Fleiri fréttir

Glæsileg byrjun West Ham

Nýliðar West Ham byrjuðu leiktíðina í dag með glæsibrag í ensku úrvalsdeildinni. Liðið sigraði Blackburn 3-1 á heimavelli sínum. Charlton lið Hermanns Hreiðarssonar gerði góða ferð norður til Sunderland og sigraði nýliðana 2-1. Fulham lið Heiðars Helgusonar gerði markalaust jafntefli við Birmingham á heimavelli.

Fyrsti sigur Stoke

Stoke vann sinn fyrsta sigur í Championship deildinni í dag þegar liði sigraði Milwall 1-0 á útivelli. Úrslit dagsins í Championship deildinni...

Sigur hjá Guðjóni og félögum

Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í Notts County sigruðu Lincoln City 2-1 á heimavelli fyrr í dag í ensku 2.deildinni. Þetta er annar sigur Notts County sem er í þriðja sæti eftir þrjá leiki í deildinni.

Jafnt í botnslag 1.deildar

Fjölnir og Völsungur gerðu 1-1 jafntefli í 1.deild karla í knattspyrnu í dag. Fjölnir er í níunda sæti en Völsungur í því áttunda. Mark Fjölnis gerði Tómas Leifsson en áður hafði Hermann Aðalgeirsson komið Völsungum yfir.

Markalaust hjá Liverpool

Liverpool gerði markalaust jafntefli við Middlesbrough á River Side vellinum í Middlesbrough. Heimamenn voru einum færri í tæpar 20 mínútur, þegar Ugo Ehiogu var rekinn af velli, en Evrópumeisturnum tóks ekki að færa sér það í nyt.

Start burstaði Rosenborg

Topplið Start burstaði Rosenborg 5-2 í norsku úrvalsdeildinni í dag. Færeyingurinn Todi Jónson gerði þrennu fyrir Start. Välerenga lið Árna Gauts Arasonar sigraði Aalesund 2-0 á útivelli. Haraldur Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Aalesund og  Árni Gautur gerði hið sama í marki Välerenga.

Stórsigur Vals

Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu kvenna burstuðu eistneska meistaraliðið Pärnu 8-1 í lokaleiknum í undanriðli Evrópubikarkeppninnar í Finnlandi í dag, Dóra María Lárusdóttir skoraði 3 mörk í dag, Laufey Ólafsdóttir og Guðný Óðisdóttir 2 hvor og Málfríður Sigurðardóttir eitt.

Villa hækkar tilboð sitt í Baros

Forráðamenn Aston Villa hafa nú í hyggju að hækka kauptilboð sitt í sóknarmanninn Milan Baros hjá Liverpool. Villa gerði á dögunu tilboð upp á sex milljónir punda í tékkneska leikmanninn, en Liverpool vill fá sjö milljónir fyrir hann.

Svanasöngur Shearer að hefjast

Alan Shearer segist klár í slaginn fyrir síðasta keppnistímabil sitt sem leikmaður í ensku knattspyrnunni og gerir ráð fyrir að vera í byrjunarliði Newcastle gegn Arsenal á sunnudaginn.

A landslið kvenna valið

Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur valið íslenska hópinn fyrir leikina gegn Hvíta-Rússlandi á Laugardalsvelli  21. ágúst og Svíþjóð ytra 28. ágúst í undankeppni HM.

Sbrle og Dvorak í vondum málum

Finnska dagblaðið Helsingin Sanomat gerinir frá því í dag, að tékknesku tugþrautarmennirnir Roman Sebrle og Thomas Dvorak séu grunaðir um brot á lyfjalögum á heimsmeistaramótinu í Helsinki, þar sem þeir hafi verið sprautaðir með þrúgusykursupplausn fyrir l1.500 metra hlaupið lokagreinina í þrautinni. Málið er sagt í athugun hjá Alþjóðafrjálsíþróttasambandinu.

Woods byrjar illa á PGA

Tiger Woods, stigahæsti kylfingur heims, byrjaði ekki vel á PGA-meistaramótinu í golfi sem hófst á Baltusrol-vellinum í New Jersey í gærkvöld. Tiger lék fyrsta hringinn á fimm höggum yfir pari og er í 113. sæti, en 97 af hundrað stigahæstu kylfingum heims taka þátt í mótinu.

Selfoss og Stjarnan skildu jöfn

Stjarnan og Selfoss gerðu jafntefli, 3-3, í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Stjarnan er í efsta sæti deildarinnar með 27 stig, jafnmörg og Leiknir sem á leik til góða.

Habbó frá út tímabilið

Hafþór Ægir Villhjálmsson, eða Habbó eins og hann er ætíð kallaður, leikmaður ÍA í knattspyrnu handleggsbrotnaði í gær í leik gegn Val og mun því ekki leika meira með liðinu það sem eftir er af leiktíðinni. Hins vegar eru góðar fréttir af leikmannahópi Skagamanna. Bjarki Guðmundsson, markvörður liðsins...

U21 landsliðið

Nú um helgina fer U-21 árs landslið pilta til Ungverjalands til að taka þátt í Heimsmeistaramótinu í handbolta en það fer fram daganna 15-28. ágúst.

Scholes hjá United til 2009

Paul Scholes hefur gert fjögurra ára framlengingu á samningi sínum við Manchester United. Scholes, 31 árs hefur leikið með United allan sinn feril og hefur átta sinnum orðið Englandsmeistari og fjórum sinnum unnið bikarinn og þá vann hann Meistraradeildina árið 1999 með United.

Davids missir af fyrsta leik

Edgar Davids mun ekki leika með Tottenham í fyrsta leik liðsins gegn Portsmouth sem fram fer á morgun. Hann á við minniháttar hnémeiðsli að stríða og verður ekki leikfær. Davids gekk til liðs við Tottenham í sumar frá Inter Milan á frjálsri sölu.

Ólafur Ingi með slitið krossband

Ólafur Ingi Skúlason, fyrrverandi leikmaður Arsenal og núverandi leikmaður Brentford á Englandi er með slitið fremra krossband á vinstra hnéi. Ólafur Ingi meiddist í leik gegn Chesterfield fyrr í vikunni en var úrskurðaður krossbandsslitinn fyrr í dag. Áætlað er að leikmaðurinn verði frá keppni í 7-8 mánuði.

Sigrar hjá Akureyrarliðunum

Akureyrarliðin KA og Þór unnu bæða góða sigra í kvöld í 1.deild karla í knattspyrnu. KA sigraði KS á Siglufirði 5-0 og Þór sigraði Hauka 2-0 á Akureyri. Í þriðja leik kvöldsins gerðu HK og Víkingur markalaust jafntefli í Kópavoginum.

ÍBV vann Keflavík í kvennaboltanum

Einn leikur var á dagskrá í Landsbankadeild kvenna í gærkvöldi þegar ÍBV vann nauman 4-3 sigur á Keflavík. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á þriðjudag en honum var frestað og var leikið á Hásteinsvelli í gærkvöldi.

Arsenal fær Song lánaðan

Arsenal ætlar að fá Alexandre Billong Song á lánssamningi þessa leiktíð. Þessi 18 ára landsliðsmaður frá Kamerún stóð sig vel með félaginu í æfingaferð í Austurríki. Arsene Wenger mun eiga möguleika á að kaupa Song endanlega til félagsins næsta sumar fyrir tæplega þrjár milljónir punda.

Man Utd að fá brasilískan bakvörð?

Manchester United hefur áhuga á brasilíska varnarmanninum Cicinho. Sir Alex Ferguson sá þennan leikmann spila með Brasilíu í Álfukeppninni og var það ánægður með frammistöðu hans að hann ákvað að leggja fram tilboð.

Keflavík mætir Mainz í kvöld

Lið Keflavíkur er nú í Frankfurt í Þýskalandi að búa sig undir leik gegn FSV Mainz í UEFA-keppninni sem verður í kvöld kl.18:30 að íslenskum tíma. Ferðin út gekk vel samkvæmt heimasíðu liðsins og vel fer um hópinn þar ytra. Í gær var æft á Commerzbank Arena-leikvanginum sem er stórglæsilegt mannvirki.

Sóknarvandræði Newcastle

Graeme Souness knattspyrnustjóri Newcastle á í stökustu vandræðum varðandi sóknarleikinn á St James' Park eftir að Michael Chopra meiddist illa í gær. Þessi U21 landsliðsmaður Englands skaðaði liðbönd á hægra hné eftir aðeins 15 mínútur í leik með varaliðinu í gær.

Cisse varð fyrir kynþáttafordómum

Knattspyrnusamband Evrópu hefur gefið til kynna að það hyggist grípa til aðgerða vegna kynþáttafordóma í garð sóknarmannsins Djibril Cisse í leiknum gegn CSKA Sofia í gær. Leikurinn fór fram í Sofiu en þetta var fyrri viðureign liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu.

Jörundur búinn að tilkynna hópinn

Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur valið hópinn fyrir leikina gegn Hvíta-Rússlandi og Svíþjóð í undankeppni HM.  Hvít-Rússar leika hér á landi 21. ágúst en íslenska liðið heldur síðan til Svíþjóðar og leikur við heimamenn á Nobelstadion í Karlskoga 28. ágúst.

Garðar mætir á Skagann í kvöld

Einn leikur er í Landsbankadeild karla í kvöld en það er frestaður leikur úr elleftu umferð. ÍA tekur á móti Val á Skipaskaga og hefst leikurinn klukkan 19:15. Hann verður í beinni útsendingu á Sýn.

Valsstúlkur mæta FC United í dag

Íslandsmeistarar Vals keppa í dag við finnska liðið FC United í Evrópukeppni kvenna og verður leikurinn í Finnlandi. Valur hefur forystu í riðlinum eftir stórsigur á norsku meisturunum í Röa í fyrradag.

Færast Blikar enn nær úrvalsdeild?

Breiðablik svo gott sem tryggir sæti sitt í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð takist liðinu að sigra Víking Ólafsvík í 1. deildinni í kvöld. Breiðablik hefur 7 stiga forystu á Víking og 11 stiga forystu á KA sem er í þriðja sæti.

Veigar skoraði fyrir Stabæk

Veigar Páll Gunnarsson skoraði fyrir Stabæk sem gerði 1-1 jafntefli við Follo í norsku 1. deildinni. Ólafur Ingi Skúlason meiddist á hné í gærkvöldi þegar lið hans Brentford sigraði Chesterfield 3-1 á útivelli.

Stjarnan tapaði fyrir Melsungen

Stjarnan tapaði fyrir Melsungen 25-31 á Sparkassen-mótinu í handbolta í Þýskalandi í gær. Arnar Theódórsson var markahæstur í liði Stjörnunnar með 7 mörk en David Kekelia kom næstur með 5. Staðan í hálfleik var 17-8. Lemgo vann landslið Katar 39-19 í þessum sama riðli.

Tap fyrir Lettum í Bosníu

Íslendingar töpuðu fyrir Lettum 52-97 á Evrópumóti landsliða 18 ára og yngri en keppt er í Bosníu. Helena Sverrisdóttir skoraði 21 stig en María Ben Erlingsdóttir kom næst með 11 stig. Stúlkurnar keppa við Portúgala í dag.

Leikum aftarlega gegn Mainz

Kristján Guðmundsson þjálfari knattspyrnuliðs Keflavíkur segir að hann ætli að láta lið sitt spila varnarbolta gegn þýska liðinu Mainz í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða en liðin mætast í Þýskalandi í kvöld. Þýska liðið lenti í 11. sæti í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili en fékk Evrópusæti út á háttvísismat UEFA.

Fabregas hjá Arsenal til 2011

Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas skrifaði í dag undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarliðið Arsenal sem gildir til ársins 2011. Cesc sem er aðeins 18 ára á að leysa af hólmi stöðu Patrick Vieira sem á dögunum var seldur til Juventus.

Viggó velur HM hóp U21

Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari A-landsliðs og U21 árs landsliða Íslands í handbolta tilkynnti í dag 16 manna hóp sem tekur þátt í úrslitakeppni U21 árs landsliða í Ungverjalandi. Allir leikmennirnir nema þrír leika með íslenskum félagsliðum. Mótið hefst á þriðjudaginn n.k. og heldur liðið utan um helgina.

Stórstjörnur boða komu í Egilshöll

Fjöldi stórstjarna úr ensku knattspyrnunni á árum áður staðfestu í dag komu sína til Íslands til að taka þátt alþjóðlegu knattspyrnumóti í Egilshöll í byrjun nóvember. Það Íslandsvinurinn Ian Rush sem stendur fyrir mótinu í samvinnu við Icelandair. Lið frá Arsenal, Liverpool og Man Utd munu keppa sín á milli og við íslensk lið.

Byrjunarlið Keflavíkur tilkynnt

Byrjunarlið Keflavíkur sem mætir Mainz í Evrópukeppni félagsliða í Þýskalandi á eftir hefur verið tilkynnt. Kristján Guðmundsson þjálfari gerir nokkrar breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Hann setur Færeyinginn Simon Samuelsen í byrjunarliðið eftir fráæra frammistöðu gegn Þrótti í sínum fyrsta leik um sl. helgi. Leikurinn hefst kl. 18:30.

Jón Arnór aftur með landsliðinu

Sigurður Ingimundarson landsliðþjálfari í körfubolta hefur valið tólf leikmenn sem keppa fyrir Íslands hönd í leikjum gegn Hollandi og Kína nú í ágúst, sem og í Evrópuleikjunum gegn Danmörku og Rúmeníu 3. og 10. september n.k. Þetta er sterkasta lið sem Ísland hefur náð að stilla upp í langan tíma.

Keflavík 1-0 undir í hálfleik

Keflvíkingar eru 1-0 undir gegn Mainz í hálfleik í fyrri leik liðanna í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Markið kom á 10. mínútu eftir sendingu af vinstri kanti inn í teig þaðan sem Benjamin Auer skallaði boltann yfir Ómar Jóhansson markvörð og í hægra hornið. Leikurinn hófst kl. 18:30.

Valsstúlkur komnar í milliriðil

Íslandsmeistarar Vals eru að gera frábæra hluti í UEFA-bikar kvenna í fótbolta en þær unnu finnsku meistarana FC United, 2-1 nú síðdegis og eru komnar í milliriðil. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði bæði mörk Vals og kom þeim í 2-0, það fyrra úr vítaspyrnu á 16. mínútu en seinna á 41. mínútu.

Keflavík 2-0 undir

Keflvíkingar hafa lent 2-0 undir gegn Mainz þegar 71 mínúta er liðin af leiknum. Michael Johansen leikmaður Keflavíkur braut á leikmanni Mainz inni í vítateig og fengu heimamenn vítaspyrnu sem Christof Babatz skoraði úr. Einni mínútu áður átti Guðmundur Steinarsson besta færi Keflavíkur.

Markalaust í hálfleik á Skaganum

Markalaust er í hálfleik hjá ÍA og Val í 13. umferð Landsbankadeildar karla í fótbolta en leikurinn fer nú fram uppi á Skaga. Leikurinn er fremur tíðindalítill þó að hann sé ágætlega leikinn en er jafn og spennandi.

2-0 tap Keflavíkur gegn Mainz

Keflvíkingar töpuðu fyrir þýska Bundesliguliðinu Mainz, 2-0 í fyrri leik liðanna í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu í kvöld. Fyrra markið kom á 10. mínútu eftir sendingu af vinstri kanti inn í teig þaðan sem Benjamin Auer skallaði boltann yfir Ómar Jóhansson markvörð og í hægra hornið. Keflvíkingar lentu svo 2-0 undir á 71. mínútu.

Stjarnan steinlá gegn Lemgo

Lið Stjörnunnar úr Garðbæ í handknattleik karla steinlá fyrir þýska liðinu Lemgo í kvöld 48-23 á 16-liða æfingamóti, sem hófst í Hessen í Þýskalandi í fyrrakvöld. Staðan í hálfleik var 21-9 fyrir Lemgo. Tite Kalandadze var markahæstur Stjörnunnar með 9 mörk.

Ósanngjarn sigur Vals á Skaganum

Valur vann ÍA 2-1 í stórkostlega dramatískum leik í Landsbankadeld karla í knattspyrnu í kvöld. Garðar Gunnlaugsson skoraði bæði mörk Valsmanna. "<em>Við vorum klárlega betri aðilinn í leiknum og það er hundfúlt að tapa þessu. En þetta var besti leikur okkar í sumar" </em>sagði Ólafur Þórðarson í viðtali við Sýn í beinni útsendingu í leikslok.

Sjá næstu 50 fréttir