Fleiri fréttir

Þúsundir mótmæla eftir að samkynhneigður maður var myrtur
Þúsundir hafa leitað á götur úti í borgum og bæjum á Spáni til að krefjast réttlætis, jafnréttis og verndar eftir að samkynhneigður maður var myrtur af hópi manna. Lögregla telur að árásarkveikjan hafi verið fordómar árásarmannanna fyrir hinsegin fólk.

Segir að Japan muni aðstoða Taívan verði gerð innrás
Taro Aso, aðstoðarforsætisráðherra Japans, segir nauðsynlegt fyrir Japani að koma Taívan til aðstoðar, auk Bandaríkjanna, geri Kínverjar innrás í eyríkið. Þetta sagði hann í gær og hafa ummælin þegar vakið mikla reiði í Peking.

Níu greindust með veiruna í Færeyjum í gær
Alls greindust níu manns með kórónuveiruna í Færeyjum í gær. Um var að ræða fjögur smit sem tengjast landamærunum og svo fimm innanlandssmit.

Yfir þrjátíu stiga hiti á norðanverðum Norðurlöndunum
Hitamet hafa fallið í hitabylgju sem gengur nú yfir Skandinavíuskaga og Finnland. Hitinn hefur farið vel yfir þrjátíu gráður í Lapplandi undanfarna daga.

Meðlimir barnaníðshrings dæmdir í Þýskalandi
Sex meðlimir barnaníðshrings voru sakfelldir fyrir að hafa ítrekað brotið kynferðislega á börnum. Dómari í málinu sagði við dómsuppskurð að málið sé hræðilegt og mjög óhugnanlegt.

Hvetur foreldra, kennara og aðra til að vakta ungmenni og tilkynna þau til lögreglu
Lögreglan í Hong Kong hefur handtekið níu manns vegna meintrar hryðjuverkaógnar. Meðal hinna handteknu eru sex krakkar í menntaskóla en fólkið er fimmtán til 39 ára. Lögreglan segir þau hafa leigt hótelherbergi til að framleiða þar sprengjur og markmið hópsins hafi verið að gera sprengjuárásir á skotmörk í borginni.

Enginn komst lífs af í flugslysinu á Kamtsjatka
Allir fórust þegar farþegaflugvél hrapaði á Kamtsjatkaskaga í Austur-Rússlandi, að sögn björgunarsveita þar. Um borð voru tuttugu og tveir farþegar auk sex manna áhafnar.

Segja virkni bóluefnis Pfizer minnka
Ísraelar segjast hafa mælt samdrátt í virkni bóluefnis Pfizer gegn Covid-19. Sérstaklega varðandi það að koma í veg fyrir smit og að smitaðir sýni einkenni. Bóluefnið komi þó áfram vel í veg fyrir alvarleg veikindi.

Mótframbjóðandi Lúkasjenka dæmdur í fjórtán ára fangelsi
Dómstóll í Hvíta-Rússlandi dæmdi Viktor Babariko, fyrrverandi forsetaframbjóðanda, í fjórtán ára fangelsi fyrir spillingu í dag. Babariko neitaði sök og eru ákærurnar gegn honum almennt taldar hafa átt sér pólitískar rætur.

Yfirgáfu stærstu herstöðina í skjóli nætur
Síðustu hermenn Bandaríkjanna yfirgáfu Bagram herstöðina, þá stærstu í Afganistan, um miðja nótt og án þess að segja nýjum afgönskum yfirmanni herstöðvarinnar frá því. Afganskir hermenn uppgötvuðu ekki að þeir væru einir fyrr en nokkrum klukkustundum síðar.

Fyrrverandi varakanslari fyrir dóm í tengslum við „Ibizagate“
Réttarhöld yfir Heinz-Christian Strache, fyrrverandi varakanslara Austurríkis og leiðtoga Frelsisflokksins, hófust í Vín í morgun. Hann er sakaður um spillingu, meðal annars í hneykslismáli sem felldi ríkisstjórn landsins árið 2019 og kennt er við Ibiza.

Endurheimtir ljónið sitt eftir inngrip forsætisráðherra
Kínverjinn Qi Xiao hefur endurheimt ljónið sitt eftir að forsætisráðherra Kambódíu fyrirskipaði yfirvöldum að skila honum gæludýrinu og endurgreiða honum hverja þá sekt sem hann kynni að hafa greitt.

Að minnsta kosti 150 létust í fleiri en 400 skotárásum yfir þjóðhátíðarhelgina
Að minnsta kosti 150 létust í yfir 400 skotárásum í Bandaríkjunum síðastliðna helgi, þegar landsmenn fögnuðu þjóðhátíðardeginum 4. júlí. Enn er verið að uppfæra tölurnar, sem ná yfir 72 klukkustunda tímabil frá föstudegi til sunnudags.

Rússnesk flugvél með 28 um borð hrapaði við Kamtsjatka
Rússnesk farþegaflugvél af gerðinni Antonov An-26 hrapaði í sjóinn nærri Kamtsjatka-skaga í austurhluta Rússlands í nótt. Alls voru 22 farþegar um borð og sex í áhöfn.

Elsa stefnir til Bandaríkjanna
Hitabeltisstormurinn Elsa, sem skilið hefur eftir sig slóð eyðileggingar í Karíbahafsríkjum undanfarna dag, stefnir nú norður til Bandaríkjanna.

Öryggismál á fæðingardeildum enn í ólestri
Ef tíðni andvana fæðinga og nýburadauða væri sú sama í Bretlandi og Svíþjóð, myndu þúsund færri börn deyja í Bretlandi á ári hverju. Þetta eru niðurstöður þingnefndar um aðbúnað og öryggi á breskum fæðingardeildum.

140 skólabörnum rænt í Nígeríu
Þungvopnaðir menn brutust inn í skóla í borginni Kaduna í Nígeríu í dag og námu á brott 140 börn. Atvikið er það fjórða sinnar tegundar í Kaduna síðan í desember í fyrra.

Maður bitinn af slöngu meðan hann gekk örna sinna
Maður á sjötugsaldri í borginni Graz í Austurríki varð fyrir því óláni á dögunum að vera bitinn í klofið af kyrkislöngu sem faldi sig í klósetti hans.

Fimmtán ára drengur dæmdur fyrir morðið á tólf ára vini sínum
Fimmtán ára drengur hefur verið sakfelldur í Bretlandi fyrir að myrða tólf ára vin sinn. Roberts Buncis fannst látinn þann 12. desember síðastliðinn nærri bænum Boston í Lincoln-skíri á austurströnd Englands.

Enn fjölgar þeim sem finnast undir rústum blokkarinnar í Surfside
Þrjú lík hafa fundist til viðbótar undir rústum íbúðablokkarinnar sem hrundi fyrirvaralaust í bænum Surfside á Flórída fyrir rúmri viku. Er heildartala látinna nú komin í 27 en 118 íbúa er enn saknað og er talið ólíklegt að nokkur finnist á lífi.

Ever Given losnar úr haldi egypskra yfirvalda
Egypsk yfirvöld hafa samið við skipafélagið Evergreen, eiganda Ever Given, og tryggjendur félagsins um skaðabætur vegna strands skipsins í Súesskurðinum í maí síðastliðnum.

Hæsti hestur í heimi er allur
Hesturinn Big Jake lést á dögunum tuttugu ára gamall. Hann var árið 2010 útnefndur hæsti hestur í heimi af heimsmetabók Guinness.

„Verðum að læra að lifa með vírusnum“
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag nýja áætlun ríkisstjórnar hans um það að „lifa með Covid-19“ en sú áætlun snýr að því að fella niður sóttvarnaaðgerðir og félagsforðun á Englandi. Niðurfellingarnar munu hefjast þann 19. júlí.

Umsátursástand þegar lögregla eltist við þungvopnaða „mára“
Íbúum í bænum Wakefield í Massachusetts í Bandaríkjunum var skipað að halda kyrru fyrir heima hjá sér á meðan lögreglumenn leituðu uppi hóp þungvopnaðra manna sem flúði inn í skóglendi á laugardag. Ellefu manns voru handteknir eftir umsátrið sem stóð yfir í hátt í níu klukkustundir.

Lýðræðissinnum bannað að syrgja félaga sinn sem sakaður er um hryðjuverk
Lögreglan í Hong Kong hefur varað lýðræðissinna við því að syrgi þeir dauða mótmælanda, sem stakk lögreglumann með kuta, verði litið á það sem stuðning við hryðjuverk. Það sé vegna þess að árásin sé nú til rannsóknar hjá þjóðaröryggisstofnun Hong Kong.

Höfðu uppi á týndri rauðri pöndu í dýragarði
Starfsmenn dýragarðsins í Duisburg í Þýskalandi hafa haft uppi á Jang, rauðri pöndu, sem hafði sloppið úr gerði sínu og haldið á vit ævindýranna í dýragarðinum. Jang fannst uppi í nálægri trjákrónu á lóð dýragarðsins eftir að leit hafði staðið yfir í um 36 klukkustundir.

Ræða hvort taka skuli tillit til tilfinninga dýra
Breskir þingmenn rökræða nú um hvort að rétt sé að taka tillit til tilfinninga dýra þegar menn setja sér lög og reglur. Frumvarp þessa efnis er sagt ganga enn lengra en Evrópulög sem eru talin ganga hvað lengst í þá átt í heiminum.

Þúsund hermenn flúðu Talibana og enduðu í Tadsíkistan
Rúmlega þúsund afganskir hermenn flúðu til Tadsíkistan í gær þegar vígamenn Talibana sóttu fram gegn þeim í norðurhluta Afganistan í gær. Talibanar náðu stjórn á nokkrum héruðum í norðurhluta landsins en stjórnarherinn á verulega undir högg að sækja á baráttunni við vígamenn.

Tilnefnir Löfven sem forsætisráðherra
Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, mun tilnefna Stefan Löfven sem forsætisráðherra landsins og mun þingið greiða atkvæði um tillöguna á miðvikudaginn.

Norðmenn fresta tilslökunum af ótta við delta
Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, tilkynnti í dag að fyrirhuguðum tilslökunum á sóttvarnaaðgerðum verði frestað til mánaðamóta að minnsta kosti. Ástæðan er áhyggjur af því að svonefnt delta-afbrigði kórónuveirunnar gæti hrundið af stað nýrri bylgju faraldursins.

Þúsundir „bólusettar“ með saltvatnslausn
Þúsundir Indverja féllu fyrir umfangsmikilli svikamyllu þar sem einstaklingum var seld bólusetning við Covid-19 en raunverulega sprautað með saltlausn. Læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn eru meðal þeirra sem hafa verið handteknir.

Vísbendingar um galla í blokkinni sem hrundi
Sérfræðingar sem hafa skoðað rústir íbúðablokkarinnar á Surfside á Flórida sem hrundi í síðasta mánuði sjá merki um galla í grunni hennar. Að minnsta kosti 24 eru látnir en 121 er enn saknað og óhugsandi er talið að nokkur finnist á lífi.

Átján og tólf ára systur létust á Melshornet
Lögregla í Noregi greindi frá því í morgun að þær sem létust eftir að hafa orðið fyrir eldingu á fjallinu Melshornet í Noregi í gær hafi verið systur, tólf og átján ára gamlar.

Leirgos líklegasta skýringin á sprengingunni í Kaspíahafi
Forsvarsmenn SOCAR, ríkisolíufyrirtækis Aserbaídsjan, segja svokallað leirgos vera líklegustu skýringuna fyrir sprengingunni í Kaspíhafi í gær. Mikið eldhaf lýsti upp himininn á svæðinu og vakti mikla furðu.

Krefjast milljarða til leysa gögn úr haldi
Tölvuþrjótar sem tóku gögn hundraða fyrirtækja víða um heim í gíslingu fyrir helgi krefjast nú jafnvirði um 8,7 milljarða króna í lausnargjald. Sænska verslanakeðjan Coop þurfti að loka hundruðum verslana sinna þegar kassakerfi þeirra læstist.

Á annað hundrað enn saknað eftir aurskriðu í Japan
Að minnsta kosti þrír eru látnir og á annað hundrað enn saknað eftir að mikil aurskriða féll í bænum Atami, suðvestur af japönsku höfuðborginni Tókýó á laugardag.

Skaut golfþjálfara með tvo látna á pallinum
Lögreglan í Atlanta í Bandaríkjunum leitar nú einstaklings sem skaut golfþjálfarann Gene Siller til bana á golfvelli norður af borginni á laugardag. Viðkomandi er einnig grunaður um að hafa orðið tveimur öðrum að bana.

Miðflokkurinn sagður ætla að samþykkja áframhaldandi stjórn Löfvens
Flokkstjórn sænska Miðflokksins er sögð reiðubúin að verja nýrri ríkisstjórn Stefans Löfven falli. Frá þessu greinir Svenska dagbladet (SvD) í morgun, en Löfven mun í dag tilkynna þingforsetanum Andreas Norlén hvort hann telji grundvöll fyrir því að mynda nýrri stjórn undir hans forsæti sem nyti stuðnings meirihluta þings.

Búið að rífa restina af húsinu og leit hafin á ný
Leifar íbúðahússins í Flórída sem hrundi á dögunum með hörmulegum afleiðingum hafa nú verið jafnaðar við jörðu. Hluti byggingarinnar hrundi til grunna þann 24. júní síðastliðinn og er 121 enn saknað en 24 hafa fundist látnir í rústunum.

Vísindamenn uggandi yfir afléttingaráætlun stjórnvalda
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, mun í dag tilkynna um afléttingar á öllum sóttvarnaraðgerðum sem taka munu gildi 19. júlí næstkomandi. Vísindamenn hafa fordæmt fyrirætlanir stjórnvalda, þar sem kórónuveirufaraldurinn virðist vera í vexti.

Páfinn við hestaheilsu eftir aðgerð
Frans páfi gekkst undir hnífinn í dag þegar framkvæmd var aðgerð á stórþörmum hans. Aðgerðin gekk að vonum vel.

Gríðarleg sprenging í Kaspíahafi
Mikil sprenging varð í Kaspíahafi undan ströndum Aserbaídsjan í dag. Sprengingin varð í nokkra kílómetra fjarlægð frá olíuborpalli.

Tvær konur létust eftir að hafa orðið fyrir eldingu í Noregi
Þrjár konur urðu fyrir eldingu á fjallinu Melshornet í sveitarfélaginu Hareid í Mæri og Raumsdal í dag. Tvær eru látnar og þriðja konan liggur þungt haldin á spítala.

Björgunaraðgerðum hætt í bili og húsið verður rifið
Leit að þeim sem saknað er í rústum fjölbýlishússins sem hrundi í bænum Surfside á Flórída þann 24. júní hefur verið hætt tímabundið, þar sem rífa á það sem eftir stendur af húsinu. Enginn hefur fundist á lífi í rústunum frá því nokkrum klukkutímum eftir að byggingin hrundi.

Minnst 29 látnir eftir að herflugvél brotlenti
Minnst 29 manns létust þegar herflugvél brotlenti á filippseysku eyjuna Jolo rétt fyrir hádegi að staðartíma, eða á fjórða tímanum í nótt að íslenskum tíma.