Fleiri fréttir

Ánægður með skammir Keane

Framherjinn Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United segir að hörð gagnrýni fyrirliðans Roy Keane sem var klippt út úr dagskrá sjónvarpsstöðvar félagsins á dögunum, geti orðið til þess að leikmenn liðsins fari í naflaskoðun og bæti spilamennsku sína.

Ekki hrifinn af vináttulandsleikjum

Alex Ferguson, stjóri Manchester United, íhugar að banna leikmönnum sínum að spila vináttuleik Englands og Argentínu þann 12. nóvember næstkomandi.

Indiana vann í Miami

Lið Indiana Pacers minnir rækilega á sig í upphafi leiktíðar í NBA og í nótt vann það góðan 105-102 útisigur á Miami Heat. Jermaine O'Neal skoraði 27 stig og hirti 9 fráköst fyrir Indiana, en nafni hans Shaquille O´Neal þurfti að fara meiddur af leikvelli í síðari hálfleiknum með snúinn ökkla og missir væntanlega af næsta leik Miami.

Vill sættast við Wenger

Jose Mourinho segist vera alveg tilbúinn að sættast við kollega sinn Arsene Wenger hjá Arsenal með því að biðjast afsökunar á því að hafa kallað hann gluggagægir í viðtali fyrir stuttu, en aðeins með þeim skilyrðum að Wenger biðjist afsökunar á ummælum sínum um Chelsea.

Sigur hjá Boro og Bolton

Middlesbrough sigraði úkraínska liðið Dnipro auðveldlega 3-0 í riðlakeppni UEFA bikarsins í gærkvöldi. Mark Viduka skoraði tvö mörk og Yakubu eitt. Bolton sigraði Zenit St Petersburg 1-0 með marki frá Kevin Nolan. Þá töpuðu Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar hans í Halmstad stórt, 5-0 fyrir Lens.

Tap hjá Keflavík og Haukum

Karlalið Keflavíkur tapaði fyrir finnska liðinu Lappeeranta í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld 92-75, en leikurinn fór fram í Keflavík. Á sama tíma töpuðu Haukastúlkur stórt á heimavelli fyrir Polisporto Ares frá Ítalíu 85-45 á Ásvöllum.

James á skilið annað tækifæri

Stuart Pearce segir að markvörður sinn David James eigi skilið að fá annað tækifæri með enska landsliðinu eftir góða frammistöðu með City undanfarið. James hefur ekki hlotið náð fyrir augum landsliðsþjálfarans síðan í stórtapi Englendinga fyrir Dönum í ágúst.

Keflavík og Haukar spila í kvöld

Tveir leikir verða á dagskrá í Evrópukeppninni í körfuknattleik hér á landi í kvöld. Karlalið Keflavíkur tekur á móti finnska liðinu Lappeenranta í Keflavík og Haukastúlkur spila við Ribera frá Ítalíu á Ásvöllum. Báðir leikir hefjast klukkan 19:15.

Enn meiðist Kieron Dyer

Miðjumaðurinn Kieron Dyer verður ekki í leikmannahópi Newcastle gegn Birmingham á laugardag eftir að í ljós kom að hann er veikur. Sagt er að veikindi hans tengist því að hann spilaði um helgina án þess að vera kominn í leikform.

Flautukarfa Bryant tryggði Lakers sigur

Fjórtán leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Kobe Bryant tryggði Los Angeles Lakers sinn fyrsta sigur á tímabilinu með flautukörfu í framlengingu gegn Denver og LeBron James fór mikinn hjá Cleveland gegn New Orleans Hornets. Þá átti Michael Redd stórleik þegar Milwaukee vann annan sigurinn í röð á tveimur dögum.

Venst aldrei árásunum

Sol Campbell, varnarmaður Arsenal og fyrrum leikmaður Tottenham Hotspurs, segist aldrei muni venjast þeim óblíðu móttökum sem hann fær á gamla heimavelli sínum White Hart Lane og viðurkennir að hann taki það nærri sér.

Arsene Wenger hrósaði Robin van Persie

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var ánægður með sigurinn á Sparta Prag í Meistaradeildinni í gær og hrósaði framherja sínum Robin van Persie sérstaklega fyrir frammistöðu sína, eftir að hann kom inná sem varamaður og skoraði tvö mörk.

Okkar bíður erfitt verkefni

Alex Ferguson segir að liði Manchester United bíði mjög erfitt verkefni í Meistaradeildinni eftir tapið gegn Lille í kvöld og segir að liðið verði einfaldlega að vinna tvo síðustu leiki sína í riðlinum ef það eigi að hafa möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslitin.

Manchester United tapaði fyrir Lille

Leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er lokið. Manchester United þurfti að sætta sig við 1-0 tap gegn Lille í Frakklandi, en betur gekk hjá Arsenal sem sigraði Sparta Prag 3-0. Thierry Henry skoraði eitt mark fyrir Arsenal og Robin van Persie skoraði tvö og Arsenal er öruggt áfram í keppninni. Barcelona burstaði Pananthinaikos 5-0 á Spáni.

Valur á toppinn

Valsmenn skelltu sér á topp DHL-deildarinnar í handknattleik í kvöld þegar þeir sigruðu ÍBV 38-34 í Laugardalshöll. ÍR bar sigurorð af Víkingi/Fjölni 31-28 á útivelli, FH vann Selfoss 36-29, Afturelding sigraði HK 27-24, Fylkir burstaði KA 33-25 og Fram og Stjarnan skildu jöfn í Garðabænum 26-26. Leik Þórs og Hauka er enn ólokið, en hann hófst ekki fyrr en klukkan 20.

United er undir í hálfleik

Hrakfarir Manchester United virðast ætla að halda áfram, því liðið er undir 1-0 í hálfleik gegn franska liðinu Lille í Meistaradeildinni. Barcelona er að taka Pananthinaikos í kennslustund og hefur yfir 4-0.

Lille - Manchester United á Sýn

Átta leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu nú á eftir og sjónvarpsleikurinn verður viðureign franska liðsins Lille og Manchester United. Stórleikur Juventus og Bayern Munchen verður sýndur í beinni á Sýn Extra og hefst útsending á báðum stöðvum um klukkan 19:30.

Gerði þriggja ára samning við Öster

Helgi Valur Daníelsson, sem lék með Fylki í Landsbankadeildinni í knattspyrnu í sumar, hefur undirritað þriggja ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Öster, sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni á dögunum eftir að það hafnaði í öðru sæti fyrstu deildarinnar.

United þarf að losa sig við leikmenn

Roy Keane, fyrirliði Manchester United, telur að grípa þurfi til róttækra aðgerða til að laga gengi liðsins og segir að öfugt við það sem margir halda fram, þurfi félagið að losa sig við leikmenn í stað þess að kaupa nýja í janúar. Rio Ferdinand var einn þeirra sem fékk pistilinn frá Keane í nýlegu viðtali við fyrirliðann.

Skrifar undir hjá Skaganum á morgun

Knattspyrnumaðurinn Þórður Guðjónsson er á leið heim til Íslands og mun skrifa undir þriggja ára samning við sitt gamla félag ÍA á morgun. Þetta staðfesti Þórður sjálfur nú rétt áðan. Ljóst er að koma Þórðar verður Skagaliðinu mikill liðsstyrkur fyrir átökin næsta sumar, en hann hafnaði tilboði FHinga um að leika með liðinu og ákvað að fara á heimaslóðirnar.

Crouch fer að skora mörk fljótlega

Hinn leggjalangi framherji Liverpool, Peter Crouch, hefur verið gagnrýndur nokkuð upp á síðkastið fyrir að ná ekki að skora mörk. Crouch kostaði Liverpool sjö milljónir punda í sumar og hefur enn ekki náð að skora í alvöru leik fyrir félagið.

Gerði fimm ára samning við West Ham

Alan Pardew er í skýjunum yfir því að hafa undirritað nýjan fimm ára samning við West Ham, en hann hefur stýrt liðinu í tvö ár og kom því nokkuð óvænt upp í úrvalsdeildina í vor. Byrjun liðsins í úrvalsdeild hefur svo farið fram úr björtustu vonum og því hefur Pardew nú skrifað undir nýjan samning.

Rafmögnuð spenna í opnunarleikjunum

Leiktíðin í NBA deildinni hófst í nótt með fjórum leikjum og ekki er hægt að segja annað en að byrjunin lofi góðu, því tveir leikjanna fóru í framlengingu og mjög óvænt úrslit urðu í fyrsta leiknum sem háður var í Oklahoma City.

Nýtt lið sækir um þáttökurétt

Nýtt keppnislið hefur nú lagt fram beiðni um að vera með í Formúlu 1 kappakstrinum á næsta ári. Það er fyrrum ökuþórinn Aguri Suzuki sem er í forsvari fyrir liðið, sem mun keppa með vélar frá Honda ef beiðni liðsins verður samþykkt. Liðið mun heita Super Aguri Formula One og yrði ellefta keppnisliðið á heimsmeistaramótinu á næsta ári ef allt fer að óskum.

Benitez ánægður með Morientes

Rafael Benitez, stjóri Liverpool, var ánægður með sigur sinna manna á slöku liði Anderlecht í Meistaradeildinni í gærkvöldi og þótti sérstök ástæða til að minnast á frammistöðu landa síns Fernando Morientes sem skoraði fyrsta mark sitt í langan tíma fyrir Liverpool.

Lélegasti leikur Chelsea síðan ég tók við

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagðist ekki geta fundið neinar afsakanir fyrir tapinu gegn Real Betis í Meistaradeildinni í gær og sagði leikinn hafa verið lélegustu frammistöðu liðsins síðan hann tók við því á sínum tíma.

Chelsea tapaði fyrir Real Betis

Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í Meistaradeildinni í ár í kvöld, þegar liðið lá á Spáni fyrir Real Betis 1-0. Chelsea-liðið var mun sterkara í leiknum, en leikmenn liðsins fóru illa með færin og geta sjálfum sér um kennt hvernig fór.

Chelsea er undir í hálfleik

Eiður Smári og félagar hans í Chelsea eru undir 1-0 í hálfleik gegn Real Betis í Meistaradeildinni og það var Dani sem skoraði mark heimamanna á 28. mínútu. Eiður Smári fór illa að ráði sínu þegar hann misnotaði sannkallað dauðafæri um miðjan hálfleikinn og var skipt útaf í kjölfarið. Liverpool hefur yfir gegn Anderlecht 1-0, þar sem Morientes skoraði mark enska liðsins.

Manchester United er stærsta lið allra tíma

Alex Ferguson, stjóri Manchester United ætlar ekki að láta slakt gengi liðsins undanfarið hafa áhrif á sig og segir að tapið stóra gegn Middlesbrough geti kennt ungum leikmönnum liðsins dýrmæta lexíu.

Eiður Smári í framlínu Chelsea

Eiður Smári Guðjohnsen verður í framlínu Chelsea í leiknum við Real Betis í Meistaradeildinni nú á eftir, þegar hann jafnar met Árna Gauts Arasonar yfir flesta leiki sem Íslendingur hefur spilað í Meistaradeildinni. Þetta verður 21. leikur Eiðs Smára.

Nistelrooy verður fyrirliði gegn Lille

Sir Alex Ferguson er sagður muni láta hollenska markaskorarann Ruud van Nistelrooy hafa fyrirliðabandið í leiknum gegn franska liðinu Lille í Meistaradeildinni annað kvöld, en mikil meiðsli í herbúðum liðsins gera það að verkum að enginn þeirra sem borið hafa fyrirliðabandið í gegn um árin verða með annað kvöld.

Valur fær liðsstyrk

Valsmönnum gengu í dag frá samningi við tvo nýja leikmenn sem spila munu fyrir liðið á næsta ári. Þetta eru fyrrum Fylkismaðurinn Valur Fannar Gíslason og Pálmi Rafn Pálmason frá KA. Þá hefur knattspyrnudeild Víkings ákveðið að draga kæru á hendur Valsmönnum vegna ólöglegra viðræðna við leikmenn til baka, eftir að sátt náðist milli félaganna tveggja.

Félagið fer á hausinn ef það fellur

David Sullivan, sem er meðeigandi í knattspyrnuliði Birmingham, hefur fullyrt að engum fjármunum verði varið í að styrkja liðið í janúar af þeirri einföldu ástæðu að þeir séu ekki til. Hann bendir á að ef liðið nær ekki að rétta úr kútnum og afstýra falli í vor, muni félagið einfaldlega fara á hausinn.

Chelsea mætir Real Betis

Átta leikir eru á dagskrá Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Leikur PSV Eindhoven og AC Milan verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn og hefst klukkan 19:45, en leikur Chelsea og Real Betis er sýndur á sama tíma á Sýn Extra. Sá leikur er svo sýndur síðar um kvöldið á Sýn.

Vill ekki tjá sig um Roy Keane

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, brást reiður við á blaðamannafundi í dag, þegar hann var spurður út í skammarræðu fyrirliðans Roy Keane sem var ritskoðuðu á sjónvarpsstöð félagsins MUTV í gær.

Íhugar að kæra Jose Mourinho

Arsene Wenger var ekki hrifinn af ummælum Jose Mourinho, stjóra Chelsea um helgina, þar sem hann kallaði Wenger "gluggagægir" og segist vera að íhuga að kæra Portúgalann fyrir meiðyrði.

Dunleavy samdi við Golden State

Framherjinn ungi Mike Dunleavy hjá Golden State Warriors, framlengdi í gær samning sinn við félagið um fimm ár og fær fyrir það um 44 milljónir dollara. Dunleavy var valinn þriðji í nýliðavalinu árið 2002 og fetaði með samningnum í fótspor Tayshaun Prince sem undirritaði svipaðan samning við Detroit skömmu áður.

Þrumuræða Keane ritskoðuð af sjónvarpinu

Roy Keane vandaði félögum sínum í liði Manchester United ekki kveðjurnar í þætti á sjónvarpsstöð félagsins í dag, ef marka má viðbrögð dagskrárstjóra stöðvarinnar, því dagskrárliðurinn þar sem fyrirliðinn meiddi var beðinn að segja sína meiningu á tapinu gegn Boro um helgina var klipptur út.

Vassell gerði út af við fyrrum félaga sína

Darius Vassell skoraði tvö mörk fyrir Manchester City í 3-1 sigri á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Andy Cole lagði upp annað markanna fyrir félaga sinn í framlínu City og setti eitt sjálfur. Liam Ridgewell skoraði mark Aston Villa.

Sjá næstu 50 fréttir