Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Auður Camerons byggður upp í skattaskjólum Fjölskylduauður Davids Camerons, forsætisráðherra Bretlands, var byggður upp gegnum eignarhaldsfélög í skattaskjólum, að því er fram kemur í frétt breska dagblaðsins Guardian, sem greindi frá því í gærkvöldi að faðir Camerons hafi komið sér upp neti fjárfestingasjóða í Panama og Sviss. 21.4.2012 10:51
Slóvenar og Austurríkismenn í diplómatískri deilu Diplómatísk deila hefur blossað upp milli Slóveníu og Austurríkis. Þrætueplið er fábrotin pylsa. 20.4.2012 23:33
Engar líkur á að farþegar hafi lifað af Yfirvöld í Pakistan segja að engar líkur séu á því að einhver hafi komist lífs af þegar farþegaflugvél með 127 farþega innanborðs hrapaði í dag nálægt flugvellinum í Islamabad í Pakistan. Pakistanskir miðlar segja að vélin hafi verið frá Bhoja flugfélaginu og á leið frá Karachi til Islamabad þegar hún hrapaði. Vélin er sögð hafa hrapað í íbúðabyggð og herma fregnir að nokkur hús hafi eyðilagst þegar vélin skall á þeim. 20.4.2012 16:38
Birnir sluppu úr dýragarði - tvær konur látnar Birnir sem sluppu úr búrum sínum í dýragarði í Japan hafa drepið tvær konur í Akita héraði. Óljóst er hve margir birnir sluppu út en veiðimenn hafa skotið nokkra í dag. Konurnar tvær sem fundist hafa látnar eru taldir vera starfsmenn í garðinum. Um fjörutíu dýr eru í garðinum og eru flest þeirra birnir. Garðurinn er lokaður yfir vetrartímann og nú liggur snjór yfir öllu svæðinu. Íbúum í nærliggjandi bæum hefur verið skipað að halda sig innandyra og gefið var frí í skólum í dag vegna málsins. 20.4.2012 16:04
Farþegaþota hrapaði í Pakistan Farþegaflugvél með 127 farþega innanborðs hrapaði í dag nálægt flugvellinum í Islamabad í Pakistan. Pakistanskir miðlar segja að vélin hafi verið frá Bhoja flugfélaginu og á leið frá Karachi til Islamabad þegar hún hrapaði. Óljóst er hvort einhverjir hafi komist af en björgunarsveitir eru á leið á slysstaðinn. 20.4.2012 14:40
Enn á huldu með hulduefnið Ráðgátan um hulduefni í alheiminum varð enn dularfyllri í fyrradag eftir að ný rannsókn stjörnufræðinga í Síle gekk í berhögg við fyrri kenningar um eðli efnisins. 20.4.2012 09:00
Ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn Héraðsráð Kaupmannahafnar hefur ákveðið að loka 16 kirkjum í borginni. Ástæðan fyrir þessu er að prestar messa á sunnudögum í síauknum mæli fyrir tómum kirkjum í borginni. 20.4.2012 07:16
Sarkozy á undir högg að sækja í frönsku forsetakosningunum Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti á undir högg að sækja í fyrri umferð forsetakosninganna þar í landi sem haldin verður um helgina. 20.4.2012 06:54
Páfinn setur ofan í við bandarískar nunnur Páfinn hefur falið þremur bandarískum biskupum að setja ofan í við stærstu samtök nunna í Bandaríkjunum þar sem samtökin hafi vikið um of frá réttum kennisetningum kaþólsku kirkjunnar. 20.4.2012 06:41
Aðstandendur fórnarlamba Breivik varaðir við réttarhaldinu í dag Aðstandendur fórnarlamba fjöldamorðingjans Anders Breivik hafa verið varaðir við að sitja í réttarhaldinu yfir honum í dag. Þá verður farið nákvæmlega í gegnum hvert þeirra 69 morða sem Breivik framdi í Útey og Breivik beðinn að útskýra gjörðir sínar í smáatriðum. 20.4.2012 06:24
Segist hafa ætlað að afhöfða Brundtland Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sagðist í vitnastúku í gær hafa ætlað að afhöfða Gro Harlem Brudtland, fyrrum forsætisráðherra Noregs og leiðtoga norska verkamannaflokksins. Hann sagðist einnig hafa ætlað að myrða alla á Útey þann 22. júlí síðastliðið sumar. 20.4.2012 06:00
Eva Joly stal senunni Eva Joly stal senunni í frönskum fjölmiðlum í gær, en hún er þessa dagana í kosningabaráttu fyrir frönsku forsetakosningarnar. Fyrsta umferð kosninganna fer fram á sunnudaginn. Joly bauð fjölmiðlamönnum í strætóferð um götur Parísar í gær. Í bíltúrnum ræddi hún allan þann óskunda sem hún telur að Nicholas Sarkozy, núverandi forseti, hafi gert í forsetatíð sinni. 19.4.2012 22:57
Grétu yfir frásögn Breiviks Anders Behring Breivik, fjöldamorðinginn í Noregi, vildi afhausa Gro Harlem Brundland, fyrrverandi forsætisráðherra, taka upp aftökuna og sýna hana á Netinu. Þetta sagði hann í réttarhöldum í dag. Fjórði dagur réttarhaldanna fer nú fram og enn er verið að taka skýrslu af sakborningi. Þar lýsti hann árás sinni í Útey. Saksóknari krafðist þess að stutt hlé yrði gert á réttarhöldunum þegar hann sá að fjöldi fólks sem var samankominn í réttarsalnum til að fylgjast með réttarhöldunum var farinn að skæla. 19.4.2012 13:50
Leðurskjaldbökur hugsanlega ekki í útrýmingarhættu Vísindamenn hafa fundið stærstu leðurskjaldbökunýlendu í heimi. Leðurskjaldbökur hafa hingað til þótt vera í bráðri útrýmingarhættu en uppgötvanir á eynni Gabon í vesturhluta Afríku vekja upp vonir um að tegundin sé ekki jafn illa stödd og áður var talið. Matthew Witt, hjá háskólanum í Exeter, leiddi rannsóknina á eyjunni. Hann segir að það hafi verið vitað að skjaldbökur af þessu tagi væru á eyjunni en ekki að þær væru þar í jafn miklu mæli. 19.4.2012 11:09
Fordæma myndbirtingar á líkum Talíbanar í Afganistan hafa fordæmt myndbirtingar af bandarískum hermönnum sem stilltu sér upp fyrir myndatöku með lík af talíbönskum hermönnum. Talíbanarnir segja að myndirnar séu ómannúðlegar og heita hefnd vegna þeirra. Myndirnar sýna talíbana sem fórust í sjálfsmorðsárásum. Þær voru teknar fyrir tveimur árum en birtar í Los Angeles Times á miðvikudaginn. Á einni myndinni er bandarískur hermaður með lík og hendin á líkinu hvílir á öxl hermannsins. Leon Panetta, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur fordæmt myndirnar og segir að þeir sem beri ábyrgð verði látnir sæta refsingu. 19.4.2012 10:13
Segir Breivik hafa tögl og haldir í réttarsalnum Norski hryðjuverkamaðurinn Anders Breivik mætti í morgun fyrir rétt, fjórða daginn í röð. Norskir miðlar greina frá því að í þetta skipti hafi hann ekki heilsað með sama hætti og hina dagana, það er að segja að hætti öfga hægri manna. 19.4.2012 09:58
Ætla að byggja kirkju úr pappa Til stendur að byggja 25 metra háa dómkirkju úr pappa í borginni Christchurch á Nýja Sjálandi. Gamla dómkirkjan eyðilagðist í miklum jarðskjálfta sem reið yfir borgina haustið 2010. 19.4.2012 09:30
Langveikur piltur var Batman í einn dag Langveikur piltur í Bandaríkjunum fékk að ganga í skóm Leðurblökumannsins í vikunni. Lögreglu- og slökkviliðsmenn í borginni Arlington í Texas settu á svið ótrúlega atburðarás þar sem bankaræningjar og Jókerinn sjálfur komu við sögu. 18.4.2012 22:00
Sprengjuleit í þinghúsinu í Osló Sprengjuleit var gerð í dag í þinghúsinu í Osló þar sem réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik fara fram. Sjónvarpsstöðin TV2 segir að pakki í kjallara hússins hafi virst innihalda nítróglíserín sem stundum er notað til sprengjugerðar. Þinghúsið þurfti ekki að rýma en sjónvarpsstöðin segir að Breivik hafi verið fluttur um set úr gæsluvarðhaldsklefa sínum í húsinu. 18.4.2012 16:09
Bað þjóðina afsökunar Juan Carlos, konungur Spánar, bað spænsku þjóðina afsökunar á veiðiferð sinni til Afríku á dögunum, á sama tíma og landið glímir við djúpa efnahagslægð. 18.4.2012 13:35
Stærir sig af fjöldamorðum Við upphaf fimm daga yfirheyrsla yfir Anders Behring Breivik fékk hann rúma klukkustund til að lesa upp yfirlýsingu þar sem hann reyndi að réttlæta voðaverk sín. Hann segist vera herskár þjóðernissinni og líkir sér við al Kaída. Aðstandendur fórnarlamba hans segja mikilvægt að réttarhöldin snúist um glæpina sem hann framdi en verði ekki vettvangur fyrir pólitískar yfirlýsingar. 18.4.2012 13:00
Segja Breivik vera ímyndunarveikan Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hefur neitað að svara mörgum spurningum saksóknara í dag á þriðja þegi réttarhaldanna yfir honum. Breivik hefur verið þráspurður um tengsl hans við öfgahópa og fólk með svipaðar skoðanir og hann en hann hefur áður sagst tilheyra hópi manna sem kenni sig við Musterisriddarana. 18.4.2012 11:21
Spjallþáttur Assange í loftið Nýr spjallþáttur Julians Assange, stofnanda Wikileaks, var frumsýndur á rússnesku sjónvarpsstöðinni RT í gær. Í fyrsta þættinum ræddi Assange við Hassan Nasrallah, leiðtoga Hezbollah-skæruliðasamtakanna í Líbanon. 18.4.2012 09:00
Refsiaðgerðirnar bíta á stjórn Assads Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakklands, segir refsiaðgerðir alþjóðasamfélagsins gagnvart sýrlenskum stjórnvöldum hafa borið ávöxt. 18.4.2012 08:30
Orðnir þreyttir á Fucking nafni Íbúar smábæjarins Fucking í Austurríki eru orðnir þreyttir á gríni á sinn kostnað og íhuga að breyta nafni bæjarins. 18.4.2012 08:30
Ítalskri konu sleppt úr haldi al-kaída Hryðjuverkasamtökin al-kaída í Alsír hafa sleppt ítalskri konu, Mariu Mariani, úr haldi en hún var búin að vera fangi þeirra síðustu 14 mánuði. 18.4.2012 07:16
Eldgos hafið í grennd við Mexíkóborg Yfirvöld í Mexíkó hafa gefið út viðvörun vegna þess að eldgos virðist hafið í eldfjallinu Popocatepetl sem er í um 70 kílómetra fjarlægð frá Mexíkóborg. 18.4.2012 07:07
Vændishneykslið í Kólombíu vindur upp á sig Hneykslið í kringum vændiskaup liðsmanna bandarísku leyniþjónustunnar í Kólombíu heldur áfram að vinda upp á sig. 18.4.2012 07:03
Lífshættulegur bandormur fannst í ref á Jótlandi Lífshættulegur bandormur hefur fundist í ref sem veiddur var á Jótlandi nýlega. Ormur þessi getur borist í fólk og veldur þá ólæknandi lifrarsjúkdómi sem yfirleitt dregur viðkomandi til dauða. 18.4.2012 06:57
Klámmyndastjarna lést eftir að hafa verið skotinn með rafbyssu Klámmyndaleikarinn Marland Anderson, einnig þekktur sem Sledge Hammer, lést í Lost Angeles í Bandaríkjunum í gær eftir að hafa verið yfirbugaður af lögreglu. 17.4.2012 23:10
Nýjar vísbendingar um hvarf McCann - stúlkunnar leitað á Spáni Lögreglan í Portúgal, auk lögreglunnar á Spáni, leita nú að Madeleine McCann nærri Malaga á Norður-Spáni. Samkvæmt frétt Daily mail fékk lögreglan ábendingu um að stúlka lík McCann hefði sést nærri borginni, sem er vinsæll ferðamannastaður á Spáni. 17.4.2012 15:16
Barnaníðingur framdi sjálfsmorð - níddist á barni hér á landi Barnaníðingurinn John Charles Ware, sem var handtekinn í bandarísku borginni Fíladelfíu á síðasta ári grunaður um að níðast á tveimur börnum framdi sjálfsmorð í fangelsi en mál hans átti að taka fyrir í gær. Maðurinn var meðal annars grunaður um að hafa boðið ungum dreng með sér í ferðalag um Ísland þar sem hann níddist á honum. 17.4.2012 14:50
Breivik segist iðrast einskis Fjöldamorðinginn Anders Breivik segist iðrast einskis og fer fram á að hann verði sýknaður. Hann flutti yfirlýsingu í réttarsal í morgun þar sem hann hélt hatursáróðri sínum á lofti. 17.4.2012 12:05
Upprættu ólöglegan fíkniefnamarkað á netinu Bandarísk lögregluyfirvöld segja að þau hafi upprætt leynilegan og ólöglegan markað með fíkniefni á netinu. 17.4.2012 09:55
Neðanjarðarbörn berjast áfram Munaðarlaus börn í Rúmeníu voru kvikmynduð í lífsbaráttu sinni í heimildarmyndinni um Neðanjarðarbörnin sem kom út árið 2001. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Magnús Halldórsson skoðaði sögu barnanna sem hin verðlaunaða heimildarmynd fylgdi eftir og hvernig þeim hefur gengið á lífsins leið síðan. Hún hefur verið þyrnum stráð, svo ekki sé meira sagt. 17.4.2012 09:30
Rugluð yfirlýsing Breivik vakti furðu í réttarsalnum Yfirlýsing sú sem fjöldamorðinginn Anders Breivik fékk að lesa upp í réttarhöldunum í Osló í morgun vakti furðu viðstadda. 17.4.2012 08:53
Sjóræningjar saman í sæng Svokallaðir „sjóræningjaflokkar“ í Evrópusambandsríkjum hyggjast bjóða sig fram sem einn flokk í næstu kosningum til Evrópuþings. 17.4.2012 08:30
Íþróttakrakkar fá hærri einkunnir í skóla Börn sem eru í skólaíþróttum fimm sinnum í viku auk fleiri líkamsæfinga eru ekki bara í betra líkamlegu formi en börn sem eru í skólaíþróttum tvisvar í viku heldur fá þau einnig hærri einkunnir. 17.4.2012 08:00
Romney með forskot á Obama í nýrri skoðanakönnun Ný skoðanakönnun á vegum Gallup sýnir að Mitt Romney hefur forskot á Barack Obama Bandaríkjaforseta í röðum skráðra kjósenda í Bandaríkjunum. Romney mælist með 47% fylgi en Obama með 45%. 17.4.2012 07:10
Íbúar El Salvador fögnuðu fyrsta morðlausa deginum í þrjú ár Íbúar í El Savador höfðu ástæðu til að fagna eftir síðustu helgi þegar í ljós kom að laugardagurinn hafði liðið án þess að morð væri framið í landinu. Íbúar þessa Mið-Ameríkuríkis höfðu fram að því ekki upplifað morðlausan dag í ein þrjú ár. 17.4.2012 07:06
Öflugur jarðskjálfti skók Chile í nótt Öflugur jarðskjálfti upp á 6,7 á Richter reið yfir miðhluta Chile í nótt en upptök hans voru skammt frá ferðamannabænum Valparaiso. 17.4.2012 06:55
Stúlkur í nunnubúningum fækkuðu fötum fyrir Berlusconi Heldur hallar á Silvio Berlusconi fyrrum forsætisráðherra Ítalíu í réttarhöldum sem nú standa yfir í Mílanó. Hann er ákærður þar fyrir kynferðilegt samræði við stúlkur undir lögaldri. 17.4.2012 06:42
Móðir Breivik þarf ekki að bera vitni í réttarhöldunum Réttarhöldin yfir fjöldamorðingjanum Anders Breivik hefjast að nýju nú klukkan sjö að okkar tíma. Réttarhöldin hefjast á því að Breivik mun lesa upp yfirlýsingu en lögmaður hans segir að sá upplestur muni taka um 30 mínútur. Í yfirlýsingunni mun Breivk ætla að verja gjörðir sínar. 17.4.2012 06:32
Sumir jöklanna virðast stækka Ný rannsókn á stærð jökla í Himalajafjöllunum sýnir að sumir jöklanna hafa stækkað umtalsvert á síðustu árum, á meðan aðrir hopa eins og jöklar annars staðar í heiminum á síðustu árum. 17.4.2012 06:00
Átök við landamæri Súdans Átök hafa að nýju brotist út við landamæri Súdans og nýja ríkisins Suður-Súdans síðustu daga. Tekist er á um yfirráð yfir nokkrum bæjum og svæðum við landamærin sem bæði ríki gera tilkall til. 17.4.2012 06:00