Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Berger heillaði O´Neill upp úr skónum Martin O´Neill, stjóri Aston Villa, hefur viðurkennt að frammistaða Tékkans Patrik Berger í viðureign liðsins gegn Blackburn á laugardag hafi heillað hann upp úr skónum. Framtíð Berger hjá Villa hefur verið í mikilli óvissu en það má með sanni segja að hann hafi nýtt tækifærið sem hann fékk í byrjunarliðinu um helgina til fullustu. 9.4.2007 13:00
Mourinho: Pressan er á Man. Utd. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur aðvarað kollega sinn hjá Manchester United, Sir Alex Ferguson, með því að segja að nú sé pressan öll á þeim rauðklæddu. Segja má að Mourinho sé formlega búinn að hefja sálfræðistríðið sem verður væntanlega í gangi næstu vikurnar. 9.4.2007 11:58
Leikurinn gegn Chelsea skiptir miklu máli Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að það geti vel farið svo að leikur sinna manna gegn Chelsea á Stamford Bridge í byrjun maí geti farið langt með að ráða úrslitum ensku úrvalsdeildinnar í ár. Aðeins þremur stigum munar á liðunum í dag en Man. Utd. hefur mun betri markatölu, sem getur skipt miklu máli þegar uppi er staðið. 9.4.2007 11:51
Detroit í góðri stöðu í Austurdeildinni Detroit vantar aðeins einn sigurleik til þess að tryggja sér heimavallarréttinn í úrslitakeppni Austurdeildar NBA-deildarinnar og þarf liðið nú aðeins einn sigur til viðbótar til að ná þeim áfanga. Liðið vann mikilvægan sigur á Cleveland í nótt, 87-82, þar sem góður varnarleikur á LeBron James lagði grunninn að úrslitunum. 9.4.2007 11:05
Zach Johnson sigraði óvænt Zach Johnson, 31 árs Bandaríkjamaður, bar sigur úr býtum á Mastersmótinu í golfi sem lauk í Georgíu í Bandaríkjunum í gær. Johnson lauk keppni á samtals einu höggi yfir pari en næstu menn, Tiger Woods, Rory Sabbatini og Retief Goosen, léku samtals á þremur höggum yfir pari. Þetta er fyrsti sigur Johnson á stórmóti. 9.4.2007 10:44
Maradona er alkohólisti Goðsögnin Diego Armando Maradona er alkohólisti og þarf á stífri meðferð að halda. Þetta segir yfirlæknir sjúkrahússins sem fyrrum argentínski landsliðsfyrirliðinn hefur dvalið á síðustu 10 daga. Maradona mun líklega útskrifast af sjúkrahúsinu í vikunni eftir að hafa verið lagður inn vegna óhóflegrar áfengisdrykkju. 8.4.2007 21:19
Tevez vill gera allt fyrir stuðningsmennina Argentínski framherjinn Carlos Tevez hefur gefið sterklega í skyn að hann vilji vera áfram í herbúðum West Ham á næsta tímabili. Tevez segir stuðningsmenn West Ham vera engum líkir og að þeirra vegna vilji hann vera hjá félaginu í mörg ár til viðbótar. 8.4.2007 21:03
Allt í járnum í spænsku úrvalsdeildinni Mikil spenna er hlaupin í spænsku úrvalsdeildina í knattspyrnu eftir að Real Madrid sigraði Osasuna í kvöld á sama tíma og Sevilla náði aðeins markalausu jafntefli gegn Racing Santander á heimavelli sínum. Barcelona er því enn á toppnum, með eins stigs forskot á Sevilla, en á tvö stig á Real Madrid. 8.4.2007 20:38
Ferguson: Chelsea mun misstíga sig Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur litlar áhyggjur af minnkandi forskoti sinna manna á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, en eftir tap liðsins gegn Portsmouth í gær munar aðeins þremur stigum á Man. Utd. og Chelsea. Ferguson býst fastlega við því að Chelsea eigi eftir að tapa stigum í þeim leikjum sem eftir eru. 8.4.2007 16:15
Beckham segir Ronaldo að vera áfram hjá Man. Utd. David Beckham hefur ráðlagt portúgalska vængmanninum Cristiano Ronaldo að fara ekki frá Manchester United þar sem hann sé með knattspyrnustjóra þar sem kann best allra að höndla leikmenn sem hafa lent í mótlæti, líkt og því sem Ronaldo varð fyrir eftir leik Englands og Portúgals á HM í sumar. 8.4.2007 14:45
Tiger kominn í hóp efstu manna Miklar sviptingar urðu á þriðja degi Masters-mótsins í golfi í gær og hefur Ástralinn Stuart Appleby nú náð forystu í mótinu. Appleby hefur eins höggs forystu á Justin Rose og Tiger Woods, en sá síðastnefndi lék sinn besta hring til þessa í gær. Enginn kylfingur er undir pari vallarins. 8.4.2007 13:14
Dallas færist nær deildarmeistaratitlinum Dallas þarf nú aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér sigur í deildarkeppni NBA en eftir að hafa sigrað Portland í nótt, 86-74. Dallas hefur nú unnið 63 leiki en tapað 13 það sem af er leiktíð. Vince Carter hjá New Jersey og Eddy Curry hjá New York voru menn næturinnar í NBA-deildinni. 8.4.2007 12:47
Ísland hafnaði í fjórða sæti í Frakklandi Íslendingar höfnuðu í fjórða og síðasta sæti á æfingamótinu í Frakklandi eftir að hafa gert jafntefli við Túnisa í lokaleik sínum í dag, 30-30. Túnisar skoruðu jöfnunarmarkið úr hraðaupphlapi þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka eftir. Túnisar höfðu betri markatölu en Íslendingar og hafna því í þriðja sæti. 8.4.2007 12:24
Tvöfaldur sigur McLaren Heimsmeistarinn Fernando Alonso sigraði í formúlu 1 kappakstrinum sem fram fór í Malasíu í morgun með miklum yfirburðum en félagi hans hjá McLaren, hinn breski Lewis Hamilton, stal senunni með frábærum akstri. Alonso og Hamilton tóku fram úr Felipe Massa strax í fyrstu beygju, en sá brasilíski var á ráspól, og stungu keppinautana frá Ferrari hreinlega af. 8.4.2007 12:03
Eiður kom inn á í tapleik Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 25 mínúturnar fyrir Barcelona sem tapaði fyrir Real Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Zaragoza vann 1-0 en það var argentínski framherjinn Diego Milito sem skoraði eina mark leiksins. Barcelona er áfram með tveggja stiga forystu á Sevilla á toppi deildarinnar en síðarnefnda liðið á leik til góða. 7.4.2007 19:48
Neill: Eggert seldi mér hugsjón sína Lucas Neill, hinn ástralski varnarmaður West Ham, segir að ef hugsjón og áætlanir Eggert Magnússonar með West Ham gangi eftir muni ekki líða á löngu þar til stórliðin fjögur í Englandi munu fá einn keppinaut til viðbótar – West Ham. 7.4.2007 19:45
Man. Utd. tapaði óvænt fyrir Portsmouth Manchester United mistókst nú síðdegis að auka forystu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í sex stig á ný en þá tapaði liðið óvænt fyrir Portsmouth á útivelli, 2-1. Aðeins þremur stigum munar nú á Man. Utd. og Chelsea og bendir margt til þess að um hálfgerðan úrslitaleik um titilinn verði að ræða þegar liðin mætast innbyrðis í næsta mánuði. 7.4.2007 19:31
Benitez hafði litla trú á Finnan í fyrstu Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur viðurkennt að hann hafði stórar efasemdir um að írski bakvörðurinn Steve Finnan væri nægilega góður fyrir Liverpool þegar hann tók við liðinu fyrir tæpum þremur árum. Benitez segir Finnan hafa sýnt gríðarlegar framfarir síðan þá og telur hann nú lykilmann í sínu liði. 7.4.2007 19:15
Haukastúlkur komnar í góða stöðu gegn Keflavík Haukastúlkur komust í dag í 2-0 í einvíginu við Keflavík um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta en þá unnu þær sannfærandi sigur á útivelli, 115-101. Haukastúlkur eru því komnar með afar vænlega stöðu í rimmunni og geta tryggt sér titilinn með sigri í leik liðanna í Hafnarfirði á þriðjudag. 7.4.2007 18:17
Wenger: Þetta er ótrúlegt Arsene Wenger, stjóri Arsenal, átti bágt með að skilja hvernig lærisveinar hans fóru að því að tapa á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag eftir að hafa haft fádæma yfirburði nánast allan leikinn. Wenger segir úrslitin “ótrúleg” en Alan Curbishley, stjóri Charlton, hrósaði varnarleik sinna manna í hástert. 7.4.2007 17:28
Trezeguet vill vera áfram hjá Juve Franski framherjinn David Trezeguet hefur lýst yfir ánægju sinni í herbúðum Juventus á Ítalíu og vill helst af öllu vera áfram hjá liðinu á næsta tímabili. Trezeguet hefur þannig skipt um skoðun frá því í haust, en eftir að Juve var dæmt til að spila í B-deildinni á Ítalíu í ár vildi sá franski ólmur fara burt frá félaginu. 7.4.2007 17:00
Theódór Elmar kom ekkert við sögu Theódór Elmar Bjarnason, unglingalandsliðsmaður í knattspyrnu, sat á varamannabekknum hjá Celtic allan leiktímann og kom ekkert við sögu þegar liðið sigraði Motherwell í skosku úrvalsdeildinni í dag. 7.4.2007 16:45
West Ham lagði Arsenal á útivelli Íslendingaliðið West Ham vann frækinn og jafnframt gríðarlega mikilvægan útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag og er liðið nú aðeins tveimur stigum frá því að komast úr fallsæti. Brynjar Björn Gunnarsson skoraði mark Reading í 2-1 tapi liðsins gegn Liverpool en hann og Ívar Ingimarsson léku báðir allan leikinn fyrir lið sitt í dag. 7.4.2007 15:56
Átta marka tap gegn Frökkum Frakkar sigruðu Íslendinga með átta marka mun, 35-27, á æfingamótinu í handbolta sem fram fer þar í landi yfir páskahelgina. Frakkar höfðu tveggja marka forystu í hálfleik en í síðari hálfleik bætti liðið smám saman við forskotið og gáfu Íslendingum fá færi á sér. 7.4.2007 15:26
Mourinho ánægður með sigurgöngu Chelsea Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er afar ánægður með hvernig lærisveinar sínir eru að spila um þessar mundir en með sigrinum á Tottenham í dag heldur liðið áfram að pressa á Man. Utd. í toppbaráttu úrvalsdeildarinnar. Mourinho segir Man. Utd. heppið að hafa sleppt við heimsókn til Stamford Bridge um næstu helgi. 7.4.2007 14:49
Ísland tveimur mörkum undir í hálfleik Íslendingar eru undir, 16-14, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Frökkum á æfingamótinu sem fram fer þar í landi um páskana. Leikurinn hefur verið nokkuð sveiflukenndur en heilt yfir er íslenska liðið að spila ágætlega. 7.4.2007 14:38
Ferguson: Örlögin eru í okkar höndum Alex Ferguson var á heimspekilegu nótunum á blaðamannafundi fyrir leik Man. Utd. og Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni í dag og sagði að örlög liðsins í ár væru í höndum síns og leikmanna liðsins. Ferguson fullyrðir að ef leikmenn náði að forðast það að fara á taugum á lokasprettinum sé meistaratitilinn þeirra. 7.4.2007 14:30
Munurinn kominn niður í þrjú stig Aðeins þremur stigum munar á Man. Utd. og Chelsea í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, en síðarnefnda liðið bar sigurorð af grönnum sínum og erkifjendum í Tottenham í dag, 1-0. Það var portúgalski varnarmaðurinn Richardo Carvalho sem skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik. Man. Utd. á leik til góða gegn Portsmouth síðar í dag. 7.4.2007 13:33
Curbishley vill halda Tevez Knattspyrnustjóri West Ham, Alan Curbishley, hefur greint frá því að hann vilji halda argentínska sóknarmanninum Carlos Tevez í herbúðum liðsins á næsta ári, jafnvel þó að West Ham falli úr úrvalsdeildinni. Eftir erfiða byrjun hefur Tevez verið að spila mjög vel í síðustu leikjum liðsins. 7.4.2007 13:00
Massa verður á ráspól Felipe Massa hjá Ferrari verður á ráspól í Malasíukappakstrinum í formúlu 1 sem fram fer á morgun en brasilíski ökuþórinn reyndist hraðskreiðastur í tímatökunum nú í hádeginu. Heimsmeistarinn Fernando Alonso frá Spáni hafnaði í öðru sæti en Kimi Raikönnen, sigurvegari fyrsta mótsins í Ástralíu í síðasta mánuði, ræsir þriðji á morgun. 7.4.2007 12:10
Ribery má fara frá Marseille Franski landsliðsmaðurinn Franck Ribery hefur greint frá því að hann hafi náð samkomulagi við stjórnarformann Marseille um að hann megi yfirgefa liðið í sumar. Talið er að fjölmörg lið munu beina sjónum sínum að Ribery í ljósi þessara yfirlýsinga leikmannsins, til dæmis Arsenal, Manchester United, Bayern Munchen og Real Madrid. 7.4.2007 12:00
Toronto efstir í Atlantshafsriðlinum Toronto Raptors tryggði sér í nótt sigur í Atlantshafsriðli NBA-deildarinnar í körfuknattleik með því að sigra Philadelphia, 94-85. Denver kom í veg fyrir að Dallas gæti unnið 70 leiki á tímabilinu með því að leggja lærisveina Avery Johnson af velli í nótt og Kobe Bryant var í miklu stuði gegn Seattle. 7.4.2007 10:39
Wetterich heldur forystu á Masters Öðrum keppnisdegi á Mastersmótinu er lokið og hefur það komið mörgum á óvart að Bandaríkjamaðurinn Brett Wetterich skuli enn vera í forystu. Wetterich deilir toppsætinu með Tim Clark en báðir eru þeir á tveimur höggum undir pari þegar öðrum keppnisdegi er lokið á Augusta National vellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. 7.4.2007 10:16
Everton valtaði yfir Fulham Everton lögðu Fulham sannfærandi á Goodison Park í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni, 4-1. Carlos Bocanegra kom Fulham yfir snemma leiks en það varð ekki til annars en að kveikja duglega í Evertonmönnum sem settu þrjú mörk áður en hálfleikurinn var úti. Það voru Lee Carsley, Alan Stubbs og James Vaughan sem skoruðu mörkin. 6.4.2007 20:29
Charlton ekki lengur í fallsæti Charlton lyftu sér úr fallsæti með markalausu jafntefli gegn Manchester City í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var fátt um fína drætti í leiknum sem einkenndist af varnarleik á báða bóga. Hermann Hreiðarsson lék allan tímann í vörn Charlton. Charlton eru fyrir vikið með jafn mörg stig og Sheffield United og sama markamun en hafa skorað meira og eru því í sautjánda sæti en Sheffield í því átjánda. 6.4.2007 18:35
Íslendingar töpuðu fyrir Pólverjum í handboltalandsleik Íslendingar töpuðu fyrir Pólverjum 36-32 í landsleik í handbolta í Frakklandi í dag. Þetta var fyrsti leikur á móti sem haldið er þar í landi nú um páskana. Íslendingar mæta á næstu dögum Frökkum og Túnisum á mótinu. Pólverjar voru með forystu allan leikinn og var sigur þeirra aldrei í hættu. Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson voru markahæstir Íslendinga með 8 mörk hvor, Ragnar Óskarsson, Vignir Svavarsson og Bjarni Fritzson skoruðu þrjú mörk hver. 6.4.2007 18:22
Rose og Wetterich í forystu eftir fyrsta dag Fyrsta keppnisdegi er nú lokið á Masters mótinu sem fram fer á Augusta National vellinum í Georgíu í Bandaríkjunum og eru tveir kylfingar í efsta sæti. Englendingurinn Justin Rose og Bandaríkjamaðurinn Brett Wetterich léku manna best í dag og komu inn á þremur undir pari. Rose fékk par á síðustu fjórum holunum en Wetterich fékk skolla, tvö pör og fugl á síðustu fjórum. 6.4.2007 11:30
Miami unnu Cleveland og San Antonio unnu Phoenix Tveir risaslagir voru í NBA-deildinni í nótt. Meistarar Miami Heat mættu LeBron James og félögum í Cleveland og höfðu sigur, 94-90 í framlengdum leik. Miami léku án Dwayne Wade og munar heldur betur um minna. 6.4.2007 11:05
Terry segir að Chelsea geti enn unnið titilinn John Terry, fyrirliði Englandsmeistara Chelsea er sannfærður um að liðið eigi enn möguleika á að ná Manchester United og standa uppi sem Englandsmeistarar þriðja árið í röð. Chelsea er sem stendur sex stigum á eftir Manchester. Chelsesa mætir Tottenham á morgun en Tottenham hafa verið á mikilli siglingu undanfarið. 6.4.2007 10:07
Njarðvíkingar mæta KR í úrslitum Það verða Njarðvík og KR sem leika til úrslita í Iceland Express deild karla í körfubolta. Njarðvíkingar unnu í dag sannfærandi sigur á grönnum sínum í Grindavík 93-70 í oddaleik liðanna í Njarðvík. 5.4.2007 21:27
KR-ingar í úrslit KR-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Iceland Express deildarinnar í körfubolta í kvöld með ævintýralegum sigri á Snæfelli 76-74 í framlengdum oddaleik í vesturbænum. Darri Hilmarsson skoraði sigurkörfu KR þegar nokkrar sekúndur voru eftir af framlengingunni. Brynjar Björnsson hafði áður skotið KR í framlengingu með þriggja stiga körfu í lokin. Snæfell var með forystu lengst af í leiknum í dag en heimamenn stálu sigrinum í lokin. 5.4.2007 21:14
Einar Árni: Við Benni ætluðum að mætast í úrslitum Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var ánægður með leik sinna manna í kvöld þegar þeir tryggðu sér sæti í úrslitum Iceland Express deildarinnar með sigri á Grindavík í oddaleik. Hann segir Njarðvík og KR bestu lið landsins í sínum huga og reiknar með spennandi einvígi. 5.4.2007 22:35
Benedikt Guðmunds: Ég er gjörsamlega búinn Benedikt Guðmundsson þjálfari KR var að vonum uppgefinn eftir rafmagnaðan spennuleik KR og Snæfells í kvöld þar sem vesturbæingar tryggðu sér sæti í úrslitum eftir framlengdan oddaleik. Benedikt sagði að hjarta leikmanna og karakter hafi tryggt liðinu sigur öðru fremur. 5.4.2007 22:21
Sigurður Þorvaldsson: Ég er orðlaus "Þetta var alveg skelfilegt. Ég er bara orðlaus. Við áttum fullan séns í framlengingunni og skoruðum fyrstu körfuna, en við vorum að taka slæmar ákvarðanir í lokin. Menn voru bara ekkert að spila saman og við vorum ekki að gera það sem við áttum að vera að gera. Þetta eru gríðarleg vonbrigði og ég er bara orðlaus," sagði Sigurður Þorvaldsson, leikmaður Snæfells í viðtali á Sýn eftir leikinn í kvöld 5.4.2007 22:11
Brynjar Björnsson: Losers go home Brynjar Björnsson var hetja KR-inga í kvöld þegar hann tryggði sínum mönnum framlengingu gegn Snæfelli í oddaleik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Brynjar spilaði meiddur í kvöld og var því mjög ánægður með niðurstöðuna. 5.4.2007 22:01