Fleiri fréttir

Ævintýralegur sigur Blackburn

Leikjum kvöldsins í enska deildarbikarnum er senn lokið, en leikur Bolton og Leicester fór í framlengingu eftir að staðan var 0-0 eftir 90 mínútur. Blackburn vann frækinn sigur á Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton 3-2 á útivelli, eftir að hafa verið undir 2-0 lengst af í leiknum. Manchester United vann auðveldan 3-1 sigur á West Brom.

Samdi við Real til ársins 2011

Markvörðurinn Iker Casillas hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við spænska stórliðið Real Madrid og verður á mála hjá félaginu til ársins 2011. Hinn 24 ára gamli Casillas hafði verið orðaður við fjölda liða eftir að erfiðlega gekk að semja við Real. "Ég hef verið hérna lengi og vil halda áfram að spila með Real þangað til ég dey," sagði Casillas ánægður við undirritun samningsins.

Portsmouth fær leyfi til að ræða við Warnock

Forráðamenn Sheffield United hafa nú gefið kollegum sínum hjá Portsmouth tregablandið leyfi til að ræða við knattspyrnustjórann Neil Warnock með samning í huga. Warnock hefur verið efstur á óskalista forráðamanna Portsmouth allar götur síðan Alain Perrin var rekinn á dögunum, en Warnock hefur náð frábærum árangri með Sheffield United í vetur.

Þrír tilnefndir

Þrír leikmenn hafa verið tilnefndir fyrir kjörið á knattspyrnumanni ársins hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA. Þetta eru þeir Frank Lampard hjá Chelsea og Ronaldinho og Samuel Eto´o hjá Barcelona. Tilkynnt verður um hver hreppir titilinn í Sviss þann 19. desember við sérstaka athöfn.

Vill spila meira eða ekki neitt

Vandræðagemlingurinn Ruben Patterson hjá Portland Trailblazers á í harðvítugum deilum við þjálfara sinn og forráðamenn félagsins þessa dagana. Nate McMillan, þjálfari liðsins, gróf Patterson á varamannabekk liðsins í byrjun tímabils, sem varð til þess að leikmaðurinn bölvaði honum í sand og ösku og var settur í bann í kjölfarið.

Spilaði fótbrotinn í sex vikur

Varnarmaðurinn Ashley Cole hjá Arsenal og enska landsliðinu segir að hann hafi óvitandi spilað brákaður á fæti í sex vikur í haust og segir að þess vegna hafi meiðsli hans verið jafn alvarleg og raun ber vitni.

Dæmdur í þriggja leikja bann

Varnarmaðurinn Celestine Babayaro hjá Newcastle hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann í úrvalsdeildinni fyrir að kljást við Tim Cahill hjá Everton í leik liðanna um helgina. Babayaro gekkst strax við banninu og tekur það því gildi nú þegar, sem þýðir að hann mun missa af leik Newcastle og Wigan í bikarnum í kvöld.

Manchester United - WBA í beinni á Sýn

Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Botnlið Sunderland tekur á móti Liverpool á leikvangi ljósanna. Þá eru nokkrir leikir í enska deildarbikarnum, þar sem lið úr úrvalsdeildinni verða í eldlínunni. Leikur Manchester United og West Brom verður sýndur í beinni á Sýn og hefst útsending klukkan 19:35.

Útlitið er dökkt

Framtíð norska framherjans Óla Gunnars Sólskjær hjá Manchester United virðist nú vera frekar vonlaus, því læknar hafa gefið það út að hann sýni lítil batamerki af erfiðum hnémeiðslum sem hafa haldið honum frá keppni í tvö ár.

McGrady sneri aftur og færði Houston sigur

Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Tracy McGrady sneri aftur með liði Houston Rockets, sem hafði tapað sjö leikjum í röð og það var ekki að sökum að spyrja, liðið vann stórsigur á Atlanta Hawks.

Jafnt hjá Val og Stjörnunni

Valur og Stjarnan gerðu jafntefli 32-32 í Laugardalshöllinni í DHL-deild karla í handbolta í kvöld. Baldvin Þorsteinsson og Mohamadi Loutoufi voru markahæstir í liði Vals með 7 mörk hvor, en Tite Kalandadze skoraði mest fyrir Stjörnuna eða 6 mörk.

Lemgo féll úr bikarnum

Lemgo, lið Loga Geirssonar og Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar, féll úr keppni í þýska bikarnum í gær þegar liðið lá fyrir Kiel 40-36 í ljónagryfjunni í Kiel. Íslendingarnir komust ekki á blað í leiknum.

Doncaster rúllaði yfir Aston Villa

2. deildarlið Doncaster fór á kostum í enska deildarbikarnum í kvöld, þegar liðið rúllaði yfir úrvalsdeildarlið Aston Villa 3-0 á heimavelli sínum í kvöld. Það var engu líkara en að Doncaster væri úrvalsdeildarliðið í leiknum, sem sýndur var í beinni útsendingu á Sýn. Arsenal fór létt með Reading 3-0, en Reading hafði ekki tapað í 23. leikjum í röð.

Stjarnan leiðir í hálfleik

Stjarnan hefur þriggja marka forystu í hálfleik gegn Val í leik kvöldsins í DHL-deild karla í handbolta. Patrekur Jóhannesson þurfti að fara meiddur af leikvelli í fyrri hálfleik eftir að hafa fengið þungt högg á höfuðið.

Doncaster hefur yfir gegn Aston Villa

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum þremur í enska deildarbikarnum. Doncaster hefur forystu 1-0 gegn úrvalsdeildarliði Aston Villa, markið kom úr vítaspyrnu á 19. mínútu. Arsenal er 2-0 yfir gegn Reading í hálfleik, þar sem Reyes og Van Persie hafa skorað mörkin og að lokum er Birmingham 1-0 yfir gegn Milwall.

Aðstoðarþjálfararnir tilkynntir

Í gær var tilkynnt hvaða menn munu gegna stöðum aðstoðarþjálfara Mike Krzyzewski hjá bandaríska landsliðinu í körfubolta fyrir heimsmeistaramótið á næsta ári og fyrir Ólympíuleikana í Peking árið 2008.

Isinbayeva stefnir á nýtt met í febrúar

Heimsmethafinn Yelena Isinbayeva stefnir á að setja nýtt heimsmet á Norwich Union Grand Prix mótinu í Birmingham í febrúar. Mótið er haldið innandyra, en þar á Isinbayeva best 4,90 metra. "Ég er að stökkva 5 metra nokkuð örugglega núna, svo að ég er nokkuð bjartsýn á að setja met í Birmingham," sagði þessi 23 ára gamla afrekskona.

Berst ekki næsta hálfa árið

Hnefaleikarinn Ricky Hatton mun ekki berjast næsta hálfa árið vegna ljótra skurða sem hann hlaut í bardaganum við Carlos Maussa um síðustu helgi. Hatton hafði mikla yfirburði í bardaganum en skarst mjög illa eftir að höfuð þeirra skullu saman og þurfi að fara á sjúkrahús til að láta gera að sárum sínum eftir bardagann.

Doncaster-Aston Villa í beinni á Sýn

Þrír leikir fara fram í deildarbikarkeppninni á Englandi í kvöld. Viðureign Doncaster og Aston Villa verður sýnd í beinni útsendingu á Sýn klukkan 19:35. Annar áhugaverður leikur á dagskrá er viðureign Arsenal og Reading, en forvitnilegt verður að sjá hvernig toppliðinu í fyrstu deild gengur á Highbury. Að lokum eigast við Milwall og Birmingham.

Valur og Stjarnan mætast í kvöld

Í kvöld fer fram einn leikur í DHL-deild karla í handbolta, en það er leikur Vals og Stjörnunnar sem frestað var á sínum tíma vegna þáttöku Vals í Evrópukeppninni. Valur getur styrkt stöðu sína á toppi deildarinnar með sigri í kvöld og hefst leikurinn klukkan 20 og verður í Laugardalshöllinni.

Kristleifur tekur við Hetti

Í dag var tilkynnt að Kristleifur Andrésson hefði verið ráðinn aðalþjálfari úrvalsdeildarliðs Hattar, en hann hefur séð um þjálfun liðsins síðan Kirk Baker sagði starfi sínu lausu á dögunum. Kristleifur er öllum hnútum kunnugur hjá Hetti, enda þjálfaði hann liðið veturinn 2003-04.

Beckham vill að númer sjö verði hengt upp

Það verða sérstakar minningarathafnir um George Best á Old Trafford í vikunni, bæði á bikarleiknum annað kvöld og fyrir næsta deildarleik liðsins á laugardaginn. David Beckham er með sérstaka hugmynd um hvað gera skuli við númerið sem Best bar á treyju sinni forðum.

Orlando vann fjórða leikinn í röð

Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Orlando Magic vann fjórða leik sinn í röð þegar liðið skellti Boston á útivelli, en Dallas Maverics vann mjög nauman sigur á botnliði Toronto Raptors og þurfti flautukörfu í lokin til að tryggja sigurinn.

Í viðræðum við Warnock

Stjórnarformaður Portsmouth er nú í viðræðum við forráðamenn Sheffield United um að fá að ræða formlega við Neil Warnock, stjóra liðsins, um að taka við liði Portsmouth. Warnock hefur náð frábærum árangri með United í 1. deildinni í vetur, en Portsmouth er að leita að eftirmanni Alain Perrin sem var rekinn á dögunum.

Sektaður fyrir ummæli í garð dómara

David O´Leary hefur verið sektaður um 5000 pund fyrir að hafa notað dónalegt orð- og látbragð við Graham Poll dómara eftir að flautað var til leiksloka eftir sigur Aston Villa á grönnum sínum í Birmingham í síðasta mánuði.

Stórleikur Loga Gunnarssonar

Logi Gunnarsson var heldur betur í stuði í gær þegar hann skoraði 29 stig fyrir lið sitt Bayeruth í þýsku 1. deildinni, þegar það lagði Lich á útivelli 87-81. Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig fyrir Napoli sem sigraði Siena í ítölsku A-deildinni í gær og er lið hans í öðru sæti í deildinni.

Stórleikur Kobe Bryant dugði skammt

Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt sem leið og þar bar hæst einvígi Los Angeles Lakers og New Jersey Nets, þar sem Kobe Bryant skoraði 38 stig í síðari hálfleik fyri Lakers og 46 stig alls, en það dugði ekki til sigurs eins og oft áður í vetur.

Ver bónusgreiðslur landsliðsmanna

David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, segir að bónusgreiðslur á hendur enska landsliðinu fyrir gott gengi á HM næsta sumar séu fullkomlega réttlætanlegar og séu jafnvel lægri en þær voru fyrir síðustu keppni.

Dómarar hafa mig undir smásjá

Miðjumaðurinn harðskeytti Edgar Davids hjá Tottenham, segir að sér þyki dómarar í ensku úrvalsdeildinni vera full spjaldaglaðir við sig, en Davids hefur fengið sjö gul spjöld í þeim ellefu leikjum sem hann hefur spilað fyrir félagið í vetur.

Chelsea sektað vegna óláta stuðningsmanna

Chelsea hefur verið gert að greiða 30.000 punda sekt vegna óláta stuðningsmanna liðsins á Stamford Bridge eftir bikarleik við West Ham síðastliðið haust, þar sem þáverandi leikmaður liðsins, Mateja Kezman, hlaut höfuðmeiðsl eftir að hlut var kastað í hann úr stúku West ham og lögregla lenti í átökum við stuðningsmenn Chelsea.

Verðskuldaður sigur Manchester United

Manchester United hirti öll þrjú stigin gegn West Ham á Upton Park í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. George Best var minnst við sérstaka athöfn fyrir leikinn, en þegar í leikinn var komið var það hin nýja stjarna Manchester-liðsins, Wayne Rooney, sem skein skærast og leiddi lið sitt til sigurs 2-1.

Auðveldur sigur íslenska liðsins

Íslenska landsliðið í handknattleik vann í dag auðveldan sigur á Norðmönnum í þriðja og síðasta vináttuleik liðanna í Kaplakrika í dag 32-26. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 10 mörk fyrir íslenska liðið og þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Hólmgeirsson skoruðu 6 hvor. Ísland vann því tvo af þremur leikjum liðanna, en þau skildu jöfn í Mosfellsbæ í gær.

Jafnt hjá Boro og West Brom

Mark Nígeríumannsins Yakubu kom í veg fyrir að botnlið West Brom nældi sér í mikilvæg þrjú stig á Riverside í dag, þar sem liðið gerði 2-2 jafntefli við Middlesbrough. Mark Viduka kom Boro yfir með góðu skoti, en þeir Nathan Ellington og Kanu komu gestunum yfir. Jöfnunarmark Yakubu kom á 65. mínútu, en hann fór illa með færi sem hefði geta gert út um leikinn í lokin.

Fulham sigraði Bolton

Tveimur leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fulham vann góðan og verðskuldaðan sigur á Bolton 2-1, þar sem Brian McBride skoraði bæði mörk Lundúnaliðsins en Sylvain Legwinski minnkaði muninn með sjálfsmarki. El Hadji Diuf fékk að líta rauða spjaldið á lokamínútum leiksins.

Þeir eru að reyna að flæma mig í burtu

Vandræðagemsinn Laurent Robert hjá Portsmouth segir að verið sé að reyna að flæma sig í burtu frá liði Portsmouth og segir að hann fái allar skammirnar í kjölfar hörmulegs gengis liðsis.

Blóðugur sigur hjá Ricky Hatton

Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton er heimsmeistari hjá IBF og WBC samböndunum eftir öruggan en blóðugan sigur gegn Carlos Maussa í Sheffield í nótt. Þrátt fyrir að hljóta ljóta skurði við bæði augu mjög snemma í bardaganum, var sigur Hatton aldrei í hættu og hann vann á rothöggi í níundu lotu.

Frestar atvinnumennskunni

Bjarni Ólafur Eiríksson, varnarmaðurinn sterki úr Val, frestaði för sinni í heim atvinnumennskunnar og lét skólann ganga fyrir. Bjarni Ólafur stundar nám við Kennaraháskóla Íslands og þar sem hann hafði misst mikið úr skólanum frestaði hann því að fara til reynslu hjá Midtjylland í Danmörku og Lyn í Noregi sem bæði vildu fá hann til sín.

Verður líklega áfram hjá FH

Davíð Þór Viðarsson, leikmaður FH, býst fastlega við því að vera áfram hjá liðinu þrátt fyrir að hafa reynt fyrir sér erlendis að undanförnu. Davíð fór til Reading þar sem hann æfði með liðinu um stund en félagið hætti við að fá hann eftir að hafa fylgst með honum í ungmennalandsleik Íslands og Svíþjóðar.

Undir smásjá Crystal Palace

Vopnfirðingurinn Víglundur Páll Einarsson gæti verið á leiðinni til enska 1. deildarliðsins Crystal Palace, en hann var nýlega til reynslu hjá félaginu í tíu daga og verður skoðaður nánar af forráðamönnum félagsins í leik með liði sínu, Þór frá Akureyri.

Svekkjandi jafntefli

Snorri Steinn Guðjónsson var ekki sáttur. "Það er engin spurning að við vorum betri aðilinn í þessum leik, við vorum samt sem áður ekki að spila jafn vel og í gær en við vissum að Norðmennirnir kæmu grimmir til leiks og við vorum í stökustu vandræðum með varnarleikinn í fyrri hálfleik.

Góður sigur á Sviss í kvöld

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann góðan sigur á Sviss 25-22 í undankeppni EM á Ítalíu í kvöld. Hanna Stefánsdóttir var markahæst með 6 mörk og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Jóna Margrét Ragnarsdóttir skoruðu 4 hvor. Íslenska liðið hefur unnið tvo af þremur leikjum sínum í riðlinum og mæta Tyrkjum á morgun.

Hart tekist á á Selfossi á morgun

Það verður metþáttaka í Íslandsmótinu í réttstöðulyftu sem fram fer í Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi klukkan 14:00 á morgun, en þar mæta til leiks sannkallaðar stórstjörnur í bransanum, ungir sem og lengra komnir.

Ísland burstaði Noreg í Eyjum

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik vann auðveldan sigur á Norðmönnum 32-23 í Vestmannaeyjum í kvöld, eftir að hafa verið yfir 15-11 í hálfleik. Þetta var fyrsti leikur liðanna af þremur, en þau mætast að Varmá á morgun klukkan 16:15 og á sama tíma á sunnudag í Kaplakrika.

Sjá næstu 50 fréttir