Fleiri
Fjöldamorð á pílagrímum 6.3.2007 15:26 Elgur stangaði þyrlu til jarðar Þegar líffræðingurinn Dough Larsen skaut deyfingarpílu í stóran elgtarf í Juneau í Alaska, um helgina, átti hann von á því að dýrið hnigi niður. Larsen skaut tarfinn úr þyrlu, sem sveimaði rétt yfir jörðu og beið þess að hann félli. Þess í stað trylltist tarfurinn, réðst á þyrluna og stangaði hana. 6.3.2007 15:16 Segja Putin reka morðsveitir Vestrænir fjölmiðlar velta fyrir sér hvort einhver tengsl séu á milli þess að vinur rússneska njósnarans Alexanders Litvinenko var særður í skotárás og að rússneskur blaðamaður lést eftir að hafa dottið út um glugga á fjórðu hæð í íbúðarblokk í Moskvu. Íbúð blaðamannsins var á annarri hæð í húsinu. 6.3.2007 14:37 Jóakim sá brúðkaupið í sjónvarpi Jóakim Danaprins viðurkenndi fyrir fréttamönnum að hann hefði séð brúðkaup Alexöndru, fyrrverandi eiginkonu sinnar, í sjónvarpi. Prinsinn var staddur í Álaborg þar sem hann var að veita ungum vísindamönnum verðlaun fyrir uppgötvanir. Blaðamenn vildu hins vegar ekkert um verðlaunin vita en spurðu prinsinn látlaust um brúðkaupið. 6.3.2007 14:14 Áttundi hver Íraki á flótta Áttundi hver Íraki er orðinn flóttamaður að sögn yfirmanns Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Hann segir að 40-50 þúsund manns flosni upp af heimilum sínum í hverjum mánuði. Antonio Guterres upplýsti þetta á fundi Arababandalagsins í Kaíró. 6.3.2007 13:54 Forsætisráðherra brýtur umferðarreglur Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur daglega brotið umferðarreglur undanfarna mánuði með því að aka alltof hratt. Berlingske Tidende upplýsti þetta í dag. Það verður að segja ráðherranum til afsökunar að hann vissi ekki að hann væri að brjóta lög. 6.3.2007 13:51 Ykkar öskutunnur 6.3.2007 13:15 Sjá næstu 50 fréttir
Bush gagnrýnir Chavez George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í viðtali sem birtist í dag að efnahagsstefna Hugo Chavez, forseta Venesúela, myndi leiða til enn meiri fátæktar í landinu. Viðtalið er birt rétt áður en Bush leggst í ferðalag um Suður-Ameríku sem á að vara við hentistefnu af því tagi sem Bush segir Chavez stunda. 7.3.2007 22:45
Gates vill slaka á innflytjendalögum Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, varaði við því í dag að höft sem sett eru á að hæfir erlendir starfsmenn megi starfa í Bandaríkjunum skerði samkeppnishæfi landsins. Ummæli Gates eru nýjasta árásin á innflytjendalög í tæknigeiranum í Bandaríkjunum en hann vantar sárlega starfsfólk. 7.3.2007 22:30
Samkynhneigðir vilja í bandaríska herinn Tólf fyrrum hermenn í bandaríska hernum, sem eru samkynhneigðir, fóru í dag í mál við ríkisstjórn Bandaríkjanna til þess að fá aftur inngöngu í herinn. Þeim hafði verið vísað úr hernum fyrir að vera samkynhneigð. Í dag er stefna hersins gagnvart samkynhneigðum sú að herinn má ekki spyrja við inngöngu hvort að viðkomandi sé samkynhneigður. Ef það kemst hins vegar upp er hernum heimilt að vísa viðkomandi úr hernum. 7.3.2007 22:00
Búa til reglur um umgengni við vélmenni Ríkisstjórn Suður-Kóreu hefur sett saman nefnd sem á að setja vinnureglur fyrir þá sem búa til vélmenni. Reglurnar eiga að skilgreina hvernig mannfólkið á að umgangast vélmenni og hvernig þau eiga að umgangast mannfólkið. Skýrslan verður tilbúin síðar á þessu ári. 7.3.2007 21:45
Nowak rekin frá NASA Lisa Nowak, geimfarinn sem reyndi að ræna keppinaut sínum um ástir annars geimfara, hefur verið rekin frá Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA). Brottreksturinn kemur í kjölfar þess að lögregla kærði hana fyrir tilraun til mannráns. 7.3.2007 21:30
Tyrkir loka á YouTube Tyrkir hafa lokað fyrir aðgang að hinni vinsælu vefsíðu YouTube. Ástæðan fyrir þessu er að einhver setti myndskeið á síðuna þar sem gert var grín að stofnanda nútíma Tyrklands, Mustafa Kemal Ataturk, en í Tyrklandi er ólöglegt að gera grín að honum. 7.3.2007 21:00
Deila Rússa og Írana enn óleyst Deilan á milli Rússa og Írana varðandi afborganir af kjarnorkuverinu sem Rússar ætla að byggja í Íran er enn óleyst. Þjóðirnar áttu sáttafund í dag en eftir sex tíma setu var fundinum slitið. Viðræðurnar halda áfram á morgun. Bandaríkin hafa reynt að setja pressu á Rússa til þess að koma í veg fyrir að þeir byggi kjarnorkuverið en þeir halda því fram að Íranar ætli sér að auðga úran í því og nota til vopnaframleiðslu. 7.3.2007 20:36
Abdullah skorar á Bandaríkin Konungurinn í Jórdaníu, Abdullah, hefur skorað á Bandaríkin til þess að beita sér fyrir friði í Mið-Austurlöndum. Þetta sagði hann á sameiginlegum þingfundi öldungadeildarinnar og fulltrúadeildarinnar. Hann sagði einnig að deilan á milli Ísraela og Palestínumanna væri mikilvægari en ástandið í Írak. 7.3.2007 20:13
Loftsteinn á stofugólfinu búum húss, í Bloomingdale í Illinois í Bandaríkjunum, varð allhverft við í fyrrakvöld þegar heljarinnar brothljóð kvað við úr stofunni . Undrun þeirra varð ekki minni þegar í ljós kom að á stofugólfinu lá loftsteinn sem þeyst hafði úr himingeimnum inn í gufuhvolf jarðar og svo beina leið í gegnum rúðuna hjá þeim. 7.3.2007 19:30
Gáfu smákrökkum marijúana Tveir unglingspiltar, frá Texas í Bandaríkjunum, hafa verið hnepptir í varðhald eftir að myndband sýndi þá láta tvo drengi, tveggja og fimm ára gamla, reykja marijúana. 7.3.2007 19:15
Norður-Írar ganga að kjörborðinu Þingkosningar standa nú yfir á Norður-Írlandi og hefur kjörsókn verið jöfn og þétt í allan dag. Fimm ár eru liðin frá því norðurírska þingið kom síðast saman. 7.3.2007 18:45
26 láta lífið í sprengjuárás í Írak Sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp á kaffihúsi í bæ norðaustur af Bagdad í dag. Samkvæmt lögreglu á staðnum létu að minnsta kosti 26 manns lífið. Sprengingin átti sér stað í bænum Balad Ruz en þar búa bæði sjía og súnní múslimar. Talið er að allt að 35 manns hafi særst í árásinni. 7.3.2007 18:30
Evrópusambandið og Rússland ræða kjöt Sérfræðingar Evrópusambandsins í matvælamálum ferðast til Rússlands í næstu viku til þess að eiga viðræður við Rússa til þess að koma í veg fyrir hugsanlegt bann á innflutning á kjöti frá Evrópusambandinu. Rússneska matvælastofnunin sendi Evrópuráðinu beiðni um að það gerði hreint fyrir sínum dyrum varðandi leifar af bönnuðum og hættulegum efnum í dýrakjöti og fæði frá Evrópusambandinu. 7.3.2007 18:15
Leeson farinn að fjárfesta á ný Fjárglæframaðurinn Nick Leeson, sem setti breska Barings bankann á hausinn fyrir nokkrum árum, er byrjaður að fjárfesta á ný. Í þetta sinn notar hann þó bara eigin peninga. 7.3.2007 17:29
Loksins fá Indíánarnir að vinna Navajo Indíánar hafa reynst svo vel við að hafa upp á eiturlyfjasmyglurum sem reyna að komast til Bandaríkjanna frá Mexíkó, að ákveðið hefur verið að stofna fleiri slíkar sveitir. Indíánar voru fyrr á öldum frægir sporrekjendur og þa 7.3.2007 16:38
Kínverjar hjálpa netfíklum Kínversk yfirvöld hafa gripið til aðgerða til þess að venja fólk af því að hanga tímunum saman á netinu. Danska Extra blaðið segir að meðferðin felist meðal annars í að gefa fólkinu raflost, dáleiða það og dæla í það róandi lyfjum. 7.3.2007 15:46
Alexandra er ófrísk -Se og Hör Alexandra greifynja, fyrrverandi eiginkona Jóakims prins, af Danmörku, á von á barni að sögn danska blaðsins Se og Hör. Vikublaðið segist hafa heimildir fyrir þessu frá meðlimum konungsfjölskyldunnar sem búa í Austurríki. Blaðið bendir einnig á að barmur Alexöndru hafi verið óvenju hvelfdur í brúðkaupi hennar um síðustu helgi. 7.3.2007 15:21
Gyðingum sagt að flýja Egyptaland og Jórdaníu Ríkisstjórn Ísraels hefur hvatt alla Gyðinga sem eru í Egyptalandi og Jórdaníu til þess að forða sér þaðan þegar í stað. Þetta eru einu arabaríkin sem Ísrael hefur stjórnmálasamband við. Aðvörunin kom frá öryggismálaskrifstofu Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, en ekki var gefin á henni nein skýring. 7.3.2007 14:41
Alparjúpur eru allt of stressaðar Villtu dýralífi í Ölpunum stafar hætta af vetraríþróttum sem þar eru stundaðar í stórum stíl. Vísindamenn hafa komist að þeirri niðustöðu að svartar rjúpur sem eiga heimkynni sín í Ölpunum hafi mælst með óvenju hátt hlutfall streituhormóns í blóði sínu. Þá hefur breytt loftslag einnig áhrif á rjúpurnar. 7.3.2007 14:00
Demókratar fagna dómnum Þingmenn demókrata fagna dómnum yfir Lewis Libby, fyrrverandi starfsmannastjóra Dicks Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, sem kveðinn var upp í gær. George Bush forseti hefur samúð með Libby og fjölskyldu hans. 7.3.2007 13:45
Enginn treystir feðrunum Þótt hinir mjúku feður dagsins í dag séu farnir að taka meiri þátt í heimilisstörfunum, virðist sem enginn treysti þeim til þess að stjórna heimili. Ekki þeir sjálfir og hvað þá eiginkonurnar. Þannig er þetta allavega í Danmörku, samkvæmt nýrri könnun sem metroXpress lét gera. 7.3.2007 13:30
Handtóku átján manns í Ramallah Ísraelskar hersveitir umkringdu höfuðstöðvar palestínsku leyniþjónustunnar í Ramallah á Vesturbakkanum í morgun og handtóku þar átján manns Mennirnir eru sagðir tilheyra al-Aqsa-herdeildum, sem eru hluti af Fatah-hreyfingu Mahmouds Abbas forseta. 7.3.2007 13:15
Ótrúlega margir björguðust 22 fórust þegar farþegaþota fórst skömmu eftir lendingu í borginni Yogyakarta í Indónesíu í morgun. Furðu sætir hins vegar að 112 farþegar hafi sloppið lifandi úr slysinu því flugvélin gjöreyðilagðist. 7.3.2007 13:00
Bandaríkin segja ástandið í Darfur alvarlegasta mannréttinbrot ársins 2006 Bandaríkjastjórn gaf í dag út árlega mannréttindaskýrslu sína. Í henni kom fram að ástandið í Darfur væri mesta brot á mannréttindum á síðasta ári. Bandaríkin skilgreina ástandið þar sem þjóðarmorð. 6.3.2007 23:15
Flugvelli í Venesúela lokað vegna sprengjuhótunar Yfirvöld í Venesúela lokuðu í kvöld flugvelli á ferðamannaeyjunni Margarita vegna hótunnar um að sprengja væri um borð í flugvél sem var á leið þangað. Rúmlega 100 farþegar voru um borð í vélinni sem var að koma frá Hollandi. Vélin lenti heilu og höldnu á flugvellinum og farþegarnir komust allir heilir á húfi frá borði. Lögregla er nú að leita að sprengju um borð. 6.3.2007 22:45
Vilja háhraðalest á milli Spánar og Marokkó Spænski forsætisráðherrann, Jose Luis Rodriguez Zapatero, sagði í dag að hann mundi beita sér fyrir því að jarðgöng yrðu gerð undir Gíbraltarsund til Marakkó. Göngin myndu vera fyrir háhraðalest og myndi tengja borgina Tangier í Marokkó við borgina Tarifa á Spáni. 6.3.2007 22:30
Forsetaframbjóðandi þarf erlendis í læknisskoðun Forsetaframbjóðandi stjórnarflokksins í Nígeríu, Umaru Yar'Adua, þurfti í dag að fara erlendis í læknisskoðun. Flokkurinn sagði í yfirlýsingu í dag að þetta væri venjubundið eftirlit og að Yar'Adua myndi snúa aftur fljótlega til þess að taka þátt í kosningabaráttunni af fullum krafti. 6.3.2007 22:15
Viðræður Norður-Kóreu og Bandaríkjanna ganga vel Viðræðurnar á milli Norður-Kóreu og Bandaríkjanna í dag gengu mjög vel. Þetta sagði aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna Christopher Hill við fréttamenn í dag. Hann sagði miklar líkur á því að samkomulagið sem að var sæst á þann 13. febrúar síðastliðinn myndi halda. „Þetta voru mjög góðar viðræður.“ sagði Hill. 6.3.2007 22:00
Cheney vonsvikinn Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, lýsti í kvöld yfir miklum vonbrigðum með úrskurðinn í máli fyrrum aðstoðarmanns hans, Lewis „Scooter“ Libby. Libby var í dag fundinn sekur um að hafa logið að alríkislögreglunni og hindra rannsókn þeirra. 6.3.2007 21:30
Ópíumframleiðslan eykst stöðugt Hersveitir Atlantshafsbandalagsins í Afganistan hófu í dag sína hörðustu sókn til þessa gegn uppreisnarmönnum í suðurhluta landsins. Vegna ástandsins í landinu stefnir í að ópíumframleiðsla á árinu verði meiri en dæmi eru um. 6.3.2007 19:00
Mannskæður jarðskjálfti í Indónesíu Óttast er að í það minnsta sjötíu manns hafi farist í tveimur jarðskjálftum sem riðu yfir Súmötru í Indónesíu í morgun. Engin flóðbylgja myndaðist vegna skjálftanna en miklar skemmdir urðu hins vegar á mannvirkjum. 6.3.2007 18:45
Á annað hundrað pílagrímar látnir Að minnsta kosti 112 pílagrímar liggja í valnum eftir fjölmörg hryðjuverk í Írak í dag. Versta árásin var framin í borginni Hillah en þar laumuðu tveir menn gyrtir sprengjubeltum sér inn í helgigöngu sjía sem var á leið til hinnar helgu borgar Karbala. Yfir níutíu fórust í því hermdarverki. 6.3.2007 18:30
Kínverjar auka umsvif sín í geimnum Kínverjar ætla sér að skjóta sinni fyrstu tunglkönnunarflaug á loft seinna á þessu ári. Huang Chunping, háttsettur starfsmaður kínversku geimferðastofnunarinnar, staðfesti þetta í dag. „Við teljum það heldur ekki óraunhæft að koma manni á tunglið á innan við 15 árum.“ sagði hann enn frekar. 6.3.2007 17:49
Libby sekur Lewis „Scooter“ Libby, fyrrum aðstoðarmaður Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, var rétt í þessu fundinn sekur um að hindra framgang réttlætisins. Hann var sakaður um að hafa lekið nafni útsendara bandarísku leyniþjónustunnar til fjölmiðla. 6.3.2007 17:00
Latur þjófur Belgiska fornmunasalanum Johan Dumon brá í brún þegar hann kom heim úr sumarfríi og uppgötvaði að verslunin hans hafði verið tæmd. Johan var reyndar sestur í helgan stein og verslunin hafði verið lokuð í þrjú ár, en þar átti þó að vera enn mikið af verðmætum munum. 6.3.2007 16:52
Fróaði sér yfir farþega Tvítugur starfsmaður bandaríska flugfélagsins Northwest Airlines hefur verið handtekinn fyrir að fróa sér yfir farþega. Kona sem var farþegi í flugi frá Seattle til Minneapolis var að reyna að sofa og í svefnrofunum fann hún sessunaut sinn snúa sér að henni, þar sem hún hafði snúið sér út á hlið. 6.3.2007 16:27
Flaug á hús tengdamóður Bandarískur maður varð sjálfum sér og átta ára gamalli dóttur sinni að bana í Indíanafylki í gær, þegar hann flaug einshreyfils Cessna flugvél sinni á hús fyrrverandi tengdamóður sinnar. Tengdamóðurina sakaði ekki. 6.3.2007 15:41
Hátt í sjö hundruð handteknir í Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur nú handtekið 675 manns í tengslum við óeirðirnar vegna niðurrifs Æskulýðshússins á Norðurbrú í borginni. Jótlandspósturinn hefur eftir lögreglu að nítján manns hafi verið handteknir í gærkvöld og nótt og þá voru sex handteknir í morgun fyrir að kveikja í bíl. 6.3.2007 15:38
Elgur stangaði þyrlu til jarðar Þegar líffræðingurinn Dough Larsen skaut deyfingarpílu í stóran elgtarf í Juneau í Alaska, um helgina, átti hann von á því að dýrið hnigi niður. Larsen skaut tarfinn úr þyrlu, sem sveimaði rétt yfir jörðu og beið þess að hann félli. Þess í stað trylltist tarfurinn, réðst á þyrluna og stangaði hana. 6.3.2007 15:16
Segja Putin reka morðsveitir Vestrænir fjölmiðlar velta fyrir sér hvort einhver tengsl séu á milli þess að vinur rússneska njósnarans Alexanders Litvinenko var særður í skotárás og að rússneskur blaðamaður lést eftir að hafa dottið út um glugga á fjórðu hæð í íbúðarblokk í Moskvu. Íbúð blaðamannsins var á annarri hæð í húsinu. 6.3.2007 14:37
Jóakim sá brúðkaupið í sjónvarpi Jóakim Danaprins viðurkenndi fyrir fréttamönnum að hann hefði séð brúðkaup Alexöndru, fyrrverandi eiginkonu sinnar, í sjónvarpi. Prinsinn var staddur í Álaborg þar sem hann var að veita ungum vísindamönnum verðlaun fyrir uppgötvanir. Blaðamenn vildu hins vegar ekkert um verðlaunin vita en spurðu prinsinn látlaust um brúðkaupið. 6.3.2007 14:14
Áttundi hver Íraki á flótta Áttundi hver Íraki er orðinn flóttamaður að sögn yfirmanns Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Hann segir að 40-50 þúsund manns flosni upp af heimilum sínum í hverjum mánuði. Antonio Guterres upplýsti þetta á fundi Arababandalagsins í Kaíró. 6.3.2007 13:54
Forsætisráðherra brýtur umferðarreglur Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur daglega brotið umferðarreglur undanfarna mánuði með því að aka alltof hratt. Berlingske Tidende upplýsti þetta í dag. Það verður að segja ráðherranum til afsökunar að hann vissi ekki að hann væri að brjóta lög. 6.3.2007 13:51