Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórar mannskæðar árásir í Sýrlandi Öflug bílsprengja sprakk skammt frá öryggisbyggingu sýrlensku ríkisstjórnarinnar í borginni Aleppo í gær. Yfirvöld í Sýrlandi segja að hryðjuverkamenn hafi staðið á bak við sprenginguna. Bættu þau við að einn lögreglumaður og einn almennur borgari hafi farist í sprengingunni og þrjátíu til viðbótar hafi særst. Þetta var önnur árásin í landinu á tveimur dögum. Á laugardag fórust 27 manns í þremur sjálfsmorðssprengjuárásum í höfuðborginni Damaskus. 19.3.2012 03:00
Notuðu ekki sjálfstýringu Ástæðan fyrir því að Hercules-flutningavél norska hersins brotlenti í Svíþjóð með fimm manns um borð er líklega sú að flugmennirnir ákváðu að fljúga vélinni sjálfir í lágflugi í stað þess að nota sjálfstýringuna. Þetta sagði Trond Solna, sem hefur yfirumsjón með flutningavélum norska hersins, í viðtali við norska dagblaðið Aftenposten. 19.3.2012 02:30
Nýr forseti Þýskalands valinn Joachim Gauck, fyrrverandi prestur, hefur verið kjörinn forseti Þýskalands. Hann var kjörinn af þinginu og fékk 991 atkvæði af 1232. Fréttastofa BBC segir að presturinn hafi engin tengsl við stjórnmálaöfl. Hann hafi aftur á móti unnið sér inn gott orðspor og sé óhræddur við að hreyfa við mikilvægum málefnum. Forveri Gaucks er Christian Wulff en hann sagði af sér í siðasta mánuði vegna fjármálahneykslis. 18.3.2012 15:55
Myndar Scotts beðið með eftirvæntingu Kvikmyndar Ridleys Scott, Prometheus, er beðið með eftirvæntingu, en ný stikla úr myndinni var frumsýnd í gær. Myndin var tekin upp að hluta hér á landi, meðal annars við Dettifoss, eins og fram hefur komið. 18.3.2012 14:14
Sífelldar sprengingar í Sýrlandi Bilsprengja sprakk í borginni Aleppo í norðurhluta Sýrlands í dag, samkvæmt frásögnum þarlendra miðla. Stjórnarandstæðingar í landinu segja að einhverjir hafi farist í sprengingunni og aðrir særst en engar tölur um fjölda hafa borist. Í gær fórust að minnsta kosti 27 manns þegar sprengja sprakk í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. 18.3.2012 14:49
Þúsundir minnast Knúts Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að ísbjarnargryfjunni í dýragarðinum í Berlín í dag. Á morgun er liðið ár frá því að ísbjörninn Knútur, sem bjó í gryfjunni, drapst. Hann var fjögurra ára gamall. Margir þeirra sem lagt hafa leið sína að ísbjarnargryfjunni í dag hafa lagt þar blóm eða myndir. Nokkrir þeirra hafa fellt tár, eftir því sem þýska fréttastofan dpa greinir frá. Mamma Knúts afneitaði honum þegar hann kom í heiminn og hann var því alinn upp af dýrahirðum. Knútur öðlaðist heimsfrægð og 11 milljónir manna lögðu leið sína í dýragarðinn til að sjá hann. 18.3.2012 13:52
Fundu líkamsleifar á fjallinu Sænska lögreglan tilkynnti seinni partinn í dag að hún hefði fundið líkamsleifar í hlíðum Kebnekaise hæsta fjalli Svíþjóðar, þar sem norska Herkúles flugvélin fórst í fyrradag. Frá þessu er greint á vef norsku sjónvarpsstöðvarinnar TV 2. 17.3.2012 19:36
Fangavörður Nasista látinn Fangavörðurinn John Demjanjuk er látinn 91 árs að aldri. Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi í fyrra fyrir störf sín sem fangavörður í fangabúðum Nasista í Seinni heimsstyrjöldinni. Hann var látinn laus eftir að hann áfrýjaði dómnum og var á elliheimili þegar hann lést. Demjanjuk var vörður við Sobibor fangabúðirnar í Póllandi árið 1943, en rösklega 28 þúsund manns voru líflátnir í fangabúðunum á meðan hann starfaði þar. Fangavörðurinn neitaði alltaf sök og sagðist sjálfur hafa verið fórnarlamb stríðsfanga. 17.3.2012 13:46
Assange stefnir á þing Julian Assange, stofnandi vefsíðunnar WikiLeaks, hyggst bjóða sig fram í þingkosningum í Ástralíu. Assange er ástralskur ríkisborgari. Hann er staddur í Bretlandi þessa dagana og bíður þess að dómstóll úrskurði um það hvort hann verði framseldur til Svíþjóðar vegna ásakana um að hann hafi framið kynferðisbrot. Assange neitar ásökununum og segir að þær séu pólitísks eðlis. WikiLeaks síðan hefur birt þúsundir leyniskýrslan um viðkvæm mál, sem tengjast meðal annars bandaríska hernum, á Internetinu. Assange telur að þrátt fyrir þær sakir sem bornar eru á hann geti hann boðið sig fram til þings. 17.3.2012 09:43
Hermaðurinn vildi ekki til Afganistan Hermaður sem skaut sextán manns til bana í Afganistan síðastliðinn sunnudag hafði misst framan af fæti og hlotið heilaskaða í herþjónustu í Írak, segir lögmaður hans. Hann hélt að hann yrði ekki sendur til frekari herþjónustu. 17.3.2012 07:00
Viðbrögð stjórnvalda vonbrigði Kofi Annan, sérstakur erindreki Arababandalagsins og Sameinuðu þjóðanna vegna Sýrlands, segir að ef ekki verði tekið á málum þar muni það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir öll ríkin í kring. Aðstæðurnar séu flóknari en í Líbíu. 17.3.2012 07:00
Sænskur glæpaforingi myrtur Jörgen Lindskog, foringi vélhjólasamtakanna Outlaws í bænum Ronneby í Suður-Svíþjóð, fannst látinn fyrr í vikunni. 17.3.2012 06:00
Bandaríski hermaðurinn nafngreindur - myrti sextán manns Bandaríski hermaðurinn sem myrti sextán Afgana síðastliðinn sunnudag hefur verið nafngreindur af fjölmiðlum vestanhafs. Hann heitir Robert Bales og var liðþjálfi í bandaríska hernum. 16.3.2012 23:46
Stökk úr 22 kílómetra hæð og stefnir enn hærra Austurríski fallhlífastökkvarinn Felix Baumgartner stökk úr 22 kílómetra hæð í dag. Stökkið var ætlað sem æfing fyrir næsta stökk hans. Hann vonast til að setja heimsmet í sumar þegar hann stekkur úr tæplega 40 kílómetra hæð. 16.3.2012 21:53
Fórnarlömb rútuslyssins komin heim Lík fórnarlamba rútuslyssins í Sviss voru flutt til Belgíu í dag. Alls létust 28 í slysinu, þar af 22 börn. 16.3.2012 20:45
Bin Laden vildi ráða Obama af dögum Osama bin Laden fyrirskipaði undirmönnum sínum að drepa Barack Obama, Bandaríkjaforseta, og David Petraeus hershöfðingja, fyrrverandi leiðtoga herafla Bandaríkjanna í Afganistan. 16.3.2012 20:30
George Clooney handtekinn Stórleikarinn GeorgeClooney var handtekinn ásamt föður sínum fyrir utan sendiráð Súdans í Washington í Bandaríkjunum í dag. Honum, auk fjölmargra annarra mótmælenda, voru gefnar þrjár viðvaranir um að fara ekki inn fyrir lögregluborða fyrir framan sendiráðið. Clooney virti aðvaranirnar að vettugi og var því handtekinn fyrir borgaralega óhlýðni. 16.3.2012 15:35
Leikstjóri Kony 2012 handtekinn Jason Russell, leikstjóri heimildarmyndarinnar Kony 2012 og einn af stofnendum Invisible Children hjálparsamtakanna, var handtekinn í San Diego í gær. Samkvæmt lögregluyfirvöldum var Russell færður í varðhald vegna ölvunar, skemmdarverka og sjálfsfróunar á almannafæri. 16.3.2012 22:27
Allir með áfengismæli í bílnum Frönsk stjórnvöld hafa samþykkt lög þess efnis að öndunarmælir sem mælir áfengismagn í blóði ökumanna skuli vera í öllum vélknúnum ökutækjum, sem eru í umferð þar í landi frá og með 1. júlí næstkomandi. Bæði í bílum og bifhjólum. 16.3.2012 12:37
Offita barna tengist aðstæðum í móðurkviði Vísindamenn hafa fundið tengsl á milli aðstæðna fóstra í móðurkviði og offitu barna. Ástæðan fyrir breytingum á fósturvísum við fæðingu getur verið mataræði móðurinnar, mengun sem hún hefur andað að sér eða streita. Í rannsókn vísindamanna við háskólann í Newcastle voru þessar breytingar tengdar við aukna líkamsþyngd níu ára barna. 16.3.2012 12:30
Fundu mikið magn af vopnum og sprengiefni í Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur fundið mikið magn af vopnum og sprengiefni í kjallaraíbúð á Austurbrú. 16.3.2012 10:33
Þúsundir flýja til Tyrklands Yfir þúsund flóttamenn hafa komið til Tyrklands frá Sýrlandi undanfarinn sólarhring. Verið er að setja upp nýjar flóttamannabúðir fyrir ört vaxandi fjölda Sýrlendinga við landamærin. 16.3.2012 08:30
Þjóðarsorg í Belgíu í dag Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Belgíu í dag vegna rútuslyssins í Sviss sem kostaði 22 börn og sex fullorðna lífið. 16.3.2012 07:52
Norður Kórea ætlar að skjóta gervihnetti á braut um jörðu Norður Kóreumenn hafa ákveðið að skjóta á loft geimflaug með gervihnetti um borð til að fagna 100 ára afmæli Kim Il-Sung fyrrum leiðtoga landsins í næsta mánuði. 16.3.2012 07:41
Fyrsta kjarnorkuknúna flugmóðurskipið rifið í brotajárn Fyrsta kjarnorkuknúna flugmóðurskipið sem smíðað var í heiminum, USS Enterprise, er nú í sínni síðustu sjóferð en síðan verður það rifið í brotjárn. 16.3.2012 07:29
Gengst við mistökum Norska lögreglan viðurkennir að hafa ekki brugðist nógu hratt við hryðjuverkum Anders Breivik í fyrra. 54 atriði hefðu betur mátt fara samkvæmt rannsókn. Lögreglustjóri baðst afsökunar vegna málsins. 16.3.2012 07:00
Áfram leitað að norskri herflugvél með fimm manna áhöfn Leit er hafin að nýju að Herkúlesflugvél frá norska flughernum en vélin hvarf af radar í gærdag í norðurhluta Svíþjóðar og allt samband við hana datt út. 16.3.2012 06:56
Milljarða ára saga tunglsins á þremur mínútum Geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þróun tunglsins síðustu 4.5 milljarða ára. Þrátt fyrir að yfirborð tunglsins sé okkur kunnugt og ferðalag þess fyrirsjáanlegt þá einkennist saga þess af ringulreiði. 15.3.2012 23:47
Konungsslanga í klósettskálinni New York-búinn Allen Shepard varð fyrir miður skemmtilegri lífsreynslu þegar 1.3 metra löng slanga skreið upp úr klósettinu hans. 15.3.2012 22:47
Klaufalegur fjölmiðlamaður varð eyrnalausri kanínu að aldurtila Eyrnalaus kanína sem var rísandi stjarna í Þýskalandi mætti endalokum sínum undir stígvéli myndatökumanns. 15.3.2012 22:01
Fjölskyldur á slysstað Fjölskyldur tuttugu og tveggja barna sem fórust í rútuslysi í Sviss á þriðjudagskvöld fóru í morgun á slysstað í undigöngum hraðbrautar í Valais kantónunni þar sem rútan klessti á vegg á miklum hraða. 15.3.2012 16:25
Ljótasti hundur í heimi dáinn Smáhundurinn Yoda sem var kjörinn ljótasti hundur í heimi síðasta sumar er dáinn en hann dó í svefni á dögunum. Yoda varð 15 ára gamall en þegar eigandinn fann hann einan og yfirgefinn í húsasundi á tíunda áratugnum hélt hann að Yoda væri risavaxin rotta. 15.3.2012 10:15
Framdi sjálfsmorð eftir að vera neydd til að giftast nauðgara sínum Miklar deilur og fjölmiðlaumræða hefur blossað upp í Marokkó í framhaldi af því að aðeins 16 ára gömul stúlka sem var fórnarlamb nauðgunar framdi sjálfsmorð. 15.3.2012 07:26
Rútan gjöreyðilagðist er hún skall á vegginn Alls fórust 28 manns, þar af 22 börn, þegar stórri farþegabifreið var ekið á vegg í umferðargöngum í svissnesku Ölpunum í fyrrakvöld. Farþegarnir voru á heimleið til Belgíu úr skíðaferðalagi. 15.3.2012 08:00
Gæfi sér fyrstu einkunn sjálfur Íranska þingið yfirheyrði í gær Mahmoud Ahmadinejad forseta vegna margvíslegra ásakana um spillingu, mistök í starfi og lítilsvirðingu sem hann á að hafa sýnt klerkastéttinni. 15.3.2012 08:00
Eins íbúa þorp selt á uppboði Fámennasta byggðarlag Bandaríkjanna, Buford í Wyoming-ríki, verður selt hæstbjóðanda í næsta mánuði. Eini íbúi Buford er Don Sammons, sem hefur rekið þar verslun í tuttugu ár. 15.3.2012 08:00
Bandarískum hermanni laumað út úr Afganistan Yfirstjórn NATO hefur greint frá því að bandaríski hermaðurinn sem myrti 16 óbreytta borgara í Afganistan hafi verið fluttur með leynd til Kuwait þar sem réttað verður yfir honum. 15.3.2012 07:20
Undirbúa flutning á líkum 22 barna heim til Belgíu Stjórnvöld í Belgíu eru nú að undirbúa flutning á líkum þeirra 22 barna og sex fullorðna sem fórust í rútuslysinu í Sviss í fyrrakvöld. 15.3.2012 07:18
Langar biðraðir á Kastrupflugvelli Langar biðraðir hafa myndast við öryggisgæsluna á Kastrupflugvelli í morgun. Ástæðan fyrir þessu er að öryggisverðir flugvallarins, sem eiga í kjarabaráttu, ákváðu að halda faglegan fund klukkan fimm í morgun að staðartíma og stendur hann enn. 15.3.2012 07:16
Assad fékk ráðgjöf frá Íran um baráttu gegn uppreisnarmönnum Breska blaðið The Guardian hefur komist yfir fjölda tölvupósta til og frá Bashir al-Assad Sýrlandsforseta, og Asma al-Assad eiginkonu hans. 15.3.2012 07:14
Fámennasta byggðalag Bandaríkjanna til sölu Eini íbúinn sem eftir er í fámennasta byggðalagi Bandaríkjanna, Buford í Wyoming, hefur ákveðið að selja staðinn. 15.3.2012 07:04
Undarlegt fyrirbæri sást við yfirborð Sólarinnar Geimsjónauki NASA náði myndum af undarlegu fyrirbæri á yfirborði Sólarinnar. Fyrirbærið er hnöttótt og er margfalt stærri en Jörðin. Einhvers konar leiðsla virðist liggja frá fyrirbærinu að yfirborði stjörnunnar. 14.3.2012 23:44
Móðir lamdi fíkniefnasala með hafnaboltakylfu Móðir í Missouri í Bandaríkjunum tók málin í sínar hendur þegar dópsali reyndi að selja syni hennar heróin. Hún lamdi sölumanninn með hafnaboltakylfu. 14.3.2012 22:48
Ber súrefnisgeymi eiganda síns hvert sem er Herra Gibbs og hin þriggja ára gamla Alida Knobloch frá Louisville í Bandaríkjunum eru mun meira en bestu vinir. Hundurinn ber súrefnisgeymi hennar hvert sem þau fara 14.3.2012 22:21
Bresk börn eyða 353 klukkustundum á hverju ári í tölvunotkun Bresk rannsókn hefur leitt í ljós að börn á tíunda aldursári eyða 353 klukkustundum á hverju ári í einhvers konar tölvunotkun. Að meðaltali nota börnin tölvur eða tækni í tæpa klukkustund á degi hverjum. 14.3.2012 21:00