Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kosningar í skugga blóðugra átaka Sýrlendingar ganga til atkvæða um nýja stjórnarskrá í dag en hún er tilraun stjórnvalda til að reyna að stöðva átökin í landinu. Það sem af er degi hafa á fjórða tug látið lífið í borginni Homs. 26.2.2012 17:54
Nelson Mandela útskrifaður af spítala Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður-Afríku, var útskrifaður af spítala í heimaborg sinni Jóhannesarborg morgun. Forsetinn fyrrverandi undirgekkst aðgerð síðdegis í gær eftir að hann fann til kviðverkja. Yfirvöld segja að honum líði nú vel en ekki er vitað nákvæmlega hvað það var sem hrjáði hann. Heilsu Mandela, sem er níutíu og þriggja ára, hefur hrakað mjög síðustu ár en lítið hefur farið fyrir honum undanfarið. 26.2.2012 15:02
Mikil spenna fyrir Óskarnum Afhending Óskarsverðlaunanna fer fram í kvöld, en það eru ævintýramyndin Hugo og þögla myndin The Artist sem tilnefndar eru í flestum flokkum. 26.2.2012 12:45
The Sun kom út í morgun - í fyrsta skiptið á sunnudegi Breska síðdegisblaðið The Sun kom út í fyrsta skiptið á sunnudegi í morgun, sem í reynd tekur við sunnudagsblaðinu News of the World, sem var lagt niður síðasta sumar vegna harðar gagnrýni á vinnubrögð blaðamanna. Sunnudagsútgáfan var prentuð í þremur milljónum eintaka en útgáfufélagið News International hefur boðað breytt vinnubrögð að þessu sinni, það verði farið að lögum við öflun frétta. Á forsíðu blaðsins í dag er leikkonan Amanda Holden þar sem hún lýsir því hversu erfið fæðingin var þegar hún fæddi dóttur sína. Hún hafi verið við dauðans dyr. 26.2.2012 11:03
Leita byssumanns sem skaut tvo bandaríska hermenn Yfirvöld í Afganistan leita nú að tuttugu og fimm ára foringja úr leyniþjónustu landsins vegna skotárásar í innanríkisráðuneytinu í höfuborginni Kabúl í gærdag. Þar voru tveir bandarískir foringjar úr sveitum NATÓ skotnir til bana af stuttu færi. Maðurinn, Abdul Saboor, flúði ráðuneytið stuttu eftir árásina en hann er talinn hafa skotið bandaríkjamennina tvo. Ættingjar mannsins hafa verið handteknir og leit gerð á heimili hans en hann var ekki þar þegar lögreglumenn réðust til atlögu í gærkvöldi. Allir starfsmenn NATÓ í Afganistan hafa verið látnir yfirgefa ráðuneytinu í landinu í öryggisskyni. Blóðug mótmæli hafa verið í höfuðborginni síðustu daga eftir að bandarískir hermenn brenndu óvart Kóraninn með rusli. 26.2.2012 10:37
Einkunnir barna lækka þegar pabbinn missir vinnuna Þegar faðirinn missir vinnuna lækka einkunnir barnanna en ekki þegar móðirin missir vinnuna. 25.2.2012 22:00
Óttast faraldur barnavíruss Óttast er að algengur barnavírus muni leggjast á margfalt fleiri víetnömsk börn þetta árið en undanfarin misseri. 25.2.2012 21:00
Borgarstjórinn lýsir yfir stuðningi við sérstöku eftirliti með múslimum Borgarstjóri New York borgar hefur lýst yfir stuðningi við sérstakt eftirlit lögreglunnar með múslimum til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Múslimum í borginni þykir á sér brotið. 25.2.2012 21:30
Sprengdi sig í loft upp fyrir utan forsetahöllina Að minnsta kosti tuttugu og sex fórust þegar að bílsprengja sprakk í suður-Jemen í dag. Maður ók pallbíl fullan af sprengiefnum upp að aðaldyrum forsetahallarinnar í borginni Mukalla og sprengdi bílinn í loft upp. Flestir hinna látnu eru sérsveitarmenn. Árásin var gerð á sama tíma og Abed Mansour Hadi sór embættiseið sem ný forseti landsins en hann tók í dag við völdum af Ali Abdullah Saleh sem réð landinu í þrjátíu og þrjú ár en samþykkti að víkja til að binda enda á kröftug mótmæli sem geisað hafa í landinu síðustu vikur og mánuði. 25.2.2012 17:40
Starfsmenn NATÓ látnir yfirgefa öll ráðuneyti í Kabúl eftir skotárás Tveir bandarískir foringjar úr sveitum Atlantshafsbandalagsins voru skotnir til bana í innanríkisráðuneytinu í Kabúl, höfuðborg Afganistan í morgun. Æðsti yfirmaður hersveita Nató í Afganistan hefur látið allt starfsfólk sitt yfirgefa öll ráðuneytinu í landinu í öryggisskyni eftir skotárásina. Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins heyrðust átta skot innan úr ráðuneytinu en hermt er að foringjarnir tveir hafi verið skotnir eftir hávaða rifrildi. Fjöldi manns hefur mótmælt á götum úti í Kabúl síðustu daga eftir að bandarískir hermenn brenndu óvart nokkur eintök af Kóraninum með rusli. 25.2.2012 16:17
Mandela fór í aðgerð - líklega útskrifaður á morgun Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður-Afríku, undirgekkst aðgerð í morgun eftir að hann fann til kviðverkja í heimaborg sinni Jóhannesarborg. Samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins er ástand hans nú stöðugt og er hann farinn geta talað. Búist er við að hann verði útskrifaður af spítalanum á morgun. Heilsu Mandela, sem orðinn er nítíu og þriggja ára, hefur hrakað mjög síðustu ár. Mandela sást síðast opinberlega á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í heimalandi sínu árið 2010 en síðustu átta ár hefur lítið farið fyrir honum. 25.2.2012 15:00
The Sun í sunnudagsútgáfu: „Keppinautarnir eiga eftir að svitna" Breska síðdegisblaðið The Sun kemur út á morgun í fyrsta sinn í sunnudagsútgáfu, sem í reynd tekur við af sunnudagsblaðinu News of the World, sem lagt var niður síðasta sumar vegna harðrar gagnrýni á vinnubrögð blaðamanna. 25.2.2012 15:00
Springur úr hlátri þegar blað er rifið Micah McArthur er einungis átta mánaða gamall en er orðin heimsfræg á veraldarvefnum. Í meðfylgjandi myndskeiði sést faðir hans rífa í sundur blað og springur þá Micah gjörsamlega úr hlátri. Myndskeiðið hefur farið eins og eldur um sinu á vefnum og hafa yfir 38 milljónir manna horft á það. Hægt er að horfa á myndskeiðið með því að smella á hlekkinn hér að ofan. 25.2.2012 11:13
Mandela fluttur á spítala Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður-Afríku, var í morgun fluttur á spítala í skyndi vegna kviðverkja í heimaborg sinni Jóhannesarborg. Heilsu Mandela, sem orðinn er nítíu og þriggja ára, hefur hrakað mjög síðustu ár. Mandela sást síðast opinberlega á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í heimalandi sínu árið 2010 en síðustu átta ár hefur lítið farið fyrir honum. 25.2.2012 09:52
Umdeilt leikrit byggt á stefnuskrá Anders Breivik sett á svið Lítið leikhús í Ósló hyggst setja á svið umdeilt leikrit byggt á stefnuskrá hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik í haust. 25.2.2012 05:00
Jarðhræringar á yfirborði tunglsins Nýjar myndir úr könnunarfari Bandarísku geimvísindastofnunarinnar (NASA) sýna skýr merki um nýlegar jarðhræringar á yfirborði tunglsins. 25.2.2012 03:00
Konur og börn flutt frá Homs Konur og börn voru flutt burt frá úthverfi sýrlensku borgarinnar Homs í gær en þá komust starfsmenn Rauða krossins og Rauða hálfmánans á staðinn. Sprengjuregn hefur dunið á hverfinu undanfarið og eru slasaðir blaðamenn meðal þeirra sem bíða flutnings. 25.2.2012 01:00
Óeirðir eftir að Nike kynnti nýja skó Rúmlega eitt hundrað lögreglumenn voru kallaðir til þegar óeirðir brutust út í Orlando í Flórída. Fólkið gat ómögulega beðið eftir miðnæturopnun skóbúðar sem seldi nýjust körfuboltaskóna frá Nike. 24.2.2012 22:30
Maður beit bíl í Flórída Karlmaður í Flórída í Bandaríkjunum beit lögreglubíl eftir að hafa verið handtekinn fyrir óspektir á almannafæri. Talið er að maðurinn hafi verið undir áhrifum baðsalts. 24.2.2012 22:00
Stækkunaraðgerðir æ algengari í Bandaríkjunum Apotheosis var ekki sáttur við að vera undir meðalhæð. Hann ákvað því að gangast undir fokdýra skurðaðgerð og stækkaði um rúma 15 sentímetra fyrir vikið. 24.2.2012 21:30
Veiddi einn stærsta humar veraldar Veiðimaður í Maine í Bandaríkjunum klófesti einn stærsta humar sem vitað er um. Blessunarlega fer þessi humar ekki í pottinn. 24.2.2012 21:00
Mexíkóskir vísindamenn þróa bóluefni gegn heróíni Á meðan fíkniefnagengi berjast um yfirráð á götum Mexíkó hafa nokkrir vísindamenn þar landi þróað bóluefni sem dregur verulega úr ávanabindingu heróíns. 24.2.2012 20:30
Mannskæð mótmæli í Afganistan í dag Þúsundir hafa mótmælt í Afganistan í dag eftir að bandarískir hermenn brenndu nokkur eintök Kóraninum - helgasta riti Múhameðstrúaðra. 24.2.2012 16:58
Breiðþota með bilaðan hjólabúnað lenti í Rússlandi Rússnesk flugvél lenti heil á höldnu á flugvellinum í Sankti Pétursborg í dag eftir að hafa misst hjól við flugtak. Lendingin gekk afar vel samkvæmt rússneskum fjölmiðlum. 24.2.2012 15:39
Birtu myndir af líki Whitney Houston - aðdáendur æfir Bandaríska slúðurblaðið the National Enquirer hefur gert aðdáendur poppstjörnunnar Whitney Houston vægast sagt brjálaða en í nýjasta tölublaðinu er mynd af líki söngkonunnar á forsíðu. Á myndinni sést Whitney í líkkistu sinni en talið er að hún hafi verið tekin þegar nánasta fjölskylda hennar fékk að líta hana augum í hinsta sinn. Ekki er vitað hver tók myndina. 24.2.2012 15:20
Einmana dauði í Japan Lögreglan í Japan fann þrjú lík í íbúðarhúsnæði í borginni Saitama fyrr vikunni. Fundurinn er sagður tengjast honum svokölluðu "einmana dauðsföllum“ sem verða sífellt algengari í Japan. 24.2.2012 13:18
Hollenski prinsinn í dauðadái Talið er að Hollenski prinsinn Johan Friso eigi aldrei eftir að vakna úr dái eftir að hann lenti í snjóflóði í Austurríki í síðustu viku. 24.2.2012 12:19
al-Qaeda lýsir yfir ábyrgð á voðaverkum í Írak Hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hafa lýst yfir ábyrgð á hrynu sprengju- og skotárása í Írak í gær. Alls létust 55 manns í árásunum en þær áttu sér stað við lögreglustöðvar og öryggistálma í hverfum Shia-múslima. 24.2.2012 11:38
Dóttir Viktoríu krónprinsessu komin með nafn Viktoría, krónprinsessa Svía, og Daníel eiginmaður hennar hafa gefið nýfæddri dóttur sinni nafn. Prinsessan mun heita Estelle Silvia Ewa Mary, eftir því sem sænskir fjölmiðlar greindu frá í morgun. Viktoría ól stúlkubarnið á Karolínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í gærmorgun og héldu þau strax til Haga-hallarinnar síðar um daginn. Gamlir og nýir stjórnmálaforingjar hafa óskað Viktoríu og Daníel til hamingju á Facebook og Twitter. 24.2.2012 11:01
Upprættu smyglhring sem smyglaði nashyrningahornum Lögreglan í Bandaríkjunum hefur upprætt smyglhring sem sérhæfði sig í að smygla nashyrningahornum milli landa. 24.2.2012 06:50
Fjölskylda Whitney Houston óttast grafræningja Fjölskylda söngkonunnar Whitney Houston hefur ráðið öryggisverði allan sólarhringinn til að vakta gröf Houston í New Jersey vegna ótta um að grafræningjar muni láta þar geipar sópa. 24.2.2012 06:41
Kofi Annan á að miðla málum í Sýrlandi Kofi Annan fyrrum framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur verið skipaðir sérstakur erindreki Arababandalagsins í Sýrlandi. 24.2.2012 06:33
Ný prinsessa fædd í Svíþjóð Sænskir bakarar voru í allan gærdag önnum kafnir við að baka hefðbundnar prinsessutertur í tilefni fæðingar nýrrar prinsessu. 24.2.2012 01:00
Krafa um að Sýrlandsforseti fallist á vopnahlé Franska fréttakonan Edith Bouvier, sem særðist í sprengjuárás í borginni Homs á miðvikudag, óskar eftir því að frönsk stjórnvöld aðstoði sig við að komast úr landi. 24.2.2012 00:30
Viðurkennir siðleysi sitt fúslega Enn eitt kynlífshneykslið hefur bæst á ferilskrá franska stjórnmálamannsins og hagfræðingsins Dominique Strauss-Kahn, sem hefur á skömmum tíma hrapað úr háum embættum og situr nú uppi með litla von um að geta nokkurn tímann endurheimt æruna. 24.2.2012 00:15
Hrófla ekki við Obama Mitt Romney er engan veginn öruggur lengur með sigur í forkosningum Repúblikanaflokksins. Samkvæmt nýjum skoðanakönnunum er Rick Santorum kominn með nokkurn veginn jafnt fylgi meðal flokksmanna. Báðir mælast með um þriðjungs fylgi en Newt Gingrich og Ron Paul með 15 prósent hvor. 24.2.2012 00:00
Tólf ára gamall og snýr baki við krabbameinsmeðferðum Tólf ára gamall piltur í Bandaríkjunum hefur tekið mikilvægustu ákvörðun lífs síns. Hann ætlar að hætta krabbameinsmeðferðinni og eyða síðustu vikum sínum með fjölskyldunni. 23.2.2012 23:30
Flaug á klettabrún á 190 km hraða og lifði af Bandarískur ofurhugi hefur birt ótrúlegt myndband af því þegar hann flaug á klettabrún á 190 kílómetra hraða. 23.2.2012 23:00
Magnaðar myndir af eyðileggingu brúar í Ohio Ótrúlegar myndir náðust af því þegar hengibrú var sprengd í loft upp í Ohio í Bandaríkjunum. Brúin hafði staðið í 83 ár en féll á 9 sekúndum. 23.2.2012 22:30
Læknar lýstu skurðaðgerð á Twitter Skurðlæknar í Houston í Bandaríkjunum brutu blað í sögu læknisvísinda þegar hjartaskurðagerð var lýst í beinni útsendingu á samskiptasíðunni Twitter. 23.2.2012 22:00
J.K. Rowling undirbýr nýja skáldsögu Rithöfundurinn J.K. Rowling, sem gerði garðinn frægan með skáldsögunum um Harry Potter, vinnur nú að nýrri bók. Gríðarleg eftirvænting er fyrir bókinni en hún verður ætluð eldri lesendum. 23.2.2012 20:30
Neydd til þess að hlaupa til dauða fyrir að stela sælgæti frá ömmu Stjúpmóðir og amma níu ára gamallar stúlku í Alabama ríki í Bandaríkjunum hafa verið kærðar fyrir að valda dauða stúlkunnar. Hún var neydd til þess að hlaupa stanslaust í þrjá tíma sem varð til þess að hún féll niður, fékk flog og lést nokkrum dögum síðar á spítala. Talið er að dánarmein stúlkunnar sé ofþornun. Ofþornun getur bæði komið til vegna ónógrar vatnsdrykkju og vegna mikils vökvataps. 23.2.2012 20:26
Gekk berserksgang í breska þinghúsinu Eric Joyce, þingmaður breska verkamannaflokksins, hefur verið leystur frá störfum eftir að hann var handtekinn í kjölfar slagsmála í breska þinghúsinu. 23.2.2012 17:05
Obama biðst afsökunar á Kóran-brennu Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur beðið afgönsku þjóðina afsökunar eftir að bandarískir hermenn brenndu nokkur eintök af Kóraninum. 23.2.2012 15:16
Bíll sprengdur í loft upp með fjarstýringu - tólf fórust Tólf fórust og yfir þrjátíu særðust þegar að bílsprengja sprakk í grennd við strætóstoppistöð í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Um tíu bílar skemmdust í árásinni en samkvæmt yfirvöldum var sprengjan sprengd með fjarstýringu úr góðri fjarlægð. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu. 23.2.2012 14:04