Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bættu við sig þingmanni og vantaði einn til að vera í meirihluta Skoski þjóðarflokkurinn vann sigur í þingkosningunum í Skotlandi sem fram fóru í gær, en endanleg úrslit kosninganna liggja nú fyrir. Flokkurinn bætti við sig einum þingmanni frá síðustu kosningum og er því með 64 þingmenn af 129. 8.5.2021 21:57
Stefnir á þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði eftir kosningasigur Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, hefur heitið því að ráðist verði í þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands frá Bretlandi eftir þingkosningarnar sem fram fóru í gær. Hún segir engan vafa um að kosningarnar myndu skila þingmeirihluta sem væri fylgjandi sjálfstæði. 8.5.2021 18:32
Tugir látnir í sprengjuárás skammt frá skóla í Kabúl Að minnsta kosti fjörutíu eru látnir eftir sprengjuárás sem gerð var nærri skóla í vesturhluta afgönsku höfuðborgarinnar Kabúl í dag. 8.5.2021 15:29
Ríkisstjórn Trump fékk gögn um símanotkun blaðamanna Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna í forsetatíð Donalds Trump fékk á laun gögn um símanotkun blaðamanna Washington Post í tengslum við umfjöllun þeirra um afskipti Rússa af forsetakosningunum árið 2016. Það reyndi ennfremur að komast yfir upplýsingar um tölvupósta blaðamannanna. 8.5.2021 14:49
Efast um tilkall konungssonar til krúnu Súlúmanna Til uppnáms kom þegar nýr konungur Súlúmanna í Suður-Afríku var tilnefndur í gærkvöldi. Nokkrir meðlimir konungsfjölskyldunnar efast um tilkall Misuzulu Zulu prins til krúnunnar og hrifu lífverðir hans í burtu þegar tilkynnt var opinberlega um tilkall hans í konungshöllinni. 8.5.2021 14:03
ESB gerir risasamning við Pfizer um kaup á bóluefni Evrópusambandið gæti fengið allt að 1,8 milljarða skammta af bóluefni gegn kórónuveirunni næstu þrjú árin samkvæmt nýjum risasamningi sem það hefur gert við Pfizer og BioNTech. Ísland tekur þátt í bóluefnasamstarfi Evrópusambandsins og nýtur því góðs af samningnum. 8.5.2021 11:51
Fjöldi særður eftir átök við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem Ísraelskir lögreglumenn skutu gúmmíkúlum og blossasprengjum að Palestínumönnum sem köstuðu steinum og flöskum í hörðum átökum við al-Aqsa-moskuna á Musterishæðinni í Jerúsalem í gærkvöldi. Að minnsta kosti 163 Palestínumenn eru sárir og sex ísraelskir lögreglumenn. 8.5.2021 08:02
Óvíst að Skoski þjóðarflokkurinn tryggi sér meirihluta Skotar gengu til kjörstaða í dag en þingkosningar fara nú fram í Skotlandi. Niðurstöður liggja enn ekki endanlega fyrir og óljóst er hvort að Skoski þjóðarflokkurinn nái að tryggja sér meirihluta í þinginu. Nái hann því er líklegt að Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, boði til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands frá Bretlandi. 7.5.2021 22:50
Ísland komið á græna listann hjá Bretlandi Ísland er loks komið á græna listann hjá Bretlandi, það er að Bretar mega ferðast til Íslands sér til skemmtunar. Mánuðum saman hafa Bretar ekki mátt ferðast til ýmissa ríkja sér til skemmtunar en það bann virðist vera að enda komið. 7.5.2021 22:03
Skiptar skoðanir á afnámi einkaleyfa á bóluefnum Leiðtogar Evrópuríkja eru ósammála um ágæti þess að afnema einkaleyfi á framleiðslu bóluefna gegn kórónuveirunni. Málið er nú til umræðu innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. 7.5.2021 20:00
WHO samþykkir bóluefni Sinopharm Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, hefur veitt Covid-bóluefni kínverska lyfjaframleiðandans Sinopharm neyðarleyfi. Það er fyrsta bóluefnið sem ekki er framleitt á vesturlöndum sem fær samþykki stofnunarinnar. 7.5.2021 18:14
Fjórir lögreglumenn ákærðir vegna dauða Floyd Alríkisákærudómstóll í Bandaríkjunum hefur gefið út ákæru á hendur fjórum fyrrverandi lögreglumönnum vegna dauða Georges Floyd í Minneapolis í fyrra. Fjórmenningarnir eru sakaðir um að hafa vísvitandi brotið á borgararéttindum Floyd þegar þeir handtóku hann. 7.5.2021 15:28
Enn mikil óvissa um áhrif hlýnunar á Suðurskautsísinn Mannkynið þarf að vera undir það búið að takast á við breitt bil mögulegrar bráðnunar jökla á Suðurskautslandinu í framtíðinni. Tveimur nýjum rannsóknum greinir á um hversu hratt ísinn gæti hopað með áframhaldandi hlýnun jarðar af völdum manna. 7.5.2021 15:04
Rassían í Ríó: Saka lögregluna um aftökur utan dóms og laga Íbúar í fátækrahverfi í Río de Janeiro í Brasilíu saka lögregluna í borginni um að hafa myrt fólk sem vildi gefast upp og ráðist inn á heimili án leitarheimildar í blóðugustu rassíu í sögu borgarinnar í gær. Að minnsta kosti tuttugu og fimm manns féllu, þar á meðal einn lögreglumaður. 7.5.2021 12:31
Einstaklingum undir 40 ára boðið annað bóluefni en frá AstraZeneca Breska lyfjaeftirlitsstofnunin hefur ákveðið að héðan í frá verði einstaklingum undir fertugu boðið annað bóluefni en það frá AstraZeneca vegna sjaldgæfra en alvarlegra blóðtappa sem hafa verið tilkynntir í kjölfar bólusetninga. 7.5.2021 12:23
Mikil fjölgun smitaðra þrátt fyrir methlutfall bólusettra Yfirvöld í eyríkinu og ferðamannaparadísinni Seychelleseyjum í Indlandshafi hafa komið aftur á ströngum takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins eftir að smituðum fjölgaði meir en nokkru sinni áður í vikunni. Þetta gerðist þrátt fyrir að hvergi sé hærra hlutfall íbúa bólusett fyrir veirunni í heiminum. 7.5.2021 10:52
Telja Kínverja losa meira en allar aðrar þróaðar þjóðir samanlagt Kína átti um 27% af losun mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum árið 2019 samkvæmt nýju mati greiningarfyrirtækis. Það telur að Kínverjar hafi þannig losað meira en allar aðrar þróaðar þjóðir samanlagt. 7.5.2021 08:48
Ísland áfram gult og staðan enn verst á Kýpur Ísland er áfram flokkað sem gult ríki á uppfærðu korti Sóttvarnastofnunar Evrópu sem segir til um stöðuna á hverju ríki vegna kórónuveirufaraldursins. Uppfært kort var birt í gær. 7.5.2021 08:20
Japanir sitja uppi með tugmilljónir bóluefnaskammta Útlit er fyrir að innan tíðar muni Japan sitja uppi með tugmilljónir ónotaðra bóluefnaskammta, þar sem verulegir hnökrar eru á framkvæmd bólusetninga í landinu. 7.5.2021 08:03
Heiftarleg valdabarátta innan konungsfjölskyldu Súlúmanna eftir lát drottningar Heiftarleg valdabarátta stendur nú yfir innan konungsfjölskyldu Súlúmanna í Suður-Afríku eftir andlát Mantfombi Dlamini-Zulu drottningar sem lést óvænt í lok síðasta mánaðar. Drottningin, sem varð 65 ára, var jörðuð í KwaZulu-Natal héraði í austurhluta Suður-Afríku í morgun. 7.5.2021 07:43
Tólf ára mætti með byssu í skólann og skaut tvo samnemendur og starfsmann Tólf ára gömul stúlka í Rigby Middle School í borginni Rigby í Idaho í Bandaríkjunum skaut á tvo samnemendur sína og starfsmann skólans í gær. Fórnarlömbin eru talin munu lifa. 7.5.2021 07:35
25 í valnum eftir eina mannskæðustu atlögu lögreglunnar í Ríó Minnst einn lögregluþjónn og 24 meintir glæpamenn eru látnir eftir mannskæðustu atlögu lögreglunnar í Brasilíu gegn glæpagengi um árabil. Atlagan beindist gegn fíkniefnasmyglurum í einu af fátækrahverfum Ríó de Janeiro, sem kallast Jacarezinho og réðust þungvopnaðir lögregluþjónar til atlögu á brynvörðum bílum og þyrlum. 6.5.2021 23:26
Vill embætti Cheney og fylkja Repúblikönum saman um Trump Þingkonan Elise Stefanik lýsti því yfir í dag að hún vildi stöðu þingkonunnar Liz Cheney, sem þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Cheney hefur verið undir miklum þrýstingi innan flokksins fyrir að taka ekki undir falsar yfirlýsingar Donalds Trump, fyrrverandi forseta, og bandamanna hans um að umfangsmikið kosningsvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum í fyrra. 6.5.2021 22:30
Sakfelld fyrir að drepa fjögur börn sín en óskar eftir náðun Hin 53 ára gamla Kathleen Folbigg hefur óskað eftir því hjá ríkisstjóra Nýja-Suður Wales-fylki í Ástralía að hún verði náðuð eftir árangurslausan málarekstur fyrir áfrýjunardómstólum. Folbigg afplánar nú þrjátíu ára fangelsisdóm eftir að hafa verið sakfelld fyrir að drepa fjögur börn sín á tíunda áratug síðustu aldar. 6.5.2021 22:20
Fylgjast grannt með eldflaug sem á að hrapa til jarðar um helgina en enginn veit hvar Geimvísindamenn fylgjast nú náið með rúmlega tuttugu tonna eldflaug frá Kína sem er á braut um jörðu. Búist er við því að eldflaugin muni hrapa til jarðar um helgina og ekki er vitað hvar. Mögulegt er að hún brenni upp í gufuhvolfinu en líklegra þykir að hlutar hennar muni ná til jarðar. 6.5.2021 22:00
Fleiri vilja afnema einkaleyfi Hreyfing er komin í viðræður um að afnema einkaleyfi á framleiðslu bóluefna við kórónuveirunni eftir að Bandaríkjamenn lýstu yfir stuðningi við tillöguna í gærkvöldi. 6.5.2021 18:13
Moderna með 96 prósent virkni fyrir unglinga Bóluefni Moderna við Covid-19 hefur 96 prósent virkni í hópi 12-17 ára, samkvæmt niðurstöðum úr öðru stigi tilrauna með efnið í þessum aldurshóp. 6.5.2021 13:53
Drógu úr fugladauða með því að mála einn spaða svartan Fuglaáhugamenn í Noregi krefjast aðgerða eftir að norskir vísindamenn uppgötvuðu tiltölulega einfalda leið, að því er virðist, til að draga úr hættunni á því að fuglar fljúgi á vindmylluspaða. Niðurstaðan hefur vakið heimsathygli en aðferðin felst í því að mála eitt af vindmyllublöðunum svart. 6.5.2021 09:59
Prins sakaður um að hafa banað „stærsta birni Rúmeníu“ Umhverfisverndarsamtök í Rúmeníu hafa sakað Emanuel, prins í Liechtenstein, um að hafa skotið björninn Artúr á verndarsvæði í Karpatafjöllum. Artúr er sagður hafa verið „stærsti björn Rúmeníu“, en bann ríkir við minjaveiðum á stærri rándýrum í landinu. 6.5.2021 07:52
Nýtt þorskastríð í uppsiglingu? Bretar virðast vera á leið í nýtt þorskastríð. Að þessu sinni er mótherjinn þó ekki Íslendingar heldur Frakkar. 6.5.2021 06:56
Ferðamenn dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða lögregluþjón á Ítalíu Tveir bandarískir ferðamenn voru í dag dæmdir fyrir að myrða ítalskan lögregluþjón nærri hóteli þeirra í Róm árið 2019. Mennirnir voru dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morðið en þeir héldu því fram að um sjálfsvörn hefði verið að ræða. 5.5.2021 23:47
SpaceX lenti nýjustu frumgerðinni Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX skutu í kvöld enn einni frumgerð geimfarsins Starship á loft frá Texas. Þá tókst þeim að lenda þessari stærðarinnar frumgerð í heilu lagi. Fyrirtækið gerði nýverið samning við Geimvísindastofnun Bandaríkjanna um að flytja geimfara til tunglsins með Starship. 5.5.2021 23:04
Innrás söngtifanna: Billjónir skordýra skríða upp á yfirborðið eftir sautján ár neðanjarðar Á næstu dögum munu billjónir söngtifa skríða upp úr jörðinni í Bandaríkjunum til að þroskast, makast, og koma fyrir eggjum. Þegar eggin klekjast skríða afkvæmin ofan í jörðina, eingöngu til þess að koma aftur upp á yfirborðið sautján eða þrettán árum síðar. 5.5.2021 21:39
200 ár frá dauða Napóleons Í dag eru tvö hundruð ár liðin síðan Napóleon Bónaparte Frakklandskeisari dó. Emmanúel Macron, Frakklandsforseti, minntist keisarans umdeilda við athöfn í dag þegar hann lagði blómkrans að grafhýsi hans í Les Invalides í París. 5.5.2021 21:10
Biden styður að fella niður einkaleyfi á bóluefnum Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, hefur ákveðið að styðja viðleitni innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um að fella niður einkaleyfi á bóluefnum gegn Covid-19. Markmiðið er að gera öðrum ríkjum kleift að framleiða meira af bóluefnum og hraða bólusetningum á heimsvísu. 5.5.2021 20:34
Netanjahú missir umboð til stjórnarmyndunar Yair Lapid, leiðtogi ísraelska miðjuflokksins Yesh Atid, hefur fengið umboð til að mynda ríkisstjórn. Forseti Ísraels veitti honum umboðið í dag eftir að Benjamín Netanjahú forsætisráðherra tókst ekki að mynda ríkisstjórn fjórum vikum eftir þingkosningar í landinu. 5.5.2021 20:21
Ósætti innan njósnabandalagsins Ósætti er innan „Five Eyes“, stærsta njósnabandalags heims, eftir að Nýja-Sjáland neitaði að taka þátt í gagnrýni á meint mannréttindabrot Kínverja. 5.5.2021 20:01
Bjóst við sjö börnum en fæddi níu Kona fæddi nýverið níu börn, þó hún hafi bara átt von á sjö. Sónar hafði sýnt fram á að konan væri ólétt af sjö börnum en við fæðingu í gær reyndust þau níu. Fimm stúlkur og fjórir drengir og öllum heilsast víst vel. 5.5.2021 19:04
Börn niður í tólf ára fá bóluefni Pfizer Kanadísk heilbrigðisyfirvöld hafa tekið ákvörðun um að heimila að börn niður í tólf ára verði bólusett með bóluefni Pfizer gegn covid-19. Kanada er þar með fyrsta landið sem leyfir svo ungum börnum að vera bólusett gegn covid-19. 5.5.2021 17:45
Trump áfram í banni á Facebook Eftirlitsnefnd Facebook staðfesti í dag bannið sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var settur í á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. 5.5.2021 15:00
Andstæðingar sóttvarnaaðgerða unnu stórsigur Veruleg hægrisveifla varð í héraðsþingskosningum í sjálfstjórnarhéraðinu Madrid á Spáni í gær. Lýðflokkur sitjandi forseta héraðsstjórnarinnar sem hefur sett sig á móti hörðum sóttvarnaaðgerðum vann stórsigur og hægriöfgaflokkurinn Vox bætti einnig við sig. 5.5.2021 13:33
Yfirbyggðir sjúkrasleðar hjá danska hernum á Grænlandi Danski herinn á Grænlandi, Arktisk Kommando, hefur tekið þrjá sjúkrasleða til notkunar á afskekktum svæðum þessarar strjálbýlu nágrannaeyju Íslands. Sleðunum er ætlað að auka öryggi danskra hermanna, þar á meðal Síríus-sérsveitarinnar, en einnig vísindamanna og annarra á ferð um hrjóstrugar slóðir fjarri byggðum. 5.5.2021 10:53
Fimm látnir eftir sveðjuárás á dagheimili Fimm eru látnir eftir sveðjuárás átján ára karlmanns á dagheimili í suðurhluta Brasilíu í gær. Lögregla segir að þrjú börn, öll yngri en tveggja ára, hafi látist í árásinni, auk tveggja starfsmanna. 5.5.2021 08:14
Fimm handteknir fyrir að selja „endurunna“ sýnatökupinna Lögregluyfirvöld á Indónesíu hafa handtekið nokkra starfsmenn lyfjafyrirtækis, sem eru grunaðir um að hafa þvegið sýnatökupinna og selt. Lögregla telur svikin hafa átt sér stað frá því í desember. 5.5.2021 07:46
Ever Given áfram kyrrsett eftir að áfrýjun eiganda var hafnað Dómstóll í Egyptalandi úrskurðaði í gær að gámaflutningaskipið Ever Given, sem þveraði Súesskurðinn og stöðvaði þar með alla skipaumferð í nokkra daga í mars, skuli áfram kyrrsett. Dómstóllinn hafnaði áfrýjun japanskra eigenda skipsins. 5.5.2021 07:45