan hefði einfaldlega verið betri aðilinn í leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Milan sigraði 2-0 í Munchen og mætir Manchester United í undanúrslitum. 11.4.2007 21:45
Minnesota - Dallas í beinni í kvöld Leikur Minnesota Timberwolves og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Um klukkan 21 í kvöld er svo á dagskrá stöðvarinnar klassískur leikur Lakers og Rockets frá því fyrir um 20 árum síðan þar sem Pétur Guðmundsson kemur við sögu í liði Lakers. Óhætt er að mæla með þessum leik, sem bauð upp á dramatík, góða spilamennsku og áflog. 11.4.2007 21:08
Aðstoðarþjáfari Keflavíkur kærður fyrir olnbogaskot Dómararanir í kvennaleik Hauka og Keflavíkur í körfuboltanum í gærkvöldi hafa kært aðstoðarþjálfara Keflavíkur til aganefndar KKÍ fyrir að gefa Helenu Sverrisdóttur leikmanni Hauka olnbogaskot í bringuna skömmu eftir að leikurinn var flautaður af. 11.4.2007 18:15
Gætið ykkar á leikaranum Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, hefur varað leikmenn sína sérstaklega við því að mynda óþarfa snertingu við ítalska framherjann Filippo Inzaghi í síðari leik liðanna í Munchen í kvöld. Hann kallar Inzaghi leikara og segir að hann muni nota hvert mögulegt tækifæri til að fiska aukaspyrnur á þýsku varnarmennina. 11.4.2007 16:52
Magnús Ver fór á kostum í bjórauglýsingu (myndband) Magnús Ver Magnússon, fyrrum fjórfaldur sterkasti maður heims, sýndi lipra takta þegar hann lék í auglýsingu fyrir ameríska bjórinn Coors. Myndband af auglýsingunni er nú að finna á netinu og hægt er að horfa á það með því að smella á hlekk hér í fréttinni. 11.4.2007 16:22
Brasilía mætir Englandi á Wembley Nú hefur verið staðfest formlega að fyrsti A-landsleikur Englendinga á nýja Wembley leikvangnum verði æfingaleikur við Brasilíumenn þann 1. júlí næstkomandi. Leikurinn verður liður í undirbúningi liðsins fyrir leik við Eista í undankeppni EM fimm dögum síðar. Enska liðið hefur ekki spilað landsleik á Wembley í sjö ár. 11.4.2007 14:57
Michael Owen á skotskónum Framherjinn Michael Owen skoraði mark í gær þegar hann spilaði sinn fyrsta æfingaleik fyrir Newcastle eftir langvarandi meiðsli. Newcastle lék þá vináttuleik við skoska liðið Gretna og spilaði Owen 70 mínútur í leiknum. Shola Ameobi sneri einnig aftur eftir meisli. Stefnt er á að Owen snúi jafnvel aftur með aðalliðinu þegar það mætir Chelsea þann 22. apríl. 11.4.2007 14:54
Mourinho hefur áhyggjur af framtíðinni Jose Mourinho stjóri Chelsea lét í það skína eftir sigurinn á Valencia í gær að hann óttaðist um starfsöryggi sitt hjá félaginu. "Ég vil vera áfram með Chelsea á Englandi en stundum fær maður ekki það sem maður óskar sér. Ef ég á mér hinsvegar ekki framtíð hjá félaginu, verð ég að leita annað," sagði Mourinho í samtali við blaðamenn eftir sigurinn í gær. 11.4.2007 14:47
Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Körfubolti