Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannræningjar Margaret Hill segja hana heila á húfi Mannræningjar Margaret Hill, stúlkunnar sem rænt var í borginni Port Harcourt í Suður- Nígeríu í morgun, hafa haft samband við föður hennar og sagt að hún sé heil á húfi. Faðir hinnar þriggja ára gömlu Margrétar starfar hjá olíufyrirtæki í borginni en stúlkunni var rænt úr bíl, af vopnuðum byssumönnum. 5.7.2007 14:07
Mikil fjölgun HIV-sýkinga í Svíþjóð Fjörtíu prósent aukning hefur orðið á HIV-sýkingum á milli ára í Svíþjóð. Fleiri en nokkru sinni frá því skráning hófst fyrir 20 árum hafa smitast á fyrstu sex mánuðum ársins 2007. 153 karlmenn og 99 konur hafa greinst með smit á þessu tímabili. 5.7.2007 12:06
Dóttur bresks verkamanns rænt í Nígeríu Þriggja ára gamalli dóttur verkamanns sem sagður er breskur var rænt af byssumönnum í Nígeríu snemma í morgun. Stúlkan var numin á brott úr bíl á leið hennar í skólann í olíuborginni Port Harcourt. 5.7.2007 10:25
Á þriðja tug létust í sprengingu í Kína 25 manns biðu bana í sprengingu í næturklúbbi í norðausturhluta Kína í gær. Auk þeirra látnu slösuðust 33 að því er kínverskir fjölmiðlar greina frá. Yfirvöld á svæðinu hafa ekkert viljað gefa uppi um mögulegar ástæður sprengingunnar né hve illa haldnir hinir slösuðu séu. Heimildarmenn Reuters á staðnum segja að verið sé að rannsaka hvort sprengingin hafi verið óhapp eða af ásetningi. 5.7.2007 10:16
Rútuslys í Mexíkó Óttast er að að minnsta kosti 40 manns séu látnir eftir að rúta varð undir skriðu í gærmorgun nærri bænum San Miguel Eloxochitlan í Mexíkó. Rútan var á leið um fjalllendi og er talið að skriðan hafi fallið í kjölfar mikillar úrkomu á svæðinu undanfarið. 5.7.2007 09:52
Neðanjarðarlest fór út af sporinu í London Neðanjarðarlest fór út af sporinu í London fyrr í morgun. Óhappið átti sér stað á milli Bethnal Green og Mile End stöðvanna. Óstaðfestar fregnir herma að hundruðir manna hafi verið í lestinni en lögregla segir að ekkert bendi til þess að um hryðjuverk geti verið að ræða. Einn er talinn hafa slasast í óhappinu. 5.7.2007 09:49
Nýtt myndband frá al Qaida Nýtt myndband með myndum af Ayman al-Zawahri, næstráðenda al Qaida, var birt í dag. Þar hvetur hann múslima til dáða í heilögu stríði. 4.7.2007 21:50
Eldar brenna á Frönsku Riveriunni Eldur braust út á Frönsku Riveriunni í dag og þurftu fjöldamargir ferðamenn að yfirgefa aðsetur sín vegna þeirra. Eldurinn braust út á bílastæði nærri Antibes og breiddist út meðfram hraðbrautinni. 4.7.2007 20:46
Varasamt að setja myndir af börnum á veraldarvefinn Lögreglan í Danmörku varar fólk við því að setja fjölskyldumyndir af fáklæddum börnum úr sumarfríum á veraldarvefinn. Søren Thomassen, yfirmaður hjá tölvuglæpadeild dönsku lögreglunnar, segir í samtali við danska blaðið Politiken að fjölmargir barnaníðingar hafi aðgang að forritum sem geti breytt myndunum með vafasömum hætti. 4.7.2007 20:14
Sex kanadískir hermenn létust Sex kanadískir liðsmenn hersveita NATO létust þegar sprengja sprakk í Afganistan í dag. Mennirnir sex og afganskur túlkur létust þegar bifreið þeirra keyrði á sprengjuna um 20 kílómetrum suðvestur af Kadnahar. Þetta er mannskæðasta árás sem kanadískar sveitir verða fyrir í Afganistan síðan í apríl síðastliðnum. 4.7.2007 19:00
Evrópusambandið slær í gegn á YouTube Eitt vinsælasta myndbandið á vefveitunni YouTube þessa dagana er myndband frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Myndbandið fjallar hins vegar ekki um landbúnaðarsáttamála þess heldur er það samantekt af kynlífsatriðum úr evrópskum bíómyndum. 4.7.2007 18:45
Rússar með reiðubúnir með eldflaugar í Kalíníngrad Rússar tilkynntu í dag að þeir myndu að flytja eldflaugasveitir sínar til Kaliningrad ef Bandaríkjamenn setja upp eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu. 4.7.2007 18:30
Sannreynt af hverjum múmía er Ráðist verður DNA próf til sannreyna hvort múmía sem fannst sé af egypska faraónum Tuthmosis fyrsta, eins og talið hefur verið. Efasemdaraddir segja nú að múmían sé af öðrum óþekktum manni. 4.7.2007 17:16
Myndbandsupptökur af gíslum birtar Uppreisnarmenn í Kólumbíu hafa birt myndbandsupptökur af sjö gíslum sem sumir hafa verið í haldi í nærri áratug. Í upptökunum biðja gíslarnir ríkisstjórn Kólumbíu um að ræða við gíslatökumennina en vara við því að hernaðaraðgerðum verði beitt við björgun. 4.7.2007 16:23
Dökkt súkkulaði gegn háum blóðþrýstingi Enn ein rannsókn sem hvetur til súkkulaðineyslu hefur litið dagsins ljós. Vísindamenn við háskólasjúkrahús í Köln halda því fram að munnfylli af dökku súkkulaði á dag lækki blóðþrýsting og dragi úr hættu á hjartaáfalli. 4.7.2007 15:24
Brown vill aukið eftirlit með nýráðningum lækna Gordon Brown lofaði í fyrsta fyrirspurnartíma sínum í þinginu í dag að leggja sitt af mörkum til að stuðla að auknu öryggi í ljósi sprengjutilræðanna sem urðu einungis tveimur dögum eftir að hann tók við embætti. 4.7.2007 14:48
Ráðgáta um hvarf jökullóns í Chile leyst Komist hefur verið að orsökum dularfulls hvarfs jökullóns í Chile í maí síðastliðnum. Niðurstaða sérfræðinga sem flugu yfir svæðið er sú að jökulveggur við lónið hafi sprungið undan sívaxandi þunga þess og þannig myndast farvegur með fyrrgreindum afleiðingum. Leið vatnsins lá svo inní nærliggjandi fjörð og þaðan til sjávar. Hið upprunalega lón er tekið að fyllast á ný. 4.7.2007 14:12
Alan Johnston þakkar vestrænum fjölmiðlum Breska fréttamanninum Alan Johnston var sleppt í morgun en hann hafði verið í haldi mannræningja á Gaza í 114 daga. Hann hélt fréttamannafund í Jerúsalem í dag og sagði það stórkostlega tilfinningu að vera frjáls á ný. 4.7.2007 13:55
Breska lögreglan finnur sjálfsmorðsbréf Breska lögreglan hefur fundið sjálfsmorðsbréf í tengslum handtöku tveggja manna sem lögðu sprengjuhlöðnum bíl við flugvöllinn í Glasgow síðastliðinn laugardag, að því er CNN fréttastofan greinir frá. 4.7.2007 13:36
Yfir fimm hundruð stúdentar hafa gefist upp Meira en fimm hundruð róttækir múslímskir stúdentar hafa gefist upp eftir átök við Rauðu moskuna (Lal Masjid) í Islamabad, höfuðborg Pakistans, sem hófust í gær. Á milli 2.000 - 5.000 stúdentar eru þó enn inni í moskunni sem umkringd er af hersveitum og lögreglu í Pakistan. 4.7.2007 12:16
Yfirvöld í Ástralíu fá 48 klukkustunda frest til að halda indverskum lækni Dómari hefur gefið yfirvöldum í Ástralíu 48 klukkustunda frest til að halda indverskum lækni, sem handtekinn var í gær, án ákæru. Læknirinn Mohammed Haneef var handtekinn í tenglsum við sprengjutilræðin á Bretlandseyjum um síðustu helgi. 4.7.2007 11:32
Atlantis komin á endapunkt Atlantis geimferjan er loksins komin heim til sín í Flórída. Hún þurfti að lenda í Kaliforníu eftir fjórtán daga leiðangur til Alþjóðageimstöðvarinnar vegna slæmra veðurskilyrða í heimabæ sínum. Á ferð sinni yfir Bandaríkin var skutlan ferjuð á baki 747 þotu. 4.7.2007 16:15
Bush útilokar ekki að Libby verði náðaður að fullu George Bush Bandaríkjaforseti útilokar ekki að hann muni náða Lewis Libby algerlega. Ákvörðun forsetans um að aflétta fangelsisdómi yfir Libby hefur vakið mikil viðbrögð meðal demókrata. 3.7.2007 21:46
Giuliani vel settur fjárhagslega Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, hefur aflað mest fjár allra frambjóðenda í forkosningum repúblikana fyrir bandarísku forsetakosningarnar á næsta ári. Giuliani hefur safnað 17 milljónum dala sem samsvarar ríflega einum milljarði íslenskra króna síðastliðna þrjá mánuði, að sögn talsmanna framboðs hans. 3.7.2007 21:03
Dautt kameldýr í Svíþjóð Lögreglan í Svíþjóð klórar sér í hausnum og spyr hvaða erindi kameldýr hafI átt til Svíþjóðar. Hræ af kameldýri fannst við vegkantinn á hraðbraut nærri Karlskrona í suðausturhluta Svíþjóðar í gær. 3.7.2007 19:31
Átök í Íslamabad Minnst 9 hafa týnt lífi og rúmlega 80 særst í átökum lögreglu við herská námsmenn nærri Rauðu moskunni í Íslamabad, höfuðborg Pakistans, í dag. Samið var um vopnahlé eftir að stríðandi fylkingar höfðu skipst á skotum í margar klukkustundir. 3.7.2007 19:29
Hrökklaðist úr embætti Varnarmálaráðherra Japans hrökklaðist úr embætti í dag vegna umdeildra ummæla. Hann móðgaði marga landa sína með því að gefa í skyn að kjarnorkuárásir Bandaríkjamanna á Hiroshima og Nagasaki 1945 hafi verið réttlætanlegar. Ummæli ráðherrans gátu vart fallið á verri tíma fyrir Japansstjórn, skömmu fyrir kosningar. 3.7.2007 19:27
Læknar grunaðir Ættingjar og samverkamenn læknis frá Jórdaníu eiga bágt með að trúa að hann hafi skipulagt hryðjuverkaárásina á Glasgow-flugvelli um síðustu helgi eða komið fyrir bílsprengjum í miðborg Lundúna. Athygli vekur að sjö þeirra sem nú eru í haldi lögreglu vegna málsins eru læknar eða læknanemar sem hafa starfað á Bretlandseyjum. 3.7.2007 19:24
Stjórnvöld í Brasilíu heita því að bæta aðstæður í fátækrahverfum Stjórnvöld í Brasilíu hafa heitið því að verja um 90 milljörðum íslenskra króna til að bæta ástandið í fátækrahverfum í Rio de Janeiro og ná tökum á skipulagðri glæpastarfsemi þar. Um milljón manns búa í fátækrahverfunum. 3.7.2007 16:24
Brown vill flytja meira vald til þingsins Gordon Brown lagði, í fyrstu ræðu sinni sem forsætisráðherra í Breska þinginu í dag, til að þingið fengi aukið vald í viðamiklum málum. Brown lofaði því að þingið fengi að hafa síðasta orðið í mögulegum ákvörðunum um stríð og einnig meira vægi í alþjóðlegum samningum. 3.7.2007 15:27
Tveir menn handteknir í Blackburn Lögregla í Norðvestur Englandi hefur handtekið tvo menn í Blackburn í tengslum við rannsókn á sprengjutilræðunum á Bretlandseyjum um síðustu helgi. Sjö til viðbótar eru í haldi lögreglu á Englandi og í Skotlandi vegna málsins, fimm þeirra eru læknar. 3.7.2007 14:18
Sveðjur ódýrari vegna minnkandi ofbeldis Verð á sveðjum á sumum svæðum í Nígeríu hefur hríðlækkað í kjölfar kosninga í apríl, vegna minnkandi eftirspurnar frá vígamönnum á vegum stjórnmálamanna. 3.7.2007 13:28
Níu látnir í átökum við Rauðu moskuna í Pakistan Að minnst kosti níu manns, stúdentar hermenn, blaðamaður og borgarar hafa látist í átökum sem staðið hafa í allan dag við Rauðu moskuna í Islamabad í Pakistan. Um 150 manns særðust, en lögregla hefur meðal annars beitt táragasi á hóp róttækra íslamskra stúdenta og klerka Rauðu moskunnar. 3.7.2007 13:18
Ákvörðun Bandaríkjaforseta umdeild Bush Bandaríkjaforseti náðaði í gær að hluta Lewis "Scooter" Libby, fyrrverandi aðstoðamann Cheneys, varaforseta. Demókratar á Bandaríkjaþingi hafa fordæmt ákvörðun forsetans og segja hann misnota vald sitt. 3.7.2007 12:45
Tveir læknar í Ástralíu handteknir Tveir læknar voru í nótt og í morgun hnepptir í varðhald í Ástralíu í tengslum við rannsókn á sprengjutilræðunum á Bretlandseyjum um helgina. Sjö til viðbótar eru í haldi í Bretlandi - fimm þeirra eru sagðir læknar. 3.7.2007 12:30
Húsið í Lystrup sprengt Sprengjusérfræðingur í Danmörku segir að hús í Lystrup hafi verið sprengt í loft upp í fyrrinótt en það hafi viðvaningur gert. Engan sakaði þegar einbýlishúsið sprakk. Kraftur sprengingarinnar var svo mikill að helmingur af þaki hússins féll saman og veggir eyðilögðust. Nærliggjandi hús skemmdust ekki. 3.7.2007 12:15
Málsókn á hendur Google Breski viðskiptajöfurinn Brian Retkin hefur farið í mál við upplýsingaveituna Google. Hann heldur því fram að leitarvélin beini fólki á verulega niðurlægjandi og eyðileggjandi efni um netfyrirtæki hans Dotworlds, meðal annars eru þar fullyrðingar um að Retkin sé svikull. 3.7.2007 11:50
Gæti eignast hálfsystkini sín Kanadísk kona hefur fryst egg úr sjálfri sér svo að dóttir hennar, sem er með sérstakan erfðagalla og er ófær um að eignast börn, geti notað þau og eignast börn síðar á lífsleiðinni. Ef stelpan ákveður að nota eggin mun hún í raun eignast hálfbróður sinn eða systur. 3.7.2007 11:50
Talið að al-Kaída beri ábyrgð á árásinni í Yemen Talið er að al-Kaída samtökin beri ábyrgð á sjálfsmorðssprengjuárásinni sem framin var við hið forna Queen og Sheba musteri í héraðinu Marib í Yemen í gær. Níu létust í árásinni þar af sjö spænskir ferðamenn. Auk þess særðust sex til viðbótar. 3.7.2007 09:31
F-14 þotur tættar í sundur Á Davis-Monthan flugstöðinni í Tucson, Arizona, er flugvélakirkjugarður. Þar eru F-14 þotur tættar í sundur. Tilgangurinn er að halda flugvélunum, sem einnig eru kallaðar Tomcats, frá Írönum og öðrum ríkjum sem ógna öryggi Bandaríkjamanna. 2.7.2007 23:20
Áttundi maðurinn handtekinn Lögreglan í Bretlandi hefur handtekið áttunda manninn í tengslum við sprengjufyrirætlanir í Glasgow og London. Maðurinn var handtekinn utan Bretlands en ekki hefur fengið gefist upp í hvaða landi. 2.7.2007 20:37
Illa farið með kameldýr Lögreglan í Svíþjóð rannsakar nú hvaða erindi kameldýr átti á hraðbraut þar í landi í dag. Tilkynning barst um að hræ af dýrinu hefði fundist við hraðbraut E22 nálægt Karlskrona í suðaustur Svíþjóð. 2.7.2007 20:16
Veiðar á undan viðræðum Það fór vel á með Bush Bandaríkjaforseta og Pútín forseta Rússlands þar sem þeir skelltu sér í veiðiferð nærri sumardvalarstað Bush-fjölskyldunnar í Main-ríki í Bandaríkjunum í dag. Leiðtogarnir voru þar umkringdir lífvörðum en létu það ekki aftra sér í að reyna að landa þeim stóra. 2.7.2007 19:20
Læknar meðal grunaðra Læknir menntaður í Írak og annar frá Jórdaníu eru meðal sjömenninganna sem breska lögreglan hefur í haldi vegna hryðjuverkaárásar í Skotlandi á laugardaginn og bílsprengna sem gerðar voru óvirkar í Lundúnum á föstudaginn. Faðir jórandska læknisins, sem hefur unnið á tveimur sjúkrahúsum á Englandi, segist viss um að sonur sinn tengist ekki hryðjuverkum. 2.7.2007 19:10
Lystrupsprengjan gerð af viðvaningum Helstu sprengjusérfræðingar Danmörku segja að sprengingin í Lystrup hafi verið gerð af viðvaningum. Jørgen Schneiders, danskur sprengjusérfræðingur, telur að sprengjan hafi verið gerð úr krýsantema, sem er jurtategund. Hann telur ótrúlegt að bensín hafi verið í sprengjunni. 2.7.2007 18:12