Fleiri fréttir

Fagin er enn að í Lundúnum

Breska lögreglan handtók í dag yfir tuttugu Rúmena fyrir barnaþrælkun. Sex börnum undir tíu ára aldri var bjargað úr klóm þeirra.

Sjálfstæði Kosovo „spurning um daga“

Forsætisráðherra Kosovo Hashim Thaci sagði fréttamönnum í dag að sjálfstæisyfirlýsing héraðsins yrði birt innan nokkurra daga. Eftir fund með Javier Solana utanríkisráðherra Evrópusambandsins í Brussel sagði hann að farið yrði eftir gildandi verklagi og leitað ráðgjafar.

Snigillinn vann

Þá er það staðfest. Pósturinn er hægari en snigill. Að minnsta kosti í Póllandi. Hinn þriðja janúar síðastliðinn f'ékk Michal Szybalski bréf sem hafði verið póstlagt sem hraðpóstur 20. desember.

Peter Hain segir af sér

Peter Hain atvinnu- og eftirlaunaráðherra Bretlands sagði af sér í dag eftir að kjörnefnd tilkynnti að hún hefði vísað máli sem tengist framlögum í kosningasjóð hans til rannsóknar lögreglunnar. Hain sem einnig fer með málefni Wales í ríkisstjórninni mun ekki hafa gefið upp rúmlega 13 milljón króna framlag í sjóðinn fyrr en of seint.

Vill fá að kasta snöru í fangelsinu

Sami sem situr í fangelsi í Þrándheimi fyrir manndráp hefur skrifað yfirvöldum kvörtunarbréf yfir að fá ekki að kasta snöru í fangelsinu.

Tungumál deyr út með síðasta Eyakinum

Kona sem talin er vera síðasti Eyakinn og sú eina sem talaði Eyak tungumálið í norðvesturhluta Alaska, er látin. Marie Smith Jones lést á heimili sínu í Anchorage 89 ára að aldri. Hún var ötull talsmaður þess að varðveita Eyak tungumálið og hjálpaði háskólanum í Alaska við að taka saman orðabók í tungumálinu. Þannig vonaðist hún til að komandi kynslóðir gætu endurvakið það.

Er þetta Marsbúi?

Vísindamenn hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA velta nú vöngum yfir mynd sem eitt af geimförum þeirra sendi til jarðar frá Mars.

Thompson hættir baráttu um útnefningu Repúblíkana

Fred Thompson fyrrverandi öldungadeildarþingmaður hefur dregið sig úr kapphlaupinu um útnefningu forsetaefnis Repúblíkanaflokksins eftir slæmt gengi í forkosningum fram til þessa. Í yfirlýsingu sagðist hann vonast til að flokkurinn og þjóðin öll hefði notið einhvers af framboði hans.

Lottómiði flækir dómsmál í Bandaríkjunum

Sérkennileg lagaflækja er komin upp við dómstól í Maine í Bandaríkjunum. Lögreglan þar handtók fíkiniefnasala sem seldi metadone-töflur frá hótelherbergi sínu í bænum Ellsworth.

Mikill ótti meðal Indverja vegna fuglaflensu

Mikill ótti hefur gripið um sig meðal almennings á Indlandi sökum fuglaflensu sem þar hefur greinst í kjúklingum. Yfir 2.000 Indverjar telja sig vera smitaða af flensunni en yfirvöld vísa slíku á bug.

Tuttugu fórust í flugslysi í Póllandi

Flutningavél frá pólska flughernum hrapaði til jarðar í norðvesturhluta landsins með þeim afleiðingum að 20 fórust. Meðal þeirra voru nokkrir háttsettir yfirmenn flughersins.

Þrýst á Prodi að segja af sér

Romano Prodi forsætisráðherra Ítalíu er nú undir þrýstingi að segja af sér embætti. Í kosningu neðri deildar þingsins í gær fékk hann stuðning meirihluta þingmanna. En búist er við að hann tapi kosningunni í efri deildinni seinna í dag.

Fundu styttu af "manneskju" á Mars

Fjör er hlaupið í umræðuna að nýju um hvort líf sé á Mars eða ekki. Myndir sem Spirit, geimfar bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA, sendi frá sér í gær sýna að því er virðist styttu af manneskju í miðri sandauðninni á Mars.

Dvergar ræna rútubíla

Hópur ræningja hefur að undanförnu rænt rútubíla í Svíþjóð með því að senda dverga í farangursgeymslurnar falda í íþróttatöskum. Þegar inn er komið fara dvergarnir uppúr töskunum og grípa allt steini léttara.

ESB fyrsta hagkerfið gegn gróðurhúsaáhrifum

Jose Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hefur kynnt áform um að gera Evrópu „fyrsta hagkerfið með takmarkaðan útblástur gróðurhúsalofttegunda." Hann segir Evrópubúa vilja framtíðarsýn og aðgerðaráætlun gegn loftslagsbreytingum. Áætlunin muni kosta hvern Evrópubúa þrjár evrur á viku, eða sem svarar 293 krónum.

Söguleg heimsókn Grikkja til Tyrklands

Costas Karamanlis forsætisráðherra Grikklands fór í opinbera heimsókn til Tyrklands í dag, fyrstu opinberu heimsókn grísks leiðtoga í næstum fimm áratugi. Heimsóknin þykir táknræn og til marks um bætt samskipti landanna.

Annan reynir að miðla málum í Kenía

Kofi Annan, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kom til Afríkuríkisins Kenía í gærkvöldi til að miðla málum milli deilenda þar.

Palestínumenn flæða yfir til Egyptalands

Þúsundir Palestínumanna á Gaza hafa farið yfir til Egyptalands eftir að grímuklæddir uppreisnarmenn eyðilögðu hluta af landamæravegg sem skilur að löndin tvö. Íbúar Gaza fara til Egyptalands til að kaupa mat, eldsneyti og aðrar vörur sem eru orðnar fátíðar eftir að Ísraelar ákváðu að stöðva flutning á eldsneyti og öðrum vörum til Gaza.

Evrópubandalagið hundsar Hugo Chavez

Evrópubandalagið mun áfram hafa Farc-skæruliðasamtökin í Kólombíu á lista sínum yfir hryðjuverkasamtök þrátt fyrir beiðni Hugo Chavez forseta Vesesúela um að Farc verði tekin af þessum lista.

Kínverjar í herferð gegn klámi á netinu

Stjórnvöld í Kína eru nú í mikilli herferð gegn klámi á netsíðum landsins. Fram að þessu hefur um 44.000 netsíðum verið lokað af þessum sökum og tæplega 900 manns hafa verið handteknir.

Eyríkið Tuvalu í Kyrrahafi að sökkva í sæ

Íbúar í hinu örsmá eyríki Tuvalu í Kyrrahafinu eiga við mikinn vanda að glíma þessa daganna. Hækkun á yfirborði sjávar veldu því að eyjarnar níu sem mynda ríkið eru að sökkva í sæinn.

Trevor Rees fyrir réttarrannsókn Díönu á morgun

Trevor Rees, eini maðurinn sem komst lífs af úr bílslysinu sem tók líf Díönu prinsessu mun bera vitni við réttarrannsóknina á dauða prinsessunnar á morgun. Auk Díönu lést Dodi Fayed ástmaður hennar og Henri Paul bílstjóri.

Medvedev heldur fast í stefnu Pútíns

Dímítrí Medvedev, frambjóðandi Sameinaðs Rússlands til forseta, sagði í dag að hann myndi halda fast í þá stefnu sem Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefði markað fyrir þjóðina.

Kosið um hvort Prodi njóti trausts

Kosið verður um það á ítalska þinginu hvort Romano Prodi forsætisráðherra landsins njóti trausts eftir afsögn samstarfsmanns hans í stjórninni í síðustu viku. Með honum hverfur meirihluti samsteypustjórnar forsætisráðherrans sem var einungis upp á einn mann.

Clinton og Obama takast harkalega á

Hillary Clinton og Barack Obama sem berjast um útnefningu Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í nóvember, tókust harkalega á í kappræðum fyrir forkosningarnar í Suður-Karólínu. Obama sakaði Clinton um að segja hvað sem er til að fá atkvæði.

Þjóðverjar skila Nokia símum

Þýskir stjórnmálamenn keppast um að skila Nokia símunum sínum eftir að finnski símaframleiðandinn ákvað að færa verksmiðju sína í Þýskalandi til Rúmeníu.

Sir Edmund Hillary borinn til grafar

Ævintýramaðurinn Sir Edmund Hillary var borinn til grafar í Auckland, höfuðborg Nýja Sjálands í morgun. Ísöxin sem hann notaði við að komast á toppinn á Evrest-fjalli var grafin með kistunni. Mörg hundruð manns fylgdu Sir Edmund til grafar.

Tannlæknir býður þjónustu í gegnum netið

Jerry Watson tannlæknir í London sinnir eftirliti á sjúklingum sínum í gegnum internetið. Hann skoðar tennur þeirra í gegnum vefmyndavél og ákveður þannig hvort hann þurfi að hitta þá í eigin persónu eða ekki. Þetta gerist á læknastofu á vegum tannlæknisins þar sem myndir eru teknar og tennurnar hreinsaðar á sama tíma. Kostnaðurinn er um sex þúsund krónur.

Ísraelar slaka örlítið á einangrun Gaza

Ísraelsstjórn hefur ákveðið að gefa aðeins eftir í einangrun sinni á Gaza-svæðinu eftir mikinn alþjóðlegan þrýsting. Leyft hefur verið að flytja eldsneyti og lyf inn á Gazasvæðið og dugir eldsneytið til að keyra raforkuverin á Gaza á 30% afköstum í eina viku.

Krefst rannsóknar á forsetaframboði Kasyanov

Embætti ríkissaksóknara í Rússlandi hefur hafið rannsókn á forsetaframboði Mikhail Kasyanov fyrrverandi þingmanns og komandi andstæðings Dmitry Medevede. Rannsóknin beinist að því hvort Kasyanov hafi falsað undirskriftir á stuðningslista fyrir framboði sínu.

Miklar vetrarhörkur í Bandaríkjunum

Bandaríkjamenn glíma nú við einar mestu vetrarhörkur í manna minnum víða um landið. Snjókoman hefur náð allt suður í Silikon-dalinn í Kaliforníu en afar sjaldgæft er að þar snjói.

Átök á Nörrebro

Lögreglan í Kaupmannahöfn skilgreindi svæði á innrihluta Nörrebro sem sérstakt átakasvæði í nótt. Það þýðir að sjúkra- og slökkvibílar geta ekki sinnt útköllum á svæðinu nema í fylgd með lögreglubíl. Ákvörðun lögreglunnar kemur í kjölfar margra vikna óláta við Folkets park í Stengade þar sem unglingar halda oft til. Kastað hefur verið með grjóti á lögreglubíla sem aka um svæðið. En þegar slökkvibíll í útkalli lenti í grjótkasti frá unglingunum var lögreglunni nóg boðið.

Ríkisstjórn Prodi riðar til falls

Ríkisstjórn Romano Prodi á Ítalíu riðar nú til falls. Flestir reikna með að hann verði að segja af sér nú þegar í vikunni og boða til nýrra kosninga.

Omar bin Laden: Pabbi hættu þessu ofbeldi

Omar bin Laden sonur mest eftirlýsta manns í heimi vill að faðir hans Osama bin Laden snúi við blaðinu og hverfi frá ofbeldi. Omar segist síðast hafa séð föður sinn árið 2000 í Afghanistan þegar hann ákvað að hætta í al Qaeda.

Tugir ábendinga um mannræningja Madeleine

Tugir ábendinga hafa borist rannsóknarlögreglumönnum á vegum McCann hjónanna eftir að teikningar af meintum mannræningja Madeleine voru birtar í gær. Nú er verið að rannsaka upplýsingarnar sem hafa borist.

Mubarak varar Ísraela við afleiðingum á Gaza

Hosni Mubarak forseti Egyptalands hringdi í forsætisráðherra Ísraels til að vara hann við afleiðingum þess að setja Gaza strönd í herkví. Samkvæmt heimildum Mena fréttastofunnar lagði Mubarak áherslu á að stöðva yrði yfirgang Ísraela gegn palestínsku þjóðinni.

Sjá næstu 50 fréttir