Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Að minnsta kosti 12 létust þegar ferja sökk Að minnsta kosti 12 létust þegar ferja sökk rétt hjá Manila í dag, höfuðborg Filippseyja. Herinn sagði að minnsta kosti 129 manns hafi verið bjargað sem voru um borð í ferjunni „MV Blue Water Princess," en þó séu það ekki staðfestar tölur. Þegar hermenn komu á vettvang lá ferjan á hlið í grunnu vatninu. 12.7.2007 16:38
Þriggja ára dreng rænt í Nígeríu Þriggja ára nígerískum dreng hefur verið rænt við borgina Port Harcourt sem stendur við ósa Níger-ánnar í Nígeríu. Aðeins eru fjórir dagar síðan að mannræningjar slepptu þriggja ára breskri stúlku úr haldi sem þeir höfðu rænt í sömu borg. Samkvæmt lögreglu á svæðinu er drengurinn sonur höfðingja á svæðinu í kringum borgina. Ekkert hefur heyrst af kröfum mannræningja. 12.7.2007 15:40
Sjö farast eftir sjálfsmorðsárás í brúðkaupi Sjö gestir í brúðkaupi lögreglumanns í Írak létust þegar maður sem gerðist boðflenna í brúðkaupinu sprengdi sjálfan sig í loft upp. Fjórir í viðbót slösuðust alvarlega. Ekki kemur fram hvort að brúðarhjónin hafi verið á meðal fórnarlamba sprengjunnar. 12.7.2007 15:37
Rice og Gates til Mið-Austurlanda í ágúst George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði á fréttamannafundi sínum í dag að hann ætlaði sér að senda varnarmálaráðherrann Robert Gates og utanríkismálaráðherrann Condoleezzu Rice í ferðalag um Mið-Austurlönd. 12.7.2007 14:57
Lögreglan í Rússlandi vill að flækingar séu fangelsaðir Lögreglan í Rússlandi vill endurlífga lög frá tímum Sovétríkjanna og fangelsa flækingja og betlara. Gagnrýnendur fordæma hugmyndina og segja hana færa Rússland aftur til alræðistíma fortíðarinnar. Flakkarar og betlarar eru algengir í Rússlandi og margir láta lífið af völdum kulda á veturnar. 12.7.2007 14:13
Bush ætlar að bíða eftir skýrslu Petraeus George W. Bush ætlar sér að bíða eftir skýrslu frá yfirhershöfðingja Bandaríkjanna í Írak áður en hann tekur ákvörðun um hvort að breytt verði um stefnu í Íraksstríðinu. Þá sagði hann að al-Kaída væri ekki jafn burðugt og það var fyrir árásirnar í Bandaríkjunum. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndbrot frá fréttamannafundi Bush í dag. 12.7.2007 13:46
Sjö alvarlega slasaðir eftir nautahlaup dagsins Sjö manns slösuðust alvarlega í nautahlaupi í Pamplona í morgun og nokkrir til viðbótar urðu sárir. Hlaupið entist í rúmar sex mínútur í stað rúmlega tveggja eins og vaninn er þar sem nautin skildust að, sneru við og gerðu í raun allt sem þau eiga ekki að gera. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndir frá hlaupinu í morgun. 12.7.2007 13:10
Svört bráðabirgðaskýrsla um Írak Íröskum stjórnvöldum hefur aðeins tekist að ná innan við helmingi þeirra markmiða sem Bandaríkjaþing setti um leið og fé var veitt til að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Þetta er niðurstaða bráðabirgðaskýrslu sem kynnt verður á Bandaríkjaþingi í dag. Enn fjölgar í hópi flokksfélaga Bush Bandaríkjaforseta sem vill að bandarískt herlið verði kallað heim. 12.7.2007 12:33
16 ára breskar stelpur handteknar í Ghana fyrir tilraun til smygls á kókaíni Tvær 16 ára breskar stelpur eiga von á fangelsisvist í Ghana eftir að hafa verið handteknar á Accra flugvellinum þar í landi með kókaín að verðmæti 37 milljóna króna. Stelpurnar voru handteknar 2. júlí síðastliðinn með sex kíló af kókaíni. 12.7.2007 12:12
Sex látnir í snjóflóði í Svissnesku Ölpunum Í það minnsta sex manns eru látnir eftir að snjóflóð féll í Svissnesku Ölpunum um áttaleytið í morgun. Þetta hafa þarlend blöð eftir hjálparstarfsmönnum. Tvö þriggja manna lið fjallgöngumanna grófust undir flóðinu í suðurhlíðum Jungfreu fjallsins um níutíu kílómetra suð austur af höfuðborg Sviss, Bern. 12.7.2007 11:51
Hæsti maður heims giftir sig Heimsins hæsti maður, Bao Xishun, gifti sig við hefðbundna athöfn í Mongólíu í nótt. Bao, sem er 2,36 metrar á hæð og 56 ára, giftist þá konunni Xia Shuijan, sem er 28 ára og 1,67 metrar á hæð. Giftingin fór síðan fram í grafhýsi Kublai Khan. Smellið á „Spila“ hnappinn hér að neðan til þess að sjá myndir frá brúðkaupinu. 12.7.2007 11:08
Vilja kynjakvóta í læknanám Radikale venstre stjórnmálaflokkurinn í Danmörku vill nota kynjakvóta til að auka hlut karla í læknanámi, en þeir eru í miklum minnihluta þeirra sem hefja nám í læknisfræði þar. Rök flokksins eru að konur sérhæfi sig helst í greinum á borð við heimilis- eða barnalækningar. Því sé útlit fyrir skort á læknum í þeim greinum sem karlmenn sækja frekar í, líkt og skurðlækningar. Háskólayfirvöldum í Kaupmannahafnarháskóla lýst illa á hugmyndirnar. Þau benda á að vandamálið sé fyrst og fremst fólgið í því að drengir spjari sig verr í skólakerfinu en stúlkur, og það þurfi að leysa. 12.7.2007 11:05
Vatn finnst í fyrsta skipti utan sólkerfisins Vísindamenn hafa fundið vatn utan sólkerfisins, í fyrsta skipti svo óyggjandi sé. Vatnið greindist í gufuðu formi á reikisstjörnunni HD189733b sem svipar til Júipíters og er í 63 ljósára fjarlægð frá jörðu. 12.7.2007 10:36
F.B.I. rannsakar myndband þar sem grunur er á að 2 ára stelpa sé undir áhrifum alsælu Alríkislögreglan í Bandaríkjunum er að hjálpa yfirvöldum í Houston, Texas þar sem verið er að athuga hvort að glæpur hafi verið framinn þegar hópur ungra kvenna tóku upp myndband af smábarni þar sem það sat á gólfi í aftursæti bíls. Konurnur hlógu óspart að barninu og gáfu í skyn að barnið, sem er tveggja ára stúlkubarn, væri undir áhrifum alsælu. 12.7.2007 10:26
Stuðningsmenn Ghazi vilja heilagt stríð „Al Jihad, al Jihad," eða „Heilagt stríð, heilagt stríð," ómaði um þegar klerkurinn úr Rauðu Moskunni, Abdul Rashid Ghazi, var jarðaður í morgun. Hann lést í áhlaupi pakistanska hersins á moskuna. 12.7.2007 10:22
Ári of snemma Manni sem flaug frá Kanada til Bretlands til að vera viðstaddur brúðkaup vinar síns brá í brún þegar hann komst að því að hann mætti ári of snemma. Vinur mannsins bauð honum fyrr á árinu í brúðkaupið, sem átti að vera sjötta júlí. Hann gleymdi hinsvegar að minnast á að það væri júlí á næsta ári. Maðurinn, sem er kennari í Toronto, eyddi rúmum sextíu þúsund krónum í flugmiðann. Hann sagði við BBC fréttastofuna að vinir sínur skemmtu sér konunglega yfir klúðrinu. 12.7.2007 10:15
Engin áhrif á hlýnun jarðar Virkni sólarinnar hefur engin áhrif haft á hlýnun andrúmsloftsins hér á jörðinni síðustu áratugina. Þvert á móti, því virkni sólarinnar hefur minnkað nokkuð síðustu tuttugu árin, en á þeim tíma hefur hitinn í andrúmsloftinu hækkað. 12.7.2007 10:00
Evrópusambandið á móti því að nota launmorðingja Evrópusambandið styður ekki þá hugmynd að beita launmorðingjum í baráttunni gegn hryðuverkum. Dómsmálaráðherra sambandsins, Franco Frattini, skýrði frá þessu í morgun. Hann var að svara hugmynd þýska innanríkisráðherrans Wolfgang Schaeuble, sem sagði í viðtali um helgina að skýra þyrfti hvenær stjórnarskrár heimiluðu ríkjum að elta uppi og myrða hryðjuverkamenn. 12.7.2007 09:59
Lady Bird Johnson látin Lady Bird Johnson, ekkja Lyndons B. Johnson, lést á heimili sínu í Austin, Texas í kvöld. Hún var 94 ára gömul. Forsetafrúin var virt og dáð af fjölmörgum Bandaríkjamönnum. 11.7.2007 23:42
Vinsældir Bjerregaards dvína Ritt Bjerregaard, borgarstjóri í Kaupmannahöfn, lofaði 5000 nýjum félagslegum íbúðum fyrir 55 þúsund íslenskar krónur á mánuði. Tæpum tveimur árum seinna hefur hún ekki efnt kosningaloforðið. 11.7.2007 23:16
Bandaríkjaforseti bannar fyrrverandi aðstoðarmanni sínum að bera vitni George Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur skipað fyrrverandi ráðgjafa sínum, Harriet Miers, að neita því að koma fyrir þingnefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins. Miers á að vitna um uppsagnir alríkissaksóknara. Annar fyrrverandi aðstoðarmaður Bush, Sara Taylor, vitnaði fyrir þingnefndinni í dag. 11.7.2007 22:17
Hvetur Pakistana til þátttöku í heilögu stríði Ayman al-Zawahri, næstráðandi Al-Qaida, sendi frá sér nýtt myndband í dag þar sem hann hvetur Pakistana til að taka þátt í heilögu stríði til að hefna fyrir árás pakistanska hersins á rauðu moskuna. 11.7.2007 21:12
Fimmti hver Dani getur nýtt sér námskeið til að hætta að reykja Um það bil fimmta hverjum Dana tekst að hætta að reykja með hjálp námskeiða, samkvæmt niðurstöðum danskrar rannsóknar. Rannsóknin telst vera sú stærsta sinnar tegundar. 11.7.2007 20:01
Heimabær Hómers fundið En á meðan Potter aðdáendur flykkjast í kvikmyndahúsin kætast áhugamenn um Simpson-fjölskylduna í bænum Springfield í Vermontríki í Bandaríkjunum. Hann hefur verið valinn heimabær þeirra Homers, Marge, Barts, Lísu og Maggie og verður ný kvikmynd um fjölskylduna frumsýnd þar 21. þessa mánaðar. 11.7.2007 19:15
Mýs að æra Kínverja Hagamýs í milljarðatali eru nú að æra íbúa í Hunang-héraði í Kína. Samkvæmt kínverskum miðlum hafa íbúar drepið rúmlega tvær milljónir músa og byggt veggi og grafið skurði til að halda þeim frá ræktarlandi. 11.7.2007 19:00
Hóta hefndum Bretar segjast hafa verið í fullum rétti með að aðla rithöfundinum Salman Rushdie á dögunum fyrir framlag hans til bókmennta. Múslimar víða um heim hafa tekið því sem móðgun og hótar næstráðandi hjá al Kaída hefndum. 11.7.2007 18:45
Bandaríkin vilja sexmenningana í Líbíu úr haldi Bandaríkin brýna það fyrir Líbíu að leyfa heilbrigðisstarfsfólkinu að halda heim á leið strax. Í dag var dauðadómur yfir fimm búlgörskum hjúkrunarfræðingum og einum lækni frá Palestínu staðfestur. Þau hafa verið í haldi síðan 1999, og er þeim gefið að sök að hafa viljandi smitað 438 börn af HIV-veirunni með sýktu blóði. 11.7.2007 15:49
Óvenju há tíðni dauðsfalla í vinnuslysum á Ítalíu 435 hafa látist í vinnuslysum á Ítalíu á þessu ári. Rannsóknir sýna að tíðni vinnuslysa á Ítalíu er meira en 40% hærri en í Frakklandi, tvöfalt hærri en í Þýskalandi og sjöfalt hærri en í Bretlandi. Lögreglan telur að stór hluti þeirra sem látast séu ólöglegir innflytjendur sem vinna við óviðunandi öryggisaðstæður. 11.7.2007 14:19
Raðmorðingi dæmdur til dauða í Los Angeles Pítsusendillinn Chester Turner hlaut í dag dauðadóm fyrir að myrða tíu konur í Los Angeles á árunum 1987-1998. Ein konan var ófrísk og komin sex og hálfan mánuð á leið og var hann einnig dæmdur fyrir það. Konurnar sem urðu Turner að bráð voru flestar vændiskonur eða fíkniefnaneytendur. 11.7.2007 13:53
Dæmdir í lífstíðarfangelsi Mennirnir fjórir sem voru sakfelldir fyrir aðild sína að sprengjutilræði í júlí 2005 voru í dag dæmdir í lífstíðarfangelsi. Þeir geta þó sótt um reynslulausn eftir 40 ár. 11.7.2007 12:01
Aukið verðmæti þorskútflutnings í Noregi Verðmæti útflutnings á ferskum þorski frá Noregi jókst um 15% á fyrsta árshelmingi 2007 og nam 3,3 milljörðum íslenskra króna. Útflutningur hefur aukist til markaða í Evrópusambandslöndunum og þá einkum til Danmerkur og Portúgal. Verðmæti útflutning á frystum þorski jókst um 48% og nam 2,7 milljörðum íslenskra króna. 11.7.2007 11:10
Átta létust í sprengingu í Alsír Sprenging varð átta manns að bana í herstöð alsírska hersins í morgun. Stöðin er 120 kílómetra frá höfuðborginni en enginn hefur ennþá lýst yfir ábyrgð á sprengingunni. Hópur tengdur al-Kaída hefur áður lýst yfir ábyrgð á svipuðum tilræðum í landinu. 11.7.2007 10:27
Ný hótel rísa í Moskvu á hverjum degi Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Moskvu síðustu árin og hafa hótel verið rifin til grunna og ný byggð á rúmu ári. Uppbyggingunni stýrir borgarstjórinn með harðri hendi og fylgir framkvæmdum eftir á hverjum laugardegi. 10.7.2007 20:49
Umdeildar virkjanir í Brasilíu Brasilíska ríkisstjórnin hefur gefur vilyrði fyrir byggingu tveggja vatnsfallsvirkjana í Madeira fljótinu í Brasilíu. Fljótið er stærsta þverá Amason fljótsins. Virkjunaráformin eru harðlega gagnrýnd vegna mögulegra umhverfisáhrifa við fljótið. 10.7.2007 16:54
20 manns verða líflátnir á næstu vikum í Íran Tuttugu manns verða hengdir í Íran fyrir ýmsa glæpi á næstunni. Eftir herferð í landinu í sumar gegn siðferðisglæpum, hefur lögreglan handtekið tugi fíkniefnaneytenda, smyglara og aðra glæpamenn. „Þeir tuttugu sem verða hengdir voru handteknir fyrir nauðganir, hjúskaparbrot og fleira." Þetta segir talsmaður dómarastéttar í landinu. 10.7.2007 16:26
Ólíklegt að ökumaður jeppans í Glasgow lifi af Samkvæmt læknum sem annast manninn sem keyrði jeppa inn í flugstöðina í Glasgow, þykir ólíklegt að hann haldi lífi. „Maðurinn hlaut 3. stigs bruna á búk og útlimum og ólíklegt er að við náum að bjarga honum," sagði einn læknanna. 10.7.2007 15:50
Málverkum að verðmæti milljóna dala stolið í Moskvu Þjófar í Moskvu stálu 13 málverkum, sem metin eru á margar milljónir dala. Rússneskur ellilífeyrisþegi hafði geymt verkin í óvarinni, tómri íbúð sem að hann á. Kamo Manukyan, fyrrverandi dómari, átti verkin. Þau eru eftir fræga listamenn á borð við Georges-Pierre Seurat, Ivan Aivazovsky og Alexej Jawlenski. 10.7.2007 14:57
Klerkurinn drepinn í áhlaupinu á Rauðu moskuna Yfirvöld í Islamabad í Pakistan segjast nú hafa drepið klerkinn Abdul Rashid Ghazi í áhlaupinu á Rauðu moskuna sem hófst á miðnætti. Hann er æðsti trúarleiðtogi þeirra vígamanna sem neituðu að gefast upp. Hann hafði lokað sig inni í einu af herbergjunum í kjallara nálægs bænaskóla. Þar var líka fjöldi kvenna og barna sem vígamennirnir notuðu sem mannlega skildi. 10.7.2007 14:34
Heill loðfílsungi fannst í Síberíu Leifar af ungviði loðfíls sem fundust í sífreri í Síberíu á dögunum eru líklega þær heilustu sem fundist hafa af þessari útdauðu skepnu. Talið er að leifarnar séu um 10,000 ára gamlar. 10.7.2007 14:24
2 látnir og 4 slasaðir eftir flugslys í Flórída Lítil Cessna 310 flugvél hrapaði á tvö heimili í Sanford, Flórída í morgun. Samkvæmt Cleo Cohen, talsmanni lögreglunnar, eru að minnsta kosti tveir látnir og fjórir alvarlega slasaðir og voru þeir fluttir með tveimur þyrlum á nærliggjandi sjúkrahús. Einnig er einn slökkviliðsmaður til aðhlynningar vegna brjóstverkja. 10.7.2007 14:18
Íbúafjöldasprengja yfirvofandi í Kaliforníu Íbúafjöldasprengja í Kaliforníu er yfirvofandi samkvæmt spá fjármálastofnunar ríkisins sem birtist á heimasíðu L.A. Times í dag. Á næstu 50 árum mun fólksfjöldinn aukast um 75%, sem þýðir fólksfjöldinn í ríkinu mun nálgast 60 milljóna markið. 10.7.2007 13:34
Bandaríkin senda þriðja flugmóðurskipið til Persaflóa Bandaríkin hafa sent þriðja flugmóðurskipið, Enterprise, til Persaflóans, á svæði nálægt írönsku hafsvæði. Sjóherinn sagði frá þessu í tilkynningu í morgun. „Enterprise er mótvægi við þær truflandi aðgerðir sem sum lönd á svæðinu standa fyrir. Einnig styður það við bakið á hermönnum okkar í Írak og Afganistan.“ sagði í tilkynningunni. 10.7.2007 12:08
60 handteknir í aðgerðum gegn mafíunni Lögreglan á suðurhluta Ítalíu handtók í dag fleiri en 60 manns í aðgerðum gegn mafíunni á svæðinu en hún kallast 'Ndrangheta. Meðlimir hennar eru grunaðir um smygl á eiturlyfjum, fólki og tryggingasvindl. 'Ndrangheta er staðsett í Kalabríu, rétt suður af Napólí, og er orðin stærri en Cosa Nostra mafían sem hefur aðsetur á Sikiley. 10.7.2007 11:51
Þúsundir fluttar á brott vegna goshættu Þúsundir Indónesa hafa þurft að flýja heimili sín vegna goshættu í eldfjallinu Mount Gamkonora. Fjallið spýr þegar út ösku og eldi allt upp í fjögur þúsund metra hæð. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndir þaðan. 10.7.2007 11:01
11 látast í sprengjuárás í Afganistan Sjálfsmorðssprengjumaður gerði í dag árás á hersveitir NATO í suðurhluta Afganistan og varð 11 almennum borgurum að bana. Þó nokkur börn voru á meðal þeirra látnu. Talið er að allt að 30 manns hafi særst í árásinni. Talsmaður NATO í Kabúl sagði að sjö hermenn hefðu særst í henni. 10.7.2007 10:26