Fleiri fréttir

Alfa Romeo ætlar óvænt að kynna nýjan sportbíl á næsta ári

Ítalski framleiðandinn, Alfa Romeo hefur gefið út að sportbíllinn sem er búið að bíða eftir lengi verði kynntur á fyrri helmingi næsta árs. Bílinn mun svipa til T33 Stradake, samkvæmt yfirmanni verkefnisins hjá Alfa Romeo, Jean-Philippe Imparato. 

Skýring á brotthvarfi Herbert Diess frá Volkswagen Group

Ákvörðun um uppsögn Herbert Diess, framkvæmdastjóra Volkswagen Group kom mörgum í opna skjöldu. Raunveruleg ástæða þess að hann var að endingu látinn taka pokann sinn var sú að eina verkefnið sem var eftir á borði hans síðan í desember síðastliðnum, olli talsverðum seinkunum á kynningum rafbíla eins og Porsche Macan, Artemites verkefni Audi og Bentley rafbílum. Diess var enn yfir hugbúnaðardeildinni CARIAD sem virðist hafa verið síðasta hálmstráið.

Háskólanemar hanna bíl sem fjarlægir koltvísýring úr andrúmsloftinu

Bíllinn gengur undir nafninu Zem og er frumgerð af rafbíl sem notar sérstakar síur sem hreinsa koltvísýring úr loftinu á meðan á akstri stendur. Bíllinn er hannaður af nemendum við Eindhoven háskóla í Hollandi. Bíllinn er ekki fyrsti byltingarkenndi bíllinn sem nemendur skólans hanna.

Framkvæmdastjóri Volkswagen Group hættir

Herbert Diess, framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar hefur sagt starfi sínu lausu og mun láta af því 1. september næstkomandi. Næsti framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar verður Oliver Blume, núverandi framkvæmdastjóri Porsche.

Alpine kynnir rafdrifna blæjuútgáfu af A110

Franski sportbílaframleiðandinn Alpine, sem er í eigu Renault hefur kynnt til sögunnar hreinan rafblæjubíl sem er byggður á A110 bíl framleiðandans, sem til þessa hefur verið knúinn áfram af bensínmótor. Rafdrifna útgáfan mun bera nafnið A110 E-ternité

Hyundai staðfestir væntanlegan ódýran og smáan rafbíl

Hyundai hefur staðfest að unnið sé að smáum og ódýrum rafbíl fyrir evrópskan markað. Verðið á að vera um 20.000 evrur eða um 2,8 milljónir króna. Bíllinn er ekki væntanlegur alveg strax. Huyndai kynnti nýlega Ioniq 6.

Pagani ætlar að þróa rafbíla eftir allt saman

Pagani hefur staðfest að fyrirtækið ætli að framleiða ofurrafbíl þrátt fyrir orðróm um að ekkert yrði að smíðum slíks bíls. Pagani segist vera með annað augað á framtíðarlausnum.

Myndband: Einvígi olíulausra V8 véla

Hvað gerist þegar olían er tekin af vélum tveggja bíla sem eru yfir tuttugu ára gamlir og átta strokka? Hvort endist BMW vélin lengur eða Lexus vélin, eins og myndbandið setur einvígið upp, Þýskaland gegn Japan. Annar bíllinn endist talsvert lengur en hinn.

Ioniq 6 Saloon kynntur til sögunnar

Hyundai Motor hefur frumsýndi nýlega Ioniq 6 sem verður nýjasti rafbíllinn úr smiðju Hyundai, búinn 77 kWh rafhlöðu með 610 km drægni. Ioniq 6 styður við bæði 400-V og 800-V hleðslustöðvar. Með 350 kW hleðslu er hægt að hlaða Ioniq 6 frá 10 til 80 prósenta á aðeins 18 mínútum.

Fyrsti rafbíll Lamborghini verður jepplingur

Fyrsti rafbíll ítalska sportbílaframleiðandans Lamborghini verður jepplingur og er væntanlegur árið 2028. Það er líflína fyrir bensín bíla þrátt fyrir rafvæðinguna.

Framleiðslu BMW i3 hætt

BMW hefur nú hætt framleiðslu rafbílsins i3 eftir að 250.000 eintök hafa verið smíðuð á þeim rúmu átta árum sem bíllinn hefur verið í framleiðslu. Síðustu tíu bílarnir voru framleiddir í sérstakri heimahafnar útgáfu (e.HomeRun).

Kia EV6 valinn bíll ársins

Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB hefur valið Kia EV6 sem bíl ársins. Fyrir nafnbótina hlýtur bíllinn stálstýrið. Bíllinn var frumsýndur í nóvember á síðasta ári, síðan þá hefur hann einnig verið valinn bíll ársins í Evrópu.

Lamborghini viðskiptavinir keyra yfir Ísland

Lamborghini er eins og öðrum sportbílaframleiðendum mikið í mun að sanna gildi og getu jepplinga sinna. Lamborghini hefur brugðið á það ráð að bjóða hópi viðskiptavina í mánaðar langa reisu um Ísland á Urus bíl sínum. Til að sanna hvers hann er megnugur.

Bank of America: Ford og GM munu taka fram úr Tesla

Car Wars rannsóknin sem kom út nýlega spáir fyrir um að General Motors og Ford muni taka fram úr Tesla í þegar kemur að markaðshlutdeild á rafbílamarkaði. Spálíkön gera ráð fyrir að GM og Ford muni hvort um sig öðlast um 15% markaðshlutdeild á meðan Tesla muni hrapa frá 70% niður í 11% á árinu 2025.

Dacia Duster mest nýskráða bifreiðin í júní

Toyota var mest nýskráða vörumerkið í nýliðnum júní mánuði með 596 nýskráningar, Kia var í öðru sæti með 256 og Hyundai í þriðja með 223. Mest selda undirtegundin var Dacia Duster með 202 bíla nýskráða í júní, samkvæmt upplýsingum á vef Samgöngustofu.

Sjá næstu 50 fréttir