Sport

Jafnt hjá ÍR og Stjörnunni

ÍR og Stjarnan gerðu jafntefli 27-27 í hörkuspennandi leik í Austurbergi í DHL-deild karla í handbolta í kvöld, þar sem Ragnar Helgason jafnaði metin fyrir heimamenn þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum, en skot Tite Kalandadze um leið og lokaflautið gall small í þverslánni á marki ÍR.

Kalandadze skoraði 12 mörk fyrir Stjörnuna í leiknum, en Tryggvi Haraldsson var markahæstur hjá ÍR með 6 mörk. HK lagði KA 35-32 á heimavelli sínum í Digranesi, Þór vann Selfoss 33-27, Fram vann Aftureldingu 27-18 á útivelli og Víkingur/Fjölnir lagði ÍBV 34-29.

Leik FH og Fylkis og leik Hauka og Vals er enn ekki lokið, en þeir hófust síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×