Sport

Haukar lögðu Val

Haukar lögðu Valsmenn í kvöld
Haukar lögðu Valsmenn í kvöld Mynd/Valli

Haukar sigruðu Valsmenn á heimavelli sínum Ásvöllum 33-28 í DHL-deild karla í handbolta í kvöld. Haukar höfðu frumkvæðið lengst af í leiknum, en Valsmenn urðu fyrir blóðtöku strax á 8. mínútu leiksins þegar Baldvin Þorsteinsson fékk að líta rauða spjaldið og kom því ekki meira við sögu í leiknum.

Markahæstir hjá Haukum voru Andri Stefan og Árni Sigtryggsson sem skoruðu 10 mörk hvor. Þá vann FH sigur á Fylki 28-27 í Kaplakrika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×