Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfirtökur hafnar í Zimbabwe Ríkisstjórn Zimbabwes hefur yfirtekið 49 prósenta hlut bandaríska matvælarisans Heinz í stærsta matarolíuframleiðanda landsins. Fyrir þennan hlut voru greiddar 6,8 milljónir dollara. Þetta er fyrsta stóra yfirtakan í Zimbabwe eftir að Robert Mugabe lýsti því yfir að heimamenn myndu fá meiri stjórn á erlendum fyrirtækjum sem starfa í landinu. 3.9.2007 09:38
Óhefðbundin hetja Ungur glæpamaður sem notar snilligáfu sína til að ræna og drepa er fremur óhefðbundin hetja í unglingabókum. Írski rithöfundurinn Eoins Colfers skrifar bækurnar um Artemis Fowl í þeim tilgangi að fá drengi til að lesa. 2.9.2007 19:14
Þjóðarmorð eru að eiga sér stað í Darfur Þjóðarmorð eru að eiga sér stað í héraðinu Darfur í Súdan og umheimurinn bregst allt of hægt við. Þetta segir ljósmyndari sem farið hefur reglulega um svæðið síðustu tvo áratugi. Hann segir íbúa flýja undan hersveitum sem brenni ofan af þeim húsin og drepi þá sem ekki nái að flýja. 2.9.2007 18:57
Ætla að leggja niður kjarnorkuver sín Norður-Kóreustjórn ætlar að leggja niður kjarnorkuver sín fyrir árslok. Á sama tíma berast fréttir af því að Bandaríkjamenn séu að undirbúa árás á Íran. 2.9.2007 18:49
Aftur boðað til mótmæla á Norðurbrú í kvöld Ungmenni í Kaupmannahöfn ætla að halda mótmælaaðgerðum áfram í kvöld til að knýja á um nýtt Ungdómshús. Í gærkvöldi voru rúmlega 60 manns handteknir í óeirðum á Norðurbrú. Umfang átakanna kom dönsku lögreglunni í opna skjöldu. 2.9.2007 18:16
Bush forseti ætlar að eyða ellinni í Dallas George Bush bandaríkjaforseti hefur hingað til ekki viljað ræða mikið um hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur þegar hann lætur af embætti á næsta ári. Nú hefur hann sagt rithöfundinum Robert Draper að hann hyggist eyða ellinni í Dallas í Texas. Og ef honum leiðist mun hann hoppa upp í bílinn og keyra á nálægan búgarð sinn. 2.9.2007 15:38
Hákarl veldur skelfingu í Queens Tveggja metra langur hákarl olli töluverðri skelfingu á vinsælli baðströnd við hverfið Queens í New York um helgina. Strandverðir ráku alla baðgesti upp á land um leið og bakuggi hákarlsins sást skera vatnið rétt fyrir utan fjöruborðið í gærdag. 2.9.2007 13:47
Báðu þjóð sína afsökunar Nítján suður-kóreskir gíslar, sem voru í haldi Talibana í Afganistan í sex vikur, báðu þjóð sína afsökunar í dag á öllum vandræðunum sem þeir orsökuðu. 2.9.2007 12:12
Danir vilja sjálfstæði Grænlands Þrír af hverjum fjórum Dönum vilja að Grænlendingar fái fullt sjálfstæði. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem birt var á vef danska blaðsins Politiken. Sextíu og þrjú prósent segjast vilja að Grænlendingar ráði sjálfir yfir málmi olíu og örðum auðlindum sem finnast á grænlenskum hafsbotni. 2.9.2007 10:11
Átök á Norðurbrú vegna Ungdómshússins Sextíu og þrír voru handteknir í óeirðum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í nótt. Þúsund ungmenni söfnuðust saman til að minnast þess að hálft ár var í gær liðið frá því að Ungdómshúsið var rifið. 2.9.2007 10:06
Raunsæjar myndir af lífi og tilveru Afríkubúa Myndir sem írskur ljósmyndari hefur tekið síðustu tuttugu árin eiga að draga upp raunsæja mynd af lífi og tilveru Afríkubúa. 1.9.2007 19:16
Fórnarlambanna í Beslan minnst Syrgjandi aðstandendur og íbúar í bænum Beslan í Rússlandi minntust þess í dag að þrjú ár eru frá því að gíslataka uppreinsnarmanna í barnaskóla í bænum endaði með skelfingu. Þrjú hundruð þrjátíu og tveir létu lífið, flestir þeirra börn. 1.9.2007 19:09
Næringarskortur vaxandi vandamál í Darfur Næringarskortur er vaxandi vandamál í héraðinu Darfur í Súdan á sama tíma og erfitt hefur reynst fyrir hjálparstarfsmenn að aðstoða þá sem hvað verst hafa orðið úti. 1.9.2007 18:52
Fellibylurinn Felix í uppsiglingu á Karabíska hafinu Gefin hefur verið út aðvörun vegna hitabeltisstormsins Felix sem er í uppsiglingu á Karabíska hafinu. Er þetta sjötti stormurinn sem hlotið hefur nafn á fellibyljatímabilinu í ár. Að sögn Fellibylsmiðstöðvarinnar í Bandaríkjunum er Felix nú staddur um 130 km vestnorðvestur af Granada og færist í vesturátt á um 30 km hraða á klukkustund. 1.9.2007 16:46
Talibanar segjast hafa fengið yfir milljarð kr. fyrir gíslana Háttsettur meðlimur Talibana segir í samtali við Reuters í dag að þeir hafi fengið 20 milljónir dollara, eða um 1,2 milljarða kr. fyrir suðurkóreansku gíslana sem þeir létu lausa í vikunni. Jafnframt fylgir með í fréttinni að þetta fé ætli Talibanar að nota til vopnakaupa. Talsmaður forsetaembættis Suður-Kóreu segir þetta vera rangt og að ekkert fé hafi verið borgað fyrir gíslana. 1.9.2007 12:04
Dýrar eignir renna út í Danmörku Dýrustu íbúðarvillurnar í Danmörku selja sig næstum sjálfar. Fréttavefur Jyllands Posten greinir frá því að íbúðarhús sem seld eru á nærri þrjú hundruð milljónir íslenskra króna í Danmörku renni út á meðan mun hægar gangi að selja helmingi ódýrari eignir. 1.9.2007 09:58
Veðmálavefir geta auglýst í sjónvarpi í Bretlandi Lögum sem lúta að veðmöngurum og spilavítum í Bretlandi hefur verið breytt en frá og með deginum í dag geta slíkir aðilar auglýst bæði í sjónvarpi og útvarpi. Það sama á við um vefsíður sem bjóða upp á veðmál en þær má nú í fyrsta skipti hýsa í Bretlandi. 1.9.2007 09:53
Chavez gerist sáttasemjari Hugo Chavez forseti Venesúela hefur ákveðið að taka að sér hlutverk sáttasemjara milli kólumbískra uppreisnarmanna og stjórnvalda þar í landi. Samið verður um lausn gísla sem uppreisnarmenn hafa undir höndum. Chavez tilkynnti áformin eftir samræður við Alvaro Uribe, forseta Kólumbíu. 1.9.2007 09:53
Tanni kóngur dró 300 tonna járnbrautarlest Malasíumaður sem ber viðurnefnið Tanni kóngur náði að draga sjö vagna járnbrautarlest í vikunni með stálvír sem hann beit saman í munni sínum. Þetta mun vera mesta þyngd sem maður hefur dregið með tönnunum einum saman. 1.9.2007 09:39
Larry Craig ætlar að segja af sér Bandaríski öldungardeildarþingmaðurinn Larry Craig mun segja af sér á morgun í kjölfar þess að upp komst um handtöku hans fyrr í sumar. CNN greinir frá þessu og segir að Craig muni hverfa úr embætti 30. september næstkomandi. 31.8.2007 23:37
Loftsteinn gæti lent á jörðinni árið 2036 Loftsteinn gæti lent á jörðinni innan tíðar, eða árið 2036, gangi spár sumra vísindamanna eftir. Verið er að vinna að áætlunum til þess að koma í veg fyrir að steinninn, Apophis, skelli á jörðinni og eru há verðlaun í boði fyrir bestu hugmyndina. 31.8.2007 20:13
Hermaður svarar til saka fyrir fjöldamorð í Írak Bandarískur hermaður svarar nú til saka fyrir morð á sautján óbreyttum íröskum borgurum, sem voru skotnir til bana á eða við heimili sín í Írak fyrir tveimur árum. Á meðan deila bandarískir stjórnmálamenn um veru Bandaríkjahers í Írak. 31.8.2007 18:59
Sprengjutilræði við Kabúlflugvöll - Íslendingar ómeiddir Þrettán Íslendingar sluppu ómeiddir þegar árás var gerð á Kabúl flugvöll í morgun með þeim afleiðingum að tveir hermenn létust og fjöldi særðist. 31.8.2007 18:55
Enn eitt unglingamorðið í Lundúnum 17 ára drengur var stunginn til bana í Lundúnum í gær. Þetta er enn eitt morðið í höfuðborginni þar sem unglingar koma við sögu en lögregla hefur handtekið tvo 16 ára drengi vegna málsins. Ekki er talið að morðið tengist unglingagengjunum í borginni. 31.8.2007 18:29
Bótakröfur á hendur bullu um 100 milljónir króna Danska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur fótboltabullunni sem hljóp inn á völlinn í leik Svía og Dana í júní síðastliðnum og réðst á dómara leiksins. Bótakrafan hljóðar upp á um 20 milljónir íslenskra króna og bætist við um 80 milljóna króna kröfu rekstraraðila Parken sem sett var fram fyrr í vikunni. 31.8.2007 16:43
Foreldrar Madeleine í mál við portúgalska fjölmiðla Foreldrar Madeleine McCann ætla að höfða meiðyrða mál gegn portúgölsku blaði sem hélt því fram að þau hafi myrt dóttur sína. Samskipti Gerrys og Kate McCann við fjölmiðla hafa versnað stöðugt undanfarnar vikur. Margir portúgalskir fjölmiðlar vilja gera þau ábyrg fyrir hvarfi dótturinnar. Annaðhvort vegna vanrækslu eða vegna þess að þau hafi hreinlega sjálf orðið henni að bana. 31.8.2007 15:22
Ég er svo ánægður að vera hérna uppá konunni minni Stjórnmálamenn og stjórnarerindrekar þurfa að tjá sig í mörgum löndum. Það eru auðvitað töluð misjöfn tungumál í þessum löndum og það kemur fyrir að boðskapurinn brenglast í þýðingunni. Richard Woolcott sem stýrði ástralska utanríkisráðuneytinu í mörg ár rifjar upp skemmtilegar þýðingarvillur í endurminningum sem hann hefur skrifað um þetta tímabil. 31.8.2007 14:26
Norskur hvalfangari sökk við bryggju Þrjátíu metra norskur hvalbátur sökk við bryggju i Svolvær í Lofoten síðastliðna nótt. Enginn var um borð. Lögreglan útilokar ekki að unnið hafi verið skemmdarverk. Tilkynning barst um það um hálf þrjú í nótt að Willassen Senior væri að sökkva. Björgunarlið var sent á vettvang. 31.8.2007 13:25
Gíslar fara heim á leið í dag Talibanar í Afganistan hafa nú leyst síðustu suður-kóresku gíslana sína úr haldi og búist er við að gíslarnir fljúgi heim í dag. 31.8.2007 12:47
Bretar minnast Díönu prinsessu Tíu ár eru í dag liðin frá því Díöna prinsessa af Wales lést í bílslysi í París, og verða minningarathafnir haldnar um hana víðsvegar um Bretland í dag. 31.8.2007 12:26
Vona að hundkvikindið drepist fljótlega Fyrrverandi þjónustustúlka hjá hóteldrottningunni Leonu Helmsley er ákaflega glöð yfir að hún skuli nú hafa safnast til feðra sinna. Hún segir að nú verði Leona að svara til saka hjá Guði. Og þjónustustúlkan vonar að hundkvikindið Trouble drepist líka sem allra fyrst. Trouble erfði mörghundruð milljónir króna eftir húsmóður sína. 31.8.2007 11:39
Bremsulausir Færeyingar Flugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways fór út af brautinni í flugtaki frá Færeyjum í morgun. Engan sakaði. Vélin var á leið frá Þórshöfn til Lundúna. Flugmennirnir hættu við flugtak þegar þeir uppgötvuðu að hemlabúnaður virkaði ekki sem skyldi. Hemlabilanir virðast vera viðvarandi vandamál hjá þessu flugfélagi. 31.8.2007 11:21
Ríkasti maður Noregs bak við lás og slá Kjell Inge Rökke, ríkasti maður Noregs dvelur nú í fangelsi og verður þar næstu 30 dagana. Rökke hlaut fangelsisdóminn fyrir að hafa mútað skipaeftirlitsmanni í tengslum við lúxussnekkju sína og útgáfu á haffærnisskírteini árið 2001. 31.8.2007 10:58
Fram með kústinn kerlíng Alþjóðleg rannsókn hefur leitt í ljós að kvæntir karlmenn taka umtalsvert minni þátt í húsverkunum en karlmenn sem eru í sambúð. Könnuðir við fylkisháskólann í Norður-Karólínu töluðu við yfir 17 þúsund manns í 28 löndum til þess að komast að þessari niðurstöðu. 31.8.2007 10:52
Stal brú í heilu lagi Rússneska lögreglan hefur haft hendur í hári manns sem stal brú í heilu lagi í Ryazan héraði austan við Moskvu. Brúin var úr stáli, tvíbreið og fimm metra löng. Maðurinn skrúfaði hana í sundur og hlóð henni á trukkinn sinn. Svo fór hann með hana og seldi hana í brotajárn. Lögreglan í Ryazan héraði segir að þetta sé umfangsmesti þjófnaður ársins. 31.8.2007 10:17
Beint frá minningarathöfn um Díönu prinsessu Bein útsending verður á Vísi klukkan 11 frá minningarathöfn um Díönu prinsessu af Wales en í dag eru tíu ár síðan hún lést í bílslysi í París. Minningarathöfnin þar sem synir Díönu, þeir Harry og Vilhjálmur verða viðstaddir ásamt Karli Bretaprins fer fram í Guards Chapel í Lunúnum. 31.8.2007 10:09
Ellefu látnir að minnsta kosti í lestarslysi í Ríó Að minnsta kosti ellefu létu lífið og 63 slösuðust þegar yfirfull lest skall á aðra í úthverfi brasilísku borgarinnar Rio de Janeiro í dag. Yfir hundrað björgunarmenn voru á staðnum og óttast slökkviliðsmenn að fleiri hafi látist. 30.8.2007 22:47
Skipverji sem var í haldi sjóræningja íhugaði sjálfsmorð Einn skipverjanna fimm sem eru nýkomnir til Danmerkur aftur, eftir að hafa verið á valdi sjóræningja í þrjá mánuði, segist oft hafa íhugað að fremja sjálfsmorð þennan tíma. Útgerðin hefur lítið viljað koma til móts við skipverjana en hefur boðist til að endurnýja farsíma þeirra. 30.8.2007 19:39
Skógareldarnir í Grikklandi í rénun Svo virðist sem skógareldarnir í Grikklandi séu í rénun. Yfirvöld eru þó viðbúin því að eldurinn kunni að glæðast á ný á svæðum þar glatt hefur logað síðustu daga. Að minnsta kosti sextíu og fjórir hafa látist í skógareldunum. 30.8.2007 18:58
Blóðugar deilur mafíugengja Deilur ítalskra mafíugengja eru taldar ástæða þess að sex Ítalar voru myrtir í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Lögreglan á Ítalíu handtók í dag á fjórða tuga manna í tengslum við morðin. 30.8.2007 18:50
Viðbrögðin of hæg Fórnarlömb fjöldamorðanna við Virginía Tech-háskólann í Bandaríkjunum hefðu hugsanlega orðið mun færri ef yfirvöld hefðu brugðist skjótar við, samkvæmt nýrri rannsókn. 30.8.2007 18:34
Ný meðferð fyrir MS-sjúklinga Vísindamenn hafa lagt til að ný meðferð verði notuð gegn heila og mænusigg-sjúkdómnum (MS) sem felur í sér notkun á hormóninu estrógen. Meðferðin felst í því að estrógen-hormónið er notað til að bægja frá eða jafnvel snúa við einkennum sjúkdómsins án þess að til komi þær algengu hliðarverkanir sem hormónameðferðum fylgja. 30.8.2007 17:49
Rússar ólu á stríðsótta til þess að selja vopn Rússar gerðu hvað þeir gátu til þess að ala á stríðsótta í Ísrael og Sýrlandi í sumar, til þess að auka vopnasölu sína til Sýrlands, að sögn diplomatisku öryggisþjónustunnar í Ísrael. Snemma í sumar kom upp sá orðrómur að Sýrlendingar hyggðust endurheimta Golan hæðirnar með stríði á hendur Ísrael. Jafnframt var sagt frá liðssafnaði beggja ríkjanna við landamærin. 30.8.2007 17:09
Faldi nýfætt barn sitt í þvottakörfu Sextán ára stúlka er í haldi lögreglu eftir að lík nýfædds barns hennar fannst í þvottavél á heimili hennar í borginni Frankfurt an der Oder í austurhluta Þýskalands í gær. 30.8.2007 15:56
Íbúar norðurlanda 0,4 prósent af jarðarbúum Norðulandabúar eru orðnir rúmar 25 milljónir. Samkvæmt tölum frá norrænu hagstofunum búa rúmlega 9 milljón manns í Svíþjóð, í Danmörku og Finnlandi rúmlega 5 milljónir og tæplega 5 milljónir í Noregi. Rúmlega 300 þúsund manns búa á Íslandi, á Grænlandi búa rúmlega 50.000 manns og tæplega 50.000 í Færeyjum. Á Álandseyjum búa 27.000 manns. 30.8.2007 14:54