Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bandaríkjamenn véfengja fullyrðingar Írana um geimskot Bandaríski herinn segist ekki hafa neinar sannanir fyrir því að Íranar hafi skotið eldflaug út í geim og grunar að þeir hafi aldrei gert það. Íranskir embættismenn skýrðu frá því á sunnudaginn var að þeir hefðu skotði eldflaug út í geim í rannsóknartilgangi og að hún hefði náð 150 kílómetra hæð. Hún hefði þó ekki komist á sporbaug um jörðu. 26.2.2007 23:03
Gore ekki allur þar sem hann er séður Al Gore, sem fékk í gærkvöldi óskarsverðlaun fyrir mynd sína „Óhentugur sannleikur", býr í stóru einbýlishúsi í Nashville í Tennessee ríkí í Bandaríkjunum. Það notar samtals 20 sinnum meiri orku en venjulegt heimili meðal Bandaríkjamanns. Alls var Gore rukkaður um 221 þúsund kílówatt stundir á síðasta ári en meðalheimili notar tæplega 11 þúsund kílówattstundir árlega. 26.2.2007 22:31
Rannsókn hafin á lestarslysinu í Bretlandi Breska samgöngulögreglan hóf í dag glæparannsókn á lestarslysinu sem varð á sunnudaginn var. Í ljós kom að eina öryggisstöng vantaði í lestarteinana og tvær aðrar voru skemmdar. Talið er nær öruggt að slysið hafi átt sér stað þess vegna. 26.2.2007 22:11
Forseti Gíneu skipar nýjan forsætisráðherra Forseti Gíneu, Lansana Conte, hefur loks samþykkt kröfur stéttarfélaga í landinu um að skipa nýjan forsætisráðherra. Hann hefur skipað Lansana Kouyate, sem stéttarfélögum þykir ásættanlegur, sem forsætisráðherra. Stéttarfélögin hafa staðið fyrir verkföllum í landinu í tæpa tvo mánuði og nánast lamað efnahag þess. 26.2.2007 21:00
14 láta lífið í sprengjuárás Íraskur sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp í sjúkrabíl fyrir utan lögreglustöð í þorpi nálægt borginni Ramadi í Írak í kvöld. 14 manns létu lífið og voru bæði konur og börn þar á meðal. Svæðið þar sem árásin átti sér stað er í miðju þess svæðis sem almennt er talið miðunktur uppreisnargjarna súnní múslima. 26.2.2007 20:45
Lifði af hátt fall Læknar, í Björgvin í Noregi, segja það ganga kraftaverki næst að tveggja ára drengur hafi lifað af fall út um glugga á heimili sínu í gær. Drengurinn skall á gangstétt við húsið og sá ekki á honum. Íbúð fjölskyldunnar er á fjórðu hæð. 26.2.2007 19:15
Serbar ekki sekir Serbneska ríkið ber ekki beina ábyrgð á þjóðarmorðum í Bosníustríðinu. Þetta er niðurstaða Alþjóðadómstóls Sameinuðu þjóðanna sem þó úrskurðaði að Serbía hefði brugðist skyldum sínum, samkvæmt alþjóðalögum, með því að koma ekki í veg fyrir þjóðarmorðin í Srebrenica fyrir tæpum 12 árum. 26.2.2007 18:45
Grafhýsi Jesú fundið? Jesús var í sambandi við Maríu Magðalenu og þau áttu son sem hét Júdas. Þessu er haldið fram í nýrri heimildamynd sem Hollywood framleiðandinn James Cameron framleiðir. Í henni er grafhýsi sem fannst árið 1980 rannsakað. Myndin heldur því fram að grafhýsið hafi verið í eigu fjölskyldu Jesú og að DNA sýni sanni að hinn eini sanni Jesú hafi verið grafinn þar. 26.2.2007 17:00
Þak hrundi á hóteli í Ríó Í það minnsta tveir létust og tíu slösuðust þegar þak hrundi yfir inngangi á hóteli í Río höfuðborg Brasilíu í dag. Hótelið er við Copacabana ströndina í Ríó sem er geysivinsæl af ferðamönnum. Ekki er vitað hvort fólkið var gestkomandi á hótelinu, eða vegfarendur á götunni. 26.2.2007 16:30
Fjórir Frakkar skotnir til bana í Saudi Arabíu Að minnsta kosti fjórir Frakkar voru skotnir til bana nálægt borginni Medina í Saudi Arabíu í dag. Einhverjir mannanna voru múslimar. Háttsettur stjórnarerindreki staðfesti við Reuters fréttastofuna að átta manna hópur Frakka hefði orðið fyrir skorárás á vegi rétt utan við borgina. Vegurinn er í gegnum víðáttumikla eyðimörk og liggur til hinnar helgu borgar Mekka. 26.2.2007 16:11
Bretar senda 1400 hermenn til Afghanistan Fjórtán hundruð breskir hermenn verða sendir til Afghanistan og verður þá heildarfjöldi breskra hermanna í landinu tæplega átta þúsund. Varnarmálaráðherra breta Des Browne tilkynnti þetta á þinginu í dag. Hann sagði að ríkisstjórnin hefði tekið ákvörðun þegar ekki tókst að fá Nato til að efla liðsstyrk í Helmand héraði. 26.2.2007 15:51
Stykki vantaði í lestarteina Lykilstykki vantaði í skiptibúnað á lestarteinunum í Cumbria á Bretlandi þar sem lest fór út af sporinu um helgina. Einn lést og fimm slösuðust alvarlega og þótti kraftaverki næst að ekki fór verr. Sky fréttastofan greinir frá því að týnda stykkið haldi lestarteinunum í réttri fjarlægð, jafnhliða hvor öðrum. 26.2.2007 15:34
Tólf létust og varaforseti Íraks slasaðist Tólf manns létust og á fimmta tug slösuðust í sprengjuárás á ráðuneyti í Baghdad í Írak í dag. Varaforseti landsins Adel Abdul-Mahdi var í miðri ræðu þegar sprengjan sprakk og var fluttur á sjúkrahús með minni háttar meiðsl. Talið er að súnnar hafi ætlað að ráða hann af dögum með sprengjunni, en varaforsetinn er síji. 26.2.2007 14:44
Kjarnorkumál Írana rædd í London Fulltrúar sex lykilríkja í málefnum Írans funda nú í London vegna kjarnorkuáætlunar landsins. Reynt er að finna leiðir til að fá Írani til að verða við kröfum um að hverfa frá kjarnorkuáætluninni. Fundurinn var ákveðinn þegar eftirlitsaðili á vegum Sameinuðu þjóðanna staðfesti að Íranir hefðu hundsað frest til að hætta við kjarnorkuáætlun sína. 26.2.2007 13:59
Tætti í sundur fótboltavöll Serbneskur fótboltakappi gerði sér lítið fyrir og tætti grasvöll FC Mramor áhugamannaliðsins með traktor í hefndarskyni fyrir að hafa verið rekinn úr liðinu. Slvomir Milnovic er 25 ára og fór með stöðu miðjumanns hjá liðinu. Þegar honum var sparkað varð hann arfavitlaus. 26.2.2007 13:14
Þversagnir vesturveldanna Vesturveldin krefjast þess að Íranir hætti auðgun úrans annars eru þau ekki tilbúin að ræða hvort kjarnorkuáætlunin sé ólögleg. Þetta segir Gholamhossein Elham talsmaður Íransstjórnar. Hann segir vesturveldin vera í þversögn við sig sjálf - að það sé þversögn að Íranir þurfi að leggja áætlanir sínar niður til að hægt sé að ræða þær. 26.2.2007 13:07
Mannskætt flugdrekaslys Ellefu týndu lífi og rúmlega hundrað slösuðust á árlegri vorhátíð í Austur-Pakistan í gærkvöldi og nótt. Komandi vori var þar fagnað nokkuð snemma og af því tilefni var flogið með mörg þúsund litríka flugdreka. Hleypt var af byssum út í loftið og urðu sumir fyrir byssukúlum. 26.2.2007 13:00
Dæmdur í 10 ár fyrir barnamisnotkun Dómstóll í Indónesíu hefur dæmt ástralskan karlmann í tíu ára fangelsi fyrir að misnota götubörn kynferðislega. Maðurinn sem er 48 ára kennari var handtekinn í Jakarta í ágúst eftir að sjö börn höfðu sagt hann hafa misnotað sig. 26.2.2007 11:54
Varaforseti Íraks særðist í árás Adel Abdul Mahdi varaforseti Íraks slapp með skrámur þegar sprengjumenn gerðu árás á ráðuneyti í Bagdad í morgun. Sex fórust í árásinni. Enn er óljóst hvort um tilræði við varaforsetann var að ræða en æðstu embættismenn landsins hafa gjarnan verið skotmörk uppreisnarmanna. 26.2.2007 11:18
Þjóðarmorð en Serbar ekki ábyrgir Alþjóðadómstóllinn í Haag í Hollandi, æðsti dómstóll Sameinuðu þjóðanna, úrskurðaði í morgun að Serbar bæru ekki ábyrgð á þjóðarmorðum í Bosníustríðinu 1992 til 1995. Hinsvegar úrskurðaði dómstóllinn að Serbar hefðu vanrækt að koma í veg fyrir þjóðarmorð. 26.2.2007 11:03
„Græn“ Óskarsverðlaunahátíð Al Gore og herferð hans gegn hlýnun loftslags vann stórt á Óskarverðlaunahátíðinni í nótt. Varaforsetinn fyrrverandi er í aðalhlutverki í myndinni An Inconvenient Truth, eða Óþægilegur sannleikur sem hlaut verðlaun sem besta heimildamyndin á hátíðinni. Myndin fjallar um orsakir og afleiðingar loftslagsbreytinga. 26.2.2007 10:14
Ég kem Dulcineia, ég kem Þegar James Van Iveren heyrði konu æpa hástöfum, í íbúð nágranna síns, þreif hann sverð afa síns ofan af vegg og þeysti til hjálpar. Hann sparkaði upp hurð nágrannans og æddi inn með brugðinn brandinn. Þetta gerðist í bæ í Wisconsin sem heitir því hljómfagra nafni Oconomowoc. 25.2.2007 20:39
Forseti Íraks veikur Jalal Talabani, forseti Íraks, er veikur og hefur verið ráðlagt að fara til Jórdaníu í rannsókn. Í yfirlýsingu frá forsetaskrifstofunni er ekki sagt hvers eðlis veikindi hans eru, en sagt að ekki sé ástæða til þess að hafa af þeim áhyggjur. Ýjað er að því að það sé helst ofþreyta sem hrjái forsetann. 25.2.2007 19:55
Óskarsverðlaunin afhent í nótt Undirbúningur fyrir Óskarsverðlaunahátíðina er nú í fullum gangi í Los Angeles í Bandaríkjunum, en verðlaunin verða afhent í nótt og verður hátíðin í beinni útsendingu hér á Stöð 2. 25.2.2007 19:15
Dansað í konungshöllinni Hinrik Danaprins var með Dorrit Moussaieff, forsetafrú Íslands, upp á arminn í afmælisveislu Haraldar Noregskonungs, í Ósló í gær. Haraldur er sjötugur og var slegið upp mikilli veislu í konungshöllinni. Þar stigu Dorrit og forsetinn léttan dans. 25.2.2007 19:00
Segjast hafa skotið geimflaug á loft Íranar segjast hafa náð því takmarki sínu í gær að skjóta geimflaug á loft sem hafi síðan farið út fyrir gufuhvolf jarðar. Sérfræðingar segja að ef það reynist rétt geti Íranar hæglega smíðað langdrægar eldflaugar sem breyti stöðunni í kjarnorkudeilu þeirra við vesturveldin. 25.2.2007 18:45
Segir Írana hætta afskiptum af Írak Íranar hafa hætt að þjálfa íraska hryðjuverkamenn og sjá þeim fyrir vopnum, á síðustu vikum, að sögn háttsetts írasks embættismanns. Hann telur að þeir vilji sjá hvort sókn bandarískra og íraskra hermanna í Bagdad geti leitt til friðar í höfuðborginni. 25.2.2007 17:48
Setti frúna nakta á netið Ítalskri konu var brugðið, í gær, þegar hún frétti af því að eiginmaður hennar hafði árum saman sett myndir af henni á internetið, bæði þar sem hún var í baðherberginu, og eins þegar þau nutu ásta í svefnherbergi sínu. Það var ítalska lögreglan sem lét hana vita af þessu. Maðurinn kveðst ekki hafa vitað að þetta væri ólöglegt. 25.2.2007 17:23
Dýravinir vilja skjóta fíla Náttúruverndarsamtökin World Wildlife Fund segja að Suður-Afríkumenn verði að íhuga að byrja að grisja fílahjarðir, á nýjan leik, ekki síst í Kruger þjóðgarðinum. Þetta er vegna þess að fílum hefur fjölgað svo mikið að lífríkið stendur ekki undir ágangi þeirra. Grisjun var hætt árið 1994 eftir mikla mótmælaöldu. Nú eru fílarnir hinsvegar orðnir yfir 12 þúsund talsins og hvorki nóg pláss né nóg að éta. 25.2.2007 17:17
Svíar skutu á glugga Saddams Þegar Saddam Hussein keypti skothelt gler í eina af fimmtíu höllum sínum, var hann að vonum kröfuharður. Hann vildi vera viss um að glerið væri í raun skothelt. Sænska blaðið Borås Tidning segir að til að tryggja það var haft samband við sænskt fyrirtæki sem fékk glerið til sín, í Borås. Fyrirtækið hafði svo samband við sænska herinn til þess að fá hann til að skjóta á glerið með kúlum sem eiga að fara í gegnum brynvörn. 25.2.2007 16:03
Boðar vantraust á tvo ráðherra Hollenski þingmaðurinn Geert Wilders ætlar að leggja fram vantraust á tvo ráðherra í nýrri ríkisstjórn Hollands, þegar þingið kemur saman eftir helgi. Ráðherrarnir eru báðir innflytjendur og múslimar sem hafa tvöfaldan ríkisborgararétt. Annar þeirra er frá Marokkó og hinn frá Tyrklandi. 25.2.2007 15:08
Fagnar afmæli þrátt fyrir óðaverðbólgu Robert Mugabe, forseti Simbabve, fagnaði 83 ára afmæli sínu í gær. Talið er að jafnvirði tæplega 70 milljóna íslenskra króna hafi verið varið í veisluna. Spenna hefur magnast í landinu í liðinni viku. Verðbólga mælist nú 1600%. 25.2.2007 13:00
Dorrit með Hinriki í afmælisveislu Hinrik Danaprins var með Dorrit Moussaieff, forsetafrú Íslands, upp á arminn í afmælisveislu Haraldar noregskonungs, í Ósló í gær. Haraldur er sjötugur og var slegið upp mikilli veislu í konungshöllinni. 25.2.2007 12:30
Mannskæðar árásir í Írak Að minnsta kosti 50 hafa fallið í sjálfsvígssprengjuárásum í Írak síðasta sólahringinn. Nouri al-Maliki, forsætisráððherra landsins, sagði skömmu fyrir mannskæða sprengingu um miðjan dag í gær að ofbeldisverkum hefði fækkað í höfuðborginni, Bagdad, síðan ný herferð Bandaríkjahers gegn andspyrnumönnum hófst fyrir rúmri viku. 25.2.2007 12:26
Ísraelskir hermenn loka Nablus Ísraelskar hersveitir hófu í dag áhlaup á nokkur hverfi í bænum Nablus á Vesturbakkanum. Vitni segja hermenn á fjölmörgum herbílum hafa umkring fjölda bygginga, þar á meðal tvö sjúkrahús í borginni. Útgöngubann hefur verið sett á og samkvæmt fréttavef BBC hefur vegum verið lokað. Tugþúsundir Palestínumanna eru lokaðir inni í bænum, vegna útgöngubannsins. 25.2.2007 10:58
Samgönguráðherra biðst afsökunar Samgönguráðherra Noregs hefur beðið landsmenn afsökunar á því að þúsundir manna sátu fastir í bílum sínum klukkustundum saman, í snjókomunni í gær. Liv Signe Navarseti kennir um útboðum á viðhaldi vega, þar sem meira sé hugsað um verð en gæði þjónustunnar. Hún er þó ekki á því að Vegagerðin taki aftur við viðhaldi og mokstri. 24.2.2007 21:02
Bensínbíll sprengdur við mosku Að minnsta kosti 40 manns létu lífið og yfir 60 særðust þegar bensínflutningabíll með áfestum sprengjum sprakk í loft upp í grennd við mosku Súnní múslima í Írak í dag. Í gær gagnrýndi klerkur moskunnar hryðjuverkasveitir al-Kæda og er talið að árásin hafi verið gerð í hefndarskyni fyrir það. Konur og börn voru meðal hinna föllnu. 24.2.2007 20:46
Óheppnir hryðjuverkamenn Þrír pakistanskir hryðjuverkamenn, á reiðhjóli, sprungu í loft upp þegar þeir fóru yfir hraðahindrun í Punjab héraði, í Pakistan, í dag. Sprengjan sem þeir voru með mun hafa verið heimatilbúin, en ekkert er vitað um hvar þeir ætluðu að koma henni fyrir. 24.2.2007 20:11
Fjögur stór vötn undir íshellunni Vísindamenn hafa uppgötvað fjögur stór stöðuvötn undir íshellu Suðurskautslandsins. Vísindamennirnir segja að vötnin hafi mikið að segja um hversu hratt íshellan brotnar og breytist í borgarísjaka sem rekur á haf út. Þetta kemur fram í vísindatímaritinu Nature. Þeir segja líka að það sé mikilvægt að skilja eðli samspils vatnanna og íssins til að geta spáð nákvæmar fyrir um afleiðingar loftslagsbreytinga. 24.2.2007 20:00
Þak á stórverslun hrundi í Danmörku Tvö hundruð fermetra þak stórverslunar í Danmörku hrundi undan snjóþunga í nótt. Engan sakaði og framkvæmdastjóri verslunarinnar þakkar fyrir að þetta gerðist ekki á afgreiðslutíma. 24.2.2007 19:15
Rannsakað hvað olli lestarslysi Yfirvöld í Bretlandi rannsaka nú hvað olli lestarslysi í norðvesturhluta landsins í gær. Kona á níræðisaldri týndi lífi í slysinu og átta liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi. 120 manns voru um borð. Lestin var á leið frá Lundúnum til Glasgow þegar allir níu vagnar hennar fóru af sporinu í vatnahéraði Cumbríu norðvestur af Lundúnum. 24.2.2007 19:00
Banna reykingar í heimahúsum Í Bandaríkjunum er nú stefnt að því að banna fólki að reykja á heimilum sínum og er slíkt reykingabann raunar víða komið á nú þegar. Þá eru einstök bæjarfélög búin að banna einnig reykingar utan dyra. Aðstandendur bannsins blása á mótmæli reykingamanna og segja að þeir hafi einfaldlega engin réttindi, það sé þvert á móti réttur allra manna að anda að sér fersku lofti. Reykur geti síast á milli íbúða. 24.2.2007 15:56
Risastór hola gleypti mörg hús Að minnsta kosti tveir létu lífið og fleiri er saknað eftir að jörðin opnaðist undir húsum þeirra í fátækrahverfi í Guatemalaborg, í gærkvöldi. Risastór eitthundrað metra djúp hola opnaðist skyndilega og gleypti húsin. Yfir eittþúsund hús voru rýmd af ótta við að holan stækkaði. 24.2.2007 15:09
Nær allur pakistanski flugflotinn í bann Pakistanska flugfélagið PIA er að íhuga að leigja bæði flugvélar og áhafnir vegna yfirvofandi banns Evrópusambandsins á meira en þrjá fjórðu af flugflota félagsins, af öryggisástæðum. Flugfélagið á 42 flugvélar og öllum nema sjö þeirra verður bannað að fljúga til aðildarríkja Evrópusambandsins, á næstu dögum. 24.2.2007 13:45
Rottugangur á KFC/Taco Bell stað í New York Þær voru hungraðar rotturnar sem hlaupu um gólf KFC/Taco Bell veitingastaðarins í New York snemma í gærmorgun. Sjónvarpsstöð í borginni náði myndum af rottunum þar sem þær klifruðu upp í barnastóla og hlupu milli borða í leit að æti. 24.2.2007 12:45