Formúla 1

Ralf er ekki að hætta

Ralf Schumacher sést hér með nýja Toyota-bílnum.
Ralf Schumacher sést hér með nýja Toyota-bílnum. MYND/Getty

Ökuþórinn Ralf Schumacher segir að ekkert sé til í þeim fregnum að hann hyggist hætta í formúlu eftir að núverandi samningur hans við Toyota rennur út eftir næsta tímabil. Schumacher hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning við Toyota og við það fóru sögusagnirnar af stað.

Schumacher hefur verið á mála hjá Toyota frá árinu 2005 og skrifaði þá undir þriggja ára samning. Einhverjir fjölmiðlar hafa sagt frá því að Ralf hyggist feta í fótspor bróður síns Michael og hætta keppni í formúlu 1 við fyrsta tækifæri en í gær steig yngri bróðurinn fram og lýsti vangaveltunum sem fjarstæðu.

“Ég get lofað ykkur einu – það hvarflar ekki að mér að hætta,” sagði hann. Um nýjan samning við Toyota vildi Ralf lítið ræða en hann lýsti því þó yfir að hann hyggist setjast niður með framkvæmdastjórnum Hans Mahr þegar eitthvað verður liðið á komandi keppnistímabil í formúlu 1 kappakstrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×