Fleiri fréttir

Essien barði í borðið

Miðjumaðurinn Michael Essien hjá Lyon virðist loks vera á leið til Chelsea eftir að hafa átt fund með forseta félagsins og neitað öllum samningstilboðum hans. Peter Kenyon, stjórnarformaður Chelsea er nú á leið til Frakklands með það fyrir augum að ganga frá málinu í eitt skipti fyrir öll og væntir þess að klára það frá á næstu tveimur sólarhringum.

Benitez styður Morientes

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að stuðningsmenn Liverpool eigi enn eftir að sjá það besta sem framherjinn Fernando Morientes hefur upp á að bjóða.

Valsstúlkur lögðu Noregsmeistara

Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu lögðu Noregsmeistarana í Röa að velli 4-1 í fyrstu umferð Evrópukeppni félagsliða en leikurinn fór fram í Finnlandi. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk og þær Dóra María Lárusdóttir og Guðný Óðinsdóttir sitt markið hvor. Valur mætir finnska liðinu FC United á morgun en Finnarnir sigruðu Pärnu frá Eistlandi 2-0.

Blikastúlkur tapa fyrstu stigunum

Eftir 10 sigurleiki í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu kom að því að Breiðablik tapaði stigum. KR-ingar bundu enda á sigurgöngu Breiðabliks í gærkvöldi þegar liðin gerðu markalaust jafntefli. Landsliðsmarkvörðurinn Þóra B. Helgadóttir átti enn einn stórleikinn og hún kom í veg fyrir sigur KR.

Sex í leikbann vegna gulra spjalda

Aganefnd KSÍ dæmdi í gær sex leikmenn úr Landsbankadeild karla í keppnisbann. Christian Christiansen, Fylki, hefur þegar tekið út sitt leikbann en Valur Fannar Gíslason og Viktor Bjarki Arnarson voru dæmdir í bann vegna fjögurra gulra spjalda. Kristján Hauksson, Fram, Reynir Leosson, ÍA, og Guðjón Árni Antoníusson, Keflavík, fengu einnig bann vegna fjögurra áminninga.

Guðmundur til erkifjendanna

Guðmundur Pedersen, handboltamaður í FH, gekk í gær í raðir Íslandsmeistara Hauka. Guðmundur hefur alið allan aldur sinn hjá FH og hefur undanfarin tvö ár verið fyrirliði liðsins. Hann gekk frá árs samningi við Hauka.

FH- Grindavík í kvöld - Boltavakt

FH og Grindavík mætast í kvöld í Landsbankadeild karla á Kaplakrikavelli klukkan 19:15. Um er að ræða frestaðan leik en liðin áttu að mætast í síðasta mánuði en það reyndist ekki mögulegt vegna þáttöku FH í Evrópukeppni. Liðin mættust hins vegar í maí mánuði í 2.umferð mótsins þá sigraði FH 5-1 og gerði Tryggi Guðmundsson þrennu fyrir FH.

Tap fyrir Svíum á EM

Íslenska landsliðið í körfuknattleik stúlkna 18 ára og yngri beið í gær lægri hlut fyrir Svíum í B-deild Evrópumóts sem fram fer í Bosníu. Svíar sigruðu með 21 stigs mun, 60 stigum gegn 39. Helena Sverrisdóttir var stigahæst íslensku stúlknanna, skoraði 17 stig, tók 7 fráköst og átti 6 stoðsendingar. Í dag keppa íslensku stúlkurnar við lið Lettlands.

Búið að velja skíðalandsliðið

Skíðasamband Íslands hefur tilkynnt um val á landsliðinu. Í alpagreinalandsliðinu eru Dalvíkingarnir Björgvin Björgvinsson og Kristinn Ingi Valsson, Ólafsfirðingurinn Kristján Uni Óskarsson, Víkingurinn Guðrún Jóna Arinbjarnardóttir, Akureyringurinn Dagný Linda Kristjánsdóttir og Sindri Már Pálsson úr skíðadeild Breiðabliks.

Guðjón ánægður með sína menn

Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County, og lærisveinar hans unnu góðan sigur á Wrexham í gær 1-0 með marki á lokamínútunni. "Þessi úrslit voru mjög góð gegn sterku Wrexham liði. Ég sagði mínum mönnum að vera þolinmóðir. Við biðum færis og það skilaði sér," sagði Guðjón kampakátur eftir leik.

Hyypia á Anfield til 2008

Sami Hyypia, gerði í gær nýjan þriggja ára samning við Liverpool. "Víst Steven Gerrard, Jamie Carrager, Djimi Traore og Dietmar Hamann eru allir búnir að skrifa undir nýjan samning þá er ég hæstánægður með að hafa gert hið sama," sagði Hyypia sem nú er með samning við Liverpool til ársins 2008 

Normaður dæmir í 1.deild

Norskur dómari, Ken Henry Johnsen, dæmir leik HK og Víkings R. í 1. deild karla sem fram fer á Kópavogsvellinum á föstudagskvöldið kemur, 12. ágúst. Samkvæmt tilkynningu sem KSÍ sendi frá sér í morgun er þetta liður í norrænum dómaraskiptum sem knattspyrnusamböndin á Norðurlöndum eru að hrinda í framkvæmd.

Hermann og Brynjar ekki með

Þeir Hermann Hreiðarsson og Brynjar Björn Gunnarsson verða ekki með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Suður-Afríku á Laugardalsvelli næstkomandi miðvikudag. Brynjar Björn er meiddur og Hermann fær hvíld í landsleiknum, þar sem hann hefur verið að vinna sig út úr erfiðum meiðslum.

Anelka ekki til Newcastle

Nicolas Anelka mun ekki ganga í raðir Newcastle þetta fullyrti Freddi Shepherd stjónarformaður félagsins, en tyrkneska liðið Fenerbache ætlar ekki að selja Anelka. Sheppard hefur hins vegar fullvissað stuðningsmenn Newcastle að liðið muni fá til sín nýja leikmenn áður en langt um líður.

Landsliðshópur Suður Afríku

Stuart Baxter, landsliðsþjálfari Suður-Afríku, hefur tilkynnt leikmannahópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Íslandi sem fram fer á Laugardagsvelli næst komandi miðvikudag.

Toshack niðurlægir Savege

John Toshack hefur ákveðið að velja ekki Robbie Savage, leikmann Blackburn, í landslið Wales. Savage hætti að gefa kost á sér á síðasta ári en ákvað í síðasta mánuði að snúa aftur í landsliðið. Toshack, þjálfari hefur hins vegar lítinn áhuga á kröftum Savage og valdi marga neðri deildarleikmenn í hans stað.

Liverpool yfir í hálfleik

Liverpool er 2-1 yfir gegn CSKA Soffíu frá Búlgaríu í hálfleik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Djibril Cisse og Fernando Morientes gerðu mörk Liverpool en Dimitrov gerði mark Búlgaranna en leikurinn fer fram í Soffíu.

Landsiðið mætir risanum

Síðar í þessum mánuði verða æfingaleikir erlendis hjá karlalandsliði Íslands í körfubolta og það ekki gegn neinum aukvisum. Landsliðið heldur til Hollands um helgina og leikur þar gegn heimamönnum. Síðan fer liðið til Kína og mætir heimamönnum.

Upprúllun í Krikanum

FH-ingar eru að bursta Grindvíkinga 4-0 í hálfleik í Landsbankadeild karla. Allan Borgvardt hefur gert tvö, Tryggvi Guðmundsson og Ásgeir Ásgeirsson eitt hvor.

Sigur hjá Ólafi Inga og félögum

Ólafur Ingi Skúlason og félagar í Brentford, í ensku C deildinni sigurðu Chesterfield 3-1 í kvöld á heimavelli. Ólafur Ingi byrjaði leikinn en var skipt út af á 38. mínútu.

Liverpool sigraði í Soffíu

Liverpool sigraði CSKA Soffíu í kvöld 3-1 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Fernando Morientes gerði tvö marka Liverpool en Djibril Cisse eitt. Úrslit annara leikja í kvöld í forkeppni Meistaradeilda karla var eftirfarandi...

FH 8 - Grindavík 0

FH burstaði Grindavík 8-0 í kvöld í Landsbankadeild karla. Daninn Allan Borgvardt gerði fjögur mörk, Tryggvi Guðmundsson, Jónas Grani Garðarsson, Ólafur Páll Snorrason og Ásgeir Ásgeirsson eitt hvor. FH-ingar eru nú komnir með 12 stiga forystu á Val sem er í öðru sæti.

Besta FH lið sem ég hef séð

"Þetta er besta FH lið sem ég hef séð frá því ég fæddist," sagði Tryggvi Rafnsson Guðfaðir Hafnarfjarðarmafíunnar, stuðningsmannaklúbbs FH í samtali við Vísi.is eftir að liðið burstaði Grindavík í kvöld 8-0. Tryggvi þorir ekki að fagna Íslandsmeistaratitlinum strax en segir þó að þeir þurfi að vera algjörir aular til að klúðra þessu upp úr því sem komið er.

Segir Owen að fara til Newcastle

Sir Bobby Robson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Newcastle, segir að Micheal Owen eigi að fara til Newcastle, fari svo að hann yfirgefi herbúðir Real til að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.

Ferdinand segist ekki gráðugur

Varnarmaðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United, segir að það hafi ekki verið græðgi sem tafði undirritun nýja samnings hans í gær og blæs á sögusagnir um að hann hafi verið að bíða eftir að United samþykkti að borga honum 120.000 pund í vikulaun.

Forlan verður okkur erfiður

Mickael Arteta, miðjumaður Everton, segir að Diego Forlan, fyrrverandi leikmaður Man. Utd, sé sá leikmaður sem liðið óttist mest í liði Villareal, en liðin eigast við í 3. umferð Meistaradeildarinnar í kvöld. Viðueignin er sýnd í beinni útsendingu á Sýn.

Nisterlrooy mun snúa aftur

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United segir að í ár muni Ruud van Nistelrooy snúa aftur til fyrra forms eftir erfitt ár í fyrra, þar sem hann var mikið meiddur og fullyrðir að sá hollenski muni skjóta United á toppinn á ný.

Jafntefli hjá Preston og Derby

Í ensku fyrstu deildinni í knattspyrnu gerðu Preston og Derby jafntefli 1 - 1. David Nugent kom Preston yfir, en Indíkó Ídíakís jafnaði leikinn fyrir Derby með marki úr vítaspyrnu.

Enski boltinn á Sýn í kvöld

Í kvöld verður leikið í þriðju umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Manchester United mætir Debrecen frá Ungverjalandi á Old Trafforf í fyrri leik liðanna, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 18.55.

Norska úrvalsdeildin

Einn leikur var á dagskrá í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Viking og Start gerðu jafntefli, 1 - 1. Hannes Þ. Sigurðsson kom inná sem varamaður í liði Vikings í síðari hálfleik rétt eins og Jóhannes Harðarson sem leikur með Start.

Gautaborg er á toppnum

Gautaborg er á toppnum í Svíþjóð með 32 stig, stigi meira en Djurgarden sem er í öðru sæti. Gautaborg vann góðan útisigur á Helsingborg, 2 - 0 , en Helsingborg sem er í fjórða sæti með 30 stig hefði með sigri skotist á toppinn í deildinni. Elfsborg sigraði Hacken, 2 - 0 , og Sundsvall og Gelfe skildu jöfn, 2 - 2.

Shearer og Parker meiddir

Alan Shearer, fyrirliði Newcasstle og Scott Parker miðjumaðurinn sem Newcastle fékk frá Chelsea verða ekki með liðinu gegn Arsenal á Highbury í fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni sem verður á sunnudag. Þá á Shay Given, markvörður liðsins við nárameiðsli að stríða og alls óvíst hvort hann leiki með gegn Arsenal.

Jólaboð hjá Shaq og Kobe

Vinirnir Shaquille O´Neal og Kobe Bryant mætast annað árið í röð á jóladag. Í fyrra áttust þeir við í Staples Center heimavelli Kobe og Los Angeles Lakkers en í ár fer leikurinn fram í American Airlines höllinni, heimavelli Shaqs og félaga í Miami Heat. Síðast hafði Shaq betur en Kobe er eflaust staðráðinn í að ná fram hefndum.

Buryak látinn fara

Stjórnarmenn úkraínska knattspyrnuliðsins Dynamo Kiev ráku í dag Leonid Buryak þjálfara liðsins þrátt fyrir að Buryak hafi aðeins stjórnað liðinu í 2 mánuði. Liðinu hefur gengið illa í úkraínsku deildinni og var slegið út í forkeppni meistaradeildar Evrópu af svissneska liðinu Thun í síðustu viku. Anatoly Demyanenko var ráðinn í stað Buryaks

Sannleikanum hagrætt að mati Fram

Í yfirlýsingu frá Fram segir að frjálslega sé farið með sannleikann í tengslum við félagaskipti Bo Henriksen frá Val til Fram.

Ferguson viðurkennir rifrildi

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United hefur viðurkennt að hafa lennt í rifrildi við Roy Keane fyrirliða liðsins í æfingabúðum í Portúgal fyrr í sumar. Ferguson, sem er skoskur, segir að rifrildið hafi ekki verið alvarlegt en óskar sér samt að hann hefði fengið pund fyrir hvert skipti sem hann hafi rifist við Keane, en þá væri hann ríkur maður í dag.

Glæsilegur sigur Vals

Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki unnu í dag frábæran 4-1 sigur á Noregsmeisturum Roa Idrettslag í Evrópukeppni félagsliða kvenna, en liðin leika í riðli sem fram fer í Finnlandi. Sigurinn hlýtur að teljast enn merkilegri fyrir þær sakir að norsk kvennalið eru talin með þeim bestu í Evrópu.

Jóhann til reynslu hjá AGF

Á heimasíðu AGF í dag er greint frá því að Jóhann B. Guðmundsson knattspyrnumaður í Örgyte í Gautaborg er þessa dagana til reynslu hjá danska félaginu AGF í Árósum og það ræðst um næstu helgi, hvort honum verði boðinn samningur.

Allt stopp í Helsinki

Vegna gífurlegs úrhellis í Helsinki í Finnlandi hefur ekki verið hægt að hefja keppni á HM í frjálsum íþróttum nú síðdegis. Keppni hefst um leið og veðrinu slotar.

United yfir í hálfleik

Manchester United er 1-0 yfir gegn Debrechen frá Ungverjalandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Wayne Rooney gerði mark United á 7. mínútu.Þá er leik Glasgow Rangers frá Skotlandi lokið, þeir sigruðu Anorthosis frá Kýpur 2-1 á útivelli í sömu keppni.

Sigur hjá Guðjóni

Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í Notts County sigruðu í kvöld lið Wrexham á heimavelli sínum 1-0. Mark County kom á lokamínútu leiksins. Þetta var annar leikur liðsins í ensku 3.deildinni, þeim fyrri lauk með markalausu jafntefli.

Úrslitin úr ensku 1.deildinni.

Fjöldi leikja fór fram í ensku 1.deildinni( Championship) í kvöld. Jóhannes Karl var í liði Leicester sem sigraði Stoke, Ívar Ingimarsson var í liði Reading sem vann Brighton, Bjarni Guðjónson sat allan tíma á varamanna bekknum í liði Plymouth og það sam gerði Gylfi Einarsson í liði Leeds. Úrslit kvöldsins voru sem segir..

Sigur hjá Árna Gauti og félögum

Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Välerenga sigruðu Club Brugge frá Belgíu 1-0 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Manchester United sigraði Debrechen frá Ungveralandi 3-0 með mörkum frá Wayne Rooney, Ruud van Nistelrooy og Ronaldo. Úrslit kvöldsins í forkeppni Meistaradeildarinnar eru eftirfarandi....

Breiðablik færist nær titlinum

Stelpurnar í Breiðablik komust skrefinu nær Íslandsmeistaratitilinum í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við KR á útivelli í kvöld. Þá sigraði FH lið Stjörnunnar 2-1 í Garðabæ.

Sjá næstu 50 fréttir