Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Velti fyrir sér að yfirgefa Old Trafford Cristiano Ronaldo sagði eftir heimsmeistarakeppnina að hann yrði hugsanlega að yfirgefa Manchester United. Þetta sagði hann skömmu eftir að Portúgalar slógu Englendinga út úr keppninni. Nú hinsvegar hefur hann sett stefnuna á að verða einn af allra bestu leikmönnunum sem leikið hafi í rauðu treyjunni. 25.9.2006 11:30
Skýrist í dag? "Við erum alveg rólegir yfir þessu, það virðist vera mikill áhugi á þessu starfi," sagði Brynjar Jóhannesson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Fram, aðspurður um þjálfaramál félagsins. Ákveðið var að framlengja ekki samninginn við Ásgeir Elíasson sem stýrði Fram til sigurs í 1. deildinni í sumar og er verið að leita að manni til að stýra liðinu í Landsbankadeildinni á næsta ári. 25.9.2006 11:15
Ronaldo getur orðið sá besti Cristiano Ronaldo býr yfir það miklum hæfileikum að hann getur orðið besti leikmaður heims í nánustu framtíð. Þetta er mat Carlos Queiroz, aðstoðarþjálfara Manchester United. Queiroz lét orðin falla eftir jafnteflisleikinn gegn Reading á laugardag, en þá var það Ronaldo sem skoraði mark Man. Utd. 25.9.2006 11:00
Orðsporið er varanlega skaðað Sam Allardyce, stjóri Bolton í ensku úrvalsdeildinni, telur að sú mynd sem birtist af honum í spillingarþættinum hafi komið varanlegum skaða á orðspor sitt. Allardyce var sterklega orðaður við enska landsliðið í vor og var almennt talinn einn af heitustu knattspyrnustjórunum í landinu. 25.9.2006 10:15
Þetta hefur verið versti tími lífs míns Craig Allardyce, sonur Sam Allardyce hjá Bolton og umboðsmaðurinn sem var í aðalhlutverki í spillingarþætti BBC um ensku knattspyrnuna í síðustu viku, segist aldrei geta fyrirgefið sjálfum sér fyrir að bregðast föður sínum og allri fjölskyldu sinni með framkomu sinni í þættinum. 25.9.2006 09:45
Létu mikið að sér kveða Íslenskir leikmenn settu mark sitt á norska boltann um helgina en Marel Baldvinsson og Veigar Páll Gunnarsson voru báðir á skotskónum. Marel opnaði markareikning sinn hjá Molde með því að skora fyrra mark liðsins í 2-0 sigri á Lilleström. Sigurinn var afar dýrmætur því með honum kom Molde sér af mesta fallsvæðinu. Veigar Páll heldur áfram að spila eins og engill og í gær skoraði hann sigurmark Stabæk gegn Fredriksstad þar sem lokatölur urðu 3-2. 25.9.2006 09:30
Inter skaust á toppinn Ítalíumeistararnir í Inter unnu 4-3 sigur á Chievo í gær í ótrúlegum leik á heimavelli sínum. Með þessum sigri komst Inter á toppinn en það munaði litlu að liðið glopraði niður forskoti sínu eftir að hafa komist í 4-0. Á seinasta stundarfjórðungi leiksins skoraði Chievo þrjú mörk og fékk færi í viðbótartíma til að ná jafntefli. 25.9.2006 09:00
Hugsaði út í það að hætta David James segist hafa íhugað það alvarlega að leggja hanskana á hilluna þegar hann missti sæti sitt í enska landsliðinu. Hann var tekinn út úr liðinu eftir að hafa gert hrikaleg mistök í leik gegn Austurríki í september 2004. James er nú hjá Portsmouth en á þessum tíma lék hann fyrir Manchester City. 25.9.2006 07:30
Fallhlífarstökk í auglýsingu Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea, er fleira til lista lagt en að búa til góð fótboltalið. Nýlega lék hann í sjónvarpsauglýsingu fyrir BPI-bankann í Portúgal þar sem hann stekkur úr flugvél í jakkafötum en opnar síðan fallhíf þegar hann nálgast jörðina. Mourinho þykir minna um margt á sjálfan James Bond þegar hann lendir fullkomnlega í bakgarði glæsilegs einbýlishúss í Portúgal. En Mourinho hefur nú viðurkennt að það hafi ekki verið hann sjálfur sem stökk úr flugvélinni. 25.9.2006 07:00
Árangurinn var óásættanlegur Hreinn Hringsson, fyrirliði knattspyrnuliðs KA, er mjög óánægður með spilamennsku liðsins í sumar og segir árangurinn á tímabilinu vera óásættanlegan. Þetta segir hann í viðtali við heimasíðu KA. „Sumarið fótboltalega séð var engan veginn nógu gott og árangur sumarsins þar af leiðandi slakur og óásættanlegur,“ segir Hreinn meðal annars en bætir því við að væntingarnar til liðsins hafi ef til vill verið of miklar, enda hafi miklar breytingar verið gerðar á liðinu frá því í fyrra. 25.9.2006 06:30
Ademar Leon lagði Barcelona Óvænt úrslit urðu í spænsku úrvalsdeildinni á laugardagskvöld þegar Ademar Leon gerði sér lítið fyrir og lagði meistara Barcelona 31-27. Sigfús Sigurðsson átti góðan leik í vörn heimamanna en náði þó ekki að skora í leiknum. Ólafur Stefánsson skoraði eitt mark fyrir Ciudad Real sem vann Valladolid 30-29 í hörkuspennandi leik. 25.9.2006 06:00
Evrópuliðið vann þriðja árið í röð Lið Bandaríkjanna átti aldrei möguleika gegn því evrópska í Ryder-keppninni í golfi sem lauk á Írlandi í gær. Úrslitin urðu á sama veg og í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum, Evrópa hlaut átján og hálfan vinning en Bandaríkin níu og hálfan. 25.9.2006 05:30
Ég er ekki svona rosalega góður Síðan Sigþór Júlíusson kom til KR frá Völsungi hinn 31. júlí sl. hefur verið mikill uppgangur á spilamennsku liðsins. Liðið hefur unnið sex leiki, gert tvö jafntefli og engum leik tapað. 25.9.2006 05:30
Barcelona 1-1 Valencia Barcelona og Valencia gerðu 1-1 jafntefli á Camp Nou leikvanginum í Barcelona. Það var David Villa sem skoraði fyrir Valencia en Andres Iniesta jafnaði metin fyrir Barcelona. Eiður Smári Guðjohnsen sat á bekknum og kom ekki inn á. Önnur úrslit á Spáni: 24.9.2006 20:57
1-0 fyrir Valencia Staðan í hálfleik í leik Barcelona og Valencia á Camp Nou í Barcelona er 1-0 fyrir Valencia. Það var David Villa sem skoraði markið. Eiður Smári er á bekknum í liði Barcelona. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 24.9.2006 19:53
Barcelona - Valencia í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í eldlínunni þegar Barcelona fær Valencia í heimsókn í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður í beinni útsendingu á Sýn. Eiður Smári kom inn á um síðustu helgi og fiskaði m.a. vítaspyrnu. 24.9.2006 17:43
Everton 1-1 Newcastle Everton og Newcastle gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Shola Ameobi skoraði fyrir Newcastle en Tim Cahill jafnaði metin fyrir Everton. 24.9.2006 16:45
Evrópumenn sigra Ryder bikarinn Staðan í Ryder bikarnum er 15-8 fyrir Evrópu gegn Bandaríkjunum. Það þýðir að Evrópumenn hafa unnið. Paul Casey, sem hefur verið í fantaformi og farið holu í höggi í mótinu, lagði Jim Furyk að velli í dag. Það var hinsvegar Henrik Stenson sem setti niður gott pútt til að tryggja sigurinn. 24.9.2006 14:41
Vilja halda áfram með ÍA Þjálfarar ÍA, Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir, neita því ekki að þeir vilji halda áfram að þjálfa Skagamenn. Þeir tóku við Ólafi Þórðarsyni um mitt sumar þegar staða liðsins var ekki góð en undir stjórn tvíburuna hefur leikur ÍA batnað til muna. 24.9.2006 12:45
Ætlar að raða inn mörkum Úkraínski sóknarmaðurinn Andriy Shevchenko hefur lofað stuðningsmönnum Chelsea því að hann fari að raða inn mörkum. Þessi 29 ára leikmaður var keyptur til félagsins fyrir metfé í maí en hann er enn ekki byrjaður að sýna markaskorunarhæfileika sína á Englandi og hefur aðeins skorað eitt mark í fimm leikjum. 24.9.2006 12:30
Ætluðum okkur meira í sumar „Mér fannst við spila gríðarlega vel lengst af í þessum leik og þess vegna eru þessi úrslit mjög særandi,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, í samtali við Fréttablaðið eftir leik. 24.9.2006 12:00
Jafntefli hjá Víking og ÍA og allir skildu sáttir Víkingur og ÍA gerðu 1-1 jafntefli í Víkinni í gær og tryggðu þannig sæti sín í Landsbankadeildinni. ÍA hafnaði í sjötta sæti deildarinnar og Víkingur í því sjöunda og geta bæði lið verið sátt með þá niðurstöðu. 24.9.2006 11:30
Marel varð markakóngur Marel Jóhann Baldvinsson vann gullskóinn í Landsbankadeild karla í ár en hann skoraði ellefu mörk í þrettán leikjum fyrir Breiðablik. Hann hélt svo til Noregs áður en tímabilinu lauk en varð markakóngur þrátt fyrir það. Björgólfur Takefusa úr KR fær silfurskóinn og Jóhann Þórhallsson, Grindavík, bronsskóinn. 24.9.2006 11:15
Grindvíkingar sjálfum sér verstir Grindvíkingar geta engum nema sjálfum sér um kennt að hafa fallið í 1. deild í gær. Liðið óð í færum en klaufaskapur framherjanna var með ólíkindum. Þegar á reyndi var liðið síðan kraftlaust. 24.9.2006 10:45
Fyrsti sigurinn Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik lék í gær síðasta leik sinn á þessu ári í B-deild Evrópukeppninnar. Leikið var gegn Írlandi og vann íslenska liðið 68-56 sigur. Þetta var fyrsti sigurleikur Íslands í keppninni en hún er nú hálfnuð. Seinni hluti hennar verður leikinn næsta haust en íslenska liðið komst upp í þriðja sætið í sínum riðli. 24.9.2006 10:30
Liverpool valtaði yfir Tottenham Liverpool rúllaði yfir vonlaust lið Tottenham í ensku úrvalsdeildinni og virðist vera búið að finna taktinn. Chelsea endurheimti toppsætið og þá vann Arsenal sinn fyrsta heimasigur á leiktíðinni. 24.9.2006 10:30
Ótrúleg dramatík þegar KR tryggði annað sætið Guðmundur Pétursson, nítján ára Breiðhyltingur, reyndist hetja KR gegn Val í gær þegar hann tryggði liði sínu 2-2 jafntefli með því að skora á lokamínútunni. Markið tryggði KR 2. sæti deildarinnar og sæti í Evrópukeppni félagsliða. 24.9.2006 10:15
Vantaði rétta hugarfarið Jónas Guðni Sævarsson var fyrirliði Keflavíkur í gær. "Við vorum með hugann við bikarúrslitaleikinn um næstu helgi og því fór þetta svona. Þetta er klárlega ekki leikurinn sem við ætluðum að taka með okkur í þá baráttu. Það var ekkert að ganga hjá okkur og við þurfum að skoða hvað við ætlum að gera fyrir leikinn gegn KR," sagði Jónas Guðni eftir tapið gegn Breiðabliki. 24.9.2006 10:00
Framtíðin er óákveðin Framherjinn Jóhann Þórhallsson var með böggum hildar eftir leikinn en hann klúðraði mörgum góðum færum í leiknum. Hann vildi ekki staðfesta að hann léki með Grindavík í 1. deildinni en þar lék Jóhann með Þór á síðasta ári. 24.9.2006 10:00
Markmiðinu náð Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, tók við liðinu í fallsæti en náði því markmiði að halda liðinu uppi. Hann segir það óráðið hvort hann verði áfram. „Miðað við þessa niðurstöðu hef ég vissulega áhuga á því. Ég sest niður með stjórninni eftir helgi og þá kemur þetta í ljós,“ sagði Ólafur, sem var ánægður með leik sinna manna. 24.9.2006 09:45
Eigum heima í þessari deild „Við höfum alltaf haldið í þá trú að við séum með lið sem eigi heima í úrvalsdeildinni,“ sagði miðjumaðurinn Arnar Grétarsson eftir sigur Breiðabliks í gær. „Við höfum verið að spila vel í undanförnum leikjum og fyrir hönd félagsins er ég mjög ánægður. Við erum með marga unga og efnilega leikmenn og framtíðin er björt.“ 24.9.2006 09:15
Við gefumst aldrei upp Teitur Þórðarson, þjálfari KR, var að vonum ánægður með að hafa náð 2. sæti Landsbankadeildarinnar með jafnteflinu í gær. "Við vissum það að jafntefli nægði okkur og við gerðum það sem þurfti. Það stóð vissulega tæpt en ég hafði alltaf trú á mínum mönnum. Nú förum við í bikarúrslitin vitandi það að við erum öruggir í Evrópukeppnina og það léttir mikilli pressu af okkur," sagði Teitur eftir leikinn. 24.9.2006 09:15
Þakka FH-ingum kærlega fyrir Þrátt fyrir að vera í fimmta sæti fyrir 18.umferð Landsbankadeildarinnar gátu Fylkismenn mögulega fallið ef úrslitin spiluðust þannig í lokaumferðinni. Árbæjarliðið þurfti því að mæta ákveðið til leiks gegn ÍBV sem höfðu að engu að keppa enda fallnir í 1. deild. 24.9.2006 08:45
Blikar skutust upp í fimmta sætið Fyrir lokaumferðina í Landsbankadeildinni í gær var ljóst að Breiðablik væri öruggt með sæti sitt ef liðinu tækist að sigra Keflavík á heimavelli sínum. Sú varð raunin og Blikar unnu góðan og mjög svo verðskuldaðan 2-1 sigur. Gestirnir höfðu ekki að neinu að keppa í leiknum því ljóst var að liðið myndi enda í fjórða sætinu, sama hvernig færi á Kópavogsvelli. Þeir leika bikarúrslitaleik um næstu helgi og hvíldu þeir fyrirliða sinn, Guðmund Steinarsson, í þessum leik en hann er einu spjaldi frá því að fara í leikbann. 24.9.2006 08:30
Við áttum greinilega að falla „Við höfum verið að bjóða hættunni heim síðustu ár og það er ekki þessi leikur hér sem fellir okkur. Þetta byrjaði mikið fyrr,“ sagði fyrirliði Grindvíkinga, Óðinn Árnason, svekktur í leikslok. 24.9.2006 08:30
Jafntefli við Man. Utd Nýliðar Reading eru í sjöunda sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir sex leiki en í gær gerði liðið 1-1 jafntefli á heimavelli sínum gegn Manchester United. Ívar Ingimarsson var að sjálfsögðu á sínum stað í vörninni hjá Reading en Brynjar Björn Gunnarsson kom inn á sem varamaður þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum. 24.9.2006 07:15
Lyon talaði við Didier Drogba Sóknarmaðurinn Didier Drogba hjá Chelsea sagði í viðtali við Daily Mirror að franska liðið Lyon hefði verið í sambandi við sig í sumar. Með komu Andriy Shevchenko til ensku meistarana var framtíð Drogba talin vera í óvissu og ræddu forráðamenn Lyon við Drogba án leyfis Chelsea. 24.9.2006 07:00
Evrópa hefur góða forystu Lið Evrópu er að vinna Ryder -keppnina með tíu vinningum gegn sex hjá bandaríska liðinu fyrir lokadaginn á K-Klub sem er í dag. Illa gekk hjá bandaríska liðinu í gær og voru það þeir Tiger Woods og Jim Furyk sem lönduðu eina sigri þess í fjórmenningnum eftir hádegi þegar þeir unnu hina írsku Paidraig Harrington og Paul McGinley. 24.9.2006 06:30
Bayern komst í efsta sætið Bayern München komst á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í gær með því að leggja i Alemannia Aachen 2-1. Gestirnir komust yfir í leiknum en svo skoruðu Claudio Pizarro og Mark van Bommel og tryggðu Bayern stigin þrjú. 24.9.2006 06:15
Áhorfendametið slegið Nýtt áhorfendamet var sett í Landsbankadeild karla þetta sumarið en alls mættu 98.026 manns á leikina 90 í ár, eða að meðaltali 1.089 manns á leik. Eldra metið var sett 2001 þegar 96.850 manns mættu á leikina í deildinni. 24.9.2006 06:00
Er enn í fríi Alan Curbishley segist ekki ætla að snúa aftur sem knattspyrnustjóri fyrr en í fyrsta lagi í lok október. Curbishley er 48 ára en hann hefur verið í fríi síðan fimmtán ára veru hans hjá Charlton Athletic lauk í lok síðasta tímabils. Hann er nú staddur á Nýja-Sjálandi en hann hefur verið orðaður við knattspyrnustjórastöðuna hjá Leeds United og West Bromwich Albion að undanförnu. 24.9.2006 06:00
Reading náði baráttustigi gegn United Leikmenn Reading börðust eins og ljón gegn sterku liði Manchester United þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli í dag. Kevin Doyle skoraði úr vítaspyrnu á 48. mínútu fyrir Reading en Cristiano Ronaldo skoraði fyrir United á 73. mínútu. United sótti svo án afláts eftir markið, en allt kom fyrir ekki. Þessi úrslit verða að teljast frábær fyrir nýliðana í Reading en að sama skapi ekki nógu góð fyrir stórliðið Manchester United. 23.9.2006 18:12
Tiger og Furyk rétta úr kútnum fyrir USA Tiger Woods og Jim Furyk sigruðu Padraig Harrington og Paul McGinley í síðasta leiknum á K-vellinum í dag. Með sigrinum löguðu þeir stöðu Bandaríkjamanna í baráttunni um Ryder bikarinn. Staðan fyrir lokadaginn á morgun er 10-6 fyrir Evrópumennina en þeir þurfa 14 sigra til að halda bikarnum. Draumahögg Paul Casey bar þó hæst á vellinum í dag. 23.9.2006 18:00
Celtic vann "Old firm" grannaslaginn Celtic vann grannaslaginn í Glasgow, 2-0, gegn erkifjendum sínum í Rangers. Danin Thomas Gravesen skoraði sitt fyrsta mark fyrir Celtic og Kenny Miller, sem gagnrýndur hefur verið fyrir að skora ekki, þaggaði í einhverjum óánægjuröddunum með seinna markinu. 23.9.2006 17:44
Evrópumenn komir í 10-5 Paul Casey sló holu í höggi í Ryder bikarnum í dag en það er fyrsta draumahöggið í keppninni síðan 1995. Casey og David Howell sigruðu Stewart Cink og Zach Johnson í dag og juku forystu Evrópumanna. 23.9.2006 17:13