Sport

Nýir Motocrossskór frá Scott

Hinir byltingarkenndu skór frá Scott
Hinir byltingarkenndu skór frá Scott MYND/Icemoto.com
Fyrirtækið Scott var stofnað árið 1958 og er það best þekkt í mótorhjólaheiminum fyrir að vera fyrst til að búa til sérstök motocross gleraugu. Scott kom einnig með motocrossskóna upp úr 1970, en síðan þá hafa Scott ekki verið nógu duglegir við að þróa nýja skó, en framundan virðast komnir betri tímar eftir að Scott tilkynnti nýja línu af motocrossskóm núna um daginn.

Hin byltingarkenda hönnun á skónum hefur marga kosti. Skórnir eru aðeins með þrjár sterkar smellur, en ekki þessar fjórar venjulegu sem eru veikari og hafa átt það til að skemmast. Fremsti hlutinn á skónum er stillanlegur og hægt er að stilla skóinn samkvæmt þörfum hvers og eins. Skórnir koma í búðir í Bandaríkjunum í apríl á þessu ári og munu kosta rúmlega 500 dollara eða um 35.000 kr.- sem ætti að þýða 45-50 þús hér heima. Byltingarkenndir skór sem eflaust verða ráðandi á næstu árum.

Heimasíða Scott er: www.scottusa.com

Heimild: Icemoto.com




Fleiri fréttir

Sjá meira


×