Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Afskrifar annað sætið Arsene Wenger hefur útilokað að lið hans nái að vera með í baráttunni um annað sætið í ensku úrvalsdeildinni eftir tapið gegn Liverpool á Anfield í gærkvöldi. Hann vill þó meina að sínir menn muni gera harða atlögu að 3-4 sætinu og er viss um að liðið nái sér á strik fljótlega. 14.2.2006 09:30
Jafnteflið var okkur í hag Steve Coppell, stjóri Reading, var ánægður með 1-1 jafnteflið við Sheffield United í toppslag ensku 1. deildarinnar í gær og segir það sínum mönnum í hag. Ívar Ingimarsson var að venju í vörn Reading í leiknum, en liðið hefur áfram 12 stiga forystu í deildinni og virðist á góðri leið með að tryggja sæti sitt í úrvalsdeildinni á næsta ári. 14.2.2006 08:30
Hughes frá út tímabilið Skotbakvörðurinn Larry Hughes hjá Cleveland Cavaliers verður frá keppni það sem eftir lifir tímabilsins eftir að hafa gengist undir aðra aðgerð sína á stuttum tíma vegna fingurbrots. Fyrir skömmu kom í ljós að fyrri aðgerðin hafði ekki tekist sem skildi og því er ljóst að hann missir úr aðrar 8-10 vikur. 14.2.2006 07:15
Mosley þrýstir á keppnisliðin Max Mosley hefur nú gefið það út að keppnisliðin sem enn hafi ekki skuldbundið sig lengur en til ársins 2007 verði gefinn mánaðarfrestur til að semja eftir sérstakan fund sem haldinn verður í næsta mánuði - ella verði þeim gert að hætta keppni. 13.2.2006 20:30
Bjartsýnir á að halda King Forráðamenn Tottenham Hotspurs eru bjartsýnir á að varnarmaðurinn Ledley King skrifi undir nýjan samning við félagið fljótlega þó enn sé mikið eftir af núverandi samningi hans sem rennur ekki út fyrr en árið 2008. 13.2.2006 20:15
Cleveland - San Antonio í beinni á miðnætti Hann verður ekki af verri endanum sjónvarpsleikur kvöldsins á NBA TV á Digital Ísland, því þar mætast Cleveland Cavaliers og meistarar San Antonio Spurs og hefst leikurinn á slaginu tólf á miðnætti. 13.2.2006 19:30
West Ham - Birmingham í kvöld Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar West Ham tekur á móti Birmingham á heimavelli sínum Upton Park. West Ham hefur verið á mikilli siglingu í deildinni undanfarið, hefur unnið fimm leiki í röð í deildinni og sjö alls í öllum keppnum. 13.2.2006 18:30
Miami - Detroit endursýndur í dag Rétt er að minna aðdáendur NBA körfuboltans á að leikur Miami Heat og Detroit Pistons frá í gærkvöldi er endursýndur á Sýn nú klukkan 18:30, en leikurinn var gríðarlega skemmtilegur á að horfa. Dwayne Wade leikmaður Miami fór á kostum í leiknum og skoraði 37 stig, flest þeirra á lokakaflanum sem var frábær skemmtun. 13.2.2006 18:04
Reyes óbrotinn Jose Antonio Reyes, leikmaður Arsenal, er ekki jafn mikið meiddur og óttast var í fyrstu eftir að hann lenti í harðri tæklingu í leiknum gegn Bolton um helgina. Óttast var að Reyes væri fótbrotinn, en nú er komið í ljós að hann er aðeins illa marinn. Hann setur stefnuna á að vera búinn að ná sér fyrir leik Arsenal og Real Madrid þann 21. febrúar. 13.2.2006 17:30
Benitez mjög óhress með dómgæslu Rafa Benitez, stjóri Liverpool er mjög ósáttur við misræmi í dómgæslu í ensku úrvalsdeildinni og segir að ef svo fari sem horfi, muni bestu leikmenn úrvalsdeildarinnar missa af HM í sumar vegna meiðsla eftir þær hörðu tæklingar sem dómarar séu farnir að horfa framhjá. 13.2.2006 17:00
KR tapaði fyrir Tromsö KRingar biðu lægri hlut gegn norska liðinu Tromsö 1-0 á æfingamóti í fótbolta sem haldið er á La Manga á Spáni þessa dagana. Ásamt KR og Tromsö leika á mótinu rússneska liðið Krylya Sovetov og norska íslendingaliðið Brann. Næsti leikur hjá KR er á fimmtudaginn. 13.2.2006 16:41
Stjórarnir vilja vinnufrið Mikið hefur verið rætt um hver verði næsti þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu þegar Sven-Göran Eriksson lætur af störfum eftir HM í sumar og margir vilja meina að eftirmaður hans verði heimamaður. Því þykja fjórir menn líklegastir til að taka við og þeir hafa allir mismunandi skoðanir á málinu. 13.2.2006 15:30
Tap hjá Napoli Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í ítalska liðinu Napoli töpuðu fyrir Reggio Emilia 90-81 um helgina. Jón skoraði 9 stig í leiknum. Jakob Sigurðarson og félagar í Leverkusen unnu mikilvægan sigur á Karlsruhe 78-72 í botnbaráttunni í þýsku úrvalsdeildinni og skoraði Jakob 14 stig í leiknum. 13.2.2006 15:00
Newcastle í viðræðum við Hitzfeld Nýjustu fréttir frá Englandi herma að forráðamenn Newcastle séu í viðræðum við fyrrum þjálfara Bayern Munchen, Ottmar Hitzfeld, um að taka við stöðu knattspyrnustjóra í stað Graeme Souness sem rekinn var á dögunum. 13.2.2006 14:30
Níundi sigur San Antonio í röð Meistarar San Antonio Spurs unnu sinn níunda leik í NBA í nótt þegar liðið skellti Indiana á útivelli 92-88. Manu Ginobili skoraði 29 stig fyrir San Antonio, en Stephen Jackson skoraði 17 stig fyrir Indiana. 13.2.2006 13:30
Dwayne Wade skaut Detroit í kaf Dwayne Wade, leikmaður Miami Heat, setti á svið sannkallaða skotsýningu í gærkvöldi þegar hann bar lið sitt á herðum sér og skaut það einn síns liðs til sigurs gegn efsta liði deildarinnar Detroit Pistons, 100-98, en leikurinn var sýndur á Sýn. 13.2.2006 05:30
Miami - Detroit í beinni á Sýn Stórleikur Miami Heat og Detroit Pistons er nú nýhafinn og er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn þar sem þeir Benedikt Guðmundsson og Svali Björgvinsson fara á kostum í lýsingum sínum. Miami hefur ekki gengið vel gegn bestu liðum deildarinnar í vetur og vill því eflaust ná að leggja efsta lið deildarinnar í leik kvöldsins. 12.2.2006 22:11
Valencia lagði Barcelona Valencia vann í kvöld góðan sigur á meisturum Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu 1-0. Það var David Villa sem skoraði sigurmark Valencia skömmu fyrir lok fyrri hálfleik eftir skelfileg mistök markvarðar Barcelona. Með sigrinum lyfti Valencia sér í annað sæti deildarinnar og er nú aðeins 6 stigum frá toppliðinu Barcelona. 12.2.2006 21:58
Juventus að stinga af Meistarar Juventus tóku stórt skref í titilvörn sinni í ítölsku A-deildinni í kvöld þegar liðið lagði Inter Milan á útivelli 2-1 í stórleik helgarinnar sem sýndur var í beinni útsendingu á Sýn Extra. Zlatan Ibrahimovic kom Juve yfir í leiknum, en eftir að Walter Samuel jafnaði leikinn í síðari hálfleiknum, skoraði Alessandro del Piero sigurmark Tórínóliðsins fimm mínútum fyrir leikslok. 12.2.2006 21:49
Nýtt samningstilboð á borðinu Forráðamenn Manchester City gáfu það út nú í kvöld að nýtt og endurbætt samningstilboð væri nú á borðinu fyrir miðjumanninn unga Joey Barton, sem fór einmitt á kostum í sigri liðsins á Charlton í dag. Barton móðgaðist og fór fram á að verða settur á sölulista hjá félaginu þegar hann sá fyrra tilboð félagsins. 12.2.2006 21:34
Auðvelt hjá toppliðunum Toppliðin í Iceland Express deild karla í körfubolta unnu öll sannfærandi sigra í leikjum kvöldsins. Njarðvíkingar sigruðu ÍR 88-71 á heimavelli, Keflavík vann öruggan sigur á Haukum í Hafnarfirði, KR lagði Þór 86-77 og Grindvíkingar rótburstuðu Hött á Egilsstöðum 127-70. 12.2.2006 21:19
Mauresmo sigraði í París Tennisleikarinn Amelie Mauresmo sigraði á Parísarmótinu í tennis sem lauk í dag þegar hún lagði Mary Pierce auðveldlega 6-1 og 7-6 í úrslitaleik í dag. Þetta var annar sigur hennar á stuttum tíma, en hún sigraði sem kunnugt er á opna ástralska meistaramótinu fyrir skömmu. 12.2.2006 20:15
Nítjánda heimsmet Isinbayevu Rússneski stangarstökkvarinn Yelena Isinbayeva setti sitt 19. heimsmet í stangarstökki í Úkraínu í dag þegar hún stökk yfir 4,91 metra á móti innanhúss í Donetsk. Hún bætti þar með eigin heimsmet innanhúss um einn sentimetra. 12.2.2006 19:15
Minden skellti Kiel Snorri Steinn Guðjónsson og félagar hans í þýska úrvalsdeildarliðinu Minden gerðu sér lítið fyrir og skelltu töppliði Kiel í dag 32-30. Snorri Steinn skoraði tvö mörk í leiknum. Þá gerðu Hamburg og Dusseldorf jafntefli 27-27 þar sem Hamburg gerði tvö mörk á síðustu hálfu mínútu leiksins og tryggði sér jafntefli. 12.2.2006 18:27
Allt getur gerst ennþá Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United segir að Chelsea sé enn nokkuð frá því að tryggja sér enska meistaratitilinn þó forskot liðsins sé vissulega gott og bendir á að ef til vill styttist í að Jose Mourinho hætti að gorta. 12.2.2006 18:15
Stórleikur á Sýn í kvöld Viðureign Valencia og Barcelona verður sýnd í beinni útsendingu á Sýn klukkan 19:50. Þetta er sannkallaður toppslagur því Barcelona er í efsta sæti deildarinnar með 52 stig, en Valencia í því þriðja með 43. Sigur hjá Barcelona í kvöld mundi þýða að liðið væri komið í afar vænlega stöðu í titilvörninni. 12.2.2006 18:00
City lagði Charlton Manchester City lagði Charlton 3-2 í fjörugum leik í ensku úrvalsdeildinni í dag. Mörk City gerðu Richard Dunne, Georgios Samaras og Joey Barton, en Darren og Marcus Bent gerður sitt hvort markið fyrir gestina. 12.2.2006 17:57
Mancini horfir á annað sætið Roberto Mancini, þjálfari Inter, segist í dag vera meira að einbeita sér að því að ná öðru sætinu í A-deildinni en að steypa Juventus af stalli á toppnum. Juventus og Inter mætast einmitt í kvöld og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:25. 12.2.2006 17:30
Heil umferð í kvöld Sex leikir verða á dagskrá í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Haukar taka á móti Keflavík, KR fær Þór í heimsókn, Njarðvík mætir ÍR, Fjölnir og Snæfell eigast við í Grafarvogi, Skallagrímur og Hamar/Selfoss mætast í Borgarnesi og Grindvíkingar fara austur á hérað og mæta Hetti á Egilsstöðum. 12.2.2006 17:05
City yfir gegn Charlton Manchester City hefur yfir 1-0 í hálfleik gegn Charlton í síðari leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var Richard Dunne sem skoraði mark heimamanna eftir 20 mínútna leik. 12.2.2006 16:53
Hermann í byrjunarliði Charlton Hermann Hreiðarsson stendur í vörn Charlton að vanda þegar liðið sækir Manchester City heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en leikurinn hefst nú klukkan 16. 12.2.2006 15:50
Verðskuldað stig hjá Sunderland Lið Tottenham Hotspurs fór illa að ráði sínu í dag þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við botnlið Sunderland á útivelli. Robbie Keane kom Tottenham yfir í fyrri hálfleik, en í þeim síðari var liðið, sem er í baráttu um sæti í Meistaradeildinni á næsta ári, gjörsamlega á hælunum og gaf Daryl Murphy ódýrt jöfnunarmark þegar skammt var til leiksloka. 12.2.2006 15:33
Tottenham yfir gegn Sunderland Tottenham Hotspurs hefur yfir 1-0 í hálfleik á útivelli gegn botnliði Sunderland í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var Robbie Keane sem skoraði mark Lundúnaliðsins á 38. mínútu, en fátt virðist blasa við liði Sunderland annað en fall í 1. deild í vor. 12.2.2006 14:31
Celtic vann borgarslaginn Celtic vann góðan sigur á grönnum sínum í Rangers í Glasgow-slagnum í skoska boltanum í dag 1-0 með marki frá Maciej Zurawski. Celtic hefur þar með styrkt stöðu sína á toppi deildarinnar og hefur 21 stigs forskot á granna sína. 12.2.2006 14:28
Memphis lagði LA Lakers Memphis Grizzlies lagði LA Lakers á útivelli í nótt 100-99, en leikurinn var í beinni útsendingu á NBA TV. Pau Gasol var góður í liði Memphis og skoraði 31 stig, hirti 12 fráköst og gaf 7 stoðsendingar, en Kobe Bryant var með 26 stig hjá Lakers. 12.2.2006 13:52
Pearce skiptir um skoðun Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, virðist hafa skipt um skoðun varðandi áhuga á að taka við enska landsliðinu, því eftir að hafa brugðist reiður við þegar hann var fyrst orðaður við starf landsliðsþjálfara, hefur hann nú viðurkennt að hann mundi ræða við enska knattspyrnusambandið ef það leitaði til hans. 12.2.2006 13:40
Celtic yfir gegn Rangers Glasgow Celtic hefur yfir gegn grönnum sínum í Rangers í borgarslagnum í skoska boltanum þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Það var Maciej Zurawski sem skoraði mark Celtic snemma leiks, sem er í beinni útsendingu á Sýn. 12.2.2006 13:37
Valsstúlkur áfram eftir góðan sigur Valsstúlkur unnu frábæran sigur á gríska liðinu Athinaikos í dag 37-29 í síðari leik liðanna í Áskorendakeppni Evrópu í dag og eru því komnar áfram í keppninni. Liðið tapaði fyrri leiknum í gær með tveimur mörkum en allt annað var uppi á teningnum í dag. Alla Gokorian fór á kostum í liði Vals og skoraði 13 mörk í leiknum. 11.2.2006 20:26
Bilbao - Real Madrid í beinni í kvöld Leikur Atletico Bilbao og Real Madrid í spænska boltanum verður í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20:50 í kvöld. Real tapaði síðasta leik sínum mjög illa þegar liðið steinlá í bikarnum 6-1 fyrir Zaragoza og því er ljóst að stuðningsmenn liðsins heimta sigur og ekkert annað í kvöld. 11.2.2006 19:35
Auðvelt hjá United Manchester United vann auðveldan sigur á Portsmouth á útivelli í lokaleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag 3-1, eftir að hafa nánast gert út um leikinn í fyrri hálfleik þegar liðið náði 3-0 forystu. Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir United og Ruud Van Nistelrooy skoraði eitt, en Matthew Taylor minnkaði muninn fyrir heimamenn í síðari hálfleik. 11.2.2006 19:20
Framherjar af gamla skólanum Chris Coleman, stjóri Fulham, var mjög sáttur við framherja sína Brian McBride og Heiðar Helguson eftir sigur liðsins á West Brom í dag og sagði þá framherja af gamla skólanum sem væru sannkölluð martröð fyrir varnarmenn mótherjanna. 11.2.2006 19:12
Dregið í riðla fyrir EM Í dag var dregið í riðla fyrir undankeppni Evrópumeistaramóts landsliða í körfuknattleik, en leikirnir fara fram í haus og næsta haust. Karlaliðið er í riðli með Finnlandi, Austurríki, Georgíu og Lúxemburg, en kvennaliðið fékk Noreg, Holland og Írland. 11.2.2006 18:32
Haukar í úrslitin Karlalið Hauka í handknattleik fetaði í fótspor kvennaliðsins í dag þegar það tryggði sér sæti í úrslitaleik SS bikarsins með sigri á Fram 30-27 á Ásvöllum. Kári Kristjánsson og Arnar Pétursson skoruðu 6 mörk hvor fyrir Hauka, en Stefán Stefánsson skoraði 7 mörk fyrir Fram. Það verða því Haukar og Stjarnan sem leika til úrslita í karlaflokki. 11.2.2006 18:22
United með þægilega forystu Manchester United hefur þægilega 3-0 forystu í hálfleik gegn Portsmouth á útivelli í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Portúgalinn Cristiano Ronaldo hefur skorað tvö mörk og Ruud Van Nistelrooy eitt. 11.2.2006 18:17
Áttum skilið að tapa Jose Mourinho, stjóri Chelsea, viðurkenndi að hans menn hefðu átt skilið að tapa fyrir Middlesbrough í dag en 3-0 tapið var stærsta tap liðsins undir stjórn Mourinho. "Þetta er aðeins þriðja tapið mitt í deildinni síðan ég tók við. Við töpuðum fyrir Manchester-liðunum á sínum tíma og áttum það alls ekki skilið - en í dag áttum við skilið að tapa," sagði Mourinho. 11.2.2006 18:12