Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alfreð tilkynnir landsliðshópinn Enginn leikmaður datt úr landsliðshóp Alfreðs Gíslasonar sem fer til Þýskalands og tekur þátt í Heimsmeistaramótinu í handbolta. Alfreð kaus að fara með 17 leikmenn á mótið en aðeins 16 þeirra mega taka þátt í undanriðlinum. 15.1.2007 19:25
Capello biðst afsökunar á ósiðlegu athæfi Fabio Capello, stjóri Real Madrid, hefur beðist afsökunar á að hafa sýnt tveimur áhorfendum fingurinn í viðureign Real Madrid og Zaragoza í gærkvöldi. Capello hefur verið undir miklu álagi að undanförnu og svo virðist sem að það sé farið að sjá á sálinni á ítalska stjóranum. 15.1.2007 17:30
Ekkert miðað við Valencia Rafael Benitez segir að pressan sem hann sé undir sem knattspyrnustjóri Liverpool sé ekkert miðað við þá sem hann þurfti að þola þegar hann var við stjórnvölinn hjá Valencia á Spáni. Benitez hefur verið sagður valtur í sessi hjá Liverpool eftir tvö slæm töp gegn Arsenal fyrr í mánuðinum. 15.1.2007 16:45
Vopnahlé í herbúðum Chelsea Nokkur ensku dagblaðanna segja frá því í morgun að Jose Mourinho og æðstu stjórnarmenn Chelsea hafi komist að samkomulagi um vopnahlé – að minnsta kosti fram á sumar. Lausnin felst í því að gefa Mourinho einhvern pening til að kaupa varnarmann til liðsins í janúar. 15.1.2007 16:00
Kawasaki / Pro circuit tók þrjú efstu sætin í Phoenix Kawasaki / Pro Circuit "lites" liðið er vel mannað þetta árið. Það sannaðist um helgina þegar liðið skellti sér í þrjú efstu sætin í minni flokknum í Supercross keppninni í Phoenix. Þetta hefur ekki gerst áður fyrir Team Kawasaki og eru menn því mjög sáttir í þeim herbúðum. 15.1.2007 15:24
Beckham tók rétta ákvörðun Nick Webster, helsti knattspyrnusérfræðingur FOX-íþróttastöðvarinnar í Bandaríkjunum, skrifar áhugaverðan pistil í dag um komu David Beckham til landsins. Þvert á skoðanir flestra aðra telur Webster að Beckham hafi tekið hárrétta ákvörðun. Og rökin sem hann gefur fyrir því eru býsna góð. 15.1.2007 14:51
Massa hlakkar til að keyra nýja bílinn Felipe Massa, annar ökumaður Ferrari-liðsins í formúlu 1 kappakstrinum á komandi tímabili, er mjög ánægður með hinn nýja bíl Ferrari sem frumsýndur var í gær. 15.1.2007 14:15
Ljubicic tapaði í fyrstu umferð Tennisspilarinn Ivan Ljubicic datt óvænt úr keppni í fyrstu umferð Opna ástralska meistaramótsins í tennis í morgun þegar hann beið í lægri hlut gegn Bandaríkjamanninum Mardy Fish í fjórum settum. Ljubicic var í fjórða sæti á styrkleikalista mótsins. Roger Federer hóf titilvörn sína með auðveldum sigri. 15.1.2007 13:45
Viðræður milli Real og LA Galaxy í fullum gangi Viðræður hafa staðið yfir í morgun og alla helgina á milli Real Madrid og LA Galaxy um að David Beckham fái að yfirgefa herbúðir spænska liðsins strax í þessari viku og ganga til liðs við bandaríska liðið. 15.1.2007 13:00
Jordan: Schumacher verður goðsögn Eddie Jordan, stofnandi og æðsti yfirmaður Jordan-liðsins í formúlu 1, segir að orðspor Michael Schumcaher í íþróttinni muni aukast til muna á næstum misserum nú þegar hann er hættur að aka. Jordan, sem gaf Schumacher fyrst tækifæri í formúlu 1 árið 1991, telur að Schumacher verði orðinn goðsögn innan fárra ára. 15.1.2007 12:45
Dallas með sigurkörfu á síðustu sekúndu Josh Howard tryggði Dallas sigur á Toronto í NBA-deildinni í nótt með því að skora sigurkörfuna þegar innan við sekúnda var til leiksloka. Dallas náði að vinna upp 16 stiga forystu Toronto á tiltölulega skömmum tíma og tryggja sér þannig sinn 17. sigur í síðustu 18 leikjum. 15.1.2007 12:13
Sharapova stefnir á sigur Maria Sharapova segist verða var við aukna pressu í sinn garð eftir að hún var sett í efsta sæti í styrkleikaröðun kvenna fyrir Opna ástralska meistaramótið í tennis. Komist Sharapova í undanúrslit mótsins mun hún hreppa toppsætið á heimslistanum í tennis. 15.1.2007 12:00
Fer Raul til Liverpool? Rafael Benitez reynir nú af öllum krafti að ná samkomulagi við Real Madrid um kaup á spænska gulldrengnum Raul til Liverpool. Spænskir fjölmiðlar greina frá þessu í morgun og segjast hafa fyrir því öruggar heimildir. Real Madrid hefur ekkert látið hafa eftir sér um málið. 15.1.2007 11:24
David Vuillemin óskaddaður eftir slæma byltu í Pheonix Frakkinn og MDK/Honda liðsmaðurinn David Vuillemin átti feikna byltu í Pheonix nú um helgina þegar keppt var í AMA Supercross. Keppnin var stöðvuð eftir tvo hringi og var óttast að David væri stórslasaður. Betur fór en á horfðist og kom í ljós við nánari skoðun á næsta sjúkrahúsi að allt var óbrotið og hann var aðeins blár og marinn. 15.1.2007 10:33
Beckham horfði á leikinn með mömmu sinni Mark frá Ruud van Nistelrooy var nóg til að tryggja Real Madrid öll þrjú stigin sem í boði voru í viðureign liðsins gegn Real Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Real er nú komið með 35 stig líkt og Barcelona og er í 2.-3. sæti deildarinnar. David Beckham horfði á leikinn úr stúkunni með mömmu sína sér við hlið. 14.1.2007 21:55
Ronaldo fer frá Real Madrid Ramon Calderon, forseti Real Madrid, hefur viðurkennt að brasilíski framherjinn Ronaldo sé á förum frá félaginu og það líklega nú í janúar. Newcastle er sagt líklegast til að klófesta markaskorarann. 14.1.2007 21:30
Óvænt tap Sevilla á heimavelli Topplið Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni tapaði óvænt fyrir Mallorca á heimavelli sínum í dag og mistókst þannig að auka við forskotið sem liðið hefur á Barcelona. Valencia er komið upp í þriðja sæti eftir sigur á Levante. 14.1.2007 20:31
Beckham til LA í þessum mánuði? Ekki er loku fyrir það skotið að David Beckham fari fyrr til Bandaríkjanna en áætlað er en líklegt þykir að forráðamenn LA Galaxy, sem Beckham samdi við fyrir helgi, reyni að kaupa upp samning hans við Real en sem kunnugt er mun Beckham ekki spila aftur fyrir spænska stórveldið. 14.1.2007 20:00
Ralf er ekki að hætta Ökuþórinn Ralf Schumacher segir að ekkert sé til í þeim fregnum að hann hyggist hætta í formúlu eftir að núverandi samningur hans við Toyota rennur út eftir næsta tímabil. Schumacher hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning við Toyota og við það fóru sögusagnirnar af stað. 14.1.2007 19:30
Tekur Lippi við af Mourinho? Forráðamenn Chelsea eru sagðir hafa viðrað þá hugmynd við ítalska þjálfarann Marcello Lippi, sá er stýrði ítalska landsliðið til sigurs á HM í Þýskalandi í sumar, um að að taka við af Jose Mourinho – fari svo að portúgalski stjórinn yfirgefi herbúðir Englandsmeistaranna eftir tímabilið. 14.1.2007 18:45
De Villiers eykur forskot sitt Giniel de Villiers frá Suður-Afríku bar sigur úr býtum í 8. dagleið í Dakar-rallinu sem fram fór í dag og hann nú kominn með yfir hálftíma forskot á næsta mann í kappakstrinum, Stephane Peterhansel frá Frakklandi. 14.1.2007 18:14
Newcastle vann Tottenham í frábærum leik Newcastle sýndi mikinn karakter í leik sínum gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag og sigraði 3-2 eftir að hafa hafa lent undir í síðari hálfleik. Leikurinn var frábær skemmtun og buðu bæði lið upp á bullandi sóknarleik. Marktilraunir í leiknum voru alls 38 talsins, þar af áttu heimamenn 26 þeirra. 14.1.2007 17:57
Tveggja marka sigur á Tékkum Íslendingar höfðu betur gegn Tékkum í æfingaleik þjóðanna í handbolta sem fram fór í Laugardalshöllinni í dag. Lokatölur urðu 34-32 og náðu íslensku strákarnir þar með að hefna fyrir tapið fyrir Tékkum í gær. 14.1.2007 17:37
Federer segir Nadal að breyta um stíl Svissneski tennisspilarinn Roger Federer telur að sinn helsti keppinautur, Spánverjinn Rafael Nadal, þurfi að breyta leikstíl sínum til að bæta sig sem tennisspilari í nánustu framtíð. Federer lætur ummælin falla aðeins degi áður en Opna ástralska meistaramótið í tennis hefst, þar sem flestir spá því að Nadal geti helst veitt þeim svissneska einhverja keppni. 14.1.2007 17:04
Benitez hafnaði Real Madrid í sumar Rafael Benitez hafnaði boði um að gerast þjálfari Real Madrid síðasta sumar en frá þessu greindi stjórnarformaður Liverpool, Rick Parry, í morgun. Parry segir að Benitez hafi hugsað málið vandlega en að lokum ákveðið að halda áfram því starfi sem hann hafði byrjað á Anfield. 14.1.2007 17:03
Ísland með forystu í hálfleik Ísland hefur fjögurra marka forystu, 18-14, gegn Tékkum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í æfingaleik liðanna í Laugardalshöllinni. Íslenska liðið er að spila mun betur en það gerði í viðureign liðanna í gær. 14.1.2007 16:52
Stallone stal senunni Bandaríski kvikmyndaleikarinn Silvester Stallone stal senunni á Goodison Park í dag þar sem leikur Everton og Reading fór fram. Stallone var sérstakur heiðursgestur Bill Kenwright, stjórnarformanns Everton á leiknum, og var leikarinn hylltur af áhorfendum á vellinum fyrir leikinn. Stallone fagnaði ógurlega þegar Andy Johnson skoraði jöfnunarmark Everton þegar skammt var eftir. 14.1.2007 16:02
Jafnt hjá Everton og Reading Evrton og Reading skildu jöfn, 1-1, í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni sem var að ljúka rétt í þessu. Það var Andy Johnson sem jafnaði leikinn fyrir heimamenn í Everton á 81. mínútu eftir mistök Marcus Hahnemann í marki gestanna. 14.1.2007 15:41
Eggert býður í Ashley Young Allar líkur eru taldar á því að Watford samþykki tilboð upp á átta milljónir punda frá Eggert Magnússyni í framherjann Ashley Young. Watford hafði áður hafnað boði West Ham upp á sjö milljónir punda en staðfesti hefur verið að Eggert og félagar lögðu fram nýtt og endurbætt tilboð í gær. 14.1.2007 15:07
Ekki spurning hvort heldur hvenær Að sögn Rick Parry, stjórnarformanns Liverpool, er það ekki lengur spurning um hvort heldur hvenær auðkýfingarnir frá Dubai gangi frá kaupum á meirihluta í félaginu. Parry segir að verið að sé að ganga frá smáatriðum í kaupsamningum og að eigendaskiptin gætu gengið í gegn innan fárra daga. 14.1.2007 14:50
Bullard á góðum batavegi Jimmy Bullard, miðvallarleikmaður Fulham, er á góðum batavegi eftir að hafa lent í hrottalegum hnémeiðslum strax í upphafi leiktíðar og útilokar knattspyrnustjórinn Chris Coleman ekki að Bullard spili með liðinu síðar á tímabilinu. 14.1.2007 14:45
Reading komið yfir gegn Everton Reading er komið með forystu í viðureign sinni gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni en það var varnarmaðurinn Joleon Lescott sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 28. mínútu. Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson er frá vegna meiðsla. 14.1.2007 14:18
Robson lætur Beckham heyra það Gamli refurinn Bobby Robson gagnrýnir David Beckham harðlega í pistli sem hann skrifar í enska dagblaðið Daily Mail og birtist í morgun. Robson segir að ákvörðun Beckham um að fara til Bandaríkjanna sanni að hann hafi ekki lengur metnaðinn né lystina til að keppa á meðal þeirra bestu. 14.1.2007 14:06
Beckham útilokar ekki landsliðið David Beckham hefur ekki gefið landsliðsferilinn með Englandi upp á bátinn þrátt fyrir að hann sé á leið í heldur lágt skrifuðu bandarísku atvinnumannadeildina. Beckham kveðst alltaf ætla að gefa kost á sér í landsliðið. 14.1.2007 14:01
Jon Terry boðar uppreisn Fyrirliði Chelsea, John Terry, kveðst ætla að beita sér að fullum krafti í að halda Jose Mourinho hjá félaginu en hann hefur sterklega verið orðaður við að brottför frá Chelsea í lok leiktíðar. Terry boðar uppreisn á meðal leikmanna gegn stjórn félagsins. 14.1.2007 13:31
10 þúsund fráköst hjá Garnett Kevin Garnett, leikmaður Minnesota, skorað 32 stig og reif niður 14 fráköst í 109-98 sigri liðs síns á New Jersey í NBA-deildinni í nótt. Garnett hefur nú tekið 10.007 fráköst á ferlinum og er hann 32. leikmaðurinn í sögu deildarinnar sem rýfur 10 þúsund frákasta múrinn. Pheonix vann sinn áttunda leik í röð í nótt. 14.1.2007 12:45
Inter setti met á Ítalíu Inter Milan setti í gærkvöld met í ítölsku A-deildinni þegar liðið vann sinn 12. leik í röð. Í gær var það Torino sem lá í valnum, 3-1, en Adriano, Zlatan Ibrahimovich og Marco Materazzi skoruðu mörk Inter. Þjálfarinn Roberto Mancini vill ekki gera of mikið úr metinu. 14.1.2007 12:00
Vont tap hjá Barcelona “Við þurfum að vakna,” sagði Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, eftir 3-1 tap liðsins gegn Espanyol í gærkvöldi. Barcelona hefur ekki náð að sigra í síðustu þremur leikjum sínum í deildinni en er áfram í 2. sæti deildarinnar – a.m.k. um stundarsakir. Eiður Smári Guðjohnsen lék fyrstu 63 mínútur leiksins. 14.1.2007 11:09
Nýir Motocrossskór frá Scott Scott hefur verið til frá árinu 1958 og eru þeir best þekktir í mótorhjólaheiminum fyrir að vera fyrstir til að búa til sérstök motocross gleraugu. Þeir komu einnig með motocrossskóna upp úr '70, en síðan þá hafa Scott ekki verið nógu duglegir með að framleiða og hanna skó, en nú er að koma smá von í menn eftir að Scott tilkynnti nýja línu af motocrossskóm núna um daginn. 14.1.2007 03:06
Mourinho verðleggur Cech á 50 milljónir punda Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagði eftir sigur sinna manna á Wigan í dag að markvörðurinn Peter Cech væri búinn að fá grænt ljós á að hefja æfingar að fullum krafti. Mourinho sagði Cech vera besta markvörð í heimi og smellti í leiðinni 50 milljón punda verðmiða á Tékkann stóra og stæðilega. 13.1.2007 21:00
Fyrsta tap Juve á tímabilinu Juventus tapaði sínum fyrsta leik í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag gegn Mantova á útivelli, 1-0. Sjálfsmark frá Robert Kovac réði úrslitunum í leiknum en við tapið fellur Juventus niður í 6. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Napoli og einu stigi á eftir Mantova. 13.1.2007 20:03
Stjarnan upp að hlið Valsstúlkna Stjörnustúlkur komust í dag upp að hlið Valsstúlkna á toppi DHL-deildar kvenna í handbolta með því að leggja Hauka af velli á heimavelli sínum, 21-15. Um sannkallaðan toppslag var að ræða því fyrir leikinn voru liðin með jafnmörg stig. Valur, Stjarnan og Grótta hafa öll fengið 18 stig en Grótta hefur spilað tveimur leikjum meira en tvö fyrstnefndu liðin. 13.1.2007 19:32
Mögnuð tilþrif í stjörnuleikjunum í dag Fullt var út úr dyrum í DHL-Höllinni í Frostaskjóli í dag þar sem fram fóru hinir árlegu stjörnuleikir úrvalsdeildar karla og kvenna í körfubolta. Hjá körlunum höfðu erlendir leikmenn betur gegn þeim íslensku en hjá konunum laut Esso-liðið í lægra haldi fyrir Shell-liðinu. 13.1.2007 19:24
Walter Smith ver ákvörðun sína Walter Smith, frávarandi þjálfari skoska landsliðsins og nýráðinn þjálfari Glasgow Rangers í Skotlandi, hefur varið ákvörðun sína um að yfirgefa herbúðir landsliðsins til að snúa aftur á Ibrox. Smith segir að nánast allir knattspyrnustjórar í heiminum hefðu tekið sömu ákvörðun og hann. 13.1.2007 19:15
10 leikmenn Arsenal lögðu Blackburn Leikmenn Arsenal sýndu mikinn karakter með því að leggja Blackburn af velli á útivelli í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar, 2-0. Gilberto Silva var vikið af leikvelli strax á 12. mínútu leiksins en þrátt fyrir að vera manni fleiri átti Blackburn ekki roð í fríska leikmenn Arsenal. Kolo Toure og Thierry Henry skoruðu mörk Arsenal. 13.1.2007 19:06