Fleiri fréttir

Flytja allt plútóníum á einn stað

Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að flytja allar birgðir af geislavirku plútóníum sem nota má í kjarnorkuvopn til Savannah River í Suður-Karólínu fylki. Er þetta gert til að einfalda öryggisgæslu, draga úr kostnaði og koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir. Alls verða um þrjú þúsund gámar af plútóníum fluttir á hið nýja öryggissvæðið.

Um 200 manns enn saknað í Níkaragva

Að minnsta kosti 21 lét lífið þegar fellibylurinn Felix gekk yfir austurströnd Níkaragva í Mið-Ameríku í gær samkvæmt þarlendum yfirvöldum. Um 200 manns er enn saknað en þúsundir heimila eyðilögðust af völdum fellibylsins.

Ræningjar með góða þjónustulund

Þrír menn sem rændu sportvöruverslun nálægt borginni Montevideo í Úrúgvæ í dag héldu áfram að afgreiða viðskiptavini á meðan á ráninu stóð. Mennirnir lokuðu starfsmenn verslunarinnar inni í bakherbergi og afgreiddu viðskiptavini í tæpan hálftíma áður en þeir hurfu á braut.

Flaug með fimm kjarnorkusprengjur fyrir mistök

Bandarísk herflugvél flaug fyrir mistök með fimm kjarnorkusprengjur um borð yfir Bandaríkin í síðustu viku. Mistökin uppgötvuðust fyrir tilviljun en yfirmenn flughersins segja að þrátt fyrir þau hafi aldrei verið nein hætta á ferðum.

Heilsu Pavarottis hrakar

Heilsu stórsöngvarans Lucianos Pavarottis hefur hrakað mjög og ástand hans er nú sagt mjög alvarlegt. Pavarotti þjáist af krabbameini. Læknar sinna honum á heimili hans á Ítalíu.

Leigubílstjórar í New York leggja niður vinnu

Um 13 þúsund leigubílstjórar í New York borg í Bandaríkjunum héldu sig heima í dag til að mótmæla nýju tölvukerfi sem borgaryfirvöld vilja setja í leigubíla. Ekki urðu miklar truflanir á samgöngum en nú stendur yfir tískuvika þar í borg. Leigubílstjórarnir telja að tölvukerfið muni brjóta á mannréttindum þeirra og auka óþægindi í akstri.

Íslendingar kalla herlið sitt heim frá Írak

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að Ísland hætti þáttöku í friðargæslu í Írak. Frá og með fyrsta október verða engir íslenskir friðargæsluliðar í landinu. Með þessari frétt fylgir mynd af íslensku friðargæslusveitinni sem væntanlega verður kölluð heim fyrsta október.

Danir halda framhjá í bunkum

Fjórir af hverjum tíu Dönum halda framhjá maka sínum einhverntíma ævinnar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Könnuðurinn hefur áhyggjur af því að framhjáhald fari að teljast eðlilegt. Konur óttast mest tilfinningaleg tengsl manna sinna við aðrar konur. Karlmenn óttast hinsvegar mest kynferðislegt samneyti kvenna sinna við aðra menn.

Bush íhugar heimflutning frá Írak

George Bush forseti Bandaríkjanna staðfesti í dag að hann væri byrjaður að hugsa um heimflutning bandarískra hermanna frá Írak, í takt við pólitíska og hernaðarlega þróun þar í landi. Bush sagði þetta á fundi með fréttamönnum í Ástralíu í dag.

Stjörnufréttamaður hrapaði á botninn

Hún var hröð niðurleiðin hjá danska stjörnufréttamanninum Jeppe Nybroe, hjá danska sjónvarpinu. Fyrir nokkrum mánuðum var hann einn af virtustu fréttamönnum Danmerkur. Í dag er hann atvinnulaus og það eru birtar háðslegar myndir af honum á You Tube.

Foreldrar Madeleine að skilja -portúgalskir fjölmiðlar

Foreldrar Madeleine McCann eru að því komin að skilja, að sögn fjölmiðla í Portúgal. Hjónin hafa haldið til í Portúgal síðan dóttir þeirra hvarf fyrir tæpum fjórum mánuðum. Þau segjast enn sannfærð um að litla telpan finnist á lífi. Portúgalskir fjölmiðlar virðast orðnir þreyttir á þeim og hafa birt um þau margar særandi fréttir. Gerry og Kate McCann eiga nú í málaferlum við blað sem hélt því blákalt fram að þau hefðu sjálf valdið dauða dóttur sinnar.

Danska fótboltabullan mokar inn seðlunum

Danska fótboltabullan sem reyndi að kýla dómarann í leik Dana og Svía í Parken í júní hefur selt danskri sjónvarpsstöð einkarétt á sögu sinni og græðir nú á tá og fingri. Hann bætir svo gráu ofan á svart með því að heimta eina milljón króna af öðrum fjölmiðlum fyrir að veita viðtöl -eftir að búið er að sýna þáttinn á dönsku stöðinni. Í danska og sænska knattspyrnusambandinu eru menn æfir af reiði.

Höfðu mikið magn efna til sprengjugerðar undir höndum

Ríkissaksóknari Þýskalands, Monika Harms, sagði í morgun að mennirnir þrír sem voru handteknir í gær grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk hefðu hlotið þjálfun í Pakistan. Harms sagði á blaðamannafundi um málið að mennirnir hefðu haft undir höndum 680 kíló af vetnisperoxíði til sprengjugerðar.

Varnarmálaráðherra Svíþjóðar fór í fússi

Varnarmálaráðherra Svíþjóðar hefur sagt af sér vegna deilna við fjármálaráðherrann um framlög til landvarna. Ráðherrarnir eru flokksbræður í hægriflokknum Moderatarna. Svíþjóð heldur úti vel þjálfuðum her búnum hátæknivopnum. Framlög til varnarmála hafa hinsvegar verið skorin verulega niður undanfarin ár.

Myrti mann og skrifaði reifara

Pólskur reifarahöfundur hefur verið dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að fremja morð - á nákvæmlega eins hátt og hann hafði lýst í einni bóka sinna. Í ,,Amok", bók sinni frá árinu 2003, lýsir rithöfundurinn Krystian Bala því í smáatriðum hvernig pólskur kaupsýslumaður er myrtur á hrottalegan hátt.

Sprengdi hjákonuna í loft upp

Háttsettur kínverskur embættismaður var tekinn af lífi í dag fyrir að myrða hjákonu sína með bílsprengju. Aðeins liði tveir mánuðir á milli morðsins og aftökunnar. Vitorðsmaður hans var einnig tekinn af lífi og annar dæmdur í lífstíðar fangelsi. Málið hefur vakið mikla hneykslan í Kína þar sem spilling embættismanna hefur mjög verið til umræðu undanfarin misseri.

Meintar galdranornir brenndar lifandi

Nemendur við menntaskóla í Suður-Afríku brenndu lifandi tvær fullorðnar konur sem þeir grunuðu um að hafa lagt bölvun á skóla þeirra. Nemendurnir ruddust inn á heimili kvennanna í Natal héraði að drógu þær út á nærliggjandi íþróttaleikvang. Þar helltu þeir yfir þær bensíni og kveiktu í þeim.

Árásirnar mögulega áætlaðar 11. september

Varnarmálaráðherra Þýskalands sagði í morgun að yfirvöld hefðu traustar heimildir fyrir því þrír grunaðir hryðjuverkamenn sem voru handteknir í gær hefðu ætlað að láta til skarar skríða fljótlega. Mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að skipuleggja hryðjuverkaárásir á flugvöllinn í Frankfurt og á herstöð bandaríkjahers í Ramstein.

Hvetja almenning til að forðast sleggjudóma

Forsvarsmenn múslima í Danmörku hvetja almenning til að aðstoða lögreglu eins og það getur við rannsókn hryðjuverkamálsins. Eins hvetja þeir til stillingar, og biðja fólk um að dæma ekki alla múslima út frá nokkrum skemmdum eplum. Þá velta erlendir fjölmiðlar nú vöngum um ástæður þess að hryðjuverkamenn hafi hreiðrað um sig í Danmörku. New York times segir að Danmörk hafi allt frá birtingu Múhameðsmyndanna árið 2005 verið hötuð af múslimaheiminum. Breska ríkisútvarpið BBC vill hinsvegar meina að þáttöku Dana í Íraksstríðinu sé um að kenna.

Fjórir láta lífið af völdum fellibylsins Felix

Að minnsta kosti fjórir létu lífið þegar fellibylurinn Felix skall á austurströnd Níkaragva í Mið-Ameríku í kvöld. Bylurinn olli miklu tjóni þegar hann gekk yfir borgina Puerto Cabezas í norðurhluta Níkaragva. Rafmagns- og símalínur eyðilögðust og þúsundir þurftu að flýja heimili sín.

Vilja blanda saman fósturvísum úr manna- og dýrafrumum

Bresk yfirvöld ákveða á morgun hvort þau muni heimila hópi vísindamanna að gera rannsóknir á fósturvísum gerðum úr manna- og dýrafrumum. Vísindamennirnir vilja fá leyfi til að blanda saman frumunum til að rækta stofnfrumur. Markmið tilraunarinnar er að finna nýjar leiðir í læknavísindum.

Etna byrjuð að gjósa

Eldgos hófst í eldfjallinu Etnu á Sikiley í kvöld en ekki er talið að íbúum í nágrenni fjallsins stafi hætta af gosinu. Logandi hraun streymdi niður hlíðar fjallsins og aska barst yfir nærliggjandi þorp. Um lítið gos er að ræða.

Óttast um afdrif Steve Fossett

Leit stendur nú yfir að bandaríska auðkýfingnum og ævintýramanninum Steve Fosset en ekkert hefur til hans spurst síðan hann fór á loft í lítilli flugvél í Nevada fylki í Bandaríkjunum í gær. Frá þessu er greint á vefsíðu dagblaðsins Record-Courier í Bandaríkjunum.

Tíu ára fangelsi fyrir að heilsa að sið þýskra nasista

Yfirvöld í Austurríki rannsaka nú myndband sem sýnir unga austurríska hermenn heilsa að sið þýskra nasista. Myndbandið var tekið upp á farsíma og sett á Netið. Nasískur áróður er bannaður samkvæmt lögum í Austurríki og gætu hermennirnir átt von á því að vera dæmdir í allt að tíu ára fangelsi.

Komið í veg fyrir hryðjuverk

Komið var í veg fyrir hryðjuverk þegar danska leyniþjónustan handtók í nótt átta grunaða hryðjuverkamenn í Kaupmannahöfn. Mennirnir eru allir sagðir tengjast al Qaeda.

Finnar rífast um norrænt samstarf

Framtíð norræns samstarfs hefur verið margumrætt efni í Finnlandi. Í sumar birti dagblaðið Helsingin Sanomat greinaflokk um efnið. Umræðan hófst með grein sem Sampsa Saralehti skrifaði og staðhæfði að leggja mætti Norðurlandaráð og Norrænu ráðherranefndina niður.

Hérna eru geiturnar -fljúgum svo

Forstöðumenn ríkisflugfélagsins í Nepal fórnuðu tveim geitum síðastliðinn sunnudag til þess að friða skýjaguðinn Akash Bairab. Ástæðan fyrir fórninni var sú að önnur Boeing þota flugfélagsins hafði verið biluð í nokkrar vikur og því þurft að aflýsa mörgum áætlunarferðum.

Stóri bróðir vaktaði höfund stóra bróður

Breski rithöfundurinn George Orwell, sem bjó til hugtakið "Stóri bróðir," var sjálfur undir eftirliti þessa bróður án þess að hafa um það hugynd. Orwell skrifaði hina frægu bók 1984 um einræðisríki þar sem allir þegnarnir voru undir stöðugu eftirliti. Sumir þeirra voru reyndar jafnari en aðrir.

Fótboltabullan fékk skilorðsbundinn dóm

Frægasta fótboltabulla Norðurlanda, sem ákærð var fyrir að hlaupa inn á völlinn í leik Dana og Svía á Parken í júní síðastliðnum, var í dag dæmd í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi í bæjarrétti í Kaupmannahöfn. Auk þess var hinn 29 ára gamli Dani dæmdur til að sinna 40 klukkustundum í samfélagsvinnu og borga sakarkostnað.

William Shakespeare veldur umferðarslysi

Þrír slösuðust þegar að vatnabuffalói, að nafni William Shakespeare slapp út af engi í Kúmbríu á Englandi og hljóp út á hraðbraut í veg fyrir aðvífandi umferð.

Felix nær fullum styrk

Fellibylurinn Felxi sem fer nú yfir Mið-Ameríku hefur náð fullum styrk. Hann stefnir hraðbyr á Hondúras og Níkaragva. Tugþúsundir manna hýrðust í neyðarskýlum í nótt og 15 þúsund manns komast hvorki lönd né strönd.

Þriðja stóra hryðjuverkamálið í Danmörku á tæpum tveimur árum

Átta menn voru handteknir í Kaupmannahöfn í nótt - grunaðir um að hafa ætlað að smíða sprengjur sem nota átti til hryðjuverkaárása í Danmörku. Mennirnir eru sagðir tengjast al Kaída. Þetta er þriðja stóra hryðjuverkamálið í Danmörku á tæpum tveimur árum.

Meintir hryðjuverkamenn tengdust al-Qaida

Mennir sem handteknir voru í Kaupmannahöfn í nótt grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk, tengdust alþjóðlegum hryðjuverkasamtökum, þar meðal forystumönnum innan al-Qaida. Þetta kom fram í máli Jakobs Scharf, yfirmanns dönsku leyniþjónustunnar, á blaðamannafundi í morgun.

Efnavopna Ali hengdur innan mánaðar

Hæstiréttur í Írak hefur staðfest dauðadóm yfir Ali Hassan al-Majid frænda Saddams Hussein. Yfirsaksóknari í Írak segir að hann verði hengdur innan þrjátíu daga. Ali Hassan er þekktur undir nafninu Efnavopna Ali. Hann er fyrrverandi varnarmálaráðherra og hershöfðingi í íraska hernum. Það voru Kúrdar sem gáfu honum nafnið Efnavopna Ali fyrir fjöldamorð á Kúrdum og sjía múslimum meðan Saddam var við völd.

Bush segir hernaðarleg sjónarmið ráða stærð liðsafla í Írak

Ákvörðun um að fækka liðsafla Bandaríkjamanna í Írak mun ráðast af hernaðarlegum sjónarmiðum en ekki pólitískum. Þetta kom fram í ræðu sem George Bush, bandaríkjaforseti, hélt fyrir bandaríska hermenn í Írak í dag. Óvænt heimsókn forsetans til Íraks lauk í kvöld þegar hann hélt áleiðis til Sidney í Ástralíu.

Þúsundir flýja fellibylinn Felix

Þúsundir manna á austurströnd Mið-Ameríku hafa flúið heimili sín vegna komu fellibylsins Felix. Hann stefnir nú í átt að Níkaragva en bylurinn er nú skilgreindur sem 4. stigs fellibylur.

Danskur skattasáttmáli í höfn á elleftu stundu

Danska ríkisstjórnin tilkynnti síðdegis að náðst hefði samkomulag við Danska þjóðarflokkinn um nýjan skattasáttmála, en forsætisráðherra hafði gefið frest til miðnættis í kvöld til lausnar málsins.

9 ára barnshafandi stúlka í mæðrahúsi ÞSSÍ

Níu ára barnshafandi stúlka hefur dvalið í mæðrahúsi sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands lét byggja í Bluefields í Níkaragva. Stúlkunni var nauðgað af frænda sínum og eru fóstureyðingar með öllu bannaðar í landinu. Líkur eru á að stúlkan lifi ekki fæðinguna af.

Líkur á að bandaríska herliðið verði kallað heim

George Bush Bandaríkjaforseti segir líkur á að bandaríska herliðið í Írak verði kallað heim ef öryggisaðstæður í landinu haldi áfram að batna. Forsetinn kom í óvænta heimsókn til Íraks í morgun.

Þorskurinn að hverfa úr Eystrasalti

Fiskimenn á Eystrasalti verða að minnka þorskveiðar sínar um þriðjung á þessu ári ef stofninn á ekki að hverfa, að sögn Evrópusambandsins. Vísindamenn hafa lengi varað við því að ofveiði sé að útrýma þorskstofninum í austurhluta Eystrasaltsins og hafa viljað setja algert veiðibann. Þeir hafa einnig viljað minnka veiðarnar í vesturhlutanum um helming.

Bandarískur almenningur óánægður með þingið

Bandarískur almenningur er ekki hrifinn af stjórn demokrata á þingi landsins. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun er aðeins einn af hverjum fimm ánægður. Það er jafnvel verri einkunn en George Bush fær hjá þjóðinni. Demokratar unnu meirihluta í báðum deildum í janúar síðastliðnum og hafa síðan gert hvað þeir hafa getað til þess að þvælast fyrir forsetanum.

Bush í óvæntri heimsókn í Írak

George Bush forseti Bandaríkjanna kom í óvænta heimsókn til Íraks, í dag. Robert Gates, varnarmálaráðherra landsins er með honum í ferðinni. Bandaríska varnarmálaráðuneytið segir að forsetinn og ráðherrann muni eiga fundi með æðstu foringjum hersins í Írak.

Tjónið á Norðurbrú eftir mótmælin nemur tugum milljóna

Talið er að tjónið og eyðileggingin vegna mótmælanna á Norðurbrú í Kaupmannahöfn um helgina nemi tugum milljónum króna og eru íbúar og verslunareigendur á Norðurbrú orðnir langþreyttir á ástandinu. Sextíu og fjögur ungmenni voru handtekin aðfaranótt sunnudags og þrjú þeirra sitja í fangelsi.

Sjá næstu 50 fréttir