Sport

David Vuillemin óskaddaður eftir slæma byltu í Pheonix

David Vuillemin
David Vuillemin

Frakkinn og MDK/Honda liðsmaðurinn David Vuillemin átti feikna byltu í Pheonix nú um helgina þegar keppt var í AMA Supercross. Keppnin var stöðvuð eftir tvo hringi og var óttast að David væri stórslasaður. Betur fór en á horfðist og kom í ljós við nánari skoðun á næsta sjúkrahúsi að allt var óbrotið og hann var aðeins blár og marinn.

Vuillemin var búinn að standa sig mjög vel á æfingum, var með þriðja besta tímann og endaði annar í sínum undanriðli.  Hann náði góðu starti í úrslitum en datt illa í öðrum hring.  Hann var útskrifaður af sjúkrahúsinu eftir eina nótt og verður eflaust orðinn góður fyrir næstu umferð.

Hægt er að skoða myndskeið af byltunni á Jaðarsport-síðunni www.morgan.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×