Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þekkti fórnarlömb sín ekki og tilefnið enn óljóst Hinn 72 ára gamli Huu Can Tran þekkti ekkert af þeim ellefu fórnarlömbum sínum sem hann skaut til bana í Monterey Park í Kaliforníu aðfaranótt síðasta sunnudag. Tran myrti ellefu manns og særði níu þegar hann skaut á hóp eldri borgara í danssal í bænum, þar sem verið var að halda upp á nýtt tunglár. 26.1.2023 10:34
Skutu þrjátíu eldflaugum á Úkraínu Umfangsmikil loftárás er nú í gangi í Úkraínu en Rússar skutu í morgun að minnsta kosti þrjátíu eldflaugum á skotmörk í landinu. 26.1.2023 08:32
Vildu meina Santos aðgengi að leynilegum gögnum en McCarthy sagði nei Tveir Demókratar í fulltrúadeild bandaríska þingsins hafa skorað á þingforsetann, Repúblikanann Kevin McCarthy, að meina George Santos, þingmanni Repúblikana frá New York, um aðgengi að trúnaðargögnum. 26.1.2023 08:10
Skólar rýmdir í Japan vegna sprengjuhótana Lögregla í Japan leitar nú að manni sem hefur sent fjölmargar sprengjuhótanir til skóla víðsvegar um landið en hótanirnar hafa leitt til þess að rýma hefur þurft hundruð skólabygginga. 26.1.2023 07:47
Selenskí þakklátur fyrir skriðdrekana en vill líka þotur Volodomír Selenskí Úkraínuforseti þakkar kollegum sínum á vesturlöndum fyrir þá ákvörðun að senda Úkraínuher skriðdreka í tugatali en málið virðist loksins vera komið á rekspöl eftir margra vikna umræður. 26.1.2023 07:39
Þingmenn þurfa ekki lengur að opinbera tekjur sínar né eignir Neðri deild rússneska þingsins hefur samþykkt ný lög sem gera það að verkum að þingmenn munu ekki lengur þurfa að opinbera tekjur sínar né eignir. Þess í stað munu skattayfirvöld gefa út „samantekt“ byggða á þeim gögnum sem þeim berast. 26.1.2023 07:06
Trump snýr aftur á Facebook og Instagram Samfélagsmiðlafyrirtækið Meta, sem rekur bæði Facebook og Instagram, hefur ákveðið að veita Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, aftur aðgang að samfélagsmiðlunum. Honum var hent af miðlunum í kjölfar árásanna á þinghús Bandaríkjanna þann. 6. janúar 2021. 25.1.2023 23:41
Kanslari Þýskalands mætir á leiðtogafund á Íslandi Þjóðverjar og bandalagsþjóðir þeirra í Atlantshafsbandalaginu munu senda Úkraínumönnum rúmlega hundrað skriðdreka til að byrja með, samkvæmt ákvörðun sem kanslari Þýskalands greindi frá í dag. Forsætisráðherra segir varkárni Þjóðverja skiljanlega í ljósi sögunnar. 25.1.2023 19:21
Bandaríkjamenn senda Úkraínumönnum 31 skriðdreka Bandaríkjamenn hafa samþykkt að senda 31 M1 Abrams skriðdreka til Úkraínu. Bandaríkjamenn hafa verið tregir til að senda skriðdreka en í gær samþykktu Þjóðverjar að senda 14 Leopard 2A6 skriðdreka á vígvöllinn. Búist er við að fleiri ríki Atlantshafsbandalagsins fylgi þessu fordæmi og sendi skriðdreka til Úkraínu. 25.1.2023 18:03
Neitar Schiff og Swalwell um sæti í leyniþjónustunefnd Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, segist ætla að meina tveimur þingmönnum Demókrataflokksins aðgang að þingnefnd þar sem fjallað er um málefni leyniþjónusta Bandaríkjanna. Hann segist ekki vera að hefna sín, heldur sé ástæðan sú að þingmennina skorti heilindi. 25.1.2023 16:11
Tveir látnir eftir stunguárás um borð í lest í Þýskalandi Tveir eru látnir og að minnsta kosti fimm særðir eftir stunguárás í lest nærri bænum Brokstedt í Þýskalandi. 25.1.2023 16:06
Tate segist ekkert hafa gert af sér Andrew Tate segir saksóknara í Rúmeníu ekki hafa mál gegn sér í höndunum. Hann, Tristan bróðir hans, og tvær konur hafa verið handtekin og eru meðal annars sökuð um mansal og nauðgun. Rannsakendur eru að grandskoða síma þeirra og önnur tæki vegna rannsóknar lögreglunnar. 25.1.2023 14:39
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Segja að vestrænir skriðdrekar brenni eins og aðrir Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, mun í dag tilkynna þýska þinginu ákvörðun sína um að flytja Leopard 2A6 skriðdreka til Úkraínu og leyfa ráðamönnum annarra ríkja sem nota skriðdrekana að senda einnig skriðdreka. 25.1.2023 10:50
Hafði aldrei séð byssu áður en hann afvopnaði fjöldamorðinga Hinn 26 ára gamli Brandon Tsay afvopnaði Huu Can Tran eftir að sá síðarnefndi hafði myrt tíu manns í danssal í Kaliforníu um helgina. Í myndbandi úr öryggismyndavél má sjá þegar Tsay og Tran börðust um vopnið í smá tíma áður en Tran flúði vettvang. 25.1.2023 10:45
74 ára karlmaður handtekinn vegna bréfasprengjusendinga á Spáni Lögregla á Spáni hefur handtekið 74 ára karlmann vegna gruns um að hafa sent bréfasprengjur á skrifstofu spænska forsætisráðherrans Pedro Sanchez, í sendiráð og skrifstofu aðalræðismanns Úkraínu í Madríd og Barcelona, auk herflugvallarins í Torrejón de Ardoz. 25.1.2023 09:48
Hyggjast draga úr losun metangass úr maga jórturdýra Milljarðamæringarnir Bill Gates, Jeff Bezos og Jack Ma, stofnandi Alibaba, hafa fjárfest í nýsköpunarfyrirtæki í Ástralíu, sem hefur það að markmiði að stórdraga úr losun metans sem rekja má til kúaropa. 25.1.2023 08:35
Útgöngubann vegna ótilgreindra öndunarfæraveikinda í Pyongyang Yfirvöld í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu, hafa fyrirskipað fimm daga útgöngubann vegna útbreiðslu ótilgreinds öndunarfærasjúkdóms. Frá þessu greina fjölmiðlar í Suður-Kóreu og vitna í tilkynningu frá borgaryfirvöldum. 25.1.2023 08:13
Hipkins orðinn forsætisráðherra Chris Hipkins sór í morgun embættiseið sinn sem fertugasti og fyrsti forsætisráðhera Nýja Sjálands. 25.1.2023 07:46
Leynileg skjöl fundust á heimili Pence Tólf leynileg skjöl fundust við leit á heimili Mike Pence, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, í Indiana fylki í Badnaríkjunum. Lögfræðingur Pence fann skjölin og hafa þau nú verið afhent alríkislögreglunni. 24.1.2023 23:14
Hleypa hlébörðunum á vígvöllinn Olaf Scholz kanslari Þýskalands hefur tekið ákvörðun um að senda skriðdreka, svonefnda hlébarða (Leopard 2) til Úkraínu. Þá verður öðrum þjóðum, sem búa yfir slíkum skriðdrekum, að öllum líkindum leyft að senda þá til Úkraínu, en þar sem skriðdrekarnir eru framleiddir í Þýskalandi þurfa þarlend yfirvöld þurfa að samþykkja útflutning þeirra. 24.1.2023 19:07
Bandaríkjamenn sagðir íhuga að senda sína skriðdreka Ráðamenn í Bandaríkjunum er sagðir líklegir til að senda Úkraínumönnum M1 Abrams skriðdreka á næstunni. Slíkar sendingar gætu verið tilkynntar strax í næstu viku en með þeim myndu Þjóðverjar einnig samþykkja að senda eigin skriðdreka og leyfa öðrum ríkjum að senda þýska skriðdreka. 24.1.2023 16:52
Kjarni jarðarinnar sagður snúast hægar Jarðvísindamenn hafa fundið vísbendingar um að hægt hafi á snúningi kjarna jarðarinnar. Óljóst er hvaða áhrif það getur haft á líf okkar hér á yfirborðinu en mögulegt er að hægagangurinn gæti leitt til breytinga á lengd dagsins eða breytt rafsegulsviði jarðarinnar. 24.1.2023 15:37
Leita að öðrum manni á sama fjalli Björgunarsveitir í Kaliforníu eru byrjaðar að leita að öðrum göngumanni sem týndist á sama fjalli og breski leikarinn Julian Sands týndist á. Sands hefur verið týndur í ellefu daga og nú er 75 ára gamall maður sem heitir Jin Chung einnig týndur. Hann sást síðast á sunnudaginn. 24.1.2023 14:08
Biðja formlega um leyfi til skriðdrekasendinga Yfirvöld í Póllandi hafa sent formlega beiðni til Þýskalands um leyfi til þess að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Ráðamenn í Póllandi hafa gefið í skyn að verði beiðninni hafnað muni þeir samt senda skriðdrekana en Þjóðverjar hafa verið undir miklum þrýstingi að undanförnu vegna málsins. 24.1.2023 11:01
Vann fyrir rússneskan auðjöfur sem hann átti að rannsaka Saksóknarar ákærðu í gær mann sem var einn af æðstu starfsmönnum Alríkislögreglu Bandaríkjanna í New York. Charles McGonigal er sakaður um að hafa unnið fyrir rússneskan auðjöfur sem hann var með til rannsóknar. 24.1.2023 10:06
Vopnaframleiðandinn Rheinmetall vill senda skriðdreka til Úkraínu Þýska vopnaframleiðslufyrirtækið Rheinmetall getur séð Úkraínumönnum fyrir 139 Leopard skriðdrekum ef þörf krefur. Frá þessu greindi talsmaður Rheinmetall í samtali við fjölmiðlasamsteypuna RND. 24.1.2023 07:30
Svíar geti ekki reiknað með stuðningi Tyrkja vegna NATO-umsóknar Sænsk stjórnvöld ættu ekki að gera ráð fyrir stuðningi tyrkneskra stjórnvalda vegna umsóknar þeirra að NATO. Þetta sagði Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti í gær, fáeinum dögum eftir að kveikt var í eintaki af Kóraninum á mótmælafundi í sænsku höfuðborginni Stokkhólmi. 24.1.2023 07:09
Sjö látnir eftir annað fjöldamorðið í Kaliforníu á fáeinum dögum Lögregla í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur handtekið 67 ára karlmann eftir að hann skaut sjö manns hið minnsta til bana á tveimur bóndabæjum í Half Moon Bay, suður af San Francisco, í gærkvöldi. 24.1.2023 06:41
Tveir nemendur látnir eftir skotárás Tveir nemendur skóla, sem er ætlaður ungmennum sem eiga erfitt uppdráttar í hefðbundnu skólakerfi, eru látnir eftir skotárás. Einn starfsmaður var alvarlega særður í árásinni. 23.1.2023 23:13
Flugferðum aflýst á Heathrow vegna veðurs Raskanir eru á Heathrow flugvelli í dag vegna frosts og þoku en British Airways hefur þurft að aflýsa um 80 flugferðum vegna veðurs. Nóttin var sú kaldasta í meira en áratug. Engar raskanir virðast vera á ferðum félagsins til og frá Íslandi í dag. 23.1.2023 10:53
Engin merki um sprengingu á skrokki Estonia Engin merki eru um að farþegaferjan Estonia hafi rekist á skip eða annan fljótandi hlut áður en það sökk í miklu óveðri aðfaranótt 28. september 1994. Engin merki eru heldur um að sprenging hafi orðið og þannig grandað ferjunni. 852 fórust þegar ferjan sökk. 23.1.2023 10:30
Ritt Bjerregaard er látin Danska stjórnmálakonan Ritt Bjerregaard, sem meðal annars gegndi embætti ráðherra, yfirborgarstjóra í Kaupmannahöfn og framkvæmdastjóra í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, er látin, 81 árs að aldri. 23.1.2023 09:37
Yfirvöld loka Machu Picchu vegna mótmælanna Stjórnvöld í Perú hafa lokað einum vinsælasta ferðamannastað landins, Machu Picchu, vegna yfirstandandi mótmæla gegn nýjum forseta landsins. Þau segja ákvörðunina tekna til að vernda ferðamenn og almenna borgara. 23.1.2023 09:12
Talin hafa myrt ellefu og fjórtán ára börn sín og svo svipt sig lífi Móðir og tvö börn hennar fundust látin á heimili sínu í bænum Vejrumbro, skammt frá Viborg í Jótlandi í Danmörku, í gær. Lögregla í Danmörku telur að konan hafi myrt börnin og svo svipt sig lífi. 23.1.2023 07:45
Morawiecki segir framgöngu Þjóðverja óafsakanlega Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, gagnrýndi Þjóðverja í gær fyrir að draga lappirnar hvað varðar útflutning skriðdreka til Úkraínu. 23.1.2023 07:11
Árásarmaðurinn í Monterey fannst látinn í sendiferðabíl Lögregla í Kaliforníu hefur staðfest að maðurinn, sem grunaður er um að hafa skotið tíu manns til bana í dansstúdíói í Monterey á laugardagskvöld, hafi fundist látinn í sendiferðabíl. 23.1.2023 06:34
Tveggja tíma umsátri lokið og birta mynd af meintum árásarmanni Lögreglan í Monterey hefur nú lokið umsátursaðgerðum vegna leitar að manninum sem skaut tíu manns til bana á skemmtistað í bænum í nótt. Lögreglan vestanhafs hefur ekki viljað gefa út hvort meintur árásarmaður hafi verið í bílnum eða ekki. 22.1.2023 22:36
Vatíkanið opnar rannsókn á 40 ára hvarfi unglingsstúlku Páfagarður hefur heimilað að rannsókn verði hafin á hvarfi 15 ára stúlku sem hvarf fyrir 40 árum, sumarið 1983. Þetta er talið eitt dularfyllsta mannshvarf í sögu Vatíkansins og margar kenningar benda til tengsla á milli Vatíkansins og Mafíunnar. 22.1.2023 15:30
Skaut tíu til bana og gengur enn laus Maður skaut minnst tíu til bana og særði tíu til viðbótar í bæ skammt frá Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Umfangsmikil hátíð stóð yfir í bænum Monterey Park vegna nýs tunglárs og voru tugir þúsunda manna í bænum. 22.1.2023 13:04
Enn finnast leynileg skjöl hjá Biden Rannsakendur Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) fundu sex skjöl sem merkt eru sem leynileg gögn á heimili Joe Bidens, forseta Bandaríkjanna, í Delaware við húsleit þar á föstudaginn. Hald var einnig lagt á handskrifuð minnisblöð forsetans en óljóst er hvort skjölin séu enn leynileg. 22.1.2023 08:33
Telur hæpið að Rússar verði reknir á brott á þessu ári Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segist telja óraunhæft að búast við því að Úkraínumenn geti rekið allar rússneskar hersveitir út úr Úkraínu á þessu ári. Hann sagðist ekki telja það ómögulegt en sagðist telja að stríðið í Úkraínu myndi enda við samningaborðið, eins og flest önnur stríð. 21.1.2023 22:30
Konan ekki talin í lífshættu Íslenska konan sem stungin var á fimmtudag af fyrrverandi eiginmanni sínum er ekki talin í lífshættu. Henni er þó haldið sofandi í öndunarvél. 21.1.2023 14:49
Maðurinn hafði ítrekað rofið nálgunarbann Íslendingurinn sem játað hefur að hafa stungið fyrrverandi eiginkonu sína í Noregi á fimmtudag hafði ítrekað rofið nálgunarbann sem konan hafði fengið gegn honum. Lögregla hafði síðast afskipti af honum aðeins um fjörutíu mínútum fyrir hnífstunguárásina. 21.1.2023 12:10
Sextíu ára fangelsi fyrir að kúga og misnota vini dóttur sinnar í áratug Maður sem flutti inn á heimavist dóttur sinnar og níddist kynferðislega á vinum hennar í nærri því tíu ár hefur verið dæmdur til sextíu ára fangelsisvistar. Lawrence Ray, sem er 63 ára gamall, misnotaði vini og vinkonur dóttur sinnar í Sarah Lawrence háskólanum í New York í áratug og var sakaður um að stýra kynlífssértrúarsöfnuði. 21.1.2023 10:50
Skilgreina Wagner sem alþjóðleg glæpasamtök Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að skilgreina rússneska málaliðahópinn Wagner Group sem alþjóðleg glæpasamtök. Í kjölfar þess verður hópurinn beittur viðskiptaþvingunum sem takmarka eiga umsvif hópsins á heimsvísu. 21.1.2023 09:07