Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimm landa heimsókninni senn lokið George Bush forseti Bandaríkjanna og Hugo Chavez forseti Venesúela ferðast þessa dagana um Suður-Ameríku til að styrkja tengslin við bandamenn sína. Vart þarf að taka fram að þeir ferðast hvor í sínu lagi enda svarnir óvinir. 10.3.2007 19:30
Fulltrúar Írans og BNA ræddust við Forsætisráðherra Íraks biðlaði, á ráðstefnu í Bagdad í dag, til nágrannaríkja sinna um aðstoð við að binda enda á vargöldina sem ríkir í landinu. Fulltrúar Bandaríkjanna og Írans ræddust þar við með beinum hætti en stjórnmálasamband á milli ríkjanna hefur legið niðri í 28 ár. 10.3.2007 18:50
Friðsöm mótmæli í dag Þúsundir manna gengu fylktu liði um götur Kaupmannahafnar í dag til að mótmæla niðurrifi Ungdómshússins á Norðurbrú í vikunni. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa krafist rannsóknar á framgöngu lögreglunnar í garð mótmælenda um síðustu helgi. 10.3.2007 18:30
Sluppu með skrekkinn Þrír íslenskir námsmenn, búsettir í bænum Naples í Flórídaríki í Bandaríkjunum sluppu með skrekkinn í nótt. Þeir voru á leið heim af skemmtistað þegar á þá var ráðist með hafnaboltakylfu. Þeim tókst að komast undan ræningjanum og brátt var svæðið umkringt 18 lögreglubílum. 10.3.2007 18:15
Írakar vongóðir eftir fyrsta fund Utanríkisráðherra Íraks, Hoshyar Zebari, var vongóður eftir fyrsta alþjóðlega fundinn um framtíð Íraks og hvernig sé hægt að koma ró á í landinu. „Fundurinn var jákvæður og uppbyggjandi,“ sagði Zebari. „Niðurstöður fundarmanna voru góðar.“ 10.3.2007 18:00
Sagaði húsið í tvennt Þjóðverji einn ákvað að binda endi á skilnaðardeilu við konu sína með því að saga timburhús þeirra í tvennt með keðjusög og fara með sinn hluta í burtu með gaffallyftara. 10.3.2007 16:45
Tveimur þjóðverjum rænt í Írak Tveimur þýskum ríkisborgunum hefur verið rænt í Írak. Áður óþekktur uppreisnarhópur setti í dag myndband af þeim á netið og gaf þýskum stjórnvöldum tíu daga til þess að draga hermenn sína frá Afganistan. Annars myndu þeir aflífa fólkið. Hópurinn kallar sig „Örvar Réttlætisins.“ Þýsk stjórnvöld ætla sér að gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að frelsa fólkið. 10.3.2007 16:30
Tvö þúsund manna mótmæli í Kaupmannahöfn Tvö þúsund manns ganga nú fylktu liði frá Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn að Norðurbrú og krefjast þess að nýtt Ungdómshús verði reist á þeim slóðum í stað hússins umdeilda sem stóð við Jagtvejen og var rifið í vikunni. Mótmælin eru friðsamleg en lögregla hefur uppi mikinn viðbúnað. 10.3.2007 16:15
Bush kominn til Úrugvæ George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hélt í dag ferðalagi sínu um Suður-Ameríku áfram. Í dag fundaði hann með forseta Úrugvæ en þeir vilja ólmir skrifa undir fríverslunarsamninga við Bandaríkin, jafnvel þó svo þeir þyrftu að yfirgefa fríverslunarbandalag ríkja í Suður-Ameríku 10.3.2007 15:00
Söngvari Boston látinn Söngvari hljómsveitarinnar Boston fannst látinn á heimili sínu í gær. Brad Delp, sem var 55 ára, var söngvari sveitarinn þegar hún gerði lögin „More Than a Feeling“ og „Long Time“ vinsæl. 10.3.2007 14:30
Osama fimmtugur í dag Osama Bin Laden er fimmtugur í dag. Það er að segja ef hann er enn á lífi. Þrátt fyrir að meira hafi verið leitað að honum en nokkrum öðrum manni getur hann enn frjálst um höfuð strokið. Bandaríkjamenn telja að hann sé einhvers staðar á landamærum Pakistan og Afganistan. 10.3.2007 14:15
Í ökuferð um verslanamiðstöð Bílstjóri í bænum Augusta í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum á yfir höfði sér refsingu eftir að hafa farið í ökuferð um óvenjulegar slóðir. Hann ók bifreið sinni í gegnum glerdyr á verslanamiðstöð borgarinnar og keyrði svo í hægðum sínum framhjá upplýstum búðargluggunum. 10.3.2007 14:00
18 létu lífið og 48 slösuðust Sjálfsmorðssprengjuárás var gerð í Sadr-hverfi Bagdad í dag og létu að minnsta kosti 18 manns lífið. Árásin átti sér stað á sama tíma og fulltrúar fjölmargra ríkja funduðu til þess að reyna að binda endi á skálmöldina í landinu. Árásin átti sér stað í hverfi sjía múslima. Talið er að allt að 48 manns hafi slasast í árásinni. Aðeins nokkrum klukkutímum áður hafði bandaríski herinn gert áhlaup á búðir uppreisnarmanna í hverfinu og handtekið sex þeirra. 10.3.2007 13:30
Biðlar til nágrannanna Á fjölþjóðlegri ráðstefnu um vargöldina í Írak sem hófst í Bagdad í morgun biðlaði Nuri al-Maliki, forsætisráðherra landsins, til nágrannaríkjanna um að aðstoða í baráttunni við hryðjuverkamenn. Hópur íraskra uppreisnarmanna hótar að drepa þýsk mæðgin sem hann hefur í haldi sínu yfirgefi þýskar hersveitir ekki Afganistan innan tíu daga. 10.3.2007 13:15
Endatafl í Kosovo-viðræðum hafið Lokakaflinn í viðræðum um framtíð Kosovo-héraðs hófst í Vínarborg í Austurríki í morgun. Leiðtogar Serba og Kosovo-Albana sækja fundinn en mikill ágreiningur ríkir á milli þeirra um framtíðarskipan héraðsins. 10.3.2007 12:43
Rússar rannsaka PwC Rússneskir rannsóknarmenn réðust í gær inn á skrifstofur PriceWaterhouseCoopers (PwC) í Moskvu. Þeir segjast hafa verið að leita að gögnum sem að styðja við rannsóknina í máli gegn þeim en PwC er sakað um að hafa skrifað upp á falsaða reikninga og uppgjör fyrir Yukos, fyrrum rússneskan olíurisa, sem nú er gjalþrota. 10.3.2007 11:45
Græna línan rifin Kýpur-Grikkir byrjuðu seint í gær að rífa niður múrinn sem klýfur höfuðborgina Nikosíu í tvennt, einu höfuðborg Evrópu sem enn er klofin með landamærum. 9.3.2007 20:25
Eftirlaunaaldur hækkaður í Þýskalandi Eftirlaunaaldur verður hækkaður í Þýskalandi. Þetta var samþykkt á þinginu þar í landi í dag með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Nú er eftirlaunaaldurinn 65 ár en verður hækkaður upp í 67 ár. Þetta er gert vegna þess að fæðingatíðni er með því lægsta sem gerist í Evrópu í Þýskalandi og fer því fólki á vinnumarkaði fækkandi. 9.3.2007 20:00
Amnesty krefst rannsóknar á aðferðum lögreglu Amnesty International hefur farið fram á það við danska dómsmálaráðuneytið að rannsakað verði hvort lögregla hafi beitt óhóflegu harðræði í óeirðunum á Norðurbrú um síðustu helgi. Í bréfi frá Amnesty til dómsmálaráðuneytsins segir að samtökunum hafi borist kvartanir vegna fjöldahandtaka, fangelsun unglinga undir aldri með fullorðnum og ofbeldi gegn föngum en segjast ekki hafa gögn sem styðja við ásakanirnar. Hinsvegar segist Amnesty óttast að pottur sé brotinn þar sem margar kvartanir hafi borist, annars hefði ekki verið beðið um rannsókn. 9.3.2007 18:50
Paisley sigraði Sambandsflokkur Ian Paisleys er sigurvegari kosninganna á Norður-Írlandi. Flokkurinn hlaut 36 af 108 þingsætum en Sinn Fein fékk 28. Næstur var Sameiningarflokkur Ulsters með 18 sæti. 9.3.2007 18:45
Sögulegur samningur Fimmtungur orkunotkunar aðildarríkja Evrópusambandsins verður frá endurnýjanlegum orkugjöfum árið 2020. Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins samþykktu þetta í morgun. Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, segir samninginn marka tímamót. 9.3.2007 18:30
Borgaryfirvöld buðu ungmennum annað hús Það lá fyrir tilboð um að selja notendum Ungdomshuset á Norðurbrú annað húsnæði á Stevnsgade sem er nærri Jagtvej 69 þar sem Ungdomshuset stóð en því tilboði var ekki tekið. Þetta segir Ritt Bjerregaard borgarstjóri Kaupmannahafnar. 9.3.2007 17:43
Vinna að þróun umhverfisvænna orkugjafa Bandaríkin og Brasilía skrifuðu í dag undir samning um þróun umhverfisvænna orkugjafa. George Bush Bandaríkjaforseti sagði að ef tækist að draga úr því hversu háð ríkin eru olíu mundi það hjálpa efnahag, öryggi og umhverfi landanna. Það voru Bush og Inacio Lula da Silva forseti Brasilíu sem skrifuðu undir samninginn. Silva sagði samninginn tímamót fyrir bílaiðnaðinn, orkuframleiðslugeirann og mannkyn allt. 9.3.2007 17:14
Hélt sjálfur framhjá meðan hann barði á Clinton Newt Gingrich, fyrrverandi forseti neðri deildara bandaríkjaþings, hefur viðurkennt að hafa sjálfur haldið framhjá eiginkonu sinni, meðan hann stýrði sókninni gegn Bill Clinton, fyrir samband hans við Moniku Lewinsky. Hugsanlegt er að Gingrich verði frambjóðandi repúblikana í komandi forsetakosningum. 9.3.2007 16:51
Viðbúnaður í Kaupmannnahöfn vegna frétta af ókeypis kaffi Lögreglumenn hafa tekið sé stöðu fyrir framan verslunarhúsin Illum og Magasin du Nord í Kaupmannahöfn eftir skeytasendingar á milli Kaupmannahafnarbúa um að þar væri hægt að fá ókeypis kaffi latte eða mjólkurkaffi. 9.3.2007 15:53
Alþjóðlegur jarðfræðigagnagrunnur í smíðum Jarðfræðingar um víða veröld vinna nú að því að búa til heildstæðan gagnagrunn um berg um allan heim. Þetta er í fyrsta skipti sem upplýsingarnar eru settar í samhengi með þessum hætti. Verkefnið sem ber nafnið OneGeology mun svo birta gagnagrunninn á vefnum þannig að heimsbyggðin geti öll nýtt sér upplýsingarnar. 9.3.2007 15:27
Einn á klóið Allir fangar vilja losna úr haldi, ekki síst ef þeir sitja í fangelsi í landi eins og El Salvador. Og menn vilja líka komast í betra samband við umheiminn. Þegar fangaverðir í Gotera fangelsinu, sem er skammt fyrir utan San Salvador, höfuðborg El Salvador, ákváðu að gera öryggisleit bæði í húsinu og á föngunum, komust þeir að því að sextán fangar höfðu gleypt farsíma. Og einn sem líklega ætlaði að flýja var með litla handsprengju innvortis. 9.3.2007 14:29
Réttað í Guantanamo-búðunum Meintur skipuleggjandi og sá sem er talinn heilinn á bak við hriðjuverkaárásirnar á tvíburaturnana í New York verður yfirheyrður í réttarhöldum í Guantanamo-búðunum á Kúbu. 9.3.2007 14:25
Ekki ég, ég er dauð Glenda Askew var gripin slíkri skelfingu þegar hún var kvödd fyrir dómara vegna hraðaksturs, að hún ákvað að kveðja þetta líf. Breska Sky fréttastofan segir frá því að Glenda hafi sent lögreglunni bréf í nafni dóttur sinnar þar sem sagði; "Móðir mín getur ekki mætt, þar sem hún er látin. Ég er að fara í gegnum persónulega muni hennar og svara bréfum." 9.3.2007 13:45
Makar þeirra sem hrjóta tapa tveimur árum Þeir sem eiga maka sem hrjóta missa tvö ár af svefni þegar litið er til meðal líftíma sambanda. Í nýlegri breskri rannsókn kemur fram að meira en þriðji hver Breti er sviptur góðum nætursvefni af hrotum maka. Að meðaltali missa makarnir tveggja klukkustunda svefn á hverri nóttu. Þegar tölfræðin tekur svo mið af meðal líftíma sambanda, sem er 24 ár, safnast tímarnir saman og verða að tveimur árum. 9.3.2007 13:44
Tímamótasamningur Evrópusambandsins Tímamótasamningur um loftslagsmál var samþykktur núna rétt fyrir hádegið af 27 leiðtogum ríkja Evrópusambandsins sem sitja loftslagsráðstefnu í Brussel. 9.3.2007 12:08
Óbeinar auglýsingar takmarkaðar Framkvæmdaráð Evrópusambandsins hefur lagt fram tillögu að takmörkun á óbeinum auglýsingum í sjónvarpi. Nýju reglurnar myndu banna óbeinar auglýsingar í öllu barnaefni, fréttum, dægurmálaþáttum og heimildarmyndum í sjónvarpi. 9.3.2007 11:30
Ísraelsher notaði mannlega skildi Ísraelskur mannréttindahópur hefur sakað ísraelska herinn um að nota tvo unga palestínumenn sem mannlega skildi þegar þeir réðust inn á Vesturbakkann til þess að hafa hendur í hári öfgamanna. Hópurinn segist hafa vitnisburð frá þremur ungum drengjum. 8.3.2007 23:00
Konur krefjast jafnréttis á alþjóðlegum baráttudegi kvenna Fólk um allan heim hefur í dag fagnað baráttudegi kvenna og heitið því að bæta stöðu þeirra til muna. Angela Merkel, þýski kanslarinn og fyrsta konan í meira en 20 ár til þess að stýra leiðtogafundi Evrópusambandsins, krafðist í dag jafnréttis kynjanna. 8.3.2007 22:30
Kína færist nær markaðshagkerfi Kínverska þingið samþykkti í dag ný lög sem munu styrkja einkaeignarétt. Þetta er fyrsta lagasetningin í hinu kommúníska Kína sem að verndar rétt einstaklings til þess að eiga eignir. Stjórnmálaskýrendur segja að þetta sé stórt skref frá fyrri tegund stjórnkerfis þeirra í áttina að markaðshagkerfi. Lögin munu einnig vernda landeigendur fyrir því að stjórnvöld taki lönd þeirra með landnámi. 8.3.2007 22:15
Flúði Íran og starfar með Bandaríkjunum Fyrrum aðstoðarvarnarmálaráðherra Írans, sem eitt sinn var yfir Byltingarhernum í Íran, hefur farið frá Íran og vinnur nú með vestrænum stjórnvöldum. Hann er að gefa þeim upplýsingar um starfsemi Hisbollah og tengsl Írans við samtökin samkvæmt því sem háttsettur bandarískur embættismaður skýrði frá í dag. 8.3.2007 22:00
Markmið um endurnýjanlega orku verða bindandi Leiðtogar Evrópusambandsins hafa sæst á að gera markmið um endurnýjanlegar orkulindir bindandi. Þetta kom fram í tilkynningu frá sæsnka forsætisráðherranum, Fredrik Reinfeldt, í kvöld. Hann sagði að þrátt fyrir það yrðu nú umræður um hvað það þýddi fyrir hvert og eitt aðildarríki sambandsins. 8.3.2007 21:15
Vilja hermennina heim fyrir árið 2008 Leiðtogar demókrata í fulltrúadeild bandaríska þingsins hafa lagt til að allar bandarískar bardagasveitir verði kallaðar frá Írak fyrir árið 2008. Þeir segja að Íraksáætlanir George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, hafi mistekist og að Bandaríkin verði að einbeita sér að því að ljúka verkefnum sínum í Afganistan. 8.3.2007 21:00
Gríðarleg öryggisgæsla vegna komu Bush Þúsundir lögreglumanna og hermanna hafa verið kallaðir út í borginni Sao Paulo í Brasilíu vegna heimsóknar George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. Loftvarnarbyssur hafa verið settar upp í og við göturnar þar nálægt hótelinu sem Bush verður á. Bush mun einnig heimsækja Uruguay, Kólumbíu, Gvatemala og Mexíkó í vikulangri ferð sinni um Suður-Ameríku. 8.3.2007 20:45
Yfirmaður kjarnorkumála í Kongó handtekinn Yfirmaður kjarnorkumála í Kongó hefur verið handtekinn vegna gruns um að hann hafi smyglað úrani úr landi. Stjórnandi stofnunarinnar, Fortunat Lumu, og aðstoðarmaður hans voru handteknir á þriðjudaginn var og hafa verið í yfirheyrslum hjá lögreglu síðan. 8.3.2007 20:26
Hyggjast skera útblástur niður um fimmtung Leiðtogar Evrópusambandsins munu að líkindum samþykkja á leiðtogafundi sínum að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um að minnsta kosti fimmtung fyrir árið 2020. Forseti framkvæmdastjórnar sambandsins segir trúverðugleika þess í húfi. 8.3.2007 18:00
Skjaldborg um Tower of London Bretar ætla að setja verndarsvæði umhverfis nokkur helstu minnisvarða sína, eins og Tower of London og Stonehenge, til þess að ekki verði byggð mannvirki sem skyggi á menningarfjársjóðina. Þetta var ákveðið eftir að eftirlitsmenn Heimsminjaskrár Sameinuðu þjóðanna hótuðu að lýsa Tower of London í hættu staddan vegna skýjakljúfa sem á að reisa þar í grendinni. 8.3.2007 16:47
Kínverskt flugmóðurskip Kínverjar segjast geta hleypt sínu fyrsta flugmóðurskipi af stokkunum árið 2010, sem veldur Bandaríkjamönnum miklum áhyggjum. Þeir óttast að Kínverjar hyggist keppa við þá um yfirráð á Kyrrahafi, og þá ekki síst í grennd við Tævan, sem Kínverjar segjast munu endurheimta með góðu eða illu. 8.3.2007 16:22
Chirac kveður á sunnudaginn Búist er við að Jacques Chirac, forseti Frakklands, tilkynni á sunnudaginn að hann muni ekki bjóða sig fram í komandi forsetakosningum. Tilkynnt hefur verið að forsetinn muni flytja ávarp í sjónvarpi klukkan 7 á sunnudagskvöld. 8.3.2007 15:08
Palestínsk þjóðstjórn kynnt í næstu viku Palestínsk þjóðstjórn er 99 prósent tilbúin, að sögn Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna. Abbas átti í dag fund með Ismail Haniyeh forsætisráðherra Hamas í núverandi heimastjórn. Ráðherralisti verður kynntur í næstu viku, en líklega ekki fyrr en eftir fund sem Abbas mun þá eiga með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. 8.3.2007 14:45